24 stundir - 07.10.2008, Side 12

24 stundir - 07.10.2008, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 24stundir *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. 30 bitar 2.930 kr. 20 bitar 2.650 kr. FERSKT EINFALT& ÞÆGILEGT PANTAU SÓMAVEISLUBAKKA Pantaðu í síma5656000eða á www.somi.isFrí heimsending* 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Magnús Halldórsson Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Eftir að markaðir opnuðu í gær varð ljóst að hver þjóð sér um sig í fjár- málakreppu heimsins. Lánalínur Íslendinga lokuðust. Íslensku bankarnir eru nú á eigin ábyrgð. Ríkið hefur ekki efni á að verja bankana. Hluthaf- arnir munu því tapa. Ríkisstjórnin lofar að hugsa um hag almennings. Gjaldþrot? Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segist sannfærður um að einhver bankanna okkar komi sér út úr kreppnni. En hvaða? Nú þurfa Íslendingar að halda haus. Þeir eru við það að glata trúverð- ugleika sínum á erlendri grund. Rétt eins og Davíð Oddsson seðlabanka- stjóri sagði, að yrðu innistæðurnar ekki tryggðar myndi fólk hætta að spara í marga áratugi, þá mun orðstír okkar á erlendri grundu bíða hnekki fari bankarnir í þrot. Af hverju? Af því að við buðum bankaviðskipti án þess að bankarnir hefðu tryggt bakland. Af hverju? Af því að bankarnir nýttu sér fjárflæðið á alþjóðamarkaði og stækkuðu án þess að Seðlabankinn héldi í við þá. Af hverju? Það skilur enginn nú en spurt er: Var það vegna þekkingarleysis? Fólk mun krefjast svara. Hagur fjölskyldnanna er nú að veði. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í ávarpi sínu til landsmanna að ef tryggja hefði átt bönkunum örugga líflínu og allt færi á versta veg yrði þjóðin gjaldþrota. „Íslenska þjóðin og framtíð hennar gengur framar öll- um öðrum hagsmunum.“ Nú fær Íbúðalánasjóður heimild til að kaupa íbúðalánin sem bankarnir veittu frá árinu 2004. Hver greiðir fyrir þau? Þjóðin. Í 24 stundum á laugardaginn var sagt frá því að Tryggingasjóður innlána ætti fyrir einu prósenti inn- lána bankanna. Hver greiðir því innlánin að fullu, fari bankarnir í þrot? Þjóðin. Timburmenn og partýið búið eru margtuggnar klisjur sem hjálpa ekki fjölda fjölskyldna sem ramba á barmi gjaldþrots. „Ég hvet fjölskyldur til að ræða saman og láta ekki örvæntingu ná yfirhöndinni þótt útlitið sé svart hjá mörgum,“ sagði forsætisráðherra við þjóðina. Nú þurfa allir að leggjast á árarnar og rétta íslenska hagkerfið af. Núna er frumkrafan sú að ríkisstjórnin tryggi að landsmenn geti framfleytt sér svo þeir geti horft fram á veginn. Bankarnir sínir gæfusmiðir Búast má við óðaverðbólgu í kjölfarið falli krónunnar og hruni íslenska fjármálakerfisins á næstunni. Gera má ráð fyr- ir að verð- tryggðar skuldir vaxi fram úr greiðslugetu ansi margra heimila. Því hefur mig undrað, að í allri þeirri um- ræðu sem fram hefur farið undanfarnar klukkustundir, hefur ekkert verið minnst á hvort ríkisstjórnin ætli að tryggja að verðbætur verð- tryggða skulda hér á landi verði frystar, til að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot innanlands samfara snarhækkandi lánum. Eiríkur Bergmann Eiríksson eirikur.eyjan.is BLOGGARINN Frysting Vandi Íslendinga er meðal annars sá að við höfum gráan skrifstofu- mann þar sem við þurfum víg- reifan foringja, en við höfum slagsmálahunda þar sem við þurf- um mannasætta. Með vígamenn- ina Ólaf Ragnar Grímsson og Davíð Oddsson á þeim stöðum þar sem sitja ættu vammlausir sóma- menn á friðarstóli, þakkar maður bara Guði fyrir að Sigurður G. Guðjónsson skuli ekki vera bisk- up. Að biskupnum frátöldum höfum við menn sem gætu komið af stað rifrildi í tómu herbergi þar sem vera ættu menn sem bæru klæði á vopnin… Árni Snævarr arni.eyjan.is Vígamenn Hliðarverkun á yfirtöku Glitnis er, að Ísland glataði trausti. Er- lendis er talað um land hins bil- aða seðla- bankastjóra, hins ónýta fjármála- eftirlits, hinnar óheftu frjáls- hyggju í pen- ingum. Krónan hrundi, þegar Glitnir var keypt- ur. Hvort sem brýn ástæða var til kaupanna eða ekki, þá kölluðu þau á eftirfylgni. Markvissar aðgerðir stjórnvalda til að friða útlendinga hefðu átt að koma í kjölfarið. Þær komu ekki og ekki heldur einni helgi síðar. [...]allt þeirra pat og pot í heila viku hefur verið dýrasta rugl Íslandssögunnar. Jónas Kristjánsson jonas.is Dýrt rugl Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@24stundir.is Gærdagurinn verður lengi í minnum hafður. Hann var erfiður fyrir Íslendinga og óljóst er á þessari stundu hverjar verða afleiðingar þeirra ákvarðana sem þá voru teknar. Bankarnir okkar, sem hafa vaxið hratt og fjárfest víða um heim, eru nú í miklum vanda staddir. Það var því nauðsynlegt að grípa til ráðstafana. Við fram- sóknarmenn höfum beðið lengi eftir aðgerðum og undr- umst að ekki skuli hafa verið leitað eftir samstarfi við stjórnarandstöðuna. Í umræðu á Alþingi í síðustu viku lagði ég áherslu á mik- ilvægi þess að ríkisstjórnin gripi til aðgerða til að bjarga því sem bjargað yrði í þeirri lausafjárkreppu sem nú ríkir. Al- þingi kom saman í gær til að fjalla um frumvarp rík- isstjórnarinnar um heimildir til handa Fjármálaeftirlitinu til að grípa inn í aðstæður á örlagastundu. Að okkar áliti hefði átt að kalla Alþingi til strax á sunnudag til að setja neyð- arlög. Sú spurning er uppi og skiljanlega, hvernig svona lagað geti gerst. Bankarnir hafa verið gerðir upp með mikl- um hagnaði, eiginfjárstaða þeirra hefur verið sögð sterk og eignasafnið gott. Samt sem áður er staða þeirra eins og raun ber vitni í dag. Einhverjir þeirra munu ekki eiga sér framtíð í óbreyttu formi. Hluthafar munu tapa miklum fjármunum en sparifé verður tryggt. Bankarnir hafa stækk- að ört og eru einfaldlega of stórir fyrir íslenskt efnahagslíf. Talað er um að stærð þeirra nemi tólffaldri þjóðarfram- leiðslu en íslenska hagkerfið er það minnsta í heimi sem hefur sjálfstæðan gjaldmiðil. Eðlilegt er að spurt sé hvers vegna Seðlabanki eða Fjármálaeftirlit hafi ekki á einhvern hátt brugðist fyrr við útþenslu bankanna. Lagaumhverfi á fjármálamarkaði hér innanlands er á flestan hátt sambæri- legt við það sem gerist á fjármálamörkuðum í Evrópu. Það er því ekki hægt að kenna stjórnvöldum um að þar hafi verið slegið slöku við. Sé litið til þeirra álitaefna sem uppi hafa verið og varða stærð eignarhluta og form rekstrarins skal þess getið að það stenst ekki ákvæði EES-samningsins að setja skorður á eignarhluta né heldur að skipta bönkunum upp í viðskiptabanka annars vegar og fjárfestingarbanka hins vegar. Það hefur verið flogið hátt á und- anförnum árum í heimi fjármálanna en nú er komið að lendingu. Því miður varð hún harkaleg og jafnvel má tala um brot- lendingu. Engu að síður er mikilvægt að við sjáum ljósið og verðum minnug þess að í öllum erfiðleikum felast tækifæri. Loksins aðgerðir ÁLIT Valgerður Sverrisdóttir þingmaður

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.