24 stundir - 04.10.2008, Síða 24

24 stundir - 04.10.2008, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 24stundir Geir H. Haarde forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína í Alþingi í gær. Margir höfðu búist við að í henni yrðu kynntar að- gerðir ríkisstjórnarinnar til að takast á við efnahagskreppuna. Geir kynnti engar beinar aðgerðir en sagði Íslendinga ekki gefast upp þó á móti blási, „örvænta eða leggja árar í bát í þeim stórsjó sem þjóðarskútan siglir nú í gegn- um“. Hann sagði ríkisstjórnina mundu láta einskis ófreistað til að jafnvægi myndaðist á ný og lækka verðbólgu og vexti og að hún vildi forðast aukið atvinnuleysi en benti þó á valdaleysi ríkisstjórnarinnar varðandi ytri aðstæður. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna óskuðu allir eftir aðgerðum og buðu fram krafta sinna flokka til að takast á við vand- ann. fifa@24stundir.is Álit: Hvað fannst þér um stefnuræðu forsætisráðherra Kynnti engar beinar aðgerðir Mér fannst þetta sorg- legt. Forsætisráð- herrann hafði bara akkúrat ekkert að segja, ekkert sem skipti máli fyrir mig allavega. Ég hefði í rauninni bara viljað að við hefðum forsætisráð- herra sem tæki á þeim málum sem væru uppi. Segir það ekki allt? Mér finnst þetta svakalegt. Elísabet Rónaldsdóttir kvikmyndagerðarkona Ávarpið sorglegt Geir sagði ekkert Mér fannst ræða for- sætisráðherra, Geir H. Haarde, voðalega inni- haldslaus. Ég átti von á einhverri aðgerðaáætl- un eða að minnsta kosti skilaboðum til þjóðarinnar sem stendur á öndinni út af ástandinu í efnahagsmálunum. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Guðjón Guðmundsson, blaðamaður á Viðskiptablaðinu Þjóðin stendur á öndinni Varð fyrir vonbrigðum HRINGIÐA lfrettir@24stundir.is a Þessi aukna þekking og við- horfsbreyting hjálpar við að fyr- irbyggja kynferðislega misnotkun. Eftir Sigurð Boga Sævarsson sigbogi@simnet.is „Viðbrögðin eru mjög góð og við finnum fyrir auknum áhuga á ít- arlegri fræðslu fyrir fólk sem starfar með börnum. Ég tel að óöryggi valdi því að fólk tilkynnir síður of- beldi eða áttar sig ekki á mikilvægi forvarna til að koma í veg fyrir of- beldi. Okkar fræðsla snýst um að hjálpa að greina og bregðast við of- beldi gegn börnum af hugrekki,“ segir Sigríður Björnsdóttir, fram- kvæmdastjóri Blás áfram. Þekkja vísbendingar Blátt áfram hefur hleypt af stokk- unum verkefninu Verndarar barna – sem er námskeið fyrir foreldra og alla þá sem starfa með börnum og unglingum svo sem starfsfólk leik- og grunnskóla landsins. Á nám- skeiðinu er kennt að koma auga á vísbendingar kynferðislegrar mis- notkunar sem ekki eru algengar. Engu að síður, segir Sigríður, er full ástæða til að athuga vandlega ein- kenni á borð við roða, rispur og bólgur í kringum kynfæri – sem og allar þvagfærasýkingar. Líkamleg vandamál sem tengjast kvíða; svo sem þrálátur maga- eða höfuðverk- ur geta einnig gert vart við sig. Ein- kenni tengd tilfinningum og hegð- un eru þó mun algengari. „Aðsóknin að námskeiðunum Verndarar barna hefur verið góð. Ísafjörður hefur tekið föstum tök- um á þessum málum. Á næstu tveimur vikum verða þar átta nám- skeið fyrir um það bil 100 manns og stefnt er að því að 500-600 manns vestra fái fræðsluna. Einnig hefur Reykjavíkurborg sóst eftir nám- skeiðum fyrir starfsfólk og kennara grunnskóla,“ segir Sigríður sem tel- ur að miðað við höfðatölu barna landsins þurfi 11.250 þátttakendur á næstu fimm árum. Bandarísk fyrirmynd Fyrirmynd átaksins kemur frá bandarískum samtökunum sem nefna sig Darkness 2 light, sem starfað hafa frá árinu 2000. Reynsl- an af starfi þeirra er góð. „Niðurstöður frá Bandaríkjun- um sýna að tveimur mánuðum eftir að þjálfun lýkur er hin nýja þekking og viðhorfsbreyting enn til staðar hjá þátttakendum. Minna en 10% hefur gleymst,“ segir Sigríður Björnsdóttir og bætir við: „Þessi aukna þekking og við- horfsbreyting hjálpar við að fyrir- byggja kynferðislega misnotkun. Meðal þeirra breytinga sem verður vart hjá þátttakendum eftir þjálfun má nefna að þeir ræða kynferðis- lega misnotkun við börn og full- orðna, eru vakandi fyrir hugsanleg- um vísbendingum um kynferðislega misnotkun og líta óvænt í heimsókn þar sem börn eru í umsjá annarra fullorðinna.“ Bregðast við af hugrekki  Áhugi á ítarlegri fræðslu og þörf á henni  Telja að óöryggi valdi því að fólk tilkynni ekki ofbeldi  Forvarnir koma í veg fyrir það ➤ Tilgangur samtakanna er aðefla forvarnir gegn kynferð- islegu ofbeldi á börnum á Ís- landi. ➤ Verndarar barna er námskeiðfyrir foreldra og alla þá sem starfa með börnum og ung- lingum sem kennir fólki að þekkja vísbendingar um kyn- ferðislegt ofbeldi. BLÁTT ÁFRAM Blátt áfram „Okkar fræðsla snýst um að hjálpa að greina og bregðast við ofbeldi gegn börnum af hug- rekki,“ segir Sigríður Björnsdóttir. 24stundir/Frikki Hald lagt á klámblöð Lögreglan í Færeyjum lagði á miðvikudag hald á klámblöð á bensínstöð á Straumey sunnanverðri. Færeysk refsilöggjöf bannar sölu og dreifingu á klámi. Lögreglunni barst nafnlaus ábending um klámsöluna og gerði hún blöðin upptæk. Hver, hvað, hvar, hvenær? Fimm verslanir verða opnaðar í dag í nýrri verslunarmiðstöð, Korputorgi við Vesturlandsveg. Arnar Hallsson er fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins Stekkjar- brekkur sem stendur fyrir húsbygging- unni. Hvernig? Arnar segir framkvæmdirnar ganga vel og að aðstandendur hlakki til að opna. Hann kvíðir því ekki að opna versl- unarhúsnæði af þessari stærð í því óvissu- ástandi sem nú ríkir í efnahagslífi þjóðarinnar. „Ég held að það verði fjör hjá okkur í dag,“ segir hann. „Það er nú þannig að ástandið bitnar jafnt á öllum og svona hús eins og þetta á að standa í 50-60 ár og hýsa rekstur. Það mun blása með og á móti á þeim tíma. Auðvitað blæs hressilega á móti núna en við bjóðum leigu á hagstæðum kjörum og trúum því að þeir sem vilja hagræða í rekstri hjá sér flykkist til okkar svo við lítum svo á að það séu tækifæri líka í kreppunni,“ segir hann. Opna risastóra verslunarmiðstöð í dag Tækifæri í kreppunni Tónlist á bullurnar Dyraverðir eru ekki einir um að geta haldið óláta- seggjum frá skemmtistöðum. Danskir skemmti- staðaeigendur hafa nú tekið tónlistargyðjuna í sína þjónustu því þeir fullyrða að ólátaseggirnir þoli verr ákveðna tegund tónlistar en aðrar. Mikið úrval af dekkjum umfelgun opið laugardag 10-14

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.