Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN U pp á síðkastið hafa sumar sjónvarps- auglýsingar valdið neikvæðum við- brögðum og deilum. Þær hafa annaðhvort verið teknar úr umferð samkvæmt tilmælum frá Samkeppnisstofnun eða að eftir at- hugasemdir stofnunarinnar hafa þær verið sýndar seint um kvöld og þá með viðvörunum. Sjónvarpsauglýsingar Umferð- arstofu fengu hörðustu viðbrögðin og m.a. kvartanir frá umboðsmanni barna. Þar var víst ætlunin að koma því skýrt og skilmerkilega til leiðar að umferðin snerist um líf fólks. Sann- arlega þörf áminning en skilaboðin í auglýsing- unum voru óskýr og reittu fólk frekar til reiði en að það færi að hugsa um alvarleika umferðarslysa. Reiðin var skiljanleg í ljósi þess að háskalega var farið með börn, þau látin hlaupa fram af svölum eða verða vitni að gáleysislegum og ógnvekjandi atvikum. Umræðan um auglýsingarnar fór um víðan völl og beindist m.a. að stöðu ungra feðra og meðferð barna í auglýs- ingum. Ég segi fyrir mitt leyti að bana- slys í umferðinni voru mér ekki efst í huga við að sjá þessar auglýsingar Umferðarstofu. Ef talsmenn henn- ar segja fáránleika raunveruleikans í umferðinni vera meiri en í ímynd- uðum veruleika, af hverju er al- menningi þá ekki sýndur fáránleik- inn í umferðinni umbúðalaus? Þá fyrst myndi fólk fara sér hægar í umferðinni ef sagan er sögð eins og hún er í stað þess að koma með skilaboð sem valda misskilningi og reiði. Fleiri sjónvarpsauglýsingar get ég nefnt sem ég hef ekki skilið eða að boðskapurinn hefur vakið furðu mína. Þannig hefur brettabúð verið með teiknimynd í auglýsingu af brettakappa sem rennir sér af mikl- um móð en endar svo ferð sína á því að æla þessi ósköp. Telja menn virkilega að ælandi brettakappi, þó teiknifígúra sé, auki líkur á að fólk kaupi hlaupabretti? Bílaleiga hefur sýnt ungt og huggulegt par í ástaratlotum uppi í rúmi með skilaboðunum: „tíminn er dýrmætur, ekki flækja málin“. Hver eru eiginlega skilaboðin? Er verið að höfða til fólks í framhjá- haldi svo það nái að laumast fljótt og örugglega út úr bænum á næsta gististað? Hvernig tengist annars bílaleiga fólki í rekkjubrögðum? Kannski er ég svona sljór og gam- aldags en ég bara skil ekki auglýs- ingar af þessu tagi, hvað þá að mig langi sérstaklega að eiga viðskipti við bílaleiguna. Þá hefur auglýsing frá einni fjár- málastofnun farið fyrir ofan garð og neðan hjá mér, þar sem ungur námsmaður verður fyrir aðkasti skólafélaga sinna sem grýta í hann öllu lauslegu í frímínútunum. Er verið að hvetja til eineltis meðal ungs fólks eða hvernig tengist svona hegðun fjármálaþjónustu fyrir æskulýðinn? Hafi auglýsingin átt að vera fyndin og skemmtileg þá er ég sennilega orðinn húmors- laus, sem er ekki gott. Sé það meðvituð ákvörðun aug- lýsingafólks að hafa skilaboðin óskýr og ögrandi þá er verið að taka nokkra áhættu. Miklir fjár- munir fara í gerð og birtingu sjón- varpsauglýsinga og því skyldi mað- ur ætla að vanda þurfi vel til verka á öllum sviðum til að árangur náist. Árangurinn hlýtur að vera ætíð sá að viðkomandi vara eða þjónusta seljist betur, eða að vakin sé athygli á ákveðnum boðskap eða viðvör- unum í þágu almannaheilla. Ekki geta menn verið að gera að gamni sínu og eyða viljandi fé sínu í ein- hvern óþarfa. Misjafn sauður er í öllu fé, jafnt í auglýsingaheimi sem öðrum mann- heimum, en gera má kröfu til aug- lýsingastofa um að gæta alls sið- gæðis og velsæmis og ofbjóða ekki öðru fólki með afurðum sínum. Þeim er væntanlega ætlað að fara eftir settum siðareglum Sambands íslenskra auglýsingastofa, SÍA, þar sem kröfur um heiðarleika, vel- sæmi og sannleiksgildi eru í háveg- um hafðar. Spyrja má hvort eft- irlitið sé nægjanlegt eða hvort almenningur nýti sér möguleika til að kæra auglýsingar til starfandi siðanefndar SÍA. Aðhald er öllum hollt og gott. Auglýsingagerðarmaður sem ég ræddi við á dögunum vildi ekki full- yrða að auglýsingar væru að verða ósvífnari eða harðari en áður. Þær væru yfirleitt að endurspegla tíð- arandann hverju sinni, líkt og frétt- ir fjölmiðla. Kannski er það rétt hjá honum, að íslenskt þjóðfélag sé orð- ið svo frjálslegt og umburðarlynt, að það þoli meira en áður. Hann sagði mér hins vegar annað athygl- isverðara, að erlend stórfyrirtæki og auglýsingastofur þeirra væru grunuð um að standa að framleiðslu „sjokkerandi“ auglýsinga, sem aldrei yrðu heimilaðar á almennum markaði en komið þess í stað í um- ferð á Netinu. Tilgangurinn er m.a. sagður að kanna viðbrögð ákveð- inna markhópa. Ljótt ef satt er, ég segi nú ekki meira. Dæmi um þetta mun vera auglýsing á fólksbíl sem stendur af sér sprengingu hryðju- verkamanns sem í honum situr. Það virðist því heilla markaðinn mest um þessar mundir að auglýsa eftir sterkum viðbrögðum, fanga athygli fjölmiðlanna og komast í sviðsljósið, óháð því hvort viðkom- andi vara eða boðskapur kemst til skila eða ekki. Stundum er mark- miðið meira að hræða fólk frekar en að fræða. Sem betur fer eru þetta þó ennþá undantekningar, yf- irhöfuð eru íslenskar auglýsingar skemmtilegar og faglega unnar. Þetta sést ágætlega á tilnefningum til Íslensku auglýsingaverðlaun- anna 2004 þar sem spaugsamar auglýsingar eru áberandi. Spurningin er engu að síður hvernig þróunin verður og hvort siðgæðisþröskuldurinn hverfur endanlega. Þar geta fjölmiðlar og auglýsingastofur haft áhrif. Auglýst eftir við- brögðum Er verið að höfða til fólks í framhjáhaldi svo það nái að laumast fljótt og örugg- lega út úr bænum á næsta gististað? Hvernig tengist annars bílaleiga fólki í rekkjubrögðum? VIÐHORF Eftir Björn Jó- hann Björnsson bjb@mbl.is REYKJAVÍKURBORG er að takast að ganga af einkareknum grunnskólum dauðum. Það ber vott um ótrúlega skammsýni. Um ára- tugaskeið hafa verið starfræktir einka- reknir grunnskólar í Reykjavík. Þeir hafa orðið til vegna frum- kvæðis frumkvöðla eins og Ísaks Jóns- sonar. Nú starfa fimm einkareknir skólar í Reykjavík. Þeir fá styrk frá Reykjavík- urborg til rekstrarins sem er miðaður við kostnað á nemanda í stærsta skóla Reykjavíkur, Rimaskóla, en þar eru 782 nemendur. Þessi regla miðast við að greiða eins lítið til skólanna og hægt er. Styrkirnir nægja ekki til að standa undir rekstrinum. Þess vegna neyðast forsvarsmenn þeirra til að taka skólagjöld af foreldrum barnanna í því skyni að láta enda ná saman. Augljóst ætti að vera að ekki er hægt að reka 100 barna skóla fyr- ir sama fé á nemanda og tæplega 800 barna skóla, enda ætlast Reykjavíkurborg ekki til þess að fámennari hverfisskólar séu reknir fyrir sömu upphæð á nemanda. Einkareknu skólarnir fá um 333.000 kr á ári frá borginni á nemanda á meðan borgarskólarnir fá að meðaltali um 550.000 kr. á nemanda. Hvað réttlætir einka- rekna grunnskóla? Alltaf verður til fólk sem hefur sannfæringu fyrir því að hægt sé að gera betur, fara nýjar leiðir og ná betri árangri. Þennan vilja og áhuga á að nýta til góðra verka, fá samanburð, gera tilraunir og skapa opinberu skólunum aðhald. Slíkum einstaklingum og hópum ættu skólayfirvöld í Reykjavík að fagna í stað þess að leggja stein í götu þeirra. Ísland mun eignast fleiri Ísaka Jónssyni og Margrétar Pálur. Nú er svo komið að yfirvöldum fræðslumála í Reykjavík virðist vera að takast það ætlunarverk sitt að svelta Landakotsskóla til uppgjafar. Erfitt er að koma auga á skýringu á því hvers vegna ekki er frekar brugðið á það ráð að hækka framlög til skólans og miða við raunverulega þörf, fremur en að yfirtaka skólann. Hvað veldur þessari stefnu? Við blasir að yfirvöldum, kjörnum og ráðnum, er blátt áfram illa við þessa skóla og líta á þá sem óæskilega. Versta stefna sem til er er stefnuleysi. Stefnu- leysi leiðir til ósam- kvæmni, úrræðaleysis og misvísandi skila- boða. Ef einhver stefna væri í þessu máli myndu borgaryf- irvöld annaðhvort banna alla skóla utan opinberu hverfisskól- anna eða líta á þá sem jákvæða viðbót og veita þeim rekstrarstyrk í samræmi við þarf- ir. En svo virðist sem þau umberi þessa skóla í þeirri von að for- svarsmönnum þeirra mistakist eða gefist upp. Hver ætti stefnan að vera? Samfélagið ber ábyrgð á að veita öllum börnum góða og hald- bæra menntun, óháð búsetu, kyni, efnahag foreldra, uppruna, trú o.s.frv. Ef samstaða er um að nemendur hafi aðgang að menntun óháð efnahag er ekki hægt að réttlæta skólagjöld á grunn- skólabörn. Sumir stjórnmálamenn geta sett á langar tölur um skólagjöld á háskólastigi. Þar er þó um fullfrískt fólk að ræða, fjár- ráða og oft í vinnu. Það er ekki að heyra að þessir sömu stjórn- málamenn geri athugasemdir við það að börn á grunnskólastigi greiði skólagjöld. Nú munu skóla- gjöld í Tjarnarskóla vera um 300.000 kr á ári. Hvernig sam- ræmist það hugsjóninni um skóla fyrir öll börn, óháð efnahag for- eldra? Garðabær er fyrirmynd Það er kaldhæðnislegt að skóla- stefnu, sem samræmist hugsjónum jafnaðarstefnunnar, er helst að finna í Garðabæ. Þar eru þó ekki jafnaðarmenn við völd. Garðabær greiðir sömu upphæð með hverj- um nemanda, óháð því í hvaða skóla hann fer. Þetta á t.d. við um þá nemendur sem fara í Barna- skóla Hjallastefnunnar, en hann er einkarekinn. Foreldrarnir greiða engin skólagjöld. Í Garða- bæ er litið svo á að börn sem fara í aðra skóla en garðbæska hverf- isskóla séu jafnmerkileg og önnur börn og foreldrar þeirra jafn- merkilegir útsvarsgreiðendur og aðrir. A.m.k. einn leikskóli í Reykjavík er rekinn með garðbæsku fyr- irkomulagi. Hann er rekinn af for- eldrum og fær sama framlag á barn og leikskólar borgarinnar. Foreldrarnir greiða sama gjald og aðrir foreldrar. Hvers vegna mis- muna skólayfirvöld á þennan hátt leikskólum og grunnskólum? Hvers vegna er einkareknu grunnskólunum ekki greitt sama framlag ef það er hægt á einka- reknum leikskólum? Ný stefna fyrir einkarekna grunnskóla Reykjavíkurlistinn þarf að taka upp nýja stefnu fyrir einkarekna grunnskóla í borginni, býður þá velkomna og fagnar framtaki þeirra sem vilja gefa sig að bætt- um skólum. Setja á fram skýrar kröfur til þeirra sem vilja reka skólana. Og til að reglurnar taki mið af jöfnuði þarf að huga að eft- irfarandi:  skólinn fær rekstrarstyrk sem nemur meðaltali á hvern nemanda í borgarskólunum eða miðast við stærð hans  skólanum er óheimilt að inn- heimta skólagjöld  skólinn má ekki mismuna nemendum við inntöku; sæki fleiri um en pláss er fyrir ber að beita hlutkesti Núverandi stefna skólayfirvalda í Reykjavík er orðin að dragbít fyrir framsækna skólastefnu. Það er til leið út úr ógöngunum og best væri ef Reykjavíkurlistinn áttaði sig á því fyrir næstu borg- arstjórnarkosningar. Skólayfirvöld í Reykjavík á villigötum Kjartan Valgarðsson fjallar um R-listann og hvernig borgin ætlar að ganga af einkareknum skólum dauðum ’Það er kaldhæðnislegtað skólastefnu, sem samræmist hugsjónum jafnaðarstefnunnar, er helst að finna í Garðabæ.‘ Kjartan Valgarðsson Höfundur situr í stjórn Samfylking- arfélagsins í Reykjavík. UNDIRRITAÐUR hefur ekki í langan tíma orðið jafn hissa og þegar sú frétt barst út að búið væri að selja kjallara þann, sem hýsa á elstu mannvist- arminjar sem fundist hafa í Reykjavík. Talsverðar umræð- ur urðu, hvernig standa bæri að varð- veislu þessara merku minja, þegar þær fundust árið 2001. Minjarnar hýstar í hótelkjallara Ólafur F. Magnússon læknir og borgarfulltrúi F-listans mælti ein- dregið með því að veglegur skáli yrði reistur yfir fornminjarnar og þeim þannig búinn sess við hæfi. Slíkur fornminjaskáli í miðju höf- uðborgarinnar væri kjörinn vett- vangur til að gera muni þá, sem tengdir væru upphafi landnáms- byggðar, aðgengilega gestum. En sá kostur var valinn í sparnaðar- skyni að hýsa minjarnar í kjallara hótels, sem til stóð að byggja á lóð- inni. Þegar það hefur nú gerst, að eigendur væntanlegrar hótelbygg- ingar hafa keypt minjakjallarann vakna óneitanlega margar spurn- ingar. Undarlegt ráðslag Hvaða ráðslag er það að selja kjall- arann, sem um ókomna tíð mun hýsa þessar elstu landnáms- minjar í flaustri fyrir 160 milljónir króna, en bókfært bygging- arverð hans um sl. áramót var 240 millj- ónir króna? Í yfirliti yfir byggingarsögu kjallarans kemur hvergi fram að eigendur húseignarinnar ofan á honum hafi greitt fyrir ofanábygg- ingarréttinn. Hver var hlutdeild þeirra í byggingu kjallarans? Þeir hafa nú eignast kjallarann á út- söluverði. Til viðbótar verja þeir 90 millj- ónum króna til þess að fullgera hann á þessu og næsta ári. Reykjavíkurborg greiðir frá og með 1. mars nk. 1.663 þúsund krónur á mánuði, vísitölutryggt, í leigu fyrir kjallarann til næstu 25 ára, eða samtals 500 milljónir króna fyrir utan vísitölu. Lántaka heppilegri Til samanburðar hefði mátt taka vísitölutryggt lán, sem bæri 3,5% ársvexti. Heildarútgjöld af slíku láni í 25 ár að viðbættu 0,7% áætl- uðu viðhaldi á ári væru samtals einungis 400 milljónir króna. Reykjavíkurborg ætti kjallarann skuldlausan að 25 árum liðnum og hefði fullan umráðarétt yfir eign- inni um ókomna tíð. Í reynd hljóta landnámsminjarnar að teljast fylgja með í kaupunum, þar eð um óhreyfanlegan hluta af gólfi eign- arinnar er að ræða. Hverra ráðum var hlýtt við töku svo arfavitlausrar ákvörðunar? Landnámsminjar seldar Sveinn Aðalsteinsson fjallar um þá ákvörðun að selja landnámsskálann í Aðalstræti ’Hverra ráðum varhlýtt við töku svo arfa- vitlausrar ákvörðunar?‘ Sveinn Aðalsteinsson Höfundur er viðskiptafræðingur og varafulltrúi F-listans í skipulagsráði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.