24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 29

24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 29
ÍS L E N S K A S IA .I S D A S 43 53 9 09 .2 00 8 Kærar þakkir til miðaeigenda í Happdrætti DAS Heimilisfólk og starfsfólk Hrafnistu í Reykjavík sendir bestu þakkir til miðaeigenda í Happdrætti DAS, sem og til starfsfólks happdrættisins, fyrir að gera drauminn um ánægjulegt ævikvöld að veruleika. Það hefur gerst með fjármögnun viðamikilla framkvæmda á deildum Hrafnistu í Reykjavík. Breytingarnar fólu í sér sameiningu tveggja herbergja í eitt með sérbaði, auk þess sem byggt var við nýtt þjónusturými á hverri hæð þar sem heimilisfólk getur komið saman, spjallað, tekið í spil og átt ánægjulegar stundir. Happdrætti DAS hefur verið bakhjarl allra framkvæmda sem átt hafa sér stað á Hrafnistuheimilum í rúmlega hálfa öld. Með stuðningi frá Happdrætti DAS hafa orðið straumhvörf í aðbúnaði aldraðra á Íslandi. Í 25 ára sögu Byggingarsjóðs aldraðra hefur Happdrætti DAS lagt um hálfan milljarð króna á núvirði í sjóðinn. Hefur það fjármagn verið nýtt til uppbygg- ingar þjónusturýma fyrir aldraða á landsbyggðinni. Við ítrekum þakkir okkar til Happdrættis DAS og allra þeirra sem kaupa miða í happdrættinu. Heimilisfólk og starfsfólk á Hrafnistu í Reykjavík. Reykjavík | Hafnarfjörður | Vífilstaðir | Víðines HRAFNISTA Myndin var tekin þegar starfsfólk Happdrættis DAS kom í heimsókn á Hrafnistu. fyrir breytingar eftir breytingar

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.