Morgunblaðið - 18.02.2005, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Þér er boðið að koma og
• skoða kennsluhúsnæði og tónleikasal
• hlusta á söngkennslu
• fylgjast með tónfræða- og nótnalesturskennslu
• fara í prufu-söngtíma hjá söngkennara
ó
Opið hús Söngskólinn í Reykjavík verður opinn •öllum sem áhuga hafa á að syngja •og vilja kynna sér starfsemi skólans •sunnudaginn 20.02.2005 kl. 14-18 •
Vetrarhátíð í Reykjavík • Söngskólinn í Reykjavík
UMDEILT bann við að nota hunda við veiðar gengur í
gildi í Bretlandi í dag. Nokkrir stuðningsmenn þess,
íklæddir dýrabúningi, fögnuðu þessum tímamótum í
gær á Þinghústorginu í London með Big Ben í baksýn.
Andstæðingar bannsins eru hins vegar æfir og mót-
mæltu því í gær með 150 veiðiferðum víða á Bretlandi.
AP
Veiðibannið gengið í gildi
Sjítar fá meirihluta
Bagdad. AFP.
LOKATÖLUR úr kosningunum í
Írak voru birtar í gær og staðfesta
þær að sjítar og Kúrdar munu bera
ægishjálm yfir aðra flokka á þinginu.
Yfirkjörstjórn í Írak staðfesti í
gær, að kosningabandalag sjíta, sem
erkiklerkurinn Ali al-Sistani styður,
hefði fengið meirihluta þingmanna
eða 140 af 275 alls. Það þýðir, að sjítar
verða ráðandi afl í Írak og er það í
fyrsta sinn í 1.000 ár, sem slíkt gerist í
arabaríki.
Þrátt fyrir sigurinn, vantar sjíta
allmikið upp á tvo þriðju þingsæta,
sem þarf til að koma í gegn stórum
ákvörðunum á borð við nýja stjórn-
arskrá en stefnt er að því, að drög að
henni liggi fyrir 15. ágúst næstkom-
andi. Það er því líklegt, að þeir leiti
eftir samstarfi við Kúrda en megin-
fylking þeirra fékk 75 þingmenn
kjörna.
Flokkur Iyads Allawis, núverandi
forseta bráðabirgðastjórnarinnar,
varð í þriðja sæti í kosningunum og
fékk 40 þingmenn. Þá fékk listi Ghazi
al-Yawars forseta, sem er súnníti,
fimm menn og flokkur Túrkmena
þrjá. Aðrir fengu minna en alls fengu
12 flokkar mann eða menn á þing.
Baráttan um ráðherraembættin er
þegar hafin og fyrri fréttir um að sjít-
ar hafi tilnefnt Ibrahim al-Jaafari
varaforseta sem forsætisráðherraefni
sitt virðast ekki vera alveg á rökum
reistar. Er enn tekist á um það.
LOUISE Arbour, mannréttinda-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, hefur
hvatt öryggisráð samtakanna til að
samþykkja að meintir stríðsglæpa-
menn í Darfur-héraði í Súdan verði
dregnir fyrir Alþjóðlega sakamála-
dómstólinn í Haag. Bandaríkjamenn
vilja hins vegar að stofnaður verði
sérstakur dómstóll í Tansaníu sem
hafi lögsögu í málinu.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði á fundi
öryggisráðsins í fyrradag að ekki
yrði hægt að koma á friði í Darfur
nema stríðsglæpamenn yrðu sóttir
til saka. Hann lýsti ástandinu í hér-
aðinu sem „helvíti á jörðu“ og skír-
skotaði til skýrslu nefndar á vegum
Sameinuðu þjóðanna þar sem komist
var að þeirri niðurstöðu að stjórn-
arherinn í Súdan og arabískar víga-
sveitir, sem styðja stjórnina, hefðu
að öllum líkindum framið stríðs-
glæpi.
„Þessi skýrsla sýnir, án nokkurs
vafa, að síðustu tvö árin hafa nánast
verið sem helvíti á jörðu fyrir fólkið í
Darfur,“ sagði Annan. „Og þrátt fyr-
ir að öryggisráðið hafi beint athygl-
inni að þessum hörmungum er fólkið
enn í vítisprísund.“
Louise Arbour sagði að Alþjóða-
sakamáladómstóllinn í Haag væri
rétta stofnunin til að fjalla um málið.
Fulltrúar Bandaríkjanna, Kína og
Alsír í öryggisráðinu lögðust hins
vegar gegn því.
Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn
er varanlegur og hefur almenna lög-
sögu í málum einstaklinga sem grun-
aðir eru um alvarlegustu glæpi gegn
mannkyninu. Stjórn Bandaríkjanna
er andvíg dómstólnum og óttast að
hægt verði að nota hann til að sækja
Bandaríkjamenn til saka í pólitísk-
um tilgangi.
Bandaríkjastjórn vill að stríðs-
glæpamenn í Darfur verði dregnir
fyrir sérstakan rétt í Tansaníu þar
sem þegar hefur verið stofnaður
dómstóll til að fjalla um fjöldamorðin
í Rúanda. Sú tillaga nýtur lítils
stuðnings innan öryggisráðsins.
Talið er að minnst 100.000 hafi lát-
ið lífið í Darfur og um tvær milljónir
flúið heimkynni sín vegna átaka og
grimmdarverka í héraðinu frá því í
mars í fyrra.
Ástandinu í
Darfur lýst sem
„helvíti á jörðu“
Embættismenn SÞ vilja að Alþjóðlegi
sakamáladómstóllinn fjalli um málið
Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, skipaði í gær John
Negroponte sem fyrsta yfirmann
allra leyniþjón-
ustustofnana í
Bandaríkjunum.
Er Negroponte
nú æðsti fulltrúi
Bandaríkjastjórn-
ar í Írak og var
áður sendiherra
lands síns hjá
Sameinuðu þjóð-
unum.
Bush sagði, að
vegna sinnar miklu reynslu og starfa í
utanríkisþjónustunni hefði Negro-
ponte góðan skilning á starfsemi
leyniþjónustustofnananna auk þess
að vera öllum hnútum kunnugur í
Washington.
„Ef við viljum verða fyrri til en
hryðjuverkamennirnir, verðum við að
tryggja, að leyniþjónustustofnanirnar
vinni saman sem einn maður,“ sagði
Bush og bætti við, að Mike Hayden,
hershöfðingi og fyrrverandi yfir-
maður Þjóðaröryggisstofnunarinnar,
yrði aðstoðarmaður Negropontes.
Bush hefur beitt sér fyrir mikilli
uppstokkun á leyniþjónustustarfsem-
inni í Bandaríkjunum, þeirri mestu í
50 ár, og er þar um að ræða viðbrögð
við og lærdóm, sem dreginn er af
hryðjuverkunum 11. september 2001.
Mun starf Negropontes felast í því að
samræma starfsemi allra leyniþjón-
ustustofnananna 15.
Líklega nokkrar vikur
í staðfestingu
Búist er við, að það dragist í nokkr-
ar vikur að þingið staðfesti skipan
Negropontes en skipan hans sem
sendiherra hjá SÞ dróst í hálft ár
vegna gagnrýni mannréttindasam-
taka á feril hans sem sendiherra í
Hondúras 1981 til 1985. Var hann
sakaður um að hafa lagt blessun sína
yfir starfsemi dauðasveita, sem voru
að hluta til fjármagnaðar og þjálfaðar
af CIA, bandarísku leyniþjónustunni.
Við yfirheyrslur vegna sendiherra-
embættisins hjá SÞ kvaðst hann ekki
hafa talið, að dauðasveitir væru í
Hondúras.
Negroponte yfir-
maður leyni-
þjónustustofnana
John Negroponte
Washington. AP.
UM 50.000 störf hafa tapast í Sví-
þjóð á síðustu fimm árum vegna
þess, að fyrirtæki hafa flutt starf-
semina úr landi.
Kemur þetta fram í könnun, sem
sænska fréttastofan TT hefur gert
meðal 4.500 fyrirtækja, og hún
sýnir einnig, að láti sænsk fyrir-
tæki verða af fyrirætlunum sínum,
munu 160.000 störf til viðbótar
tapast á næstu fimm árum. Tapast
þau ýmist vegna þess, að fram-
leiðslan er flutt úr landi eða sænsk
fyrirtæki skipta við útlenska und-
irverktaka í stað innlendra. Kom
þetta fram á fréttavef Svenska
Dagbladet í vikunni.
Athuganir á afleiðingum þessa
sýna samt ekki svo óyggjandi sé
mikil áhrif á atvinnustigið. Er það
meðal annars vegna þess, að eft-
irspurn eftir menntuðu fólki hefur
aukist og sumum fyrirtækjum hef-
ur tekist að standast erlenda sam-
keppni með því að flytja megin-
framleiðsluna út. Þau hafa því eflst
og einnig í Svíþjóð.
50.000 störf hafa flust frá Svíþjóð