24 stundir - 07.10.2008, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 24stundir
24 STUNDIR Á STAÐNUM
Leikarar í salnum Esther Talia Casey, Björn Thors og Ólafía Hrönn Jónsdóttir
voru meða áhorfenda
Í góðum félagsskap Tobias Munthe, dramatúrg sýningarinnar, ásamt Söru Guð-
mundsdóttur og Ragnheiði Steindórsdóttur.
Á frumsýningu Margrét Bóasdóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir, Þórhallur Sigurðsson
og Sjöfn Pálsdóttir létu sig ekki vanta.
Að tjaldabaki Fótboltakappinn Arnar Gunnlaugsson samfagnar unnustu sinni
Pattra Sriya sem fer með hlutverk í sýningunni.
Klassík í nýjum búningi
Leikritið MacBeth frumsýnt á Smíðaverkstæðinu
Svik, valdagræðgi og afbrýðisemi koma við sögu í hinu sígilda leik-
riti MacBeth eftir skáldjöfurinn William Shakespeare. Djörf og ný-
stárleg uppfærsla af leikritinu var frumsýnd á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins á sunnudag. Sýningin er afrakstur vinnusmiðju
leikara á Smíðaverkstæðinu og er leikstýrt af Stefáni Halli Stef-
ánssyni og Vigni Rafni Valþórssyni. Leikgerðin er byggð á þýðingu
Matthíasar Jochumssonar á verkinu og meðal leikara eru Baldur
Trausti Hreinsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Elma Lísa Gunn-
arsdóttir og Jörundur Ragnarsson.
Uppklappið Leikarar í sýningunni voru ekki allir frýnilegir
að sjá að sýningu lokinni.
24 stundir/Eggert
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is menning
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
í dag
Þriðjudagur 7. október 2008
Lee Nelson vinnur
hörðum höndum að því að
láta drauma um íslenskan
sirkus rætast.
» Meira í Morgunblaðinu
Sirkus Íslands
Atburðir síðustu átta
daga í íslensku viðskipta-
lífi raktir í samhengi.
» Meira í Morgunblaðinu
Hvað gerðist?
Eggert feldskeri sýnir
pelsa á James Bond-sýn-
ingu í London á morgun.
» Meira í Morgunblaðinu
Spæjarapelsar
Gordon Brown, forsætis-
ráðherra Breta, hefur sótt í
sig veðrið á ný vegna
fjármálakreppunnar.
» Meira í Morgunblaðinu
Kominn aftur
Bókaforlagið Veröld hefur gefið
út í kilju Páls sögu eftir Ólaf Jó-
hann Sigurðsson.
Saga Ólafs Jó-
hanns af Páli
Jónssyni blaða-
manni kom út í
þremur hlutum á
árunum 1955-
1983 og er fyrstu
tvo, Gangvirkið
og Seið og hélog,
að finna í bókinni. Lokaþáttur
bálksins, Drekar og smáfuglar, er
væntanlegur á markað á nýju ári.
Þóra Sigríður Ingólfsdóttir bók-
menntafræðingur ritar formála
að Páls sögu.
ej
Nýjar bækur
Páls saga komin
út í kilju
Skáldsagan Miðnæturbörn eftir
Salman Rushdie er komin út í ís-
lenskri þýðingu
Árna Óskars-
sonar. Sagan er
ein rómaðasta
skáldsaga síðustu
aldar og gerði
Rushdie heims-
frægan í einu vet-
fangi. Hún hlaut
hin virtu Booker-
verðlaun árið 1981 og hefur tvisv-
ar fengið viðurkenningu sem
besta Booker-verðlaunabók allra
tíma.
ej
Nýjar bækur
Ein frægasta
bók Rushdies
Þess á milli er heiti fyrstu ljós-
myndabókar Ingvars Högna
Ragnarssonar
sem er nýkomin
út á vegum Ný-
hil-útgáfunnar.
Ingvar Högni út-
skrifaðist úr
myndlistardeild
Listaháskóla Ís-
lands árið 2007
og hefur að námi
loknu tekið þátt í samsýningum
hér heima og erlendis. Nýverið
tók hann þátt í samsýningu ljós-
myndara í Lost Horse Gallery og
sýndi myndir sínar á ljóðahátíð
Nýhils 2008.
ej
Nýjar bækur
Fyrsta bók ungs
ljósmyndara
Franz Kafka var eitt af höfuð-
skáldum evrópska bókmennta á
20. öld. Nú er
komin út bókin
Bréf til föðurins
eftir Kafka í
kiljuseríu For-
lagsins. Ástráður
Eysteinsson og
Eysteinn Þor-
valdsson þýddu
og rituðu eftir-
mála en þeir feðgar hafa áður
þýtt meirihluta höfundarverks
Kafka, þar á meðal Umskiptin,
Réttarhöldin og Ameríku.
ej
Nýjar bækur
Bréf til föðurins
eftir Kafka