Morgunblaðið - 18.02.2005, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 11
FRÉTTIR
HORFURNAR fyrir Íbúðalánasjóð
varðandi langtíma skuldbindingar í
innlendri mynt eru neikvæðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu
matsfyrirtækisins Standard &
Poor’s frá því í fyrradag.
Íbúðalánasjóður lét þessa ógetið í
tilkynningu sem sjóðurinn sendi til
Kauphallar Íslands í kjölfar tilkynningar Stand-
ard & Poor’s, en sagði þar að matsfyrirtækið
hefði staðfest gott lánshæfismat sjóðsins. Í til-
kynningu Íbúðalánasjóðs var heldur ekki minnst
á að Standard & Poor’s segir að ef markaðs-
hlutdeild sjóðsins á íbúðalánamarkaði muni halda
áfram að minnka, vegna samkeppni við bankana,
sé það skilningur matsfyrirtækisins að vilji rík-
isins til að standa við bakið á Íbúðalánasjóði geti
minnkað. Ábyrgð ríkisins í þessum efnum sé
ástæðan fyrir því að Íbúðalánasjóður fái sama
lánshæfismat og ríkið.
Af athugunarlista
Í síðustu viku tilkynnti Standard & Poor’s að
lánshæfiseinkunn Íbúðalánasjóðs vegna skuld-
bindinga í innlendri mynt hefði verið sett á athug-
unarlista. Ástæðan var sögð óvissa um framtíð-
arstuðning íslenska ríkisins við sjóðinn. Nú hefur
Standard & Poor’s tilkynnt að Íbúðalánasjóður
hafi verið tekinn af umræddum athugunarlista,
en að horfurnar fyrir sjóðinn séu engu að síður
neikvæðar.
Íbúðalánasjóður sendi tilkynningu til Kauphall-
ar Íslands í fyrradag, vegna hinnar nýju tilkynn-
ingar Standard & Poor’s, með yfirskriftinni:
„Standard & Poor’s staðfestir gott lánshæfismat
Íbúðalánasjóðs.“ Í framhaldinu var svo eftirfar-
andi texti í tilkynningu sjóðsins: „Standard &
Poor’s hefur staðfest gott lánshæfismat Íbúða-
lánasjóðs eftir sérstaka úttekt á stöðu sjóðsins.
Lánshæfiseinkunn Íbúðalánasjóðs er því eftir
sem áður sú sama og íslenska
ríkisins AA- vegna langtíma-
skuldbindinga í erlendri mynt
og AA+ fyrir langtímaskuld-
bindingar í íslenskum krónum.
Þá er sjóðurinn með lánshæfis-
einkunnina A-1+ fyrir skamm-
tímaskuldbindingar í erlendri
mynt og íslenskum krónum.“ Fleira kom ekki
fram í tilkynningu Íbúðalánasjóðs.
Hugsanlega breytt hlutverk
Íbúðalánasjóður getur þess í engu í tilkynning-
unni til Kauphallarinnar að Standard & Poor’s
segir að horfurnar fyrir sjóðinn séu neikvæðar.
Þá er þess heldur ekki getið að í tilkynningu
matsfyrirtækisins kemur fram að lánshæfisein-
kunn Íbúðalánasjóðs endurspegli að sjóðurinn sé
í 100% eigu ríkisins. Í tilkynningu Standard &
Poor’s segir að lánshæfiseinkunn sjóðsins end-
urspegli beinan og afdráttarlausan stuðning ís-
lenska ríkisins og sýni fullkomna ábyrgð ríkisins
á skuldum Íbúðalánasjóðs (sem sé þó þannig að
ríkið þurfi ekki að standa skil á skuldbindingum
sjóðsins umsvifalaust).
Standard & Poor’s metur horfurnar fyrir
skuldbindingar Íbúðalánasjóðs í innlendri mynt
neikvæðar á þeirri forsendu að hlutdeild sjóðsins
á íbúðalánamarkaði hafi minnkað verulega og að
hann búi ekki lengur við einokunarstöðu. Vísar
matsfyrirtækið einnig til þess að nú sé til með-
ferðar hjá Evrópudómstólnum kæra Samtaka
banka og verðbréfafyrirtækja (SBV), þar sem
fjallað er um það hvort stuðningur ríkisins við
Íbúðalánasjóð sé í samræmi við reglur Evrópska
efnahagssvæðisins eða ekki. Niðurstöðu í því máli
sé að vænta í lok þessa árs eða í byrjun þess
næsta. Telur Standard & Poor’s að hlutverk
Íbúðalánasjóðs verði hugsanlega endurskoðað í
kjölfarið.
Segir horfur neikvæðar
fyrir Íbúðalánasjóð
Sjóðurinn greindi ekki frá neikvæðu mati Standards & Poor’s í tilkynningu
Aðalfundur
Freyju haldinn
í næstu viku
Á MIÐVIKUDAG í næstu viku
verður aðalfundur Freyju, félags
framsóknarkvenna í Kópavogi,
haldinn í annað sinn á þessu ári.
Fyrri aðalfundurinn, sem fram
fór 27. janúar sl., var ólöglegur
að mati laganefndar flokksins.
Breytingar á lögum félagsins,
sem samþykktar voru á aðalfundi
í október sl. og snerust m.a. um
að flýta aðalfundi, voru ekki
sendar kjördæmasambandi
Framsóknarflokksins til staðfest-
ingar fyrr en að aðalfundi lokn-
um.
Því var ekkert annað að gera
en að boða til nýs aðalfundar.
Var tímasetning hans ákveðin á
stjórnarfundi nýverið.
María Marta Einarsdóttir, for-
maður Freyju, segir erfitt að spá
fyrir um hvort fundurinn verður
átakafundur líkt og sá sem hald-
inn var í janúar.
Fjöldi nýrra félagsmanna
skráði sig í Freyju rétt fyrir að-
alfundinn í janúar. Voru þrjár af
þessum konum kosnar í stjórn en
María Marta endurkjörin formað-
ur eftir að ein af nýju fé-
lagskonunum hafði dregið fram-
boð sitt til baka á fundinum. Sá
fundur hefur sem fyrr segir ver-
ið dæmdur ólöglegur.
Framlengir
gæsluvarðhald
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
framlengdi í gær gæsluvarðhald yf-
ir Íslendingi sem grunaður er um
aðild að smygli á um fjórum kílóum
af amfetamíni til landsins í janúar
sl. Varðhaldið var framlengt um
tvær vikur. Gæsluvarðahalds-
úrskurðurinn rennur því út, til 3.
mars, sama dag og gæsluvarðhald
Þjóðverja sem situr inni vegna
sama brots.
Í fyrradag framlengdi héraðs-
dómur gæsluvarðhald manns vegna
rannsóknar á smygli á samtals 11
kílóum af amfetamíni, 2.000 e-töfl-
um og um 600 grömmum af kók-
aíni. Varðhaldið var framlengt um
sex vikur.
Kauphöllin skoðar
upplýsingagjöfina
KAUPHÖLL Íslands er að skoða upplýsingagjöf
Íbúðalánasjóðs vegna tilkynningar sjóðsins til
Kauphallarinnar í fyrradag í tengslum við láns-
hæfismat Standard & Poor’s fyrir sjóðinn.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Ís-
lands, sagðist í gær ekki geta tjáð sig um þetta
mál á þessu stigi að öðru leyti en því að það væri
til skoðunar hjá Kauphöllinni.
„ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR er
ánægður með að Standard &
Poor’s hafi staðfest að lánshæf-
ismat sjóðsins sé það sama og ís-
lenska ríkisins,“ segir Jóhann G.
Jóhannsson, sviðsstjóri áhættu-
stýringar hjá Íbúðalánasjóði,
aðspurður um muninn á skýrslu
Standard & Poor’s og upplýs-
ingagjöf sjóðsins. „Þegar þeir
segja að horfur sjóðsins séu nei-
kvæðar meinar Standard &
Poor’s að þeir áskilji sér rétt til þess að endurmeta
stöðu sjóðsins með tilliti til markaðsþróunar á fast-
eignalánamarkaðnum næstu misseri en fast-
eignalánamarkaðurinn hér á landi hefur breyst til-
tölulega hratt að undanförnu,“ segir Jóhann.
„Standard & Poor’s vilja eðlilega fylgjast með
þróuninni og taka svo afstöðu til efnahagslegs,
stjórnmálalegs og félagslegs mikilvægis sjóðsins í
samfélaginu í kjölfarið,“ segir Jóhann G. Jóhanns-
son.
„Vilja eðlilega fylgj-
ast með þróuninni“
Jóhann G.
Jóhannsson
STEINA Aradóttir varði
doktorsritgerð sína í líffræði við
háskólann í Lundi í Svíþjóð, 8.
október sl. Steina Aradóttir er
lífræðingur og hefur starfað í
Svíþjóð síðan hún lauk námi.
Andmælandi var prófessor
Elvar Theodórsson frá Háskól-
anum í Linköping. Í dómnefnd
sátu prófessor Cecila Holm,
Lundi, dósent Anders Isaksson, Lundi og dósent
Olof Beck, Stokkhólmi. Aðalleiðbeinandi Steinu var
prófessor Christer Alling.
Doktorsritgerð Steinu heitir „Phosphatidyleth-
anol-formation and degradion in blood and organs“
og fjallar um ákveðna tegund af fosfólípíði (fituefni)
sem myndast í frumum líkamans aðeins þegar alkó-
hól er til staðar. Einn af fitukljúfunum heitir fosfól-
ípasi D (PLD). Við eðlilegar aðstæður brýtur hann
fosfatidýlkólín (sem er algengasta fosfólípíðið í
frumuhimnunni) í fosfatidýlsýru og kólín. Til þess
þarf PLD aðstoð vatns en kýs alkóhól frekar þegar
það er til staðar og við þær aðstæður myndast hið
óeðlilega fituefni PEth (fosfatidýletanól) en ekki
fosfatidýlsýra sem er mikilvægt boðefni inni í frum-
unni. Vitað er að alkóhólmólekúlið sjálft og efnaferl-
ar sem það virkjar valda eituráhrifum í líkamanum.
Hugsanlegt er að PEth eigi einnig þátt í líffæra-
skemmdum sem sjást við langvarandi og mikla
neyslu alkóhóls. Þessvegna er áhugavert að rann-
saka í hvaða líffærum og hve mikið PEth myndast
við alkóhóldrykkju til að skýra sambandið milli þess
og líffæraskemmda. Sé þekking getur leitt af sér
nýjar aðferðir við greiningu á notkun og misnotkun
alkóhóls þar sem PEth er mælanlegt hjá fólki sem
hefur drukkið mikið alkóhól í ákveðinn tíma.
Mælingar á PEth í blóði úr alkóhólistum sýndu
að sjúkdómsgreiningarnæmið hjá PEth var miklu
hærra en hjá CDT, GGT og MCV sem eru við-
urkenndir sjúkdómsvísar fyrir alkóhólisma. Nið-
urstöðurnar sýndu að PEth stendur í sterkara sam-
bandi við hversu mikið alkóhól hefur verið drukkið
síðustu fjórtán dagana en hin mæliefnin gera. PEth
myndast bara í líkamanum ef alkóhól er til staðar
og mæliaðferðin hefur góða nákvæmni til að finna
PEth svo það er ástæða til að draga þá ályktun að
sjúkdómsgreiningartæknin sé góð. Framtíðarrann-
sóknir verða að leiða í ljós hvort þetta er rétt.
Foreldrar Steinu voru Ari Bergþórsson skip-
stjóri og Guðlaug Aðalsteinsdóttir, matráðskona
og húsfreyja Neskaupstað. Þau er bæði látin. Eig-
inmaður Steinu er dr. Bo Olsson og eiga þau 3 börn.
Þau eru Einar Boson háskólanemi, Ívar Boson há-
skólanemi og Alva Bosdóttir menntaskólanemi.
Doktor í líffræði
HÓLASKÓLI, háskólinn á Hólum, og Háskóli Ís-
lands fyrir hönd Stofnunar fræðasetra HÍ hafa
gert með sér samkomulag um samstarf á sviði
rannsókna og kennslu í fiskeldi og skyldum grein-
um, ferðamálafræði, hestamennsku, hrossarækt
og öðrum greinum sem stofnanirnar fást við, svo
sem fornleifafræði, guðfræði og byggðafræði.
Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla, segir þetta
aukna samstarf skólanna mikilvægt, Háskóli Ís-
lands muni með samningnum staðsetja kennara
að Hólum og að stefnt sé að sameiginlegum stöð-
um háskólakennara hjá skólunum.
Í frétt frá skólunum segir að með samstarfinu
verði unnt að mæta mikilli og vaxandi þörf í land-
inu fyrir rannsóknir og háskólamenntun á þessu
sviðum og greidd gata að enn frekari samstarfi
skólanna. „Náin samvinna verður við stofnanir og
fyrirtæki hérlendis og erlendis. Lögð verður
áhersla á að samstarfið leiði til þekkingar og
menntunar í hæsta gæðaflokki sem standist í einu
og öllu alþjóðlegan samanburð,“ segir einnig.
Farsælt samstarf frá 1990
Skúli Skúlason segir að skólarnir hafi átt með
sér farsælt samstarf allt frá 1990 um rannsóknir
og rannsóknarnám og hafa verið gerðir ýmsir
samningar um gagnkvæma nýtingu á aðstöðu,
kennslusamstarf og fleira. „Styrkur samstarfsins
hefur ekki síst legið í meistara- og doktorsverk-
efnum nemenda við Háskóla Íslands sem hafa
unnið verkefni sín að nokkru eða öllu leyti á Hól-
um,“ segir Skúli. Segir hann að með því að tengja
þannig saman Stofnun fræðasetra HÍ og Hóla-
skóla gefist báðum aðilum betra tækifæri til að ná
markmiðum sínum um menntun og rannsóknir.
Samningurinn gerir ráð fyrir að kennari frá
HÍ, sem staðsettur verður á Hólum, taki þátt í
rannsóknum og kennslu við Hólaskóla. Einnig
verði hann tengiliður milli nemenda HÍ sem eru í
verkefnum hjá Hólaskóla og stefnt er að því að
skólarnir komi á fót sameiginlegum störfum há-
skólakennara og sérfræðinga sinna.
Hólaskóli og HÍ auka
samstarf um rannsóknir
Ljósmynd/Bergþór Sigurðsson
Skrifað undir samning. F.v. Rögnvaldur Ólafsson, forstöðumaður Stofnunar fræðasetra HÍ, Eiríkur
Tómasson, varaforseti háskólaráðs HÍ og staðgengill rektors, og Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla.
GT-verktakar
yfirheyrðir í
næstu viku
„MÁLIÐ er í rannsókn og miðar
eðlilega,“ segir Lárus Bjarnason,
sýslumaður á Seyðisfirði, um
kæru Vinnumálastofnunar á
hendur GT verktökum. Vinnu-
málastofnun kærði fyrirtækið til
sýslumannsembættisins fyrir að
ráða til sín starfsmenn frá Lett-
landi sem hvorki hefðu tilskilin
dvalar- né atvinnuleyfi.
„Við höfum ekki náð að taka
skýrslur enn sem komið er af
forsvarsmönnum GT-verktaka,
þar sem lögmaður þeirra er er-
lendis og væntanlegur eftir
helgina,“ sagði Lárus í samtali
við Morgunblaðið.
Búið er að yfirheyra lettnesku
starfsmennina og segir Lárus
framvinduna ráðast af því hvað
út úr yfirheyrslunum í næstu
viku kemur. Þá sé eftir að afla
frekari gagna og geti meðferð
málsins tekið nokkurn tíma.
„Eins og kæran hljóðar er ver-
ið að kæra mennina fyrir meint
brot á útlendingalöggjöf og lög-
um um atvinnuréttindi útlend-
inga. Venjan er sú að þegar
rannsókn er lokið tekur ákær-
andi ákvörðun um hvort ákært
verður. Í þessu tilfelli er ákæru-
valdið væntanlega hjá þessu emb-
ætti, en hins vegar gætum við
líka leitað álits ríkissaksóknara
ef til kæmi.“
GT-verktakar hafa annast
akstur fólksflutningabifreiða á
virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka
og rekið þar byggingarkrana.