Morgunblaðið - 18.02.2005, Síða 43

Morgunblaðið - 18.02.2005, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 43 DAGBÓK Drengjamenning í grunnskólum – Áhrif –Afleiðingar – Aðgerðir,“ er yfirskriftráðstefnu sem sveitarfélögin Garða-bær, Reykjanesbær, Seltjarnarnesbær og Mosfellsbær standa fyrir í samvinnu við KHÍ, menntamálaráðuneytið, Heimili og skóla, Marel og Actavis. Ráðstefnan fer fram á Grand hóteli 24. febrúar næstkomandi og mun fjöldi fagfólks og fræðimanna flytja þar erindi og fyrirlestra um líð- an og aðbúnað drengja í grunnskólum, stað- almyndir, karlmennsku og drengjamenningu og ræða reynslusögur. Þá verða umræður og sam- ræður meðal þátttakenda. Inga Dóra Sigfúsdóttir, deildarstjóri kennslu- fræði- og lýðheilsudeildar Háskólans í Reykjavík (HR), mun í fyrirlestri sínum fjalla um kynjamun í skólastarfi, umhverfi og aðstæður. „Ég dreg þar upp tvíþætta mynd; annars vegar lýsandi mynd af mismunandi árangri og líðan pilta og stúlkna í grunnskólum, en hins vegar skýrandi mynd, þar sem leitast er við að varpa ljósi á félagslega þætti sem gætu útskýrt þann mun sem við okkur blas- ir,“ segir Inga Dóra. Hvernig lýsir kynjamunur sér í skólastarfinu? „Piltarnir standa sig verr en stúlkurnar – hvort sem litið er á stöðluð próf eða skólaeinkunnir og hvort sem litið er á stærðfræði, íslensku eða er- lend tungumál. Mestur er kynjamunurinn í dönsku og íslensku. Munurinn er minni í ensku og stærðfræði, en þó til staðar. Þá hafa rannsóknir sem unnar hafa verið á undanförnum árum jafn- framt leitt í ljós að piltum líður verr í skólanum en stúlkum og þeir hætta frekar í námi en þær. Hærra hlutfall stráka en stelpna telur námið til- gangslaust og þeir finna frekar fyrir námsleiða.“ Hverju þarf að breyta til að bæta ástandið? „Við þessu höfum við enn ekki augljós svör, málið er margþætt og flókið og ljóst að skýring- arnar liggja bæði innan skólans og utan hans. Ein leið til þess að koma betur til móts við þarf- ir bæði piltna og stúlkna er að gera námið ein- staklingsmiðað í auknum mæli. Við verðum þó að hafa í huga að nemendur skólanna eru bæði dag- legir þátttakendur í samfélaginu og börn á ábyrgð foreldra sinna og því geta verið þættir utan skól- ans sem hafa þessi áhrif inn í skólann. Bæði íslenskar og erlendar rannsóknir hafa sýnt, svo ekki verður um villst, að námsárangur nemenda ræðst að verulegu leyti af þáttum sem liggja utan skólans sjálfs. Hann byggist ekki síður á því umhverfi sem börnin lifa og hrærast í, á þeirri hvatningu og stuðningi sem þau fá heima, þeim anda sem ríkir í jafningjahópnum og síðast en ekki síst á sjálfsprottnum viðhorfum og lífsstíl á hverjum stað. Því er nauðsynlegt að líta á mik- ilvæga þætti utan skóla, til dæmis samskipti við jafningjahópinn og foreldra. Við nýja kennslufræðideild HR munum við á næstu árum rannsaka enn frekar þann mun sem við sjáum í líðan og árangri pilta og stúlkna og leitast við að kanna leiðir til úrbóta.“ Menntamál | Ráðstefna á Grand hóteli um drengjamenningu í grunnskólum Piltum líður verr í skólum  Inga Dóra Sigfús- dóttir er fædd í Reykja- vík árið 1967. Hún nam stjórnmálafræði, sál- arfræði og félagsfræði við HÍ, en lauk Ph.d.- gráðu frá Penn State háskóla árið 2003. Inga Dóra hefur m.a. starfað við rannsóknir hjá Rannsóknum og greiningu en er nú deildarforseti kennslufræði- og lýðheilsu- deildar Háskólans í Reykjavík. Inga Dóra er gift Símoni Sigvaldasyni héraðsdómara og eiga þau tvær dætur. Idol-stjörnuleit ÉG er ein af þeim sem fylgist alltaf með Idol-stjörnuleit og hef gaman af. En mig langaði að vekja athygli á því að dómararnir í keppninni eru ekki hlutlausir, því það er greinilegt að þeir eru búnir að velja sér sína uppáhaldskeppendur og gefa þeim sjaldan, ef ekki aldrei, slæma dóma þrátt fyrir lélegt gengi. Finnst mér þetta vera mjög ósanngjarnt gagn- vart hinum sem eftir sitja og gera sitt besta en fá ekki alltaf hrósið sem þau eiga skilið að fá. Vil ég hér með skora á dómarana að standa við orð sín um að þetta sé söngvarakeppni ekki vinsælda- keppni og dæma fólk eftir frammi- stöðu en ekki vinsældum, sama hvort þau heiti Jón eða séra Jón. Ég vona að breyting verði á þessu og allir verði dæmdir jafnt í Idol- stjörnuleit svo áfram verði gaman að fylgjast með þessu sjónvarpsefni. Idol-áhorfandi. Talstöðin ÞAÐ var ljúft til tilbreytingar,að vakna kl. 7 föstudaginn 11. febrúar og stilla inn á nýja rás, 90,9, Talstöð- ina. Sigurður G. Tómasson er minn uppáhalds fréttamaður og hefur hans verið sárt saknað síðan hann hætti á Útvarpi Sögu. Ómissandi er að hlusta á Guðmund Ólafsson, hann er algjör gúrú hvað Ráðstjórn- arríkin sálugu varðar. Að því loknu var áhugavert viðtal við forseta Ís- lands, hr. Ólaf R. Grímsson. Ég hlustaði af og til á stöðina þennan dag, þ.á m. á Hallgrím Thor- steinsson, sem er afburða frétta- maður hvað þjóðmál snertir, íslensk sem erlend, að öðrum ólöstuðum. Ingvi Hrafn er ætíð hress að vanda. Ég hef lengi beðið eftir þessari stöð, hún er góð flóra til viðbótar öðrum frábærum, t.d. RÚV. Gott mál hjá þér, Illugi. Ég hef alltaf notið þess að hlusta á þína þætti, þ.á m. Frjálsar hendur, í út- varpinu, haltu því áfram. Ég óska Talstöðinni góðs frama. Virðingarfyllst, Svanur Jóhannsson. Skrif til skammar ÉG veit ekki hverrar trúar blaða- maður DV er sem skrifar um Gunn- ar í Krossinum í DV sl. mánudag. Ég hef trúað skrifum DV um Gunnar og Krossinn, en nú, þegar ég hef kynnst Gunnari og Ingu og fólki í söfnuðinum, finnst mér þessi skrif um þetta fólk vera til skammar. Þetta fólk hefur þurft að þola nóg. Svava. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Torfason BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Bridshátíð hefst í kvöld. Norður ♠865 ♥D865 V/NS ♦32 ♣KD32 Vestur Austur ♠K73 ♠Á2 ♥K742 ♥G1093 ♦KD ♦G10976 ♣G754 ♣108 Suður ♠DG1094 ♥Á ♦Á854 ♣Á96 Vestur Norður Austur Suður 1 lauf Pass 1 hjarta 1 spaði 2 hjörtu 2 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Á slaginu sjö í kvöld hefst spila- mennska í tvímenningi Bridshátíðar – þeirri 24. í röðinni, sem Brids- samband Íslands og Bridsfélag Reykjavíkur hafa haldið í samvinnu við Icelandair. Að vanda er fjöldi er- lendra spilara meðal þátttakenda, bæði boðsgestir og aðrir sem koma á eigin vegum. Breski stórspilarinn Tony Forrester hefur oft spilað á Bridshátíð og hann verður meðal keppenda nú. Forrester hefur skrifað nokkrar bækur um brids og er spilið að ofan komið úr einni þeirra – Leyndardómum úrspilsins (Secrets of Expert Card Play). Forrester var í sagnhafasætinu og vestur hitti á góða byrjun þegar hann trompaði út. Vörnin spilaði þrisvar trompi í byrjun og Tony leist skilj- anlega ekki á blikuna. En frekar en að dúkka tígul og upplýsa vörnina um veikleikann þar, tók hann strax síð- ustu tvö trompin. Með bestu vörn á spilið að tapast, en eins og Forrester bendir á, er „besta vörn“ álíka líkleg og vinningur í getraunum, ekki síst þegar ýtt er undir „verstu vörn“. Sem stundum er hægt að gera með því að láta mót- herjana henda af sér áður en spilið upplýsist. Er skemmst frá því að segja að vestur henti tveimur hjörtum, en austur einu. Forrester tók þá hjartaás, fór inn í borð á lauf og spilaði hjarta í bláinn. Og viti menn – hann fékk tvo slagi á D8 í hjarta. Lærdómurinn sem Forrester vill tefla fram með þessu spili er: Ekki gleyma „gúmmískvísnum“. OFBELDI og ofbeldis- umræða voru í brenni- depli í verkefni sem unglingar og starfs- menn í Félagsmiðstöð- inni Græðgyn í Hamra- skóla í Grafarvogi unnu í samstarfi við lögregl- una í hverfinu á dög- unum. Unga fólkið fór þar í gegnum fréttir liðinnar viku í dagblöðum og leitaði að fréttum sem tengdust of- beldi. Fréttirnar voru síðan klippt- ar út og límdar upp á þar til gerðar töflur. Þá voru tekin ljósrit af frétt- unum áður en þær fóru upp á töfl- una og ljósritin sett í táknrænar lík- kistur. Síðan stendur til að bera ofbeldið á bál og útrýma því þannig með táknrænum hætti. Að sögn aðstandenda kom unga fólkinu dálítið á óvart hversu lítið var fjallað um hungursneyðir og hörmungar sem ríkja í fátækum löndum, en þær megi oft rekja til ofbeldisverka og stríða á þessum svæðum. Þá segja aðstandendur af- ar skemmtilega og frjóa umræðu hafa skapast meðan á verkefninu stóð og vonast til að það hafi skilið eitthvað eftir hjá unga fólkinu. Ofbeldið rætt opinskátt Morgunblaðið/Þorkell Milljónaútdráttur Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. 2. flokkur, 17. febrúar 2005 Kr. 1.000.000,- 501 H 7699 H 10589 B 11017 B 13731 B 25092 B 25373 H 26464 E 42120 H 44324 G MYNDLISTAKONAN Karólína Lárusdóttir opnar í kvöld kl. 20.30 sýningu á grafíkverkum og vatnslitamyndum í Grafíksafni Íslands, en Karólína er myndlist- armaður ársins hjá Graf- íkvinum og Íslenskri grafík. Sýningin er jafnframt liður í Vetrarhátíð í Reykjavík. Grafíkvinir er styrktarfélag sem stendur að kynningu á graf- íklistinni og eru 100 myndir sett- ar í sölu einu sinni á ári til styrkt- ar verkstæði Íslenskrar grafíkur. Stærð myndar er 14 x 19,5 cm og pappírsstærð er 35 x 33,5 cm. Myndirnar eru tölusettar og árit- aðar af Karólínu. Verði mynd- anna er að sögn aðstandenda stillt mjög í hóf og gildir lögmálið „fyrstir koma fyrstir fá,“ sökum takmarkaðs upplags. Styrktarsýning Grafíkvina opnuð í kvöld Sýningin er í Grafísafni Íslands, Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Op- ið er fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14 til 18 og stendur sýningin til 6. mars. STUTT spjall verður um listaverk Einars Jónssonar í listasafni hans í kvöld kl. 19 og kl. 20 í tilefni af Safnanótt. Spjallið nefnist „Útlag- inn, Ingólfur og Þorfinnur Karls- efni,“ en þar verður fjallað um hug- myndir manna í byrjun síðustu aldar um einfarann og hetjuímynd- ina og hvernig lesa má þær í þrem- ur stórum standmyndum í aðalsal safnsins. Kl. 21 verða síðan tónleikar á neðri hæð safnsins þar sem Gerður Bolladóttir sópran og Sophie Schoonjans hörpuleikari flytja ís- lensk þjóðlög og sönglög eftir m.a. Sigvalda Kaldalóns, Sigfús Ein- arsson og Atla Heimi Sveinsson. Hetjur og hörpuljóð í Listasafni Einars Morgunblaðið/ÞÖK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.