Morgunblaðið - 18.02.2005, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 23
MINNSTAÐUR
Echinacea- Root
Gegn kvefi og flensu
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi,
Yggdrasil Kárastíg 1.
Fjarðarkaupum
Borgartúni 24
AUSTURLAND
LANDIÐ
Ólafsvík | Eigendur Hótels Ólafs-
víkur hafa ákveðið að hætta við
stækkun hótelbyggingarinnar vegna
þess að útlit er fyrir að bygging-
arleyfi verði úrskurðað ógilt. Hins
vegar er á þeirra vegum unnið af
fullum krafti við að innrétta hótel-
íbúðir í húsnæði þar sem áður var
rekið Gistiheimili Ólafsvíkur og þeir
hafa fest kaup á og munu reka í
tengslum við hótelið.
Fyrirtækið Undir jökli ehf. festi
kaup á Hótel Ólafsvík, sem áður hét
Hótel Höfði, af Byggðastofnun á síð-
asta ári og síðar einnig Gistiheimili
Ólafsvíkur af Landsbankanum. Fyr-
irtækið er í eigu Sverris Her-
mannssonar sem á Hótel Barón í
Reykjavík, Björgvins Þorsteinsson-
ar hæstaréttarlögmanns og fjöl-
skyldna þeirra. Hafa þeir áform um
stórhuga uppbyggingu fyrirtækisins
með breytingum og stækkun.
Verið er að innrétta gistiheimilið
upp á nýtt. Þar verða 19 hótelíbúðir
með baði og eldhúsaðstöðu. Verða
þær teknar í notkun í apríl, að sögn
Kristínar Jóhannesdóttur sem tekið
hefur við starfi hótelstjóra á Hótel
Ólafsvík.
Jafnframt hugðust eigendurnir
breyta elsta hluta Hótels Ólafsvíkur
og byggja við húsið þannig að þar
yrðu 46 herbergi og öll með baði.
Framkvæmdir við grunn og sökkla
eru hafnar og átti að taka viðbygg-
inguna í notkun í júní. Þær hafa nú
verið stöðvaðar vegna þess að eig-
andi húss í nágrenninu kærði útgáfu
byggingarleyfis. Björgvin Þor-
steinsson segir að eigendurnir hafi
lagt áherslu á að taka hótelið í notk-
un fyrir sumarið enda hafi verið
hagkvæmt að vinna að þessum fram-
kvæmdum saman. Telur hann ljóst
að bænum hafi orðið á mistök við út-
gáfu byggingarleyfis og það taki
tíma að vinna úr þeim með deili-
skipulagi eða á annan hátt. Því verði
ekkert úr stækkun hótelsins. Eig-
endurnir hafi ákveðið að ljúka ein-
ungis við endurnýjun herbergjanna í
eldri hluta hússins. Við það fækkar
herbergjum á hótelinu því öll verða
með sérbaði. Á hótelinu verður því
20 herbergjum færra í sumar en
áform voru um.
Þörf fyrir stækkun
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Snæfellsbæjar, segir að vegna vax-
andi umferðar ferðamanna um Snæ-
fellsnes sé þörf fyrir aukið gisti-
pláss. Bæjaryfirvöld hafi því fagnað
áformum nýrra eigenda hótelsins
um uppbyggingu og reynt eftir
mætti að liðka fyrir að hún gæti far-
ið fram nú. Hann segir að talið hafi
verið nægilegt að láta fara fram
grenndarkynningu á áformum um
stækkun hótelsins og hafi skipulags-
og byggingarnefnd samþykkt að
gefa út byggingarleyfi að því búnu
og að fengnu samþykki Brunamála-
stofnunar. Það hafi eigandi ná-
grannalóðar ekki sætt sig við og tal-
ið að viðbyggingin væri of nálægt
húsi sem hann er að gera upp. Krist-
inn segir að lögfræðingar telji nú
líklegt að það sé rétt, að þurft hefði
að fá samþykki eigandans eða
breyta deiliskipulagi. Segir Kristinn
að vinna við breytingu á deiliskipu-
lagi sé hafin en hún taki sinn tíma.
Segir hann ömurlegt ef þetta leiði til
þess að hætt verði við stækkun hót-
elsins því hún skipti miklu máli fyrir
bæjarfélagið og virkileg þörf sé fyrir
hana.
Kristinn segir að til greina komi
að leysa málið með því að kaupa hús
þess sem kærði útgáfu leyfisins og
það sé í athugun.
Aukin umferð ferðafólks
Björgvin Þorsteinsson telur að
miklir möguleikar séu í hótelrekstri
í Ólafsvík vegna aukinnar umferðar
ferðafólks. Segir hann að hvalaskoð-
un frá Ólafsvík og Þjóðgarðurinn
Snæfellsjökull hafi mikið aðdrátt-
arafl. „Við höldum að möguleikarnir
séu miklir en vitum að það getur
tekið sinn tíma að vinna þetta upp,“
segir hann. Hótelíbúðirnar í gisti-
heimilinu verða leigðar út af hót-
elinu. Björgvin segir einnig koma til
greina að leigja þær félagasamtök-
um sem orlofsíbúðir. Ýmsir mögu-
leikar séu uppi varðandi það.
Nýir eigendur Hótels Ólafsvíkur innrétta nítján hótelíbúðir í gistiheimilinu
Hætt við
viðbyggingu
vegna kæru
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Endurnýjun Iðnaðarmenn vinna á fullu við að innrétta húsnæði gistiheim-
ilisins upp á nýtt. Þar verða teknar í notkun hótelíbúðir eftir tvo mánuði.
Egilsstaðir | Stoppleikhópurinn
ferðast nú á milli skóla á Austur-
landi og sýnir verkið Hrafnkels-
sögu Freysgoða. Hrafnkelssaga,
eða Hrafnkatla, er í hópi þekkt-
ustu Íslendingasagna. Þar segir
frá því þegar Hrafnkell Freysgoði
drepur Einar Þorbjarnarson
smalamann fyrir þá sök að ríða
hestinum Freyfaxa í leyfisleysi.
Leiksýningin er ætluð ungmenn-
um í efstu bekkjum grunnskóla og
nemum á framhaldsskólastigi.
Höfundur leikgerðar og leikstjóri
er Valgeir Skagfjörð, leikarar eru
þeir Eggert Kaaber og Sigurþór
Albert Heimisson. Leikmynd og
búninga hannaði Vignir Jóhanns-
son.
Hrafnkell Freysgoði
fer um Austurland
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Freysgoðinn hrekur Sám frá Aðalbóli Valgeir Skagfjörð og Eggert
Kaaber leikarar í hlutverkum sínum í Hrafnkelssögu Freysgoða.
TENGLAR
...................................................
www.stoppleikhopurinn.com
Egilsstaðir | Á konudaginn, sunnu-
daginn 20. febrúar verður opnuð
sýning, í sýningarskáp Bókasafnsins
á Egilsstöðum, á vettlingasafni í
eigu Helgu Hansdóttur húsfreyju á
Hvolsvelli. Hún hefur safnað vett-
lingum frá 17 ára aldri eða í rúm 40
ár. Safnið er mjög fjölbreytt og er
um 500 gripir. Gefur þar að líta bæði
útprjónaða kjörgripi og hvunndags-
plögg í allavega ástandi, þeir eru
þæfðir, götóttir, viðgerðir og lítt
notaðir eða jafnvel ónotaðir, en eiga
langflestir sína sögu sem er skil-
merkilega skráð. Til dæmis eru í
safninu vettlingar prjónaðir af ein-
hentri konu á Suðurlandi og spari-
vettlingar þriggja systra í Borg-
arfirði syðra, prjónaðir fyrir
þrettándadansleik sem haldinn var
veturinn 1947.
Þetta er þriðja sýningin á vett-
lingasafni Helgu. Það hefur áður
verið sýnt í Gerðubergi og á Selfossi.
Á opnunardaginn verður sýningin
opin frá kl. 14–17 en verður síðan
opin á afgreiðslutíma Bókasafnsins,
alla virka daga frá kl. 14–19.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Samstæðir og stakir Á fimmta
hundrað vettlinga sem Helga Hans-
dóttir hefur safnað er nú til sýnis í
Bókasafni Héraðsbúa.
Safnaði
vettlingum
í fjörutíu ár
Egilsstaðir | Ístölt Austurlands,
sem er opið töltmót, verður haldið á
Lagarfljóti í Egilsstaðavík á laug-
ardag. Mikið er lagt í undirbúning
mótsins og verður það sent út beint
á Netinu.
Það er vefurinn www.847.is sem
sendir mótið út og hefur Daníel Ben
Þorgeirsson, forsvarsmaður vefjar-
ins, veg og vanda af útsendingunni.
„www.847.is er fyrsti hestafjölmið-
illinn hér á landi sem sýnt hefur
beint á Netinu frá uppákomum í
hestaíþróttum,“ segir Daníel.
„Fyrst var sent beint frá móti sem
haldið var í Ölfushöll árið 2001, síð-
an frá Ístölti í skautahöllinni í
Reykjavík árið 2002 og einnig var
Landsmót hestamanna árið 2002
sýnt beint á Netinu frá 847. Þá hef-
ur verið sýnt beint frá kynbótasýn-
ingum í Kópavogi.
Ástæða þess að við ákváðum að
sýna beint frá þessu móti í sam-
starfi við hestamannafélagið Frey-
faxa og Símann er einföld. Ég
kemst til dæmis ekki sjálfur á þetta
mót og geri ráð fyrir því að margir
aðrir komist ekki vegna mótahalds
hér í bænum, svo ekki sé talað um
alla hestamenn og áhugafólk um
hestamennsku erlendis, sem hafa
nýtt sér þessar útsendingar mikið.
847 hefur ávallt boðið öllum
hestamannafélögum að kynna sína
starfsemi á vefnum og þeir aðilar
sem eru í forsvari fyrir Freyfaxa
lifa greinilega á nýrri öld og vilja
nýta sér nýjustu tækni.“ Daníel
segir að stór hópur fólks erlendis
hyggist fylgjast með útsendingunni.
Mótið hefst kl. 10 árdegis og
verður keppt í unghrossaflokki 16
ára og yngri, ungmennaflokki, höfð-
ingjaflokki, áhugamannaflokki og
opnum flokki. Í framhaldi af ístölt-
mótinu er uppskeruhátíð hesta-
manna á Austurlandi haldin í Vala-
skjálf kl. 20 á laugardagskvöld og er
heiðursgestur umboðsmaður ís-
lenska hestsins, Jónas R. Jónsson.
Hestamannafélagið Freyfaxi tekur tæknina í sínar hendur
Ístöltmót sent út á Netinu
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Færið kannað Ístöltmót Freyfaxa fer fram á laugardag.