Vikublaðið


Vikublaðið - 02.07.1993, Blaðsíða 13

Vikublaðið - 02.07.1993, Blaðsíða 13
VIKUBLAÐIÐ 2. JÚLÍ 1993 Ferðlr og náttura 13 Það er gaman að koma í Dyr- hólaey, jafhvel þegar storm- urinn æðir og ekki sést út úr augum fyrir þoku og súld. Nátt- úruöflin í öllu sínu veldi. En svo er líka víðsýnt af háeynni í björtu veðri: Uti fyrir ómælisvíðátta hafs- ins. I vestri Vestmannaeyjar, þá sandamir með ströndinni, Eyja- þöllin, jöklarnir, Mýrdalurinn og Reynisfjallið með dröngunum framundan. Lengst í austri Kötlutangi, sand- tota sem teygir sig út í Atlantshafið sem nagar af og brýtur. Ailt ffam á síðustu ár syðsti oddi landsins en hörfar nú undan sjávargangi. Er ekki annars tilvalið að gá til fugla - nóg er af þeini hér? Mest ber á kríu og lunda að ógleymdum fylnum, en þó er ekki nærri allt upp talið. Skyldi máríuerlan verpa á sama stað, undir þakskegginu á vitahús- inu eins og í fyrra - eða þá stein- depillinn? Lífið virðist hafa sinn vanagang. Helgi Guðmundsson Alltaf vekja þó tilburðir kjóans ein- hvers konar sambland af andúð og aðdáun. Grimmd, flugfimi og snerpu virðast engin takmörk sett þegar hann knýr álkulegan lund- ann til þess að sleppa feng sínúrn og hendir svo sjálfur á lofti með snöggri vendingu þann hinn sama feng. Lífsbarátta - afrán - hin frjálsa samkeppni grímulaus. Hvaða er- indi skyldu menn eiga í Dyrhólaey? Fyrir rúmum áratug var lagður vegur út í eyna þannig að þangað er nú hverjum manni fært. Vegagerð- in tengdist útgerðardraumi sem aldrei hefur ræst en mannvirkin eru enn á sínum stað neðst í eynni - aflóga skipsbrú, spil, vírar og raf- magnslína - og grotna niður eng- um til gagns eða gleði, minnisvarði um sjálfsbjargarviðleitni. En veg- urinn hefur fengið annað hlutverk og nú er svo komið að honum verður að loka í nokkrar vikur ár hvert svo fuglar fái næði á eggtíð- inni. Friðlandið Dyrhólaey er nú meðal fjölsóttustu ferðamanna- staða landsins - e.t.v. fyrir tilverkn- að útgerðardraumsins sem enn hefur ekki náð að rætast en sem virðist samt hafa alið af sér annan atvinnuskapandi athafhadraum. Menn sjá sér nú leik á borði að beita eyna túrhestum og vilja ein- hverjir „selja inn á svæðið". Um þær hugmyndir vil ég ekki fjölyrða en þær bera a.m.k. vott unt sjálfs- bjargarviðleitni. Þó er augljóst að bæta þarf úr umhverfisspjöllum áður en til slílcs kæmi. Ef ætlunin er að gera út á „grænan túrisma“ verður að upp- fylla væntingar viðskiptavinanna. I því sambandi verð ég að geta þess að hryggilegt er að sjá allar dauðu og lemstruðu kríurnar sem liggja í hrönnum undir rafstrengnum sem ætlað var að knýja útgerðarævin- týrið og liggur skemmstu leið yfir varplönd kríunnar. Þarna ljúka þær ævi sinni á strengnum margar hverjar, þessir langförlustu fuglar allra fugla. Og svipbrigðin í andlit- um ferðamannanna lýsa undrun og vandlætingu. Það er einhver stíll eða sjanni yfir vitanuin uppi á há- eynni en ósköp er hann ótótlegur umbúnaðurinn í neðra. Höfundurinn er íslensku- fræðingur og leiðsögumaður Ferðajöfurinn Páll Helgason í Vestmannaeyjum Varð sextugur í húla-dansi Bræ&umir Páll og Sigtryggur Helgasynir nýkomnir til Hawaii. Nú eru tuttugu ár síðan gaus i Eyjum og jafnlangt síðan Páll Helgason hóf störf við ferðaþjónustu þar. Páll er einn af hinum dæmigerðu Vest- manneyingum eða „orginal" eins og þeir peyjarnir í Eyjum kalla hann. Páll hefur í þessi tuttugu ár unn- ið af miklum krafti að ferðamálum og starfrækir nú ferðaþjónusm Vestmannaeyja, en hann og synir hans fjórir reka 5-6 rúmr, bátinn PH Víking sem fer skoðunarferðir um eyjarnar, tvo gisdstaði, Bræðra- borg og gistihúsið Heimi, veitinga- húsið Við félagarnir og nætur- klúbbinn Höfðann. Arið 1990 var Páll kjörinn ferða- frömuður ársins af tímaritinu Far- vís/Afangar og nú nýlega fékk hann Fréttapíramídann frá blaðinu Fréttir í Vesmiannaeyjum sem við- urkennngu fyrir framtak um ferða- mál í Eyjum. Þarf engan að undra þótt Páll fái þessa viðurkenningu því hann hef- ur áreiðanlega laðað fleiri ferða- menn til Eyja en nokkur annar fyrr og síðar, auk þess sem hann hefur komið Eyjamönnum til útlanda á vegum Guðna í Sunnu og Ingólfs Guðbrandssonar. Þannig hafði Páll einu sinni vel á fimmta hundrað Vestmannaeyinga á sínum snærum á Mallorka á sama tíma. „Mér þótti enn vænna um að fá Fréttapíramídann," segir Páll. „Það er svo erfitt að vera spámaður í eigin föðurlandi að mér finnst meira til þess koma að fá þessa við- urkenningu." En Páll er í raun búinn að vera meira en tuttugu ár í ferðaþjónust- unni. „Reyndar var ég ekki nema 11 ára þegar ég fór fyrst sem leiðsögu- maður um Eyjarnar með ferða- menn. Þá kom hingað hópur af ffamsóknarmönnum og pabbi sendi mig með þeim til að sýna þeim það markverðasta. „Segðu þeim bara það sem þú veist. Þú veist miklu meira um Eyjarnar en þeir,“ sagði pabbi og svo var ég sendur með þeim. Það er ekki langt síðan að kom til mín ferðamaður af landi sem spurði mig hvort ég væri ekki son- ur Helga Ben? Hann mundi þá eft- ir því þegar hann fór með mér í skoðunarferð um Eyjarnar fyrir 45 árum. Eg kryddaði lílca sögumar svolít- ið á þessum tíma. Einu sinni fór ég framhjá Kirkjubæ með fólk og ein- hver spurði mig um mikinn leg- stein með steypum veggjum sem þar var. Eg sagði hugljúfa sögu um elskaðan reiðhest bóndans sem hefði verið grafinn þarna með öll- um reiðtygjum og síðan steypt í kring um leiðið vegna þess að kind- ur og hestar hefðu nagað blómin af því. Eg komst ekki upp með þetta lengi því einhver fór að skoða leið- ið og fannst hestsnafnið á legstein- inum skrítið en þar stóð „séra Jón Þorsteinsson píslarvottur." Arni Johnsen bjargaði þessum steini frá því að fara undir hraun í gosinu og hann er nú koniinn aftur á sinn stað þótt legsteinn séra Jóns sé nú 60-100 metrum nær himna- ríld en þá. Það var samt eiginlega ekki fyrr en í gosinu að ég byrjaði fyrir al- vöru í ferðaþjónustunni. Aður var ég með verslun eða sjoppu og þangað kom mikið af ferðamönn- urn sem var að spyrja til vegar um Eyjarnar og forvitnast um hvert þeir ættu að fara. Oft lokaði ég sjoppunni og fór með þeim út. Svo þegar fór að gjósa sneri ég mér al- veg að þessu og hef verið í þessu síðan þótt ég hætti um tíma í eitt ár. Ég byrjaði með eina rúm en þær eru nú orðnar sex. Svo kom PH Víkingur til sögunnar, en hann er innréttaður eftir mínum óskum. Víkingur er eiginlega draumsýn mín og Sigurðar Karlssonar sem hannaði bátinn. Hann hefúr reynst alveg sérstaklega vel. Við sigldum Víkingi til Akureyrar í fyrra á Vest- norrænu ferðamálaráðstefnuna og ferðin tók okkur 26-28 tíma. Síðan var siglt með ferðafrömuði um ... og Sigtryggur bróðir lét sitt ekki eftir liggja. Eyjafjörðinn til að leyfa þeim að kynnast bámuni. Við höfum lagt rnikla vinnu í að kynna okkur og bjóðum upp á hvers konar þjónusm allan ársins hring. Ferðamannatíminn byrjar líka snemma í Eyjum því fyrsm hóp- arnir koma hingað í apríl-maí og það eru annasamir mánuðir. A þessum tíma koma skólakrakkar á aldrinum 12-16 ára og það eru bestu ferðamenn sem við fáum. Þau bera höfuð og herðar yfir aðra hvað varðar ffamkomu. Þessir krakkar njóta ferðarinnar vel og mörg þeirra koma aftur seinna, jafnvel með fjölskyldu. Allt ffá því í apríl eru líka að korna hingað þýslcir ferðamenn á vegum ferðaskrifstofunnar Atl- antik, Það eru fastar vor og haust- ferðir sem rekast ekki á við aðal ferðamannastrauminn sem byrjar í júní. Það er nóg að gera allt árið því svo koma líka til Eyja alls konar hópar. Vænst þykir okkur um kvenfélagskonumar utan af landi, þær fá alveg sérstakar móttökur.“ Sjálfur hefur Páll ferðast mikið um dagana og á sextugsaffnæli sínu fyrir skömmu fór hann mikla ævin- týraferð með Sigtryggi bróður sín- um og vini. „Ég var að grínast með það við Sigtrygg bróður minn að ef ég færi til Hawaii gæti ég verið 59 ára tíu tímum lengur og haldið uppá af- mælið í einn og hálfan sólarhring. Einhvern veginn varð það svo úr að við fómm og ég náði þessu tak- marki auk þess sem ég varð 60 ára í húla dansi! Þetta var mikil ferð og skemmtileg og flugið hingað til Is- lands aftur var þrettánda flugið í ferðinni. Ég er Vestmannaeyingur í húð og hár og þótt það hafi stundum ffeistað að fara eitthvað annað þá kem ég alltaf hingað aftur. Mínar rætur eru hér í Eyjum,“ sagði Páll Helgason að lokum. Ferðafrömuðurinn sextugi, Páll með vinkonu frá Havaii...

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.