24 stundir - 07.10.2008, Page 29
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
D
A
S
43
53
9
09
.2
00
8
Kærar þakkir
til miðaeigenda
í Happdrætti DAS
Heimilisfólk og starfsfólk Hrafnistu í Reykjavík sendir bestu þakkir til
miðaeigenda í Happdrætti DAS, sem og til starfsfólks happdrættisins, fyrir að
gera drauminn um ánægjulegt ævikvöld að veruleika. Það hefur gerst með
fjármögnun viðamikilla framkvæmda á deildum Hrafnistu í Reykjavík.
Breytingarnar fólu í sér sameiningu tveggja herbergja í eitt með sérbaði, auk
þess sem byggt var við nýtt þjónusturými á hverri hæð þar sem heimilisfólk
getur komið saman, spjallað, tekið í spil og átt ánægjulegar stundir.
Happdrætti DAS hefur verið bakhjarl allra framkvæmda sem átt hafa sér stað
á Hrafnistuheimilum í rúmlega hálfa öld. Með stuðningi frá Happdrætti DAS
hafa orðið straumhvörf í aðbúnaði aldraðra á Íslandi.
Í 25 ára sögu Byggingarsjóðs aldraðra hefur Happdrætti DAS lagt um hálfan
milljarð króna á núvirði í sjóðinn. Hefur það fjármagn verið nýtt til uppbygg-
ingar þjónusturýma fyrir aldraða á landsbyggðinni.
Við ítrekum þakkir okkar til Happdrættis DAS og allra þeirra sem kaupa miða
í happdrættinu.
Heimilisfólk og starfsfólk á Hrafnistu í Reykjavík.
Reykjavík | Hafnarfjörður | Vífilstaðir | Víðines
HRAFNISTA
Myndin var tekin þegar starfsfólk Happdrættis DAS kom í heimsókn á Hrafnistu.
fyrir breytingar
eftir breytingar