24 stundir - 07.10.2008, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 24stundir
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Það má kannski stilla þessu upp á
þennan hátt. Ímyndaðu þér að
karlalið Vals kæmist í riðlakeppni
meistaradeildar Evrópu og and-
stæðingarnir þar væru Liverpool,
Real Madrid og Inter Mílanó.
Ólíklegt kannski en þetta er í
raun sú staða sem kvennalið Vals
er í þessa stundina en liðið fer senn
til Svíþjóðar til að taka þátt í 2.
umferð Evrópukeppni kvenna. Þar
mætir Valur tvöföldum Evrópu-
meisturum Umeå, en þar er hin
stórkostlega Marta frá Brasilíu að
iðka listir sínar, ítölsku meisturun-
um Bardelino frá Veróna og liði
Alma frá Kasakstan. Hver og ein
einasta viðureign verður erfið.
Hæfilega bjartsýnar
Þó von sé alltaf í brjóstum flestra
sem þátt taka í íþróttum eru þær
Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari,
Katrín Jónsdóttir fyrirliði, og Mar-
grét Lára Viðarsdóttir markamask-
ína einnig raunsæjar og vita sem er
að ekkert fæst gegn þessum liðum
nema með bullandi baráttu allar
90 mínútur leikjanna. Fyrsti leik-
urinn er gegn stórliði Umeå og El-
ísabet eygir von. „Þær tapa að
meðaltali einum leik á ári og
kannski ágætt fyrir okkur að mæta
þeim í fyrsta leiknum. Væntanlega
munum við spila áfram okkar leik
en hugsanlega varnarsinnaðri en
gengur og gerist. Sækja á færri leik-
mönnum og freista þess að ná stigi.
Stig gegn Umeå er ákveðinn sigur
og það tel ég vera möguleika en við
þurfum að sýna mikinn aga í okkar
leik og nýta til fulls þau tækifæri
sem gefast.“
Sammála fyrsta ræðumanni
Undir þetta taka þær Margrét
Lára og Katrín. Verkefnið sé stórt
og erfitt en ekki óyfirstíganlegt.
Margrét sjálf vonar og telur ekki
fráleitt að lið Vals verði vanmetið
af andstæðingum sínum ytra og að
það muni hjálpa heilmikið til. „Við
höfum hvorki mætt Umeå né Bar-
dolino áður og við erum óþekkt
stærð fyrir þær, held ég. Jafnvel þó
árangur okkar hingað til sé þekkt-
ur þá kæmi mér ekki á óvart að
þessi stóru lið leggi ekki of mikið
upp úr viðureigninni gegn okkur.
Vonandi kynna þær sænsku sér
líka okkar síðasta leik, bikarleikinn
gegn KR, því þar spiluðum við
meira eða minna undir getu og
höfum lært mikið af þeim leik.“
Styrkur frá Orkuveitunni
Það er ekki hlaupið að því að fá
styrki frá fyrirtækjum þessa síðustu
og verstu en Orkuveita Reykjavík-
ur hyggst leggja hönd á bagga með
Val varðandi kvennaliðið. Styrkir
fyrirtækið liðið um eina milljón
króna og sagði Hjörleifur Kvaran,
forstjóri Orkuveitunnar, aldrei
blása svo á móti að fyrirtækið hætti
að styrkja íþróttastarf. „Það er ekki
á hverjum degi sem íslensk lið eru
að ná viðlíka árangri og kvennalið
Vals hefur náð og slíkt ber að sjálf-
sögðu að styrkja og við erum stolt-
ir af að styðja við bak þeirra.“
Ekki gefið
Dagur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Vals, sagði hart í ári
fyrir alla og því væri slíkur styrkur
afar kærkominn. „Kostnaður við
keppni sem þessa er drjúgur og
ekki jafn auðvelt að sækja styrki
fyrir kvennaboltann og karlabolt-
ann. Gróflega áætlað er kostnaður
Vals við ferðir kvennaliðsins nú
um tvær milljónir króna en heild-
arkostnaðurinn við mótið í heild
sinni hingað til er kringum fimm
milljónir króna. Fari þær lengra
áfram er ekkert fjarri lagi að kostn-
aðurinn geti teygst í tíu milljónir
króna.“
Bjartsýnar þrátt fyrir allt
Katrín Jónsdóttir, Elísabet
Gunnarsdóttir og Margrét
Lára Viðarsdóttir.
Íslandsmeistarar
Vals í víking
Kvennalið Vals heldur utan til þátttöku í Evrópumótinu í knattspyrnu Elísabet Gunn-
arsdóttir, Katrín Jónsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir eru hæfilega bjartsýnar
Þyngist nú róðurinn tals-
vert hjá Val í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu.
Eftir tiltölulega auðvelda
sigra í forriðli þeirrar
keppni mætir Valur nú af-
ar skæðum keppinautum
í 2. umferð. Þar á meðal
tvöföldum Evrópumeist-
urum Umeå frá Svíþjóð.
Stelpurnar íslensku eru
þó hvergi bangnar.
Íslandsmeistararnir Á
brattann að sækja erlendis
en hugur í öllum.
➤ 9. októberFyrsti leikur Vals er jafnframt
sá erfiðasti gegn sænska lið-
inu Umeå.
➤ 11. októberMótherjinn þá er auðveldari á
pappírum en ekki mikið.
➤ 14. októberSíðasti mótherjinn er Alma
frá Kasakstan en því liði hefur
Valur mætt áður.
LEIKIR VALS
24stundir/Frikki
Sem hluti af undirbúningiVals fyrir átökin fram-undan í
Evrópukeppni
kvenna í Sví-
þjóð lék liðið
æfingaleik við
íslenska lands-
liðið í síðustu
viku og lauk
þeim leik með sigri landsliðs-
ins, 2:0. Verða það að teljast já-
kvæð tíðindi fyrir landsliðið
sem var án allra Valsara í leikn-
um en milli fimm og tíu stúlk-
ur úr Val hafa árum saman átt
fast sæti í landsliðshópnum.
Sigurður Ragnar Eyjólfs-son landsliðsþjálfari seg-ir samt ekki rétt að rýna
um of í þau úr-
slit. Um hreina
æfingu hafi
verið að ræða
og fyrst og
fremst góður
undirbúningur
fyrir bæði lið
en sem kunnugt er á landsliðið
fyrir höndum tvo umspilsleiki
gegn Írum um laust sæti á Evr-
ópumótinu í knattspyrnu
næsta sumar.
Varðandi möguleika Valsgegn Umeå, Bardolinoog Alma var landsliðs-
þjálfarinn
bjartsýnn fyrir
þeirra hönd.
„Fyrst og
fremst tel ég að
það sé kostur
fyrir Val að
mæta tveimur
erfiðustu félögunum fyrst og
eiga leikinn við Alma eftir.
Viðureignin gegn Umeå verður
mjög erfið enda stórkostlegt
félag. Ekkert útilokað þar en ég
myndi telja að stig gegn þeim
yrðu frábær úrslit fyrir Val og
það er ekkert
fráleitt að það
náist. Hvað
ítalska liðið
varðar á Valur
góða mögu-
leika þar. Þar
innanborðs
eru margar stúlkur úr landsliði
Ítala og ekkert gefið heldur eru
möguleikarnir góðir. Þriðja
leikinn á Valur að vinna og er
áberandi auðveldasta viðureign
þeirra í þessari umferð.“
Lið Vals hefur reyndarmætt liði Alma áður.Það var fyrir þremur ár-
um og þá sáu stúlkurnar úr
Alma aldrei til
sólar þó glaða-
sólskin væri.
Vann Valur þá
viðureign 8:0
en þær ís-
lensku hafa
aldrei mætt
hvorki Umeå né Bardolino.
Besti árangur Vals í um-ræddri keppni var árið2005
þegar félagið
komst í átta
liða úrslitin.
Mætti Valur þá
liði Potsdam
og eru þær við-
ureignir ekki í
neinu sérstöku uppáhaldi þar á
bæ. Var Valur algjörlega tekið í
karphúsið af þýska liðinu,
samtals 19:2, en Potsdam átti
þá Evrópumeistaratitil að
verja.
SKEYTIN INN
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Gróflega áætlað er kostnaðurinn við þáttöku
kvennaliðs Vals nú um tvær milljónir króna en
heildarkostnaður við mótið í heild sinni hingað til
um fimm milljónir króna.