Vikublaðið - 02.07.1993, Blaðsíða 7
VIKUBLAÐIÐ 2. JÚLÍ 1993
7
Tjaldið gert klárt
Tími tjaldferðanna er hafinn
og menn eru um það bil að
taka tjöldin sín upp úr
pokunum til að athuga hvort allt sé
í lagi.
Sem betur fer er yfirleitt allt í
lagi, sérstaklega ef svo hefur verið
þegar tjaldinu var pakkað saman
síðast. Þó kemur fyrir að tjaldið er
orðið myglað þegar opnað er, en
það er þá auðvitað vegna þess að
það hefur verið rakt þegar því var
pakkað niður. Það verður aldrei
um of brýnt fyrir fólki að þurrka
vel blaut tjöld áður en þau eru sett
í geymslu. Það er fátt verra en að
komast að því einmitt við upphaf
ferðarinnar að tjaldið er skemmt af
myglu eða bilað á einhvern hátt.
Slitnar teygjur
Það helsta sem bilar á tjöldum
eru teygjur sem vilja slitna eða
morkna. Það er auðvelt að gera við
svoleiðis smámuni, nýjar teygjur
má kaupa og í versta falli þarf að
spretta upp saum til að koma henni
fyrir og sauma síðan fyrir aftur.
Þetta ætti hver og einn að geta gert
sjálfur, en það má líka leita til
Seglagerðarinnar sem hefur sér-
stakar vélar til að sauma þykkan
bómullardúkinn eða gúmmídúkinn
í botni tjaldsins. Nýjar teygjur eru
aðeins eðlilegt viðhald á tjaldi sem
komið er til ára sinna.
Rifinn dúkur
Einstaka tjald rifnar við átök.
Reyndar þarf talsvert til að rífa
tjald, en skarpar brúnir á hlutum
sem liggja utan í tjalddúknum geta
skorið efhið í sundur og hvöss
vindhviða getur hjálpað til við að
gera lítið gat að stórri rifu. Það ætti
því að gera strax við þau göt sem
hugsanlega koma á tjaldið og til
þeirra verka er hægt að fá hentugar
bætur í pakka.
Hægt er að láta bæta tjöld sem
hafa rifhað. Mun auðveldara er að
eiga við bómullartjöld en þau sem
eru úr næloni.
Stifir rennilásar
Rennilásar bila sjaldan, en þá er
Seglagerðin Ægir framleiðir enn sín endingargóðu bómullartjöld.
Ragnheiður Olafsdóttir er hér við að sauma eitt slíkt. Mynd: Ol.Þ.
auðvitað hægt að eyðileggja með
slæmri meðferð. Ef rennilás er stíf-
ur er best að liðka hann með sil-
íkonúða áður en farið er að hamast
á honum fram og aftur. Þessi úði er
til í flestum sportvöruverslunum.
Göt á tjaldbotni
Tjaldbotnar eru gerðir fyrir tals-
verð átök og þola mikið hnjask
áður en þeir gefa sig. Eina örugga
leiðin til að skemma þá er að stinga
oddhvössum hlut af afli í gúmmíið.
Tjaldsúlur hafa stundum gert göt á
botninn, en til eru plastplattar
undir súlurnar sem verja dúkinn.
Hrjúfur jarðvegur með steinnibb-
urn hefur líka gert gat á tjaldbotna
og það er góð regla að eiga þykkan
plastdúk í sömu stærð og botninn
til að leggja undir tjaldið þegar því
er tjaldað.
Bómull eða nœlon?
Þegar tjald er keypt þarf að velja
milli bómullartjalds og nælon-
tjalds. Minni tjöldin eru oftast úr
næloni en þau stærri úr bómull.
Munurinn liggur helst í þyngd þar
sem nælonið er fislétt og lipurt
meðan bómullin er þyngri og
óþjálli.
Bómullartjöldin hafa þann góða
eiginleika að „anda“ svo raki
myndast ekki inni í tjaldinu. Næl-
ontjöldin anda ekki og því er hætta
á að lofrið inni í þeim verði mjög
rakt ef ekki er loftað vel út.
Nælontjöldin eru sterkari, en
það er auðveldara að gera við bóm-
ullartjald sem verður fyrir hnjaski.
Þétting
Það er ágætur siður að
tjalda nýju bómullartjaldi
nokkrum sinnum áður en
farið er af stað með það í
Jónas og Björgvin í Seglagerðinni Ægi hjálpast að við saumavélina, enda þarf oft tvo til að stýra sauma-
skapnum á stórum tjöldunum. Mynd: Ol.Þ.
lengri ferðir.
Bómullin hefur þann eiginleika
að þéttast við raka svo nýju tjöldin
eru ekki eins vatnsheld og þau eldri
sem hafa fengið að þéttast eðlilega
í náttúrunni. Það er ekki heppilegt
að byrja á að úða vatnsþéttiefni yfir
nýtt bómullartjald, við það eyðil-
eggst þessi eiginleiki og tjaldið
verður ekki vatnshelt af sjálfu sér.
Nælontjöldin eru strax vel vatns-
held þótt sumir kjósi samt að úða
yfir þau áður en þau eru tekin með
í lengri ferðir.
Með íferðina
Þegar lagt er af stað í langa tjald-
ferð þarf auðvitað að muna efrir
nauðsynlegum hlutum til að gera
tjaldið að öruggum íverustað
hvernig sem viðrar og velkist.
Ef tjaldið er ekki alveg nýtt er
gott að taka ineð sér nokkrar veg-
legar teygjur, aukastög og hæla.
Svoleiðis smáhlurir geta svo
auðveldlega týnt tölunni án þess að
nokkur verði þess var fyrr en of
seint. Það getur verið bagalegt að
vera án þeirra þegar á hólminn er
komið.
Hamar til að negla niður hælana
getur komið sér vel, sömuleiðis
plastplattar undir súlurnar og
plastdúkur undir bominn.
Lím, bætur, stór nál og sterkur
tvinni eru hið mesta þarfaþing til
bráðabirgðaviðgerða í svona
ferðum, jafnt fyrir tjaldið sem aðra
hluti í farteskinu.
Og að síðusm: Til að vel fari um
tjaldbúana er gott að hafa góðar
tjalddýnur með í ferðina og þá er
ekki úr vegi að benda á nýjar dýnur
sem bæði einangra gegn kulda og
eru góðar að liggja á. Þessar dýnur
eru gerðar úr nokkurs konar
svampi sem dregur í sig loft þegar
tappi er tekinn úr dýnunni. Dýn-
umar springa ekki eins og vind-
sængur, einangra vel gegn kulda
ffá jörðu, eru mjög léttar og fyrir-
ferðarlitlar og falla vel að líkaman-
um.
Góða tjaldferð !
Félagsheimilið Aratunga
Til leigu salir fyrir stór og smá samkvæmi. Veitingasala
fyrir stóra og smáa hópa. Panta þarf með nokkrum
fyrirvara. Getum tekið á móti allt að 250 manns í einu.
Tilvalið fyrir ættarmót og einkasamkvæmi.
Sími 98-68810, 98-68811 og 98-68893
Farfuglaheimilið
Reykholti, Biskupstungum, 801 Selfossi
Sími 98-68831 og 98-68936
Gisting fyrir einstaklinga og hópa.
Opið frá 10. júní til 30. ágúst.
Reykholtslaug
í Biskupstungum
Símar 98-68807, 68810 og 68808
Heitir pottar, gufubað, sólarlampi, vatnsrennibraut og
nudd ásamt aðstöðu til sólbaða á sólnkum sumar-
dögum.
Sumaropnun alla daga frá kl. 10.00 til 22.00.
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1977-2.fl. 10.09.93-10.09.94 kr. 979.936,70
1978-2.fl. 10.09.93-10.09.94 kr. 626.044,80
1979-2.fl. 15.09.93-15.09.94 kr. 408.114,90
INNLAUSNARVERÐ *)
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL Á KR. 10.000,00
1985-1 .fl.A 10.07.93-10.01.94 kr. 57.983,30
1985-1 .fl.B 10.07.93-10.01.94 kr. 32.624.30**)
1986-1 .fl.A 3 ár 10.07.93-10.01.94 kr. 39.967,10
1986-1 .fl.A 4 ár 10.07.93-10.01.94 kr. 44.365,70
1986-1 .fl.A 6 ár 10.07.93-10.01.94 kr. 45.922,20
1986-1 .fl.B 10.07.93-10.01.94 kr. 24.061,60**)
1986-2.fl.A 4 ár 01.07.93-01.01.94 kr. 37.218,00
1986-2.fl.A 6 ár 01.07.93-01.01.94 kr. 38.446,80
1987-1 .fl.A 2 ár 10.07.93-10.01.94 kr. 31.578,90
1987-1 .fl.A 4 ár 10.07.93-10.01.94 kr. 31.578,90
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
**)Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júní 1993.
SEÐLABANKI ÍSLANDS