24 stundir - 04.10.2008, Page 18

24 stundir - 04.10.2008, Page 18
18 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 24stundir FÉ OG FRAMI frettir24stundir.is a Ég held að sá valkostur að auka gjaldeyrisforða Seðla- bankans sé ekki fyrir hendi eins og ástandið er. SALA JPY 1,0796 0,04% EUR 156,47 0,38% GVT 207,59 0,38% SALA USD 113,42 0,45% GBP 199,61 0,32% DKK 20,971 0,41%               !""#                      !   " #  $    % &'()* &   + ,- ./-  0        12    '    '3.   .4 2  *5 / 62 7  ,      8 2    8     ,/  !  "                                                        7,   6 , 9   " & ;< <=; <>> >? ;@@ ><A BB< <=> =B? >>C BDD DAC C;B =@B >B@ B AB< C?@ B@ B>D ?DC > @D< <DB <>; CC BDD D;= @@C >CB ;C; ?BB < ><C >DC ?=@ >A? C@? B?= DCB ;BD B @>; ;@> B A?C C=> C A<; ??C >C ;AA =C; + + + CA ?D@ ;?= + + @EBC <E?D CDE>= >EA; <E?= + C@EAA @A<E== C?ED= ;CE>= BEC= DE=; ;DED= C?>E== CC;=E== C@AE== C@CE== + + + BA;=E== + + @EB@ >E=< CDE@A >E@B <E?C <E?C C@E?= @A>E== C?E?= ;BEC= BE<= DEC= ;;E== C?DE== B===E== CD;E== C@AE== BCE<= CE@= + B@==E== C=EA= AE== ./  ,  C; >? CC= B== CAD B= C; ABD >@A <> C? C;A AB C A A >@ + + + > + + F  , , < C= B==; < C= B==; < C= B==; < C= B==; < C= B==; < C= B==; < C= B==; < C= B==; < C= B==; < C= B==; < C= B==; < C= B==; < C= B==; B? ? B==; < C= B==; < C= B==; < C= B==; C@ D B==; B> ? B==; < @ B==; < C= B==; B? ? B==; D < B==; ● Heildarviðskipti í Kauphöllinni á Íslandi í gær námu 81 milljarði króna. Þar af voru viðskipti með skuldabréf fyrir 62,4 milljarða og með hlutabréf fyrir 18,6 milljarða. ● Mest hlutabréfaviðskipti voru með bréf Landsbankans, eða fyrir 11,3 milljarða, og fyrir 4,7 millj- arða með bréf Kaupþings. ● Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,2% og er lokagildi hennar 3.127 stig. ● Mest lækkun varð á bréfum SPRON, 17,4%. Hlutabréf Eik banka lækkuðu um 7,5%, bréf Atorku Group lækkuðu um 6,5% og bréf Icelandair Group um 3,4%. ● Mest hækkun varð á bréfum Landsbankans, um 4,2%. Þá hækkuðu bréf Atlantic Petroleum um 3,4% og bréf Exista um 0,2%. MARKAÐURINN Í GÆR Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@24stundir.is „Evran verður væntanlega tekin hér upp [á endanum]. Ferlið mun hins vegar taka nokkur ár,“ segir svissneski hagfræðingurinn Beat Siegenthaler sem var hér á landi í gær, en hann fundaði með starfs- mönnum Seðlabankans, Kaup- þings og fleirum um ástandið í efnahagsmálum. Vill ekki benda á sökudólg Siegenthaler starfar hjá TD Sec- urities í Lundúnum en bankinn hefur ábyrgst um 60% allra jökla- bréfa sem gefin hafa verið út. Vegna langra viðskipta bankans í íslenskri krónu hefur stundum verið sagt að Siegenthaler sé mað- urinn sem hafi örlög krónunnar í hendi sér. „Krónan hefur fallið eitthvað um 70% og enginn hefur áhuga á að tapa svona miklum peningum,“ segir Beat aðspurður hvort hans eigin viðskiptavinir séu almennt farnir að falla frá við- skiptum með krónu. „Ég held að það þjóni engum tilgangi að benda á sökudólg. Það sá enginn þetta ástand fyrir.“ Beat segir aðstæður hér á landi gríðarlega erfiðar og að ástandið eigi sér engin fordæmi. „Það er lít- ið traust á krónunni. Það verður gríðarlega erfitt að endurheimta þetta traust.“ Spurður hvort hann telji að gengisvísitala krónunnar haldi áfram að lækka mikið umfram 200 stigin segir Siegenthaler að þörf sé á veigamiklum aðgerðum til að bjarga krónunni, það sé alveg ljóst. „Ég held að sá valkostur að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans sé ekki fyrir hendi eins og ástandið er. Eina leiðin fyrir Ísland er að fá aðstoð frá öðrum seðlabönkum.“  Hinn svissneski Beat Siegenthaler segir aðstoð frá erlendum seðlabönkum einu leiðina til þess að styrkja gjaldeyrisvaraforðann ➤ Kreppa er yfirvofandi áheimsvísu, Ísland verður þar ekki undanskilið. ➤ Í sögulegu samhengi verðurkreppan dýpri og erfiðari að mati Beat Siegenthaler. ➤ „Miðað við smæð landsinsverður þetta mjög erfitt, en á endanum mun efnahagurinn rétta sig af.“ KREPPAN ER YFIRVOFANDI Lítið traust á krónu ● Úrvalsvísitalan Lækkun um 0,23% í gær eftir að hafa farið niður um 3,2% fyrr um dag- inn. Landsbankinn hækkaði mest eða um 4,20% og var velta með bréf bankans 11,3 milljarðar króna. ● Kaupþing Óskað hefur ver- ið eftir því við einstaklinga sem eru í ákveðinni tegund viðskipta hjá bankanum, sem kalla má samninga um gengismun (e. Contract for Differences (CFD), að þeir leggi fram hærri tryggingar en áður fyrir kaupum á hlutabréfum. Hingað til hafa þeir einstaklingar sem eru í viðskiptum af þessu tagi lagt inn 10-20% af þeirri fjárhæð sem kaupa á fyrir en í lok dags eru viðskiptin gerð upp. ● Árni Oddur Þórðarson Stjórnarformaður Marels, segir ummæli Gylfa Magn- ússonar, dósents við HÍ, um greiðsluþrot fjármálakerf- isins í hádegisfréttum RÚV í gær algerlega óábyrg. Um- mælin skaði ekki einungis hluthafa heldur geri lítið úr störfum mörg þúsund starfsmanna banka og fyr- irtækja. ● Spilaborg Íslenskir spari- fjáreigendur óttast að „spila- borgin“ geti hrunið í kjölfar Glitnis. Þannig hljóðar fyr- irsögn á frétt Bloomberg- fréttastofunnar í gærmorgun. Þar er haft eftir Árna Ein- arssyni, hóteleiganda í Reykjavík, að enginn treysti neinum og í bankaheiminum skipti traustið öllu. STUTT Christine Lagarde, viðskiptaráð- herra Frakklands, segir verulega hættu á neikvæðum hagvexti í landinu á síðasta ársfjórðungi. Ef svo fer væri um formlegt sam- dráttarskeið að ræða á öðru stærsta efnahagssvæði Evrópu. Hagvöxtur var neikvæður um 0,3% á öðrum ársfjórðungi. Franska hagstofan hefur lækkað vaxtavæntingar fyrir árið 2008 úr 1,6% í júní niður í 0,9%. Þar vegur þyngst erfiður atvinnumarkaður og tekjurýrnun. Í frétt Financial Tim- es segir að gífurleg óvissa um framtíð fjármálamarkaða og fjár- málastofnana – sérstaklega í Bandaríkjunum – sverti efnahagshorfur Frakklands. Bankastjóri Evrópska seðlabankans, Jean-Claude Trichet, hefur ekki viljað tala um samdrátt en segir hafa hægst á hagvexti í Evrópu og tel- ur hættu á að það hægist enn frekar á honum. Írland var fyrsta Evr- ópulandið til að teljast formlega á samdráttarskeiði og búist er við að Bretland fari sömu leið fljótlega. gca Stefnir í samdrátt í Frakk- landi og víðar í Evrópu „Ég hef fulla trú á að botninum sé náð og við getum komist út úr þessu,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins [SA]. „Ég tel að gengið fari ekki lengra niður á við. Það er lítið sem ekkert lánsfé að koma inn í landið og á meðan eru menn að reyna að standa í skilum vegna lána. Þetta verður mjög erfitt,“ segir Vil- hjálmur. Forystumenn SA og verkalýðshreyfingarinnar eiga nú í nær stöðugum viðræðum um leið- ir út úr efnahagsvandanum. þþ „Þetta verður mjög erfitt“ Breska fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að hækka þá vernd sem innistæður sparifjáreigenda njóta í breskum bönkum, úr 35 þúsund pundum í 50 þúsund pund, jafn- virði um 10 milljóna íslenskra króna, fyrir hvern sparifjáreig- anda. AP-fréttastofan greinir frá þessu. Hækkunin nær til innlánsreikn- inga Kaupþings og Landsbankans í Bretlandi, Kaupthing Edge ann- ars vegar og Icesave hins vegar. Forsvarsmenn bankanna fagna þessum breytingum. gjg Tryggingar hækkaðar

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.