24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 24

24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 24stundir heimamenn taki sjálfir við og þannig sé þetta langtímahjálp. Þar sem við byrjuðum í Eþíópíu hafa innlendir menn nú tekið við og sjá um allan rekstur sjálfir og gengur það mjög vel. Það sama er að segja um starf okkar í Kenía,“ segir Skúli. „Í héraðinu Pokot, í norðvestur Kenía, búa um 500.000 manns en þegar við komum þangað var læsi nánast ekkert á svæðinu.“ Hann segir þau hafa komið á fót 63 grunnskólum og byggt 6 mennta- skóla með heimavist í landinu. „Ríkið tekur síðan við rekstri þess- ara skóla þegar þeir eru komnir á skrið. „Þegar ég kom út 1997 lauk ég einnig við að byggja fyrsta há- skólann á svæðinu. Starfsemi hans er síðan í samstarfi við háskólann í Naíróbí og ríkið. Kennarar og pró- fessorar koma frá háskólanum þar og kenna þær greinar sem þörf er á eftir aðstæðum,“ segir Skúli. Fjölskyldan Skúli og Kjellrun eiga 5 börn. „Elsta dóttir okkar var sex vikna þegar við fórum fyrst utan og síðan fæddust þrjú þeirra í Afríku,“ segir Skúli. Hann segir börnin hafa plumað sig mjög í þessu umhverfi og átt sín leiksystkin. „Þau gengu síðan í norskan heimavistarskóla því menntunarkerfið þarna úti er gjörólíkt því íslenska. Við fluttum heim ’84 þegar þau voru á mennta- skólaaldri og fluttum ekki út aftur fyrr en 1997.“ Ný trú og nýir siðir Fólk á þessum svæðum hafði sína eigin trú þegar þau komu fyrst út en Skúli segir það hafa verið einkar móttækilegt fyrir kristnum boðskap. „Fræðslan hjá okkur byrjar með biblíusögum og fólkið fer svo gjarnan af stað og fræðir aðra. Það hefur reyndar verið svo að við báðum það að fara ekki svo geyst því ákafi þess var mikill en við viljum geta komið boðskapn- um og hugmyndafræðinni vel frá okkur, auka þekkinguna og dýpka skilninginn. Annars er hætta á að trúin blandist hjátrú og taki annars konar stakkaskiptum,“ segir Skúli. Hann segir sífellt spretta upp nýja söfnuði svo þau hafi vart undan að fræða fólkið. „Það er því fremur að fólkið ýti á okkur að fræða sig en við ýtum á það,“ bætir hann við. Hann segir hins vegar að fyrst og fremst þurfi að nálgast fólkið á eig- in forsendum í kristniboðinu. „Við þurfum að setja okkur inn í hugs- anagang þess sem er töluvert ólíkur því sem við eigum að venjast. Við reynum þannig að koma trúnni inn í menningu þeirra án þess að gera eins konar aðför að þeirri menningu sem fyrir er,“ segir Skúli og bætir við að það sé grundvöllur þess að kristinn boðskapur geti þrifist þar og verði fólkinu ekki of framandi. „Þannig getur það tekið við og haldið starfinu áfram á eigin spýtur.“ Skúli segir starfið hafa gengið vonum framar og þróunina ótrú- lega. Hann segir að ennfremur hafi þau fjölskyldan tengst nágrönnum sínum og samstarfsfólki sterkum böndum. Við störf Skúli Svavarsson fræðir hóp af Keníamönnum. Hjónin Skúli Svavarsson og Kellrun Langdal hafa starfað við kristniboð í þrjá áratugi Líf og starf í Afríku Skúli Svavarsson og eig- inkona hans Kjellrun Langdal hafa starfað sem kristniboðar frá árinu 1967 og búið 17 ár sam- fleytt í Afríku. Þau starfa á vegum Sambands ís- lenskra kristinboðsfélaga SÍK og hafa á síðast- liðnum þremur áratugum séð gífurlega framþróun. ➤ Skúli segist hafa tekið þátt íkristinlegri starfsemi frá barnæsku og verið í sunnu- dagaskóla hjá Kristniboðs- félagskonum á Akureyri. ➤ Það eru 30 ár síðan SÍK byrj-aði kristniboð í Pókot í Kenía en síðan eru komnir 200 söfn- uðir í héraðinu. FAGNAÐARERINDIÐ Eftir Ragnhildi Sigurðardóttur rs@24stundir.is Skúli segir þau hjón fyrst hafa farið utan um áramótin 1967 og dvöldu þau í Eþíópíu til 1976. „Við störfuðum meðal þjóð- flokka sem ekki hafði verið farið til áður,“ segir Skúli. Hann segir kristniboð jafnframt vera alhliða hjálp. „Boðað er guðsorð og síðan stundað það sem ég kýs að kalla kærleiksþjónustu svo sem hjúkrun, skólastarf og ýmiss konar smærri þróunarverkefni sem miða að því að bæta kjör fólksins,“ segir hann. Unnið með heimamönnum „Starfið byggist allt á því að 13 manna hópur frá KFUM og KFUK stendur fyrir söfnun og dreifingu jólagjafa fyrir úkraínsk börn og er þetta í fimmta skiptið sem verkefnið fer úr höfn. „Verk- efnið byrjaði þannig að við kom- umst í kynni við prest að nafni fað- ir Evheniy á KFUM-þingi erlendis. Hann lýsti fyrir okkur ástandinu í Úkraínu en þar er mikil fátækt og jafnframt mörg munaðarlaus börn,“ segir Björg Jónsdóttir, tals- maður hópsins „Almennt er fólk að gefa leikföng, fatnað, ritföng og sælgæti. Gjöfunum er pakkað í skókassa og mikilvægt er að pakka loki og kassa sér svo hægt sé að opna kassana því tollgæslan krefst þess að kíkja í þá. Kassarnir eru svo merktir eftir aldursbili og kyni,“ segir Björg en gjafirnar eru sendar á munaðarleysingjaheimili, sjúkra- hús og barnageðdeildir. „Fyrsta ár- ið fengum við 500 gjafir en síðari ár hafa þær verið um 5.000 svo það hefur verið mikil aukning milli ára,“ segir Björg og bætir við að tekið verði við gjöfum til 8. nóv- ember hjá KFUM og K að Holta- vegi 28. „Einnig er hægt að fá frek- ari upplýsingar og horfa á myndband af ferðum okkar á síð- unni www.skokassar.net,“ segir Björg og bætir við að hún hvetji alla til að leggja sitt af mörkum. rs@24stundir.is Íslendingar gefa jólagjafir til munaðarlausra úkraínskra barna Jól í skókassa Von Börnin á munaðarleysingjaheimilinu Nadiya í borginni Kirovohrad í Úkraínu taka við gjöfum. Nadiya þýðir von. Landbúnaðarfræðingurinn Os- waldo Muñoz frá Ecuador mun halda fyrirlestur um vistvæna ferðamennsku 9. október í Öskju. „Ég mun fjalla um þjóðgarða í Ecuador með tilliti til verndunar þeirra annars vegar og ferða- mennsku hins vegar og bera saman við þjóðgarða á Íslandi,“ segir Os- waldo. Hann segir ferðaþjónustu gífurlega stóran atvinnuveg en jafnframt mjög viðkvæman þar sem hann nærist að stórum hluta á náttúrufegurð sem þurfi að hlúa að og gæta. „Hins vegar er ferðaþjón- ustan einnig háð öðrum hagfræði- legum þáttum og annarri atvinnu- starfsemi, svo sem olíuiðnaði svo dæmi sé tekin,“ segir Oswaldo og bendir á að það sé í þágu ferða- mennskunnar að þessi atvinnu- grein sé af fremsta megni rekin á þann hátt að hún spilli náttúrunni sem minnst. „Að þeim ástæðum hafði ég mikinn áhuga á Íslandi því Ísland er einmitt frumkvöðull í nýtingu jarðvarma sem er einkar umhverfisvænn,“ segir Oswaldo. Fyrirlestur Oswaldos verður klukkan 20 á fimmtudaginn. rs@24stundir.is Oswaldo Muñoz heldur fyrirlestur í Öskju Vistvæn framtíð Á meðan landsmenn munu vænt- anlega halda sig sem mest heima við á næstunni hefur sjaldan ver- ið hagstæðara að koma til Ís- lands. Á síðustu árum hefur hátt verðlag hér hindrað margan ferðalanginn, ekki síst ungt fólk og námsmenn. Því er ekki galið að benda útlendum vinum á þetta tækifæri. Heimsókn Það þykir kannski ekki langt né framandi að fara til Fær- eyja en þó vissu- lega utanlands- ferð. Nú geta menn þó sparað sér flugið því Fjörukráin í Hafnarfirði mun standa fyrir færeyskum dögum næstkomandi helgi. Færeyskir tónar munu fylla þar salinn og færeyskur matur vera á boð- stólum, framreiddur af lista- kokknum Birgi Enna. Færeyja- stemning Þegar við ferðumst hættir okkur til að fara geyst, taka nokkrar myndir af helstu kennileitum og drífa okkur á næsta áfangastað. Netsíðan Slowplanet.com gefur ferðalöngum góð ráð hvernig þeir eigi að læra að slappa af og njóta. Netsíðan býður góð ráð um hvernig hægt sé að blanda geði við heimamenn og fræðast um menninguna. Ef einhverjir leggja í ferðalög ættu þeir því endilega að athuga þessa sniðugu síðu. Ferðastu hægt LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Við þurfum að setja okkur inn í hugsanagang þess sem er töluvert ólíkur því sem við eigum að venjast. Við reyn- um þannig að koma trúnni inn í menningu þeirra án þess að gera eins konar aðför að þeirri menningu sem fyrir er. útlönd

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.