Vikublaðið


Vikublaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 23

Vikublaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 23
VIKUBLAÐIÐ 24. FEBRÚAR 1994 23 Við þurfum nýja ríkisstjórn Ályktun kjördæmisráðs Alþýðubanda- lagsins í Reykjanesi Kjördæmisráð Alþýðubanda- lagsins í Reykjaneskjördæmi áréttar að brýnt er að skipt verði um stefnu og starfshætti í lands- stjórninni. Vaxandi atvinnuleysi, auk- inn kjaramunur, misrétti og víðtæk fá- tækt setja æ meiri svip á íslenskt þjóð- félag. í stað þess að takast á við þessi vandamál eru forysmsveitir Alþýðu- flokks og Sjálfstæðisflokks önnum kafhar við ýmist að troða flokksgæð- ingum í embætti eða fyrirskipa brott- rekstur þeirra sem hafa sjálfstæðar skoðanir. Nauðsynlegt er að sem fyrst korni hér ný ríkisstjórn með þátttöku Al- þýðubandalagsins sem festi í sessi breytta stefnu og heiðarleg vinnu- brögð. Verkefni nýrrar ríkisstjórnar er að tryggja fulla atvinnu, auka jöfn- uð og félagslegt réttlæti, taka upp nýja launastefnu, heþa siðbót og tryggja eðlilegar leikreglur í stjórnkerfinu. Alþýðubandalagið hefur lagt fram ítarlegar tillögur um stefuugrundvöll nýrrar ríkisstjórnar. A næsm mánuð- um mun flokkurinn efna til viðræðna víða í kjördæminu um framkvæmd þessarar stefnu. Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðis- flokkurinn gáfu íbúum í Reykjanes- kjördæmi stór loforð í síðusm kosn- ingum. Nýtt álver og nýsköpun í sjáv- arútvegi og iðnaði átm að tryggja sóknarskeið í kjördæminu. Skattar átm að lækka en tekjur launafólks að aukast. Allt hefur þetta verið svikið og þinginenn og ráðherrar hafa flúið í feit embætti. Frambjóðendur stjórn- arflokkanna hafa rofið þann sáttinála sem þeir gerðu í síðustu kosningum við íbúa í Reykjaneskjördæmi. Það er því brýnt að boða sem fyrst til alþingiskosninga og veita nýrri rík- isstjórn umboð til að stjórna landinu. Tilboð á rennum og niðurföllum Bjóöum nú mjög hagstætt verð á rennum og niðurföllum. Rennur aðeins kr. 391 pr. m og niðurföll kr. 430.- pr. m. BLIKKSMÍÐI STEYPUMÓT BREIflFJORBS BLIKKSMIDJA HF. SIGTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI29022 FLOKKSSTARFIÐ Birting Reykjavík Opinn stjórnarfundur Opinn stjórnarfundur verður haldinn laugardag- inn 26. febrúar n.k. kl. 10:00 að Laugavegi 3, 5. hæð. Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Stjórnin Verðandi Kópavogur Stofnfundur nýs félags, VAKNINGAR, laugardaginn 26. febr- úar n.k. í Þinghóli, húsi Alþýðubandalagsins, Hamraborg 11. Klukkan 15:00 Stofnfundur í Þinghóli, Helgi Hjörvar, varaformaður VERÐANDI talar. Kosning stjórnar. Kiukkan 21:00 Stofnfundarfagnaður í Þinghóli. Skemmtiatriði og uppákomur, m.a. tónlist og Ijóðalestur. Veitingar seldar á vægu verði. Undirbúningsnefndin. Alþýðubandalagiö Hafnarfirði Listahátíð Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði Framboðslisti Alþýðubandalagsins vegna bæjar- stjórnarkosninganna í vor verður kynntur og af- greiddur á Listahátíð í Fjörugarðinum föstudag- inn 25. febrúar kl. 19:00 Léttur málsverður við vægu verði Félagar og stuðningsmenn! Mætum öll og tökum þátt í kosningabaráttunni frá upphafi. Fram til sigurs í vor Alþýðubandalagið Miðstjórnarfundur á Hótel Sögu Miðstjórn Alþýðubandalagsins kemur saman til fundar helgina 5,- 6. mars næstkomandi Fundarstaður: Hótel Saga', salur A Fundartími: Laugardag 5. mars frá kl. 10-19 Sunnudaginn 6. mars frá kl. 10-15 Dagskrá: 1. Samþykktir og verkefni frá landsfundi. 2. Umfjöllun um Útflutningsleiðina. 3. Stjórnmálaviðhorfið - umræður um efna hags- og atvinnumál, sjávarútvegsmál og landbúnaðarmál. 4. Önnur mál. Kvennahreyfing Aiþýðubandalagsins Kvennahreyfing - Kvennahreyfing ! Stofnfundur kvennahreyfingar alþýðubanda- lagskvenna og annarra róttækra félagshyggju- kvenna verður haldinn föstudagskvöldið 4. mars kl. 20:00 að Hótel Lind við Rauðarárstíg Auk hefðbundinna stofn- og aðalfundarstarfa munum við krydda kvöldið með skemmtiatriðum sem Steinunn Jóhannesdóttir undirbýr og hug- leiðingu Dagnýjar Kristjánsdóttur. Undirbúningsnefndin mun leitast við að fyrir fund- inn verði send gögn varðandi hreyfinguna og ít- arleg dagskrá til sem flestra alþýðubandalags- kvenna. Aðrar áhugasamar konur geta snúið sér til skrif- stofu flokksins, Laugavegi 3 í Reykjavík, sími 91- 17500, og fengið afhent gögn. Stofnfundurinn verður auglýstur nánar í VIKU- BLAÐINU að viku liðinni. Mætum sem flestar. Undirbúningsnefndin Alþýðubandalagið á Reykjanesi Þorrablót Alþýðubandalagsfélaganna á Reykja- nesi var haldið með glæsibrag og góðri skemmt- an í Félagsheimili Kópavogs um síðustu helgi. Til stóð að birta myndasíðu í blaðinu frá Þorrablót- inu, en vegna Landbúnaðarblaðs VIKUBLAÐS- INS verður að fresta þeirri birtingu þar til í næsta blaði. Það var mál manna að mjög vel hafi til tekist, enda fullt út úr dyrum. Myndin vartekin í upphafi blótsins. Alþýðubandalagsfélögin í Reykjavík Fundarboð Áríðandi fundur verður haldinn í Kjördæmisráði Alþýðubandalagsfélaganna í Reykjavík, fimmtu- daginn 3. mars nk. kl. 17.30, að Hótel Holliday Inn, Sigtúni 38. Fundarefni: 1. Kynntar niðurstöður úr forvali Alþýðubanda- lagsfélaganna í Reykjavík 12. febrúar sl. 2. Tillaga kjörnefndar um skipan í þau sæti sem koma í hlut Alþýðubandalagsins á hinum sameiginlega framboðslista minnihlutans, Reykjavíkurlistanum, í borgarstjórnarkosn- ingunum í vor. Afgreiðsla. Fyrir hönd stjórnar Kjördæmisráðsins, Sigurbjörg Gísladóttir. Heigi Hjörvar Framleiðum kastdreifara, tankdreifara og sturtuvagna. 800 Selfoss Sími98-22000 Fax 98-22039 Tökum að okkur hverskyns járnsmíði og gerum tilboð í stór smíðaverk sem smá. í vinnu og leik 66°N framleiðir kuldagalla sem staðist hafa fullkom- lega íslenskt veðurfar eins og það gerist verst. KRAFT kuldagallarnir henta þeim vel er starfa úti eða stunda mikla útiveru. KRAFT erfyrir kröfuharða! SKÚLAGÖTU 51 REYKJAVÍK SÍMI 91-11520

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.