Morgunblaðið - 18.02.2005, Page 44

Morgunblaðið - 18.02.2005, Page 44
44 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 bréfbera, 4 ósannindi, 7 þekkja, 8 ber, 8 verkfæri, 11 sefar, 13 lof, 14 grískur bókstafur, 15 flutning, 17 ófögur, 20 beita, 22 munnbita, 23 kynið, 24 þekkja, 25 hellti öllu úr. Lóðrétt | 1 laumuspil, 2 sól, 3 geð, 4 gleðskap, 5 beljaki, 6 agnar, 10 frek, 12 borg, 13 mann, 15 fé- vana, 16 Æsir, 18 við- urkennum, 19 þyngdar- einingu, 20 skynfæri, 21 nægilegt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 ofurhugar, 8 efnuð, 9 dapur, 10 una, 11 glaum, 13 rýran, 15 hafts, 18 safna, 21 átt, 22 áleit, 23 aðals, 24 ok- urkarls. Lóðrétt | 2 fenna, 3 ráðum, 4 undar, 5 Alpar, 6 deig, 7 grun, 12 urt, 14 ýsa,15 hrár, 16 flekk, 17 sátur, 18 staka, 19 fjall, 20 ansa.  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þægindi heimilisins og samvera við ástvini hlýjar þér svo sannarlega um hjartaræturnar í dag. Þú finnur til af- slöppunar og ástríkis og nýtur fé- lagsskapar þeirra sem þekkja þig ná- ið. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú hefur einbeitt þér svo gríðarlega að markmiðum þínum og metnaði að undanförnu að annað í lífi þínu hefur þurft að sitja á hakanum. Nú þarftu að sinna þeim verkefnum líka. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft að gaumgæfa lang- tímamarkmið þín. Hvernig gengur? Hefurðu kannski slegið þeim á frest? Þú verður beðinn um að axla meiri ábyrgð innan skamms. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Lífið verður meiri dans á rósum á næstunni en verið hefur. Ekki láta þennan tíma líða án þess að taka upp á einhverju eftirminnilegu. Heppnin svífur yfir vötnunum fram að miðjum mars. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Náin sambönd gegna meira hlutverki en ella á næstunni og eiga hug þinn allan. Notaðu tækifærið og efldu tengslin við ástvini þína, bæði tilfinn- ingaleg og líkamleg. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Áherslan færist smátt og smátt frá vinnunni yfir á náin sambönd meyj- unnar. Þú uppgötvar margt um sjálfa þig með því að vera í félagsskap ann- arra á næstu fjórum vikum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Afþreying hefur verið þér efst í huga á síðustu vikum. Nú beinist athygli þín í auknum mæli að skyldum og vinnunni. Kláraðu allt sem þú átt ógert. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Áherslan er á sköpunargleði og ást- arlíf á næstu vikum með tilheyrandi ánægju. Skipulegðu mannfagnaði svo þú getir látið þig hlakka til. Nú er lag að sýna sinn innri mann. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Hinn ævintýragjarni bogmaður er jafnan með hugann úti við ystu sjón- arrönd. Á næstu vikum beinist at- hygli hans hins vegar að sínu nánasta umhverfi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Blandaðu geði við þína nánustu í dag. Dagurinn er upplagður til þess að ná sambandi við aðra, hvort sem um er að ræða yfirborðshjal eða samræður um fréttir og samfélagsmál. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Fjármálin fá aukið vægi í dag og á næstu fjórum vikum. Kannski hættir þér til þess að vega og meta náung- ann eða sjálfan þig á grundvelli eigna á meðan. Láttu það ógert, slíkt er ekki eðli þitt. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Áherslan er á persónuleg málefni um þessar mundir og á næstunni. Þig langar til þess að einbeita þér að eig- in hag. Notaðu tækifærið og byrjaðu á nýju verkefni. Stjörnuspá Frances Drake Vatnsberi Afmælisbarn dagsins: Þú gætir hæglega séð þér farborða með málaferlum, rökræðum og kappræðum. Þú býrð líka yfir heilunarhæfileikum. Þér hættir til að fara eigin leiðir og skeyta ekki um ráðleggingar annarra. Þú ert brautryðjandi að eðlisfari. Talan átján á bæði við snilligáfu og brjálæði. Þitt er valið. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 1. b3 f5 2. Bb2 e6 3. e4 Rf6 4. exf5 exf5 5. De2+ Kf7 6. Rf3 g6 7. Rc3 c6 8. 0-0-0 Ra6 9. h4 De7 10. Rg5+ Kg7 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Gíbraltar. Ingvar Jóhannesson (2.315) hafði hvítt gegn Henry Duncanson (2.110). 11. Rce4! fxe4 12. Rxe4 Kf7 13. Bxf6 þó að eingöngu þrettán leikjum sé nú lokið af skákinni er staða svarts gjörtöpuð. 13. ...Da3+ 14. Bb2 Da5 15. Rg5+ Kg8 16. Df3! Leiðir til fallegra loka. 16. ...Df5 17. Dc3! og svartur gafst upp enda getur ekkert komið í veg fyrir að hann verði mátaður í næstu leikj- um. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Tónlist Bar 11 | Rokksveitin ASTARA heldur tón- leika á Bar 11 í kvöld kl. 21 og er frítt inn. Astara gaf út nýverið stuttskífuna „Alright Alright Alright“ en nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu sveitarinnar www.- astaragroove.com. Borgarneskirkja | Karlakórinn Heimir held- ur tónleika í Borgarneskirkju kl. 20.30. Á efnisskrá verða innlend og erlend lög við allra hæfi. Einsöngvarar með kórnum eru þeir Pétur og Sigfús Péturssynir frá Álfta- gerði. Stjórnandi: Stefán R. Gíslason Undir- leikari: Thomas Higgerson. Café Rosenberg | Sváfnir Sigurðarson trúbador leikur um helgina á Café Rosen- berg. Dillon | Tónleikar með Chthonic, Myra, Terminal Wreckage, Momentum og Burnt by the Sun í kvöld kl. 20.30. Gaukur á Stöng | Í tilefni þess að Tæknihá- skóli Íslands er að renna sitt skeið verður efnt til útfarar á Gauknum í kvöld. Fram koma Ensími, Hoffman, Dimma, Lirmill og Bacon. Jarðarfararsálmar og rokk fram eftir nóttu. 500 kr. aðgangseyrir. Grandrokk | Vonbrigði, Fræbbblarnir og Taugadeildin. Tónleikarnir hefjast kl. 23. Snorrabúð / Tónleikasalur Söngskólans | Regína Unnur Ólafsdóttir sópran og Krist- inn Örn Kristinsson píanó. Stuttir ljóða- tónleikar kl. 12.15 – samvinnuverkefni Söngskólans og Vetrarhátíðar í Reykjavík. Skemmtanir Ari í Ögri | Dúettinn Halli og Kalli spilar. Café Amsterdam | BUFF spilar í kvöld. Café Catalina | Hermann Ingi jr. spilar í kvöld. Classic Rock | Hljómsveitin Solon í kvöld. De Palace | Jón Fri og Óli Ofur. Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveitin 5 á Richter í kvöld. Kringlukráin | Geirmundur Valtýsson og hljómsveit skemmta gestum um helgina. Skemmtunin hefst kl. 23. Nasa | Hljómsveitin Bermúda verður með Bermúdaball á Nasa í kvöld. Ballið hefst á miðnætti. Pravda | Atli skemmtanalögga og Áki Pain. Vagninn Flateyri | Rúnar Þór í kvöld. VÉLSMIÐJAN Akureyri | Rokksveit Rún- ars Júlíussonar heldur uppi dúndrandi stuði um helgina. Myndlist Árbæjarsafn | Í hlutanna Eðli – Stefnumót lista og minja. Gallerí I8 | Finnur Arnar sýnir ýmis mynd- verk. Gallerí Sævars Karls | Ættarmót fyrir hálfri öld. Sigurður Örlygsson sýnir olíu- málverk – 100 andlit úr fjölskyldu sinni. Gerðuberg | Rosemarie Trockel sýnir ljós- myndir, skúlptúra, teikningar og mynd- bönd. Sigríður Salvarsdóttir í Vigur sýnir listaverk úr mannshári í Boganum. Hafnarborg | Bjarni Sigurbjörnsson og Haraldur Karlsson – Skíramyrkur. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson er myndhöggvari febr- úarmánaðar. Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu- málverk í forkirkju. Hrafnista Hafnarfirði | Steinlaug Sig- urjónsdóttir sýnir olíu- og vatnslitamyndir í Menningarsal. Kaffi Sólon | Óli G. Jóhannsson sýnir óhlutlæg verk. Kling og Bang gallerí | Magnús Árnason – Sjúkleiki Benedikts. Listaháskóli Íslands | Ásdís Sif Gunn- arsdóttir – „Netscape Oracles“ – Remedy for Starsickness. Pétur Már Gunnarsson – Hvað er í gangi? í Kubbnum, sýningarsal LHÍ. Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930– 1945. Rúrí – Archive–endangered waters. Listasafn Reykjanesbæjar | Kristín Gunn- laugsdóttir – mátturinn og dýrðin, að eilífu. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórð- ur Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar. Bjargey Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit mitt ekki blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian Griffin – Áhrifavaldar. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í vest- ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson – Markmið XI Samvinnu- verkefni í miðrými. Kjarval – yfirlitssýning. Nýlistasafnið | Jean B. Koeman – Socles de Monde. Samsýningin Tvívídd. Grams – Sýning á vídeóverkum úr eigu safnsins. Safn | Stephan Stephensen – AirCondition. Jóhann Jóhannsson – Innsetning tengd tónverkinu Virðulegu forsetar. Thorvaldsen Bar | Kristín Tryggvadóttir sýnir samspil steina, ljóss og skugga. Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson er myndlistarmaður mánaðarins. Sýning á verkum Braga í veitingastofu og kjallara. Listasýning Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós- myndari – Heitir reitir. Söfn Þjóðmenningarhúsið | Tónlistararfur Ís- lendinga, Handritin, Þjóðminjasafnið – Svona var það, Heimastjórnin 1904. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi (1895–1964) er skáld mánaðarins. Þjóð og náttúra: Páll Steingrímsson kvik- myndagerðarmaður sýnir 6 stutt- myndaglefsur í bókasal allt kvöldið. Þjóðminjasafn Íslands | Þjóð verður til– menning og samfélag í 1200 ár. Ómur Landið og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós- myndasýningarnar Hér stóð bær og Átján vóru synir mínir í álfheimum. Opið kl. 11–17. Mannfagnaður Íþróttahús Þykkvabæ | Þorrablót verður í íþróttahúsinu Þykkvabæ laugardaginn 26. febrúar. Miðaverð kr. 4.000. Pantanir og nánari upplýsingar veita: Sigga s. 487 5630, Særún s. 487 5640, s. Dóra 487 5619 og Eygló s. 487 5617. Panta þarf fyrir 19. febrúar. Smáralind | Idol Extra Live verður í beinni útsendingu á PoppTíví frá Smáralind kl. 22 í kvöld. Þar mun Svavar Örn taka púlsin á keppendum baksviðs. Fundir Kattavinafélag Íslands | Aðalfundur Kattavinafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 24. febrúar kl. 18, í húsi fé- lagsins í Stangarhyl 2 Reykjavík. Á dag- skrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Krabbameinsfélagið | Samhjálp kvenna er með „Opið hús“ að Skógarhlíð 8, 4. hæð, 22. febrúar kl. 20. Óskar Þór Jóhannsson krabbameinslæknir flytur erindi um erfða- ráðgjöf vegna krabbameins. Umræður og fyrirspurnir. Kaffiveitingar. Allir velkomnir og takið með gesti. Norræna húsið | Aðalfundur Félagsins Ís- land-Palestína verður haldinn í Norræna húsinu sunnudaginn 20. febrúar kl. 16. Auk venjulegra aðalfundastarfa segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Ís- lands, í máli og myndum frá nýlegri ferð sinni til hertekinnar Palestínu. OA-samtökin | Árlegur kynningarfundur OA-samtakanna verður 20. febrúar kl. 14– 16, í Héðinshúsinu (Alanó) Seljavegi 2, Reykjavík. Fjórir félagar segja frá reynslu sinni af OA-samtökunum. Allir sem hafa áhuga á að kynna sér starf samtakanna. Allir velkomnir. www.oa.is. Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum | Aðalfundur Umhyggju verður haldinn mánudaginn 21. febrúar nk. kl. 20, í húsnæði félagsins að Háaleitisbraut 13, á 4. hæð. Að loknum aðalfundarstörfum verður erindi um fjölskylduráðgjöf. Kynning Hitt húsið | Kynning á námi, leik og starfi erlendis fyrir ungt fólk á aldrinum 15–25 ára verður kl. 16–18, fyrir þá sem langar til útlanda til lengri eða skemmri dvalar. Að- gangur ókeypis. www.hitthusid.is Maður lifandi | Inga Kristjánsdóttir, nemi í næringarþerapíu DET, verður með ráðgjöf í vetur, í verslun Maður lifandi kl. 12–14 á föstudögum. Málþing Sprotaþing | Samtök sprotafyrirtækja (SSP) og Samtök iðnaðarins (SI) standa fyrir Sprotaþingi um framtíð og forsendur sprotafyrirtækja á Íslandi, kl. 13–17, í höf- uðstöðvum Marels hf. að Austurhrauni 9, Garðabæ. Námskeið Hótel Edinborg | Námskeið um andleg málefni með Maríu Sigurðardóttur og Guð- rúnu Hjörleifsdóttur miðlum, verður haldið að Lambafelli Hótel Edinborg, A-Eyja- fjöllum 19. febrúar. Þátttaka tilkynnist í s. 565 0712 og 862 6961. SÝNING á verkum Sigríðar Ólafsdóttur myndlistarmanns verður opnuð í kvöld kl. 21 á 1. hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15. Sýningin er hin fyrsta í röð sýninga á verkum listamanna sem eiga lista- verk í Artóteki – Listhlöðu í Borgar- bókasafni. Ragna Sigurðardóttir list- gagnrýnandi spjallar um verk Sigríðar. Sýningin er liður í dagskrá Vetrar- hátíðar í Reykjavík. Hópmyndir eru viðfangsefni málverk- anna á sýningu Sigríðar en hópmyndir eiga sér langa sögu í listasögunni og hefur hlutverk þeirra breyst mjög í gegnum tíðina. Í kynningu á sýningunni segir Ragna Sigurðardóttir myndlist- argagnrýnandi m.a. áhugavert að „velta fyrir sér snertiflötum á þessum hóp- myndum úr samtímanum og verkum fyrri alda. Það sem sameinar er fyrst og fremst hinn mannlegi þáttur, inn- byrðis tengsl persónanna á myndflet- inum hvort sem um er að ræða valda- baráttu, ást, yfirborðsleg tengsl samstarfsfólks eða innileika fjölskyldu.“ Hópmyndir Sigríðar í Grófarhúsi Málverkið „Starfsfólk í versluninni Rangá“. Sýning stendur til 10. mars. Opið er mánudaga til fimmtudaga kl. 10–20, föstudaga kl. 11–19 og um helgar frá kl. 13–17.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.