Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 20.01.1994, Qupperneq 40

Eintak - 20.01.1994, Qupperneq 40
 Islensk list við öll tækifæri 'JUfi+L' Li^nr 1 ® Skipholti 50b Sími 814020 Vandað vikublað a aðeins 195 kr. HalldórÁsgrímsson um formennsku í framsókn Tilbúinn ef áþarf að halda í viðtali við EINTAK í dag segist Halldór Ásgrímsson, vara- formaður Framsóknarflokksins, vera tilbúinn að taka við for- mennsku ef eitthvað komi upp á sem kalii á slíkt. Hann segist ekki hafa hugáð að framboði til for- manns á flokksþinginu í haust. Þrýstingur á Steingrím Her- mannsson formann flokksins, um að hann taki við bankastjórastól Seðlabankans, hefur nú vaxið að nýju. í samtölum EINTAKS við sam- herja og andstæðinga Halldórs í stjórnmálum kemur fram að þessar vangaveltur hafa mjög veikt stöðu Steingríms. Flestir viðmælenda ganga að því sem vísu að Halldór muni taka við innan stutts tíma. Halldór ræðir formannakrepp- una í Framsóknarflokknum í viðtali á blaðsíðu 18. Björk Guðmundsdóttir Kvartar undan ágangi Stöðvar 2 Björk Guðmundsdóttir söngkona vandar íslenskum íjölmiðlamönnum ekki kveðj- urnar í viðtali við EINTAK í dag. Hún segir tíu prósent erlendra blaðamanna vaða yfir einkalíf fólks í tilraunum sínum til að ná í fréttir. Hún segir alla íslenska blaðamenn hegða sér með þess- um hætti og tekur meðal annars dæmi af fréttamönnum Stöðvar 2 sem réðust að henni um miðja nótt með myndavélar í gangi og kröfðust viðtals. Sjá bls. 22 Höfundar Fimbulfambs Lágu yfir spilinu en fengu marg- notaða hugmynd íslenski leikurínn Fimbulfamb á sérbræður um allan heim Orðaleikurinn Fimbulfamb, sem var kynntur íyrir jól sem alíslensk- ur, á sér eftirmyndir í Englandi, Kanada, Svíþjóð og fleiri löndum sem hafa verið til í mörg ár. Enski leikurinn heitir Balderdash og svip- ar Fimbulfambi einkennilega mikið til hans. T samtali við EINTAK neitaði aðstoðarframkvæmdastjóri Vöku-Helgafells, útgefanda Fimb- ulfambs, að nokkuð í þeim leik væri fengið að láni erlendis frá og að gerð hans stangaðist á við lög um höfundarrétt. Bræðurnir Kjartan Örn og Ragnar Helgi synir útgefandans Ólafs Ragnarssonar í Vöku- Helgafelli komu í fjölmiðla fyrir jól og kynntu spilið Fimbulfamb sem alíslenskt spil, samið af þeim sjálf- um. I viðtali við DV þann 18. des- ember sögðu bræðurnir frá því að þeir hefðu alltaf haft gaman af spil- um og útlistuðu hvernig hugmynd- in að Fimbulfambi væri tilkomin: „Við vorum búnir að heyra af því að stúdentar í Háskólanum höfðu verið að Ieika sér með þessi gömlu orð og upp úr því fengum við þessa hugmynd að búa til spilið. Við lág- um lengi yfír hugmyndinni og spáðum í því hvernig væri hægt að gera þetta að skemmtilegu spili fyr- ir allan almenning." Að útfæra umræddan leik eins og gert er með Fimbulfambi er þó alls ekki nýtt af nálinni. í Bretlandi hef- ur verið til leikur í mörg ár sem gengur út á nákvæmlega það sama og Fimbulfamb og heitir þar Bald- erdash. Upprunalega er Balderdash komið frá Kanada en þarlendur uppfinningamaður kom því á markað 1984. Útgefendur Balderdash í Bret- landi lýsa leiknum í lauslegri þýðingu, á eftirfarandi hátt: „Bald- erdash er frábær blekkingarleikur („bluffing game“) þar sem þú býrð til falskar skilgreiningar fyrír fárán- leg orð. Vertu viss um að hafa þess- ar skilgreiningar sannfærandi því þá gætir þú unnið.“ Til saman- burðar lýsa útgefendur Fimbul- fambs sínum leik þannig: „Fimb- ulfamb er bráðskemmtilegur ís- lenskur blekkingarleikur sem bygg- ir á ímyndunarafli og útsjónarsemi. Þátttakendur búa til sannfærandi skýringar á orðum sem þeir hafa enga hugmynd um hvað þýða og læra um leið sjaldgæf íslensk orð. Þátttakendur geta bæði fengið rétta þýðingu fyrir að vita réttu skýring- una á orðum og setja fram svo sannfærandi skýringu á orði að aðrir haldi að sú skýring sé sú rétta.“ Kassinn sem inniheldur breska spiiið er merktur: BALDERDASH - bluffing game, kassinn um þann ís- lenska; FIMBULFAMB - blekking- arleikur. Báðir spilakassarnir inni- KS3S---- BRÆÐURNIR RAGNAR HELGI OG KJARTAN ÖRN ÓLFASSYNIR Myndin er tekin þegar þeir kynntu stoltir Fimbulfambið sitt. halda; spilakubba fýrir sex, spila- borð, kassa með spjöldum (þar sem furðuleg orð eru rituð á aðra hliðina en skýringarnar á hina) og skrifblokkir til að skrifa skýringarn- ar á. Spilin eru leikin á svipaðan hátt. Hver þátttakandi fær sinn kubb sem hann færir um spila- borðið. Spjald er dregið úr kassan- um og glímt við það orð sem reit- urinn er spilakubburinn stendur á, segir til um. Sá sem smíðar svo lík- lega skýringu á furðuorði að hinir þátttakendurnir trúa henni fær stig. Balderdash hefur teygt anga sína víða um lönd. I Svíþjóð heitir spilið til dæmis Rappakalia og auk þess eru staðfærðar útgáfur til í fleiri Evrópulöndum. Þegar EINTAK hafði samband við Kjartan Örn, annan höfunda Fimb- uífambs, sagðist hann aldrei hafa heyrt um Balderdash og vildi alls ekki kannast við að þeir hefðu haft það sem fyrirmynd að Fimbul- fambi. Hann sagði að það væri ekki ný hugmynd að leika sér með svona skrýtin orð og ítrekaði að þeir hefðu fengið hugmyndina frá al- gengum samkvæmisleik meðal ís- lenskunema í Háskólanum. En svo sagði hann: „Að setja það fram nákvæmlega á þennan hátt og í svona spili, með þessum reglum, það er alveg sérstakt og hefur svo ég viti til ekki verið gert áður.“ Kjartan örn benti blaðamanni á að hafa samband við Búa Kristjánsson, sem hannaði útlitið á Fimbulfambi, og sagði að hann gæti staðfest sögu sína. Það undarlega var þó að þegar haft var samband við Búa sagði hann: „Ég vissi að það var til ensk ■ -----------■—------------- fyrirmynd að þessu spili. En við útlitslega hönnun þess notuðum við einungis okkar hugvit þannig að útlitið er alíslenskt." Og þegar Búi var spurður hvenær hann hefði fyrst vitað af fyrirmyndinni kom sú undarlega staðreynd á daginn að aðilar frá Vöku-Helgafelli höfðu sýnt honum það á meðan hönnuninni stóð, sem hlýtur að vera stórfurðulegt í ljósi þess hverju Kjartan örn hafði áður svarað blaðamanni. Að fengnum öllu þessum upplýs- ingum var málið borið undir Önnu Sverrisdóttur, aðstoðarfram- kvæmdastjóra Vöku-Helgafells og hún spurð hvort að Fimbulfamb gæti ekki brotið í bága við höfund- arréttarlög: „Það er ekkert í þessu spili sem er tekið annars staðar frá,“ svaraði hún.© Amal Rún Qase Vill banna Kvenna- listann með laga- setningu Amal Rún Qase, frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík, ber af sér þann óhróður að hún sé vændiskona, í viðtali við EINTAK. En hún ræðir einnig stjórnmála- skoðanir sínar. Hún segist meðal annars vera þeirrar skoðunar að banna ætti Kvennalistann með lög- um þar sem hann mismuni fólki eftir kynferði. Sjá bls. 14 Þjóðhagsstofnun Vanmetur aflann úr Smug- unni um 20.000 tonn í frétt í ElNTAKI í dag kemur fram að allt bendir til þess að Þjóðhags- stofnun hafi vanmetið aflann úr Smugunni á þessu ári. Þjóðhags- stofnun geri ráð fýrir að aflinn í ár verði sá sami og í fýrra eða um 10 þúsund tonn. Þeir útgerðarmenn sem EINTAK ræddi við töldu þetta með eindæmum varlega áætlað. Islendingar hafi fyrst uppgötvað Smuguna í fyrra. í ár megihins veg- ar búast við að mun fleiri skip freisti gæfunnar þar. Og fleiri skip í Smuguna leiðir ekki endilega til minni afla á hvert, því Barentshafs-þorskurinn er í miklum vexti núna og kvótar á hann hafa verið stórlega auknir. Það var mat viðmælenda EIN- TAKS að líklegra væri að aflinn úr Smugunni yrði um 30 þúsund tonn. Ef það gengur eftir eru útflutningstekjur íslendinga van- áætlaðar um 2,5 milljarða í nýrri þjóðhagsspá. Sjá bls.6

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.