Morgunblaðið - 18.02.2005, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.02.2005, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR OFBELDIÐ SKAÐAR BÖRN Sagt er í grein í breska lækna- tímaritinu Lancet að ung börn bíði tjón af því að sjá ofbeldi í sjónvarpi og í tölvuleikjum. Er sagt í greininni að niðurstöður margra rannsókna sýni þessa niðurstöðu. Foreldrum beri að sýna sams konar aðgæslu varðandi ofbeldisefnið og þeir geri þegar eitur og hættuleg efni eru annars vegar. Handtökur á Írlandi Írska lögreglan hefur handsamað alls sjö IRA-menn sem talið er að geti tengst miklu bankaráni á N-Ír- landi í fyrra. Einn hinna handteknu er sagður vera frammámaður í Sinn Fein, stjórnmálalegum armi IRA. Hryðjuverkasamtökin hafa ávallt neitað aðild að ráninu. Sjítar fengu meirihluta Staðfest var í Írak í gær að flokka- bandalag sjíta-múslíma hefði hlotið nauman meirihluta sæta í þingkosn- ingunum í janúar. Alls fengu 12 flokkar sæti en talið er að tekið geti nokkrar vikur að mynda ríkisstjórn. Atkvæðaréttur skoðaður Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hefur Fjármálaeftirlitið óskað eftir upplýsingum frá 30 stærstu hluthöfum í Íslandsbanka um það hvort og hvernig þeir hygg- ist neyta atkvæðaréttar síns á aðal- fundi bankans í næstu viku. FME sendi í gær bréf á þennan hóp hluthafa og óskar svara fyrir kl. 17 í dag. Framtíð Landsvirkjunar Valgerður Sverrisdóttir við- skiptaráðherra segir lífeyrissjóðina kunna hugsanlega að verða framtíð- areigendur sameinaðs fyrirtækis Landsvirkjunar, Orkubús Vest- fjarða og Rafmagnsveitna ríkisins. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 32/38 Viðskipti 14 Staksteinar 55 Erlent 16/18 Bréf 32 Höfuðborgin 22 Skák 43 Akureyri 22 Dagbók 42/44 Suðurnes 23 Brids 43 Landið 23 Leikhús 46 Listir 24 Fólk 48/53 Umræðan 30/31 Bíó 50/53 Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54 Viðhorf 38 Veður 55 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp- héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " #           $         %&' ( )***                                 SÓTT verður um íslenskt vegabréf fyrir skákmeistarann Bobby Fischer í dag. Að sögn Sæmundar Pálssonar, vinar Fischers, var ákveðið á fundi í stuðningshópi skákmeistarans í gær að þeir Sæmundur og Einar S. Ein- arsson færu á fund Útlendingastofn- unar og sæktu um ferðaskilríki. Sæ- mundur bindur vonir við að ferðaskilríki fáist, eftir fund allsherj- arnefndar Alþingis í gær, og vonar að þau dugi til að fá Fischer leystan úr haldi í Japan. Allsherjarnefnd Alþingis ákvað í gær að leggja ekki til við Alþingi, að svo stöddu, að Bobby Fischer fái rík- isborgararétt hér á landi. Bjarni Benediktsson, formaður nefndarinnar, sagði að umsókn Fischers byggðist á því, að með því að fallast á íslenskan ríkisborgarrétt fengi hann betri lagalega stöðu í deil- um sínum við stjórnvöld í öðru landi. Þegar verið gripið til aðgerða „Það sem meðal annars ræður minni afstöðu er að stjórnvöld hafa þegar gripið til aðgerða til að tryggja að Bobby Fischer geti komið hingað til lands. Þegar þetta liggur fyrir tel ég ekki að ástæða sé til að veita hon- um ríkisborgararétt að svo stöddu, meðal annars vegna þess að með því væri verið að hafa afskipti af deilum hans við stjórnvöld annars ríkis.“ „Ég hefði gjarnan viljað sjá aðra lendingu, að gengið hefði verið frá þessu. En við ætlum að bíða og láta reyna á ferðaskilríkin áður en við tök- um málið upp aftur,“ sagði Guðrún Ögmundsdóttir, sem á sæti í allsherj- arnefnd. Vísaði hún þar til þess að ís- lensk stjórnvöld hafa veitt Fischer vilyrði fyrir dvalarleyfi og ferðaskil- ríkjum. „Málinu er alls ekki lokið sem betur fer, það er enn opið að því leyti að látið verður reyna á ferðaskilríkin. Annars er þetta spurning um að taka umsókn hans fyrir aftur í apríl þegar nefndin tekur fyrir aðrar umsóknir um ríkisborgararétt.“ Sótt um vegabréf fyrir Bobby Fischer í dag BÖRKUR Gunnarsson kvikmynda- gerðarmaður hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi hjá þjálfunar- sveitum Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Írak, samkvæmt upplýs- ingum Illuga Gunnarssonar, að- stoðarmanns Davíðs Oddssonar ut- anríkisráðherra. Illugi segir að Börkur haldi senn til Ítalíu og þar muni hann gangast undir vikulanga þjálfun. Þaðan fari hann til Íraks og taki við starfi upp- lýsingafulltrúa NATO eftir tvær vikur. Utanríkisráðuneytið réð Börk til starfans. „Þetta er hluti af okkar aðstoð og framlagi til endurbygg- ingar í Írak með sambærilegum hætti og það sem við höfum verið að gera í Afganistan,“ segir Illugi. Ráðinn upplýs- ingafulltrúi hjá NATO í Írak UM 300 manns eru á biðlista á gigt- arsviði, sem er eitt af níu meðferðar- sviðum Reykjalundar. Að sögn Ingólfs Kristjánssonar, endurhæfingarlæknis á Reykjalundi, koma u.þ.b. 200 nýjar beiðnir um gigtarendurhæfingu á ári, en hann segist aðeins ná að anna um 110–120 sjúklingum árlega. Hann seg- ir vandamálið liggja í takmörkuðum úrræðum. „Við erum með göngudeild sem hefur ekki fengist fjármagn til þess að byggja upp eins og skyldi.“ Hann segir þann möguleika vera fyrir hendi að leiðbeina fólki sem þurfi ekki á innlögn að halda á rétta staði. Oftar en ekki sé um að ræða sjúkra- þjálfun, sund, leikfimi og annað slíkt sem komi gigtarsjúklingum til góða. Ingólfur segist hafa sett þak á deildina hjá sér þannig að fólk eigi ekki að koma nema á fimm ára fresti, þ.e. ef ekki er um sérstök tilfelli að ræða. Með því að meta ástand hvers og eins nær Ingólfur að halda fjöldanum í horfinu þannig að biðlistinn lengist ekki mikið. „Ég reyni að sinna þeim sem aldrei hafa fengið að koma til okk- ar,“ segir Ingólfur, sem er eini lækn- irinn á gigtarsviði Reykjalundar. Ingólfur segir aðrar stofnanir en Reykjalund sinna endurhæfingu sjúk- linga með þessa sjúkdóma að ein- hverju leyti, s.s. Gigtarfélagið, Heilsu- stofnun Náttúrulækningafélags Íslands og endurhæfingarsvið Land- spítala – háskólasjúkrahúss. Ingólfur er þeirrar skoðunar að efl- ing göngudeildarinnar sé góð lausn á vandamálinu til að byrja með. „Maður gæti þá ráðlagt fólki hvað það ætti að gera. Sent það í sundleikfimi, sjúkra- þjálfun, leikfimi og leiðbeint því um endurhæfingu.“ Hann segir að oft á tíðum hafi ekki verið lögð nógu mikil áhersla á að fólk sinni sér sjálft með því að hreyfa sig, borða hollan mat og sofa vel. Fólk taki þannig ábyrgð á eig- in heilsu að því marki sem það getur. Á gigtarsviði er pláss fyrir 15 sjúk- linga og segist Ingólfur reyna að halda átta til tíu plássum fyrir sjúklinga sem þjást af klassískum gigtarsjúkdómum, eins og iktsýki, psoriasisgigt og slit- gigt. 300 eru á biðlista eftir meðferð Morgunblaðið/Jim Smart Hreyfing s.s. sund gerir gigtarsjúklingum gott. Hér er sjúklingur ásamt starfsmönnum í lauginni á Reykjalundi. Ástand mála á gigtarsviði Reykjalundar ekki nógu gott að mati læknis ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Nýsköpunarverð- laun sín á Bessastöðum í gær í tí- unda sinn. Verðlaunin hlutu þeir Gunnar Örn Erlingsson og Björn Björnsson fyrir verkefni sitt um ör- yggismál í miðborg Reykjavíkur. Í verkefninu er unnið hermilíkan fyr- ir skyndilega rýmingu miðbæjarins á Menningarnótt. Morgunblaðið ræddi við Björn eftir afhendinguna, en Gunnar var staddur í Bandaríkjunum. Hug- myndina að verkefninu sagði hann hafa kviknað í áfanga hjá Páli Jens- syni, leiðbeinanda þeirra, og þá hefði kærasta Gunnars unnið svipað verkefni um rýmingu Þjóðleikhúss- ins og þeir þurftu vitanlega að gera eitthvað stærra! Hann sagði að ástæður rýmingar gætu verið ýms- ar, jarðskjálfti væntanlega sú líkleg- asta hérlendis. Aðferðafræðina við þetta verkefni mætti vel nota til þess að búa til sambærilegt hermi- líkan fyrir aðrar borgir eða önnur svæði. Páll Jensson, leiðbeinandi þeirra, sagði þá hafa útfært hug- myndina afskaplega vel og unun hefði verið að fylgjast með þeim. Öryggismál hefðu ekki verið í tísku hjá ungu fólki og því væri afar ánægjulegt að sjá þá sýna þeim þennan áhuga. Forsetinn sagði í ræðu sinni að verðlaunin hefðu unnið sér traustan sess í þjóðfélaginu og væru til marks um hve mörg svið þess væru enn ókönnuð. Um leið sýndu þau þó að hugmyndaauðgi ungs fólks væru engin takmörk sett. Verkefnin væru til vitnis um agaða vísindamenn og trausta fræðimennsku. Hann sagði menntun hverrar þjóðar mikilvæga fyrir orðsporið og lýsti yfir ánægju með síaukna breidd hjá íslenskum háskólum. Nýsköpunarverðlaunin væru eins konar uppskeruhátíð og gleðilegt væri hve hinir tilnefndu væru úr ólíkum áttum. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Birni Björnssyni Nýsköp- unarverðlaunin við athöfn á Bessastöðum í gær. Verðlaunaðir fyrir rýming- aráætlun miðborgarinnar HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær út- gerðarfélagið Brim hf. til að greiða fyrrverandi háseta tæpar 16 millj- ónir króna í skaðabætur vegna slyss um borð í Hólmadrangi í nóv- ember 1999. Slysið varð með þeim hætti að búið var að hífa trollið þegar bára skall á skipinu með þeim afleiðingum að tveir stórir steinar, sem komið höfðu upp með trollinu, lentu á tveimur hásetum. Hlaut stefnandi opið beinbrot á vinstri fæti. Með dómi sínum staðfesti Hæsti- réttur dóm Héraðsdóms Norður- lands eystra frá 25. júní sl. Bóta- krafan hljóðaði upp á 27,5 milljónir króna en bæði dómstig töldu að bæði útgerðin og hásetinn bæru ábyrgð á slysinu, þar af útgerðin að 2⁄3 hlutum. Að mati Hæstaréttar var ekki um að ræða markvissa verk- stjórn um borð í skipinu við þær hættulegu aðstæður sem voru þeg- ar slysið varð. Þá hefði stýrimaður vegna ástands kallkerfis ekki getað varað hásetana við yfirvofandi hættu á að grjótið færi á hreyfingu. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason og Gunnlaugur Claessen. Hákon Árnason hrl. flutti málið fyrir Brim og Helgi Birgisson hrl. fyrir hásetann. 16 milljónir króna í bætur fyrir vinnuslys

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.