24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 30
fréttir
30 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 24stundir
„Skemmtilegt að mbl skuli mynd-
skreyta frétt af kvennaliði HK
með mynd af karlaliði liðsins.
Hefði haldið að þriggja daga
skeggið á Sverre og Einari Inga
hefði átt að hringja einhverjum
bjöllum. Kannski hefur unglegt
andlit Arons Pálmarssonar leik-
manns FH ruglað fréttaritarann.“
Guðmundur Marínó Ingvarsson
gummim.blog.is
„Mér finnst óþolandi að Morg-
unvaktin sé hætt að vera í útvarp-
inu milli átta og níu á morgnana.
Hér með er óskað eftir auknum
fjárveitingum til ríkisútvarpsins
og sömuleiðis annars
konar forgangsröðun í dag-
skrárgerð.“
Þórdís Gísladóttir
thordis.blogspot.com
ELSKULEG KAUPHÖLL MÍN,
LANGAFI OG BRÓÐIR
lést á fjórum sjúkrahúsum 6.
október.
Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á ummæladálk síðuhaldara.
Gunnar Sigurðsson
www.haglabyssa.blog.is
BLOGGARINN
besta í lífinu er ókeypis,“ segir Sig-
ríður.
Sér í heiðan himinn
Pétur Þorsteinsson, prestur
Óháða safnaðarins, er meðal þeirra
sem munu freista þess að hug-
hreysta þjóðina á þessum síðustu
og verstu tímum.
Hann segir að hans skilaboð til
þjóðarinnar séu nátengd þeirri ár-
stíð sem stendur nú yfir. „Þrátt fyr-
ir það að nú falli laufin af trjánum
sér maður nú himininn betur
vegna þess að þegar greinarnar eru
naktar þá sér maður betur í gegn.
Það er þetta sem ég ætla að segja
alþýðunni, að þú sjáir himininn
betur þrátt fyrir þetta sem á undan
er gengið. Þrátt fyrir að allt sverfi
að og syrti hafa menn meiri líkur
til að vænta þess að eitthvað von-
betra sé á leiðinni heldur en ella
væri.“
Pétur segir að hann hafi vel
fundið fyrir áhrifum kreppunnar
og segir að nú sem aldrei fyrr sé
mikilvægt að boða jákvæðan boð-
skap. Í því skyni boðar Pétur til
galdramessu hjá Óháða söfn-
uðinum á sunnudag og yfirskrift
messunnar: Allt í himnalagi.
Skjár Einn vill hughreysta hnípna þjóð
Mikilvægt að sjá
björtu hliðarnar
Á tímum þar sem hver
kreppufréttin rekur aðra
er nauðsynlegt að geta
séð ljósið stöku sinnum
Skjár Einn ætlar að koma
hughreystandi skila-
boðum til þjóðarinnar
Sigríður Skjár Einn boðar jákvæðni
Mynd/Rafn Rafnsson
Betri tíð framundan?
Pétur predikar í mynd-
veri Skjás Eins.
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
„Við viljum bara hafa jákvæð upp-
byggjandi áhrif á þjóðarsálina,“
segir Sigríður Margrét Oddsdóttir,
framkvæmdastýra Skjás Eins, en
sjónvarpsstöðin hyggst á næstunni
færa þjóðinni hughreystandi og já-
kvæð skilaboð. Til þess að koma
skilaboðunum á framfæri hefur
Skjár Einn fengið til liðs við sig
fjöldann allan af þekktu fólki sem
mun birtast í auglýsingatímum
stöðvarinnar og flytja áhorfendum
hughreystandi pistla.
Meðal þeirra sem taka þátt í
hughreystingu stöðvarinnar eru
fólk á borð við Dr. Gunna, Sigfús
Sigurðsson, Unni Birnu, Jónsa,
Þorgrím Þráinsson og Regínu Ósk.
Sigríður segir að eins og staðan
sé núna dynji á fólki hver neikvæð
fréttin á fætur annarri og Skjár
Einn vilji leggja sitt af mörkum til
að vega á móti þeim.
„Við ætlum alls ekki að gera lítið
úr þeim vanda sem við stöndum
frammi fyrir sem þjóð. Okkur
finnst samt full ástæða til að benda
á jákvæða uppbyggjandi hluti
núna. Það er ofboðslega mikilvægt
að sem flestir taki höndum saman
og minni hver annan á að það
HEYRST HEFUR …
Fyrrum knattspyrnuhetjan Hálfdán Gíslason, sem
gerði garðinn frægan með UMFB, ÍA og Val, gekk í
það heilaga um helgina. Hálfdán, sem nú er ríkis-
starfsmaður via Glitnir, hefur löngum þótt spar-
samur með afbrigðum og kom því mörgum í opna
skjöldu hversu vel var veitt í veislunni. Meðal gesta
var Jóhannes Karl Guðjónsson, sem flaug á Frón
strax eftir leik með Burnley, í ensku 1. deildinni. tsk
Tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn Orri Harð-
arson gekk einnig í það heilaga um helgina. Athöfnin
fór fram í heimahúsi og var það allsherjargoði er gaf
hann og heitmey hans saman. Ný bók Orra, Alka-
samfélagið, kom út á dögunum en þar gagnrýnir
hann AA-samtökin sem hann segir vera hönnuð sem
öngul til Guðstrúar. Það er því í stíl að hann leitar
frekar til ásanna um að blessa hjónabandið. bös
Núna þegar efnahagshyggjan er komin í þrot og
augljóst að hún býður ekki lengur upp á leiðina til
hamingju er kannski ekki undarlegt að almenn-
ingur leiti á önnur mið. Séra Þórhallur Heimisson
fann allverulega fyrir því á fimmtudaginn þegar
húsfyllir var á Fullorðinsfræðslu Hafnarfjarð-
arkirkju þar sem farið var yfir talnaspeki og tákn
Biblíunnar. Allir voru í stuði með Guði. bös
„Ég hef áður útilokað pólitísk af-
skipti, en þegar þú nefnir þennan
möguleika, eins og staðan er nú, er
það alveg spurning hvort maður
eigi ekki að stíga skrefið og skella
sér í hringinn,“ segir Bubbi
Morthens, sem heldur mótmæla-
tónleika gegn íslensku krónunni á
Austurvelli klukkan 12 á morgun,
ásamt Sprengjuhöllinni og Buffinu.
Ónýtur gjaldmiðill
„Það er svo hrópleg geðveiki í
gangi að það jaðrar við brandara.
Hugsaðu þér, að alla mína ævi, utan
10-15 ára, hef ég búið við ónýtan
gjaldmiðil; óðaverðbólgu og vesen!
Yfirvöld hafa einfaldlega rangt fyrir
sér þegar þau segja að krónan sé
besti kosturinn að búa við,“ segir
Bubbi, sem segir nauðsynlegt hjá al-
menningi að taka afstöðu. „Það má
ekki sitja aðgerðalaus, það þurfa all-
ir að láta í sér heyra. Og þegar ég er
fallinn frá, þá geta börnin mín og
barnabörn að minnsta kosti sagt að
Bubbi hafi ekki verið gunga.“
Ekki kominn hringinn
Bubbi blæs á sögur þess efnis að
hann sé nú á byrjunarreit, eftir að
hafa verið málsvari lítilmagnans
framan af, en kapítalismans í seinni
tíð. „Ég er einn fárra manna sem
hafalent í einelti fyrir það eitt að fá
borgað fyrir vinnu mína. Þeir sem
skrifa svona verða að bera ábyrgð á
bullinu. Staðreyndin er sú, að eftir
að ég vann málshöfðunina gegn
Hér og Nú, hefur öll umfjöllun um
mig orðið rætnari, en ég get ekki
staðið í því, alla daga, að leiðrétta
lygina.“
traustis24stundir.is
Bubbi tekur málin í eigin hendur
Segist ekki útiloka
pólitískt framboð
Aftan við gítarinn Kannski Bubbi verði
bak við ríkisskrifborðið í framtíðinni?
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
7 5 6 3 8 1 9 4 2
3 4 9 6 7 2 5 8 1
8 1 2 9 4 5 7 3 6
9 6 3 2 1 7 4 5 8
1 8 5 4 9 3 6 2 7
2 7 4 8 5 6 3 1 9
4 2 1 5 6 9 8 7 3
5 9 7 1 3 8 2 6 4
6 3 8 7 2 4 1 9 5
Eigið þið borð fyrir tvo nálægt
neyðarútganginum?
a
Þetta verður alveg geggjað!
Sveinn, verður þetta geðveikislega klikkað fjör?
Sveinn Magnússon er framkvæmdastjóri Geðhjálpar, en í
tilefni alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins standa samtökin
fyrir skemmtidagskrá í Perlunni á föstudaginn milli 16 og
18. Nánari upplýsingar eru á www.10okt.com
FÓLK
24@24stundir.is