24 stundir - 04.10.2008, Page 38
38 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 24stundir
pokahorninu þegar sólin rennur
upp á sigurhátíðinni. Að skrifta er
svipað og að tæma hugann. Það
gerum við líka í qi-gong, kannski af
því að við erum með eitthvað á
samviskunni. Það er enginn full-
kominn. Þegar fólk sækist eftir að
stunda qi-gong segi ég yfirleitt: Ef
þið eigið í útistöðum við einhvern í
fjölskyldunni, ættingja eða vini,
skuluð þið vera manneskjur til að
rétta fram sáttarhönd. Ekki
ástunda qi-gong með innibyrgða
langrækni. Langrækni er mesta
orkusuga sem til er. Fólk veit ekki
hvað það er að gera sjálfu sér með
því að vera langrækið.“
Hvað gerir qi-gong fyrir þig?
,,Það gefur mér kjark. Mér finnst
ánægjulegt að hafa komið qi-gong
af stað á Íslandi og ég vildi óska að
hér væri aðstaða þar sem fólk gæti
komið hvenær dags sem er, gert
sínar æfingar og hugleitt. Hver veit
nema sú draumsýn mín rætist.“
Undrast að vera enn í hópnum
Það styttist í frumsýningu á Hart
í bak, hvernig hefur undirbúningur
gengið?
,,Það er gott að vinna með Þór-
halli Sigurðssyni leikstjóra. Ég hef
unnið með mörgum góðum leik-
stjórum en er þakklátur fyrir það
hversu vel Þórhallur skilur mig.
Hann nær að laða það besta fram í
leikurunum. Allir leikstjórar ná að
bæta einhverju í reynslubankann
hjá manni. Sumir hafa lag á að láta
eitthvað springa út innra með leik-
urum, jafnvel eitthvað sem þeir
vissu ekki að þeir byggju yfir. Ann-
ars dáist ég að unga fólkinu, því
mér þykir gaman að sjá það vinna
og undrast hvað það nennir að
drattast með karlinn.“
Ertu stjórnsamur?
,,Ég reyni að vera það ekki en á
erfitt með það.“
Hvernig var Jökull Jakobsson?
,,Við kynntumst þegar við geng-
um saman heilan dag um götur
Keflavíkur. Hann stjórnaði út-
varpsþætti sem hét Gengið um göt-
ur Reykjavíkur en síðan fór hann
að fikra sig út á land. Vinátta okkur
Jökuls varði meðan hans naut við.
Með honum gekk góður maður.
Megi hann hvíla friði.“
Gunnar er þakklátur Tinnu
Gunnlaugsdóttur fyrir að bjóða sér
hlutverk ógæfumannsins, skip-
stjórans í Hart í bak. ,,Eftir frum-
sýningu á Engisprettunum síðast-
liðið vor sagði Tinna að hún hefði
annað hlutverk í huga fyrir mig. Ég
er stoltur af Þjóðleikhúsinu að
heiðra minningu Jökuls Jakobs-
sonar með því að setja upp þessa
sýningu í tilefni þess að hann hefði
orðið 75 ára í ár ef honum hefði
auðnast lengra líf. Og ég er þakk-
látur að fá að leika skipstjóra á
þessum tíma sem siglir þjóðarskút-
unni í strand. Slíkt á vel við í dag!“
Var sýnt umburðarlyndi
Eru leikarar óþolandi heima hjá
sér daginn fyrir frumsýningu, tómt
stress og titringur?
,,Það hefur ekki verið svo í mínu
tilfelli. Ég er svo einstaklega hepp-
inn að eiga mína yndislegu eigin-
konu og góðu dætur sem sýndu
mér alltaf mikið umburðarlyndi og
tóku tillit til mín. Stundum þarf ég
og þurfti að hafa frið og það var
virt. Ég vona að dætur mínar eigi
góðar minningar frá æskunni.“
Hvaða veganesti telurðu að þú
hafir gefið dætrum þínum út í lífið?
,,Það er annarra að svara því. Ég
stend í mikilli þakkarskuld við
móður þeirra, eiginkonu mína,
Katrínu Aradóttur. Hún hefur gert
mér kleift að lifa lífinu á þann hátt
sem ég hef kosið Við vorum stödd í
London þegar ég bað hennar. Þá
sagði hún, líklega í ljósi þess að
kaþólikkar mega ekki skilja:
,,Gunnar, ef við giftum okkur er
það skilyrði að þú flytjir heim til Ís-
lands og farir aftur að leika.“ Ég
sagðist lofa því. Þá bætti hún við:
,,Og það verður skilnaðarsök ef þú
hættir að leika, góði minn, sama
hvað kaþólska kirkjan segir.““
Hvernig líður þér heima eftir erf-
iða sýningu þar sem þú hefur gefið af
þér í heilt kvöld?
,,Stundum er gott að fá að vera í
næði og njóta þagnarinnar en í
flestum tilfellum þykir mér best að
tala við konuna. Það er nauðsyn-
legt að eiga góða að. Ef hún er farin
að sofa, fer hún á fætur og heldur
mér félagsskap. Það þykir mér
gott.“
Myndirðu vilja búa með sjálfum
þér?
,Nei, ég gæti það ekki.“
Ertu nokkuð að syndga meðvitað?
,,Maðurinn er fæddur með
frjálsan vilja sem er í sjálfu sér stór-
kostlegt. Enginn neyðir þig til að
syndga. Þú velur að brjóta lögin
sjálfur. Það er eins og eitthvað taki
yfir, maður missir stjórnina. Við
erum öll frjáls og getum hafnað
Kristi. En Kristur segir: ,,Sjá, ég
stend við dyrnar og kný á.““
Hvenær ertu næstur Guði?
,,Hann lætur mig aldrei í friði.
Hann er alls staðar. Ég þarf ekki að
fara í kirkju til að tala við Guð.
Hann bankar oft upp á. Ein mesta
opinberun í trú felst í setningunni
sem Kristur Maríuson sagði: ,,Sá
yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta
steininum.“ Ef einhver annar
trúarleiðtogi hefur sagt eitthvað
betra en þetta vildi ég gjarnan fá að
heyra það.“
Hugsarðu um dauðann?
,,Ég signi mig daglega af því að
ég trúi á krossinn en það er vegna
áhrifa frá ömmu minni sem sagði:
,,Gunnar minn, það fer ekkert illt í
gegnum krossinn. Og mundu
það.““
Veltir sér ekki upp úr fortíðinni
Einhver eftirsjá?
,,Eflaust hef ég ástæðu til að sjá
eftir einhverju en ég velti mér ekki
upp úr því. Við megum aldrei jarða
okkur í fortíðinni. Við eigum að
leitast við að finna styrk okkar í líð-
andi stund, í núinu, og í krafti þess
takast á við framtíðina sem við
höfum ekki hugmynd um hver er.
Við skipuleggjum en annar ræður,
oftast.“
Áttu eftir að leika eitthvert hlut-
verk?
,,Ég á eftir að deyja.“
Kvíðirðu því?
,,Nei.“
Hvað tekur við?
,,Ég á mér von en ég veit ekki
hvað tekur við.“
Hvernig viltu að þín sé minnst?
,,Bara sem góðs manns, eigin-
manns, föður, afa, vinar.“
Gunnar segist hugleiða á
morgnana og kvöldin og stundum
um miðjan dag ef tími gefst til.
,,Vitur maður, ábóti úr Benedikt-
ínareglunni, sagði eitt sinn: ,,Við
biðjum of mikið. Við hlustum ekki
nóg. Við eigum að gera okkur að-
gengileg með því að sitja og hugsa í
spennulausu ástandi. Um leið og
hugsun leitar á hugann eigum við
að segja í huganum: ,,Nei, ég er að
gera mig aðgengilegan fyrir kraft-
inum mikla. Kínverskur qi-gong-
meistari sagði: ,,Þegar hugsun leit-
ar á hugann, líttu á hana sem lítinn
fugl sem sest á gluggasylluna. Hann
sér þig í gegnum rúðuna og segir
þá við sjálfan sig: Hann er að hvíla
hugann. Ég ætla að koma seinna.
Og fuglinn flýgur burt.“
a
Ég signi mig
daglega af því
að ég trúi á
krossinn en það er vegna
áhrifa frá ömmu minni
sem sagði: ,,Gunnar
minn, það fer ekkert illt í
gegnum krossinn. Og
mundu það.“
24stundir/Kristinn
Leikarinn Gunnar segir að
eflaust hafi hann ástæðu til
að sjá eftir einhverju en hann
velti sér ekki upp úr því.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á síðustu sætunum til
Búdapest 23. október. Bjóðum ótrúlegt sértilboð á gistingu á
Hotel Novotel Centrum sem er gott og mjög vel staðsett fjögurra
stjörnu hótel. Búdapest er ein fegursta borg Evrópu og haustið er
einstakur tími til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heimsferða
gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi
menningu. Búdapest býður einstakt mannlíf, menningu og
skemmtun að ógleymdri getrisni Ungverja auk frábærra veitinga-
og skemmtistaða.
Þetta eru síðustu lausu sætin til Búdapest í haust!
Verð kr. 49.990 - helgarferð
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 3 nætur á Hotel Novotel Centrum ****
með morgunmat. Sértilboð 23. október.
Frábært sértilboð - einstök helgarferð!
Búdapest
23. október
frá kr. 49.990
Ótrúlegt sértilboð
Frábær gisting
Hotel Novotel Centrum
* * * *