Morgunblaðið - 18.02.2005, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 18.02.2005, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚR VERINU SLITNAÐ hefur upp úr viðræðum Landssambands íslenskra útvegs- manna og Vélstjórafélags Íslands um breytingar á núgildandi kjara- samningi þessara aðila. Undanfarnar vikur hefur VSFÍ átt fundi með LÍÚ um breytingar á kjarasamningi þeim sem undirrit- aður var á milli þessara aðila í maí 2001. Kjarasamningurinn rennur út í árslok. Að sögn Helga Laxdal, for- manns VSFÍ, eru í nýgerðum kjarasamningum LÍÚ við Sjó- mannasamband Íslands og Far- manna- og fiskimannasamband Ís- lands ýmis atriði þess eðlis að erfitt er að hrinda þeim í framkvæmd án beinnar þátttöku Vélstjórafélags Ís- lands. Þannig geti ákvæði um hafn- arfrí í kjarasamningi sjómanna ekki komið til framkvæmda, því þá verði að brjóta samninga við vélstjóra. Aftur á móti rúmist hafnarfrís- ákvæði í samningi vélstjóra innan samninga sjómanna. „Framkvæmd samninganna verður því öll erfið. Ef einhver kærir framkvæmd þeirra þá er það hlutverk okkar að fylgja því eftir, með tilheyrandi fjárútlátum fyrir útgerðina,“ segir Helgi. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir að náist ekki samkomulag við vélstjóra um nýjan kjarasamning verði þeir áfram á þeim samningi sem gerður var 2001. Hann segir hinsvegar að allir sjómenn þurfi að vera með sama kjarasamning hvað ákveðin grundvallaratriði varðar. s.s. varð- andi hafnarfrí en nú stangist þau á. „Þó að útgjöld okkar séu meiri samkvæmt nýja samningnum við FFSÍ og Sjómannasambandið en samkvæmt samningnum við VSFÍ er það æskilegra að sem flest ákvæði séu samræmd. Það er vissu- lega óþægilegt að geta ekki fram- kvæmt ákveðin atriði í nýja samn- ingnum og að þurfa að gera upp með tvennum hætti. Á sama hátt hljóta vélstjórar að vilja sækja þær kjarabætur sem í nýja samningnum felast, þannig að ég trúi því að við tökum viðræðurnar upp að nýju með það að markmiði að ná þessu saman,“ segir Friðrik. Slitnar upp úr við- ræðum VSFÍ og LÍU VEL hefur tekist til með að auka sjálfstæði grunnskólanna í borginni og samskipti skólastjórnenda við fræðslumiðstöð eru góð, segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi R-list- ans og formaður menntaráðs, sem áður hét fræðsluráð. Þetta sýni ný- útkomin stjórnsýslu- og rekstrarút- tekt innri endurskoðunar Reykjavík- urborgar á fræðslumiðstöð sem rædd var á fundi borgarstjórnar á þriðjudag. Stefán Jón segir að skólastjórn- endur telji sig hafa nægjanlegt fjár- hagslegt og faglegt svigrúm til að stjórna sínum skólum samkvæmt út- tektinni. Þeir geti mætt óvæntum liðum í rekstrinum og hafi mun betri yfirsýn yfir fjárhagsstöðu skóla sinna en árið 2000. Þá geti skólar skapað sér sérstöðu innan markaðr- ar faglegrar stefnu og rammafjár- veitinga. Óljósar niðurstöður Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði á fundi borgarstjórnar að úttektin sýndi að bæta þyrfti bókhaldslega meðferð reikninga, eftirfylgd með áritun launalista væri ekki nægilega markviss og æskilegt væri að fræðslumiðstöð íhugaði gerð áhættumats gagnvart málaflokknum í heild. Hún gagnrýndi að ekki væri til- greint hvert svarhlutfall skólastjórn- enda í þessari úttekt var og hvernig þeir svöruðu einstökum spurning- um. Margt í skýrslunni væri almennt orðað. Nákvæmar upplýsingar lægju ekki fyrir og þegar hún kannaði mál- ið nánar hefði hún fengið þær upp- lýsingar að ekki hefði verið um eig- inlega könnun að ræða. Skóla- stjórnendur hefðu verið hikandi við að svara þar sem mögulegt var að rekja svörin til þeirra. Hún gerði fjárhagslegt og faglegt sjálfstæði grunnskólanna að umtals- efni og sagði marga skólastjórnend- ur segja þetta sjálfstæði í orði en ekki á borði. „Er það faglegt sjálf- stæði að allir almennu skólarnir í borginni verða að hafa skólasetningu á nákvæmlega sama degi og skólaslit sömuleiðis? Er það dæmi um faglegt og fjárhagslegt sjálfstæði að skóla- stjórar höfðu ekkert um það að segja að frístundaheimilin voru öll sett undir ÍTR? Og að borgaryfirvöld ákveði að öll skuli þau byrja á ná- kvæmlega sama tíma á degi hverjum óháð því hvenær skóla lýkur á dag- inn?“ spurði Guðrún Ebba. „Gerið eins og ég segi“ Hún efaðist um að sjálfstæði al- mennu skólanna væri jafnmikið og Stefán Jón vildi vera láta. Og hann vildi einnig takmarka sjálfstæði þeirra fimm sjálfstæðu skóla sem væru eftir í borginni. Sagði hún hægt að lýsa sýn formanns mennta- ráðs á sjálfstæði skólanna með þess- um orðum: „Verið sjálfstæð en gerið eins og ég segi.“ Stefán Jón ítrekaði að skýrslan sýndi góða stöðu fræðslumála hjá borginni. Þessi málaflokkur tæki til sín um 45% af heildarútgjöldum borgarsjóðs. Reykvískir skólar og fræðslumiðstöðin hefðu ákveðið for- ystuhlutverk meðal sveitarfélaga við mótun stefnu á þessu sviði, gerð starfsáætlana og hvernig úthluta ætti fjármagni til grunnskóla. Hann sagðist ánægður með þessa úttekt og þakkaði sjálfstæðismönnum fyrir að óska eftir henni. Um 45% af útgjöldum borgarsjóðs til fræðslumála Skólarnir hafa nægj- anlegt sjálfstæði MIKILVÆGASTA neyðarhjálpin sem unnt er að veita íbúum á Pukh- et-eyju sem varð illa úti í flóðbylgj- unni miklu annan í jólum, felst í að fá ferðamenn aftur á staðinn. Að mati Svend Richters, tannlæknis í kennslanefnd ríkislögreglustjóra, sem kom frá Pukhet-eyju um síð- ustu mánaðamót, bíða Taílendingar tilbúnir með þjónustu sína handa ferðamönnum og ríður mikið á að þeir byrji að láta sjá sig enda eru þeir lífsbjörg Taílendinga á þessu svæði. Enn er unnið hörðum höndum að uppbyggingarstarfi og er mikið starf framundan að sögn Svends. Um síð- ustu mánaðamót voru ekki komnir neinir ferðamenn til Pukhet og er það mjög slæmt fyrir íbúana sem hafa lífsviðurværi sitt af ferða- mennskunni. „Lífið er að komast í sæmilegar skorður aftur,“ segir Svend. „Það er nú verið er að hreinsa þá staði sem urðu illa úti. Besta hjálpin sem hægt er að veita þessu fólki núna er að koma þangað sem ferðamaður því íbúana vantar lífsbjörgina.“ Þegar kennslanefnd ríkislög- reglustjóra var á svæðinu var búið að bera kennsl á 1.600 fórnarlömb flóðbylgjunnar og er hugsanlegt að enn séu 3 þúsund látnir sem eftir er að bera kennsl á. Er því margra mánaða vinna eftir fyrir kennsla- sérfræðinga, en vonast er til að vinn- an muni ganga hraðar fyrir sig með tilkomu nýrrar greiningarstöðvar fyrir látna sem Norðmenn gáfu. Taílendingar bíða tilbúnir eftir ferðamönnum Ljósmynd/Ingólfur Guðbrandsson Lífið er að komast í sæmilegar skorður á Pukhet-eyju og Taílendingar bíða ferðamannanna. Myndin var tekin 29. janúar á miðri Patong-ströndinni. LOÐNUAFLINN í janúarmánuði síðastliðnum var sá þriðji mesti frá upphafi, alls rúm 200 þúsund tonn. Fiskaflinn í janúar 2005 var alls 234.188 tonn en aflinn var 106.474 tonn í janúar 2004. Aflaverðmæti janúarmánaðar, mælt á föstu verði ársins 2003, jókst um 24,2% frá jan- úar 2004, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Loðnuaflinn í nýliðnum janúar var 200.374 tonn miðað við 64.428 tonn í janúar í fyrra. Mestur var janúarafli í loðnu 2003 en þá veiddu íslensk skip 219.120 tonn af loðnu, sam- kvæmt upplýsingum frá Fiskistofu. Botnfiskaflinn í janúar síðast- liðnum var 33.363 tonn en var 31.797 tonn í janúar 2004. Botnfiskafli var meiri í mánuðinum en verið hefur í nokkur undanfarin ár. Lítið veiddist af síld í janúar enda aflaheimildir nánast uppurnar. Rækju- og hörpu- diskveiðar við Ísland liggja nánast niðri um þessar mundir. Ekkert veiddist af hörpudiski og rækjuafl- inn var aðeins 36 tonn í nýliðnum janúar. Rækjuaflinn í janúar 2004 var 356 tonn og þótti afar slakur þá. Yfir 200 þús- und tonn af loðnu í janúar                                  ! !" # $ !$ %!!& $ !! #%!"' !%" &%! ""  "! "!  !#&&      ( )  *+  !'        Sægreifinn í verbúðinni Með freyðivíns- flöskur yfir fiskborðinu á morgun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.