Eintak - 24.05.1994, Blaðsíða 28
íslandsmótið'2. deild
Grindvíkingar
voru sterkari
gegn Fýlld
Fyfkismönnum tókst þó að jafna
leikinn í seinni hálfleik O KA ekki í
erfiðleikum með Selfoss.
Keppni hófst í annarri deild karla
um helgina og var heil umferð leik-
in á föstudagskvöldið.
Nýliðar HK, undir stjórn Atla
Eðvaldssonar, heimsóttu Víkinga
í Stjörnugrófina og fóru leikar 1:0
fyrir heimamenn. HK-menn voru
sterkari framan af leiknum en Vík-
ingspiltar, sem komu ofan úr fyrstu
deild, náðu að skora markið og því
fara öll þrjú stigin til þeirra.
Markið kom eftir að einn leik-
maður HK handlék knöttinn innan
vítateigs og úr vítaspyrnunni skor-
aði Trausti Ómarsson örugglega.
Leikur þeirra liða sem hvað lík-
legust eru til að keppa um efsta sæt-
ið í deildinni í sumar var bráðíjör-
ugur og spennandi. Grindvíkingar
mæta greinilega einbeittir til leiks
og ætla sér stóra hluti, og Fylkis-
menn sem voru óheppnir að falla í
fyrra eru með sterkt lið.
I fyrri hálfleik gerðist fátt mark-
vert utan þess að Haukur Braga-
son, þekktur sem fyrrum mark-
vörður Fram og KA, varði víta-
spyrnu Finns Kolbeinssonar eft-
ir að brotið hafði verið á unglinga-
landsliðsmanninum Ólafi Stígs-
syni.
Ingi Sigurðsson, fyrrum fyrir-
liði Eyjamanna, opnaði marka-
reikning Grindvíkinga með glæsi-
legu skoti í upphafi seinni hálfleiks
og Ólafur Ingólfsson bætti síðan
öðru marki við þannig að staðan
var orðin 2:0 heimamönnum í hag.
Þá tóku Fylkismenn við sér og
Finnur Kolbeinsson þrumaði bolt-
anum í markið af löngu færi og
Þórður Helgason jafnaði á elleftu
stundu. Heimamenn voru ívið
sterkari aðilinn í leiknum, en
mörkin eru það sem telja og því
skiptu liðin með sér stigunum að
þessu sinni.
Á Akureyri tóku heimamenn,
KA, á móti liði Selfyssinga og áttu
ekki í teljandi erfiðleikum með þá.
Sóknaraðgerðir þeirra voru mun
beittari og skoraði Bjarni Jóns-
son fyrra markið úr skalla eftir
hornspyrnu en síðan dofnaði yfir
leiknum þar til Þorvaldur Sig-
björnsson bætti öðru marki við á
lokamínútunum. O
2. deild
1. umferð 20. maí.
Víkingur - HK 1:0
Trausti Ómarsson (73. v.)
KA - Selfoss 2:0
Bjarni Jónsson (24.), Þorvaldur
Sigurbjörnsson (90.)
Þróttur R. - ÍR 3:1
Páll Einarsson (7., 47), Ragnar
Egilsson (13.) - Halldór Hjartarson
(50.)
Þróttur N. - Leiftur 2:1
Sveinbjörn Hákonarson (2., 30) -
Einar Einarsson (56.)
Grindavík - Fylkir 2:2
Ingi Sigurðsson (50.), Ólafur Ing-
ólfsson (75.) - Finnur Kolbeinsson
(86.), Þórður Helgason (88.)
3. deild
1. umferð 20. maí
Haukar - Dalvík 2:2
Reynir Sandg.- Höttur 4:3
BÍ - Tindastóll 2:2
Völsungur - Víðir 2:2
Fjölnir - Skallagrímur 3:1
Bandarílqamenn gera
tilraunir með nýjar realur
í fótbottanum
Fáránlegar reglur eða mikilvægar breytingar?
Gianluca Pagliuga
Ef tilraunir FIFA í Bandaríkjunum ganga vel þarf Gianluca Pagliuga
að leika í marki sem er 120 sentimetrum breiðara og fimmtán
sentimetrum hærra en mörk eru núna.
Fyrir utan hálf-atvinnumennsk-
una er Bandaríska landsknatt-
spyrnudeildin, USISL, ekki með
neitt hálfkák.
Sjötíu og tvö lið hvaðanæva að
frá Bandaríkjunum mynda átta
riðla og þegar keppnistímabilið
1994 hefst mun USISL tilkynna átta
breytingar á knattspymureglunum.
Það er allt klappað og klárt og
FIFA hefur gefið sitt samþykki fyrir
því að tilraunir verði gerðar með
þessar nýju reglur.
Formaður USISL, hinn portú-
galskættaði Fransisco Marcos,
hefur látið það skýrt í ljós að hann
fagnar því að fá tækifæri til að
reyna nýjar reglur: „Alltof lengi
hefur það verið þannig í fótboltan-
um að refsingar hæfa ekki brotum.
Við viljum herða refsingarnar
þannig að leikmenn geri sér grein
fyrir því að það borgar sig ekki að
brjóta.“
Aðal drifkrafturinn fýrir breyt-
ingunum kemur þó frá annarri
deild: Aðal knattspyrnudeildinni
(The Major League Soccer, MLS).
Sú deild er reyndar ekki til um
þessar mundir nema á pappírun-
um, en er í smíðum af hóp undir
stjórn Alan Rothenberg sem er sá
hinn sami og stýrir framkvæmd
heimsmeistarakeppninnar í ár og er
jafnframt forseti Bandaríska knatt-
spyrnusambandsins, USSF.
Keppni í MLS á að hefjast í apríl
1995 og verður atvinnumannadeild,
en FIFA hefur ákveðið að þessi
deild eigi að fylgja eftir heimsmeist-
arakeppninni og nýta þá athygli
sem knattspyrnan fær í kjölfar
hennar í Bandaríkjunum.
Það hefur aldrei verið auðvelt að
fá bandaríska aðdáendur til að
flykkjast á völlinn að horfa á at-
vinnufótbolta. Þannig að megin
markmið MLS er að tryggja að leik-
urinn sem fer fram á vellinum sé
spennandi og fjörugur. Ein besta
leiðin til að ná þessu fram er að
kynna til leiks breytingar á reglum
sem taka á svokölluðum „prófess-
jónal“ brotum (vísvituð brot eins
og t.d. tæklingar aftan frá, tosað í
treyju til að stöðva leikmann, bolt-
inn stöðvaður með hendinni
o.s.frv.) Og er til betri leið til að
finna út hvort þessar reglur virki en
að láta USISL reyna þær áður en
þær eru teknar upp annars staðar?
Rothenberg hefur látið hafa það
eftir sér að USISL sé himnasending.
Það sem gerir þessa deild svo gagn-
lega sem reglu-tilraunastofu eru
hinir átta aðskildu riðlar hennar.
Keppnistímabilið 1994 mun hver
riðill leika með mismunandi reglu-
pakka. Þetta er mögulegt þar sem
mjög lítið er um leiki milli riðl-
anna. Ruglingur um hvaða reglur á
að nota kemur ekki upp fyrr en úr-
slitakeppnin hefst. En þá verður
ákveðið hvaða reglupakki verður
notaður.
Þetta hljómar óneitanlega eins og
hinir geggjuðu Bandaríkjamenn
séu að beita fyrir sig aulalegum
auglýsingabrellum en í raun og
veru, eins og Rothenberg hefur
bent á, „er ekki ein einasta af þess-
um tillögum búnar til af okkur
(Bandaríkjamönnum) sjálfum.
Sumar þeirra eru komnar beint frá
FIFA.“
Það sem er sjálfsagt umdeildast í
þessum breytingum er að mörkin
verða stækkuð. í suð-vestur riðli
Marco Van Basten
hefur lagt til sumar afþeim
breytingum sem verða reyndar í
Bandaríkjunum.
USISL verða mörkin 2,6 metrar á
hæð og átta og hálfur metri á
breidd. Þetta þýðir að það verður
fimmtán sentimetrum hærra upp í
slána en núgildandi reglur segja til
um cg 120 sentimetrum lengra á
milli stanganna. í suð-austur riðl-
inum verða mörkin 2,6 metrar á
hæð og 7,7 metrar á breidd. I hin-
um sex riðlunum verða mörkin í
hefðbundinni stærð.
Einnig verður reynt að láta grófa
leikmenn og gróf lið gjalda fyrir
fantaskapinn. Sú hugmynd er kom-
in frá hollenska landsliðsmannin-
um Marco Van Basten sem hefur
fengið meira en sinn skerf af brot-
um, spörkum og tæklingum. Nú-
verandi reglur FIFA kveða á um
gult spjald fyrir „ítrekuð“ brot en
skilgreiningin á „ítrekuð" hefur
verið breytileg.
USISL hefur hins vegar búið til
ákveðinn kvóta yfir ítrekuð brot. I
mið-vestur riðlinum fær sá leijc-
maður sem brýtur oftar en fimm
sinnum af sér (brot á andstæðing-
um og þegar boltinn er viljandi
handleikinn) blátt spjald sem þýðir
að hann er útilokaður frá leiknum
en varamaður má koma í hans stað.
Ef fleiri leikmenn í sama liði safna
upp fimm brotum eru þeir útilok-
aðir án þess að nýir leikmenn megi
koma inn á.
Svo eru það liðsbrotin, þau mega
ekki verða fleiri en sex. Þegar lið
brýtur af sér í sjöunda skipti þarf
það að þola refsingu. 1 mið-suður
og Atlantshafsriðlunum eru viður-
lögin þau að einn leikmaður and-
stæðinganna fær boltann á miðju
vallarins og reynir síðan að skora
einn gegn markmanni. Til glöggv-
unar má benda á að víti eru tekin á
þennan hátt í íshokkí og að þetta
var einnig reynt í Reykjavíkurmót-
inu í knattspyrnu fyrir einhverjum
árum og var þá kallað bráðabani.
Þessari aðferð verður líka beitt til
að þyngja refsinguna þegar leik-
maður er útilokaður eftir gróft
brot.
í suð-austur og Miðjarðarhafs-
riðlunum verður refsað fyrir sjö-
unda hvert brot með nokkurs kon-
ar útfærslu á vítaspyrnu. Þetta
verður alveg eins og venjulegt víti
nema hvað boltanum er stillt upp á
bogann á vítateignum, tuttugu og
tvo metra frá markinu.
Þegar verið er að taka aukaspyrn-
ur nálægt vítateig reynist dómurum
oft erfitt að fá leikmenn til að
mynda varnarvegg í réttri fjarlægð,
sem er níu metrar, frá aukaspyrnu-
staðnum. Á þessu verður tekið
þannig að gula spjaldinu verður
óspart veifað og veggurinn að auki
látinn færa sig aftur um sex metra
eða í fimmtán metra fjarlægð frá
boltanum. Þessi háttur verður
hafður á í mið-suður og Miðjarðar-
hafsriðlunum.
í suð-austur og Atlantshafsriðl-
unum fá liðin að velja á milli þess
að taka hefðbundin innköst eða
sparka boltanum inn á völlinn.
Einnig verður fiktað aðeins við það
hvernig á að taka hornspyrnur.
Þegar varnarmaður sparkar boltan-
um aftur fýrir endalínuna innan
vítateigs, fá andstæðingarnir stutt
horn sem er tekið þar sem vítateigs-
línan endar við endalínuna. Að
auki verður radíus svæðisins, þar
sem boltinn skal liggja þegar hefð-
bundar hornspyrnur eru teknar,
víkkaður um 90 sentimetra.
Þá er komið að töfum. I fimm af
átta riðlum USISL verður sérstakur
tímavörður sem mun stoppa tím-
ann í hvert sinn sem boltinn er ekki
í leik. Hugmyndin með þessu er að
ná fram sextíu mínútna leiktíma
þar sem boltinn er alltaf í leik.
Allir leikirnir hjá USISL eru
leiknir þar til úrslit nást fram. Ef
jafnt er að loknum venjulegum
leiktíma verður byrjað á því að
framlengja en ef úrslit nást ekki
fram.á þeim tíma er öðrum aðferð-
um beitt. 1 sjö riðlum verður
bráðabani eins og áður hefur verið
lýst en í norð-austur riðlinum
verða úrslit ákvörðuð eftir því
hvort liðið fær fleiri hornspyrnur
meðan á leiknum stendur.
Það sem kemur kannski mest á
óvart við þessar tilraunir með
knattspyrnureglurnar er að reglan
um rangstöðu er látin ósnert. Það
lítur út fyrir að FIFA hafi lagt þvert
bann við því að hreyft yrði við
rangstöðureglunni en þar á bæ hafa
menn meiri áhuga á því að dómar-
ar og línuverðir beiti núverandi
reglum rétt.
Rothenberg segir engan vafa
leika á því að sumar af þessum regl-
um verði aldrei notaðar annars
staðar. „En tilgangurinn með þess-
um tilraunum er að reyna að opna
leikinn og gera hann meira spenn-
andi og skemmtilegri. Þær breyt-
ingar sem koma vel út verða skoð-
aðar rækilega og ég held að hið al-
þjóða knattspyrnusamfélag muni
aðstoða okkur við að koma þeim
almennt á.“
28^i
port
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ1994