Morgunblaðið - 18.02.2005, Síða 20
Vík| Það var heilmikið fjör í
íþróttamiðstöðinni í Vík á dög-
unum en þangað streymdu íbúar
í þeim tilgangi að læra sjálfsvörn
á þar til gerðu námskeiði. Gafst
einstakt tækifæri til að kynnast
einni bestu sjálfsvörn sem völ er
á, læra skemmtilegar og krefj-
andi æfingar sem einnig er hægt
að nota til almennrar líkams-
þjálfunar. Leiðbeinandi á nám-
skeiðinu var Egill Örn Egilsson.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Krefjandi æfingar
Sjálfsvörn
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Björgunarskip | Hornfirðingar geta átt
von á nýju björgunarskipi á allra næstu vik-
um og er þetta önnur atrenna þeirra að því
að eignast slíkt skip. Ferð þess með flutn-
ingaskipi frá Bretlandi er þó háð veðurskil-
yrðum, en skemmst er að minnast þegar
björgunarskip, sem verið var að flytja til
Reyðarfjarðar fyrir Hornfirðinga, fór út-
byrðis í óveðri og hvarf í hafið.
Á vefnum hornafjordur.is kemur fram að
það er Slysavarnafélagið Landsbjörg sem
kaupir björgunarskipið. Það er plastskip
frá 1987 af gerðinni Arun 1108, 42 brúttó-
lestir, rúmlega 16 metrar á lengd og ristir
2,7 metra. Tvær Caterpillar 485 hestafla
aðalvélar knýja björgunarskipið, ganghraði
er 15 sjómílur og um borð verður 6 manna
áhöfn. Skipið fer fyrst til Reyðarfjarðar þar
sem gera þarf það sjóklárt áður en siglt
verður til Hornafjarðar, öxuldraga það,
botnmála o.fl. Þegar heim kemur verður
bætt við tækjabúnað skipsins og einhverjar
breytingar verða gerðar.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Íbúalýðræði í verki? | Segja má að íbúar
í Hafnarfirði og aðrir sem erindi áttu á vef
bæjarins hafi fengið vilja sínum framgengt
þegar nafn á nýjan skóla á Völlum var rætt
í fræðsluráði bæjarins á miðvikudag. Ákvað
ráðið samhljóða að skólinn skyldi heita
Hraunvallaskóli, en í skoðanakönnun sem
gerð var á vef bæjarins fékk það nafn 303
atkvæði, en nafnið Ástjarnarskóli 297.
Önnur nöfn sem kosið var um hlutu mun
minni hylli kjósenda.
Skyrið í mikilli sókn | Ágæt sala er á
mjólkurvörum og hefur verið en skyrið sæk-
ir verulega á með tæplega 23% söluaukningu
síðustu 12 mánuði að því er fram kemur á vef
bændasamtakanna. Þar kemur einnig fram
að framleiðsla kjöts hefur heldur dregist
saman undanfarið og nemur samdrátturinn
4% síðustu 12 mánuði. Mestur samdráttur er
í framleiðslu svínakjöts, tæplega 11%. Sala á
kjöti jókst um 1% síðustu 12 mánuði sem
lætur nærri að svara til fólksfjölgunar. Mest
selst af kindakjöti en aukning í sölu þess síð-
ustu 12 mánuði nam 13,8%.
Ráðstefna og Hug-myndasmiðjasamnorræna
verkefnisins „Snow
Magic,“ verður haldin í
Skjólbrekku, Mývatns-
sveit í dag, föstudaginn
18. febrúar, og einnig á
morgun, laugardag.
Þar verða innlendir og
erlendir fyrirlesarar með
efni fyrir þá sem áhuga
hafa á ferðaþjónustu og
skyldu efni.
Fyrirlesarar á ráð-
stefnunni koma frá Sví-
þjóð, Finnlandi og Ís-
landi.
Í erindum þeirra er
m.a. fjallað um Snow
Magic-verkefnið í Sví-
þjóð, stöðu og framtíð-
armöguleika ferðaþjón-
ustu í Þingeyjarsýslu og
sitthvað fleira.
Snætöfrar
Nemendur ogstarfsfólk yngstastigs Grunnskóla
Snæfellsbæjar afhentu
nýlega ágóða af aðgangs-
eyri og vatnssölu á árshá-
tíð skólans. Ágóðann af-
hentu þau Rauðakross-
deild Snæfellsbæjar og
voru það samtals 105.500
krónur. Ari Bjarnason
tók við gjöfinni fyrir
hönd Rauðakrossdeild-
arinnar.
Þema árshátíðarinnar í
ár var vatn í margvís-
legri framsetningu bekkj-
anna. Annað megin-
þemað var það að allur
ágóði hátíðarinnar skyldi
renna til neyðaraðstoðar
RKÍ .
Morgunblaðið/Alfons
Ágóði árshátíðar afhentur
Sigrún Haraldsdóttirlas nýlega að ást-sýki væri hvorki
ljóðræn né rómantísk,
heldur óhræsis þráhyggja.
Það rann upp fyrir henni
nýtt ljós og hún orti:
Ástsýki er vitlausra vandi
og vill ekki lúta rökum.
Þetta er þráhyggju fjandi
með þónokkrum innantökum.
Einar Kolbeinsson var
fljótur að senda Sigrúnu
kveðju:
Afneitar nú öllu því,
sem áður dável kunni,
svona lenti Sigrún í,
sjúkdómsvæðingunni.
Bjarni Stefán Konráðs-
son orti af sama tilefni:
Af ástarsýki síst ég tel
að Sigrún hljóti bana,
því af eymslum öllum vel
Einar læknar hana.
Ástsýki er
vitlausra vandi
pebl@mbl.is
Fjarðabyggð | Boðin hafa verið út tvö stór
verk á vegum Fjarðabyggðar. Annars veg-
ar hönnun og bygging á fjölnota íþróttahúsi
á Reyðarfirði, sem staðsett verður við
grunnskólann og hins vegar annar áfangi í
endurbyggingu sundlaugarinnar á Norð-
firði.
Á vefnum fjardabyggd.is kemur fram að
íþróttahúsið á Reyðarfirði er boðið út í sam-
vinnu við vinabæ Fjarðabyggðar, Akranes,
sem einnig hyggur á byggingu slíks mann-
virkis. Með því að bjóða út sameiginlega
með þeim sparaðist tími sem ella hefði farið
í hönnun á húsinu en slíkri vinnu var lokið á
Akranesi. Um er að ræða óupphitað og
óeinangrað hús með knattspyrnuvelli,
68x105m á gervigrasi, hlaupabraut og
áhorfendapöllum. Einnig er óskað eftir frá-
vikstilboði í upphitað og einangrað hús.
Stofna á félag með Bechtel og Fjarðaáli
um byggingu og rekstur hússins. Gert er
ráð fyrir að helmingur hússins verði tilbú-
inn til notkunar í september 2005 en húsinu
að fullu lokið í september 2006.
Þá hefur verið boðinn út annar áfangi í
endurbyggingu sundlaugarinnar á Norð-
firði, en helstu þættir þess verks eru bygg-
ing nýs sundlaugarhúss með afgreiðslu,
búningsaðstöðu og starfsmannaaðstöðu á
efri hæð, en líkamsræktaraðstöðu og tækni-
rými á neðri hæð ásamt heitum potti og vað-
laug. Áætluð verklok eru í maí 2006.
Þá er sundlaugin á Eskifirði kominn í út-
boðsferli. Eignarhaldsfélagið Fasteign mun
byggja hana en Fjarðabyggð leigja hana af
því fyrirtæki. Áætluð verklok eru í júlí 2006.
Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur beint því
til bæjarstjórnar að haldinn verði opinber
fundur með Reyðfirðingum og öðrum íbú-
um Fjarðabyggðar vegna byggingar áður-
nefnds fjölnota íþróttahúss á Reyðarfirði.
Reynt verði að sætta ólík sjónarmið og
skýra af fremsta megni hugmyndina bak
við verkið, kosti þess og galla og hvort hefði
verið æskilegt að fara einhverjar aðrar leið-
ir en stefnt er á, en nokkur kurr mun hafa
verið vegna áformanna.
Sameinast
um útboð
á fjölnota
íþróttahúsum
Siglufjörður | Bæjarráð Siglufjarðar hefur
samþykkt að fela tæknideild að ganga til
samninga við Teikn á lofti varðandi deili-
skipulag á sumarhúsasvæði á Saurbæjar-
ási, en fyrir fundi ráðsins á dögunum lá til-
laga þess efnis. Í framhaldi af samþykkt
aðalskipulags Siglufjarðar 2003–2023 þarf
að ljúka deiliskipulagi á ákveðnum svæð-
um, s.s. á sumarhúsasvæði á Saurbæjarási
og á íþróttasvæðinu í Hólsdal.
Sumarhúsasvæði
á Saurbæjarhálsi
♦♦♦
Egilsstaðir | Íþrótta-
félagið Höttur á
Fljótsdalshéraði hef-
ur endurskipulagt
starfsemi sína. Í
kjölfar þess að
stofnað var rekstr-
arfélag um Hött,
hefur nú verið ráð-
inn framkvæmda-
stjóri til félagsins og
einnig þjálfarar
meistaraflokks
karla, meistara-
flokks kvenna og 2.
flokks karla.
Halldór Hlöðvers-
son tekur í vor við
sem framkvæmda-
stjóri Hattar rekstr-
arfélags ehf. Gunn-
laugur Guðjónsson mun þjálfa
meistaraflokk karla, Jónatan Logi
Birgisson þjálfar meistaraflokk
kvenna fram á vorið, eða uns
Halldór Hlöðversson tekur einnig
við því hlutverki og Hjalti Þor-
kelsson mun þjálfa 2. flokk karla.
Allt eru þetta miklir reynslubolt-
ar úr knattspyrnunni hjá Hetti og
er vonast til að með þessu fyr-
irkomulagi megi efla innra starf
félagsins svo um munar.
Á kynningarfundi sem haldinn
var um helgina kom m.a. fram að
unnið er að því að gera árangurs-
tengda styrktarsamninga við 2–5
öflug fyrirtæki.
Þá verður árangur og ástund-
um leikmanna metin með
ákveðnum hætti og munu einn til
tveir leikmenn sem skara fram úr
í hverjum flokki geta farið út til
æfinga með erlendum atvinnu-
mannaliðum.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Nýr framkvæmdastjóri Hilmar Gunnlaugsson og
Halldór Hlöðversson innsigla samninga.
Gefið í hjá Hetti
Nýr ritstjóri | Gísli Einarsson, sem rit-
stýrt hefur Skessuhorni héraðsfréttablaði
Vesturlands frá upphafi, frá því fyrsta blað-
ið kom út 18. febrúar 1998, hefur ákveðið að
standa upp úr ritstjórastólnum en starfar
áfram sem blaðamaður og mun einnig rita
vikulega pistla í blaðið svo sem verið hefur.
Magnús Magnússon rekstrarfræðingur
tekur við ritstjórn blaðsins en hann hefur
ásamt blaðamennsku annast rekstur
Skessuhorns ehf. frá árslokum 2003.