Vikublaðið


Vikublaðið - 02.07.1993, Qupperneq 19

Vikublaðið - 02.07.1993, Qupperneq 19
VIKUBLAÐIÐ 2.JULI 1993 19 Rithöndin Gaman Skriftin þín segir að þér sé ekk- ert mannlegt óviðkomandi. Áhugamál og hæfileikar spanna yfir mjög vítt svið. Þú hefur viðkvæma lund en hefur náð ágætri þjálfun í að harka af þér og bíta á jaxl. Það er orðið þér íþrótt og gef- ur þér sjálfsöryggi. Þú virðist vinna mikið, bæði að þínum daglegu störfum og eins áhu'gamálum. En þegar þú ræður sjálf tíma þínum finnst þér gaman að dunda og dútla, skoða gamla hluti og rifja upp gantlar minningar. Þú ert lengi að tengjast öðru að dunda við gamla hluti fólki og virðist varfær- in í allri náinni um- gengni. Þó þú þekkir margt fólk verðurðu ekki mörgum hand- gengin eða það þér. Við börn ertu ffjáls- lynd og ljúf, en þó leiðbeinandi. Stund- um virðistu fá andleg þreymköst, einkum í viðureign við kerfi og staðlaða hluti. Tónlist virðist mikilvægur þáttur hjá þér. Eink- Sigrún Sverrisdóttir uin ljóðræn og ljúf tónlist. Þú virðist hafa þörf fyrir mikla útivist en aðstæður leyfa það líklega ekki alltaf. Þér mundi trúlega falla best að vinna störf sem ferðalög fylgdu. Listræn störf gemrðu smndað. Þú sýnist vera vax- andi persónuleiki á þroskaleið og uppleið. Þú tekur dálitla útúr- dúra og sveiflur ef þér þykir þurfa en aðeins á yfirborðinu. I rauninni heldurðu alltaf þínu striki. Þú gefur þér ekki oft tíma til að hlæja. Það ættirðu að gera oftar, þó annríki skyggi oft á það einfalda og broslega. Varast þarffu að horfa of inikið á ffamtíðar„plön“ ffam hjá hinum góða hvunndegi. Besm framtíðaróskir. R.S.E. Dagskráin Legg hlustir við kliðmjúkt talmálið á rás 1 S tvarpið hefur verið mér hugleikið um langa hríð, ekki hvað síst á þeim áram er ég starfaði sjálfur innan veggja þess. Um tíma átti ég ekki sjónvarp og þá hlustaði ég mun meira á út- varp en í seinni tíð. Það er fyrst og fremst Rás 1 sem ég legg eyran við, en þó hlýði ég endram og sinnum á ákveðna dagskrárliði Rásar 2. Aðrar útvarpsstöðvar hlusta ég minna á, en renni gjarnan upp og niður skalann þegar ég er í bílnum til að kanna hvaða tónlist stöðvarn- ar leggja áherslu á þá smndina. Starfsins vegna hlusta ég þó mest á nýja óútgefha tónlist eða gamla tónlist sem er löngu hætt að heyr- ast í útvarpinu. En inér þykir gott að hvíla eyran öðra hvora og leggja við hlusdr þegar kliðmjúkir talsmálsliðir era á dagskrá svo sem Laufskálinn á morgnana og Þjóð- arþel síðdegis. Þættir eins og Skíma, Leslamp- inn og Sumarvakan fá athygli mína óskipta þegar svo ber undir. Sjón- varpið virkar oft á mig sem segull og hættir mér við að sökkva alger- lega inn í myndheiminn þegar sá gállinn er á mér. Eg vinn hinsvegar mjög langan vinnudag og það er því margt sem fer framhjá mér í sjónvarpsdagskránni. Þessa dagana skiptir það sáralitlu rnáli því dag- skrár beggja sjónvarpsstöðvanna era frekar bragðlausar fyrir minn smekk. A fösmdaginn hlusta ég á Jónatan Garðarsson. óskalögin sem Hermann Ragnar spilar í morgunútvarpinu og ég reyni að hlýða á Skímu og Þjóðar- þel síðdegis. Um helgina ætla ég að rækta garðinn minn og þá er gott að hafa kveikt á útvarpinu á meðan graflað er í moldinni. Ætli ég hlusti ekki á Þorstein J á laugardag, Hljóðnem- ann hans Stefáns Jökulssonar og Laugardagsflétm Svanhildar um kvöldið. A sunnudag er það Ljós- brot, þátmrinn unr Odáðahraun og Erjálsar hendur Illuga Jökulssonar. Eg fylgist öragglega með sjón- varpsfréttunum eins og vant er, en annað sjónvarpseffii fer sennilega fyrir ofan garð og neðan þessa helgi. MÍMÍ 06 (ÁWi ír : Æjarni f^ihnUvoh VaiúdðmiliS er bara $ rollomai' bt'cyt- slltaf £9 noia gömlu 90^0 lcjja-Kollmr^í^ferSini afcttir 38 Yeym hama. Mikið ágætis vinafólk mitt á við alvarlegt vandamál að stríða. Það er alltof kurt- eist. Sem bein afleiðing þessa blasir persónulegt gjaldþrot, uppboð, fjö 1 - skylduupplausn og alkohólismi við. Hvernig kurteisi gemr leikið fólk svona grátt er flestum sjálfsagt tor--^> ráðin gáta. Svo mikið er víst að ég man ekki efrir að þeir sem skrifuðu lestrarbækumar þegar ég var í barna- skóla hafi vakið atliygli á vandamál- inu. Þar var kurteisi og hjálpsemi vís- asti vegurinn til gæfu og gengis. En nú er öldin önnur. Þau era fórnarlömb símasölu- inanna. Húsnæði þeirra er að verða óíbúðarhæft vegna alls þess er þar hrúgast inn. Varla líður svo dagur að ekki bætist í búið. Slökkvitæki, sjúkrakassar, öryggishjálmar, heyma- hlífar og fallhlífar er bara hluti þeirra bráðnauðsynlegu öryggistækja sem einhver Lionsklúbburinn kom inn á >. þau. Kjallarinn er fullur af 25 kerta peram sem kvennadeild sama klúbbs losnaði við jtar. Og enginn notar 25 kerta perar! Þau hafa þurft að fjölga ffystikist- unum hjá sér í þrjár til að koma fyrir rækjuin sínum, smokkfiskum og ýmsum torkennilegum neðansjávar- dýrum sem einn sölumaðurinn fékk þau til að taka í áskrift. Eg held að hann komi annan hvern dag. Elsta dóttir þeirra er flutt að heiman eftir að hafá lent í því að vera milli tann- anna á skólafélögum sínum fyrir að lykta óvenjulega. Og tilfellið er að-^ þegar menn era komnir með nokkra sekki af harðfisk inn í íbúðina sína þá verður lyktin óneitanlega nokkuð sterk. Raunar hefur verið boðað til fundar í húsfélaginu í næstu viku til að ræða hvort eigi að henda þeim út sökum stækjunnar. Almenna bókafélagið ffegnaði fljótlega af þessu og dælir nú rimm sínum til þeirra og er raunar hætt að spyrja hvort þau vilji. Bækurnar bara koma og síðan er tekið af VISA reikningnum. Fleiri virðast reyndar hafa áttað sig á möguleikanum því síðast þegar ég kom í heimsókn vora ^ þau hjónin í blóðspreng að reyna að koma fyrir ritverkum Lenins. Öllum bindunum 52. Rússneska sendiráðið hafði verið að taka til hjá sér. Og af því þau tóku öll bindin fá þau Bresnjev í kaupbæti. En það era þó ekki nerna 24 bindi, Þau era svo sem vel meðvituð um vandann og harðákveðinn í að falla aldrei aftur í ffeistni. En meðan ég var hjá þeim hringdi síminn einn ganginn enn og þar var einn tungulipur ffá SAM-útgáfunni. Og þrátt fyrir „nei takk" og „órnögu- lega" þá endaði samtalið með því að heimilið var orðið áskrifandi að öll- um tímaritum útgáfunnar. Allt frá Vikunni til Eros. Að vísu fá þau í kaupbæti nokkur ástalífsmyndbönd frá Playboy. Þau verða hins vegar að muna eftir að segja þeim upp nákvæmlega 31. sept- ember því annars era þau komin með fimm ára áskrift að myndböndum þess fyrirbæris. Og allt er þetta bölvaðri kurteis- inni að kenna. Þessar ágætu lestrar- bækur vora líka skrifaðar fyrir daga símasölumennskunnar og þeirrar kramarahyggju sem menn stofna nú félög um og kenna við ffelsi og ff jáls- lynda jafnaðarmennsku.

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.