Morgunblaðið - 18.02.2005, Side 48

Morgunblaðið - 18.02.2005, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ mbl.is Föstudagur 7. janúar 2005 Forsíða Viðskipti Íþróttir Afþreying Fólkið AtvinnaFasteignir Gagnasafn Myndasafn MorgunblaðiðSmáauglýsingar Panta auglýsingu Upplýsingar um pantanir Spurt og svaraðBreyta netfangi Breyta lykilorði ...ódýrasta 300 kr. birtist í 7 daga mbl.is smáauglýsingin Frábært verð ódýrasta auglýsingin kostar 300 kr. Auðvelt að bóka þú getur pantað auglýsingu þegar þér hentar Auðvelt að leita tekur örskot að finna það sem leitað er að Vöktun þú færð tölvupóst eða SMS þegar rétti hluturinn finnst Vaktmappan geymir auglýsingar til frekari skoðunar mbl.isá VETRARHÁTÍÐ í Reykjavík hófst í gær. Dagurinn í dag er helgaður Safnanótt í Reykjavík en þá verður skipulögð dagskrá í söfnum Reykjavíkur, aðgangur að þeim verður ókeypis og opið verður til miðnættis. Norræna húsið stendur fyrir metnaðarfullri dagskrá þar sem ný mynd Lars von Trier verður m.a. frumsýnd, Den Fem benspænd eða Fimm hindranir, en hana gerði hann í samstarfi við landa sinn og læriföður Jørgen Leth. Einnig verða sýndar átta stuttmyndir og lesið úr norrænum samtímabók- menntum. Upplesturinn hefst klukkan 18.30 og verður lesið úr verkum höfunda á borð við Brunner, Hammann og Liehu. Klukkan 20.00 hefst svo kvik- myndasýningin og ber hún yf- irskriftina „Film on Film“ og er hluti af Criss Cross verkefninu. Criss Cross beinir sjónum að „hinni kvikmyndalegu nálgun sem slíkri, í þeim tilgangi að undirstrika samleikinn á milli heima kvik- myndagerðarlistar og myndlistar“ eins og fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Auk myndar von Triers og Leth verða eftirfarandi stuttmyndir sýndar: Project for a Revolution eftir Johanna Billig, Urban Fiction eftir Pia Rönicke, Helmut eftir Anri Rulkov, Hot eftir Gintaras Makarevicius, Been in Video eftir Annika Ström, White Flight eftir Mats Hjelm, Fast Forward / Fast Rewind eftir Stefan Otto og Whiteout eftir Kajsa Dahlberg. Úr Fimm hindrunum, tilraunakenndri mynd Lars von Trier og Jørgen Leth. Ný mynd sýnd eft- ir Lars von Trier Vetrarhátíð | Kvikmyndasýningar á Safnanótt í Norræna húsinu Talað er um árabilið 1980 til1982 sem eitt það grósku-mesta í íslensku rokklífi en þá ruddust fram á sjónarsviðið pönksveitir af ýmsu tagi sem höfðu það að leiðarljósi að „gera“ og skeyttu minna um að „geta“. Ein þessara sveita var Taugadeildin sem starfaði aðeins í rétt liðlega ár, frá hausti 1980 fram á haust 1981. Þótti hún vera fyrirtaks tónleika- sveit og náði að koma út einni fjög- urra laga sjö- tommu undir merkjum Fálkans áður en hana þraut erindi. Tauga- deildin er ein þeirra sveita sem margir gráta að hafi aldrei komið sér í breiðskífugerð og segir Dr. Gunni um sveitina, 19. september síðastliðinn, á vefsíðu sinni (www.this.is/drgunni): „Stór- fengleg nýbylgjuhljómsveit sem var hætt áður en Rokk í Rvk var gerð og missti því af eilífðinni. Gerði 4 laga 7" 1981 sem er mögnuð. Í draumum mínum handleik ég LP- plötu með Taugadeildinni. Þetta ætti að kenna böndum að gera al- búm áður en þær hætta, hvar er t.d. platan með Náttfara?“ Nú er Taugadeildin komin saman á nýjan leik og gæti svo farið að draumur Dr. Gunna um breiðskíf- una muni á endanum rætast.    Önnur goðsögn úr íslenskumpönkheimi, hljómsveitin Von- brigði, sneri aftur á síðasta ári og gaf út breiðskífu og á sama tíma kom út ný hljóðversplata frá Fræbbblunum, sem hafa reyndar starfað endurreistir um nokkurt skeið. Það þykir jafnan fréttnæmt þeg- ar sveitir sem voru yfir meðallagi farsælar í eina tíð taka aftur til starfa en vegferð hinna „nýju“ sveita getur orðið æði misjöfn. Svo dæmi sé tekið frá útlöndum hefur Patti Smith t.a.m. gefið út prýði- legar plötur í seinni tíð en end- urkoma frægustu pönksveitar allra tíma, Sex Pistols, varð algert stór- slys. Ekki það að greinarhöfundur sé eitthvað sérstaklega á taugum yfir Taugadeildinni, við sjáum að sjálfsögðu hvað setur. Árni Daníel Júlíusson, sagnfræð- ingur og bassaleikari Taugadeild- arinnar, staðfestir enduropnun deildarinnar og kemur hún fram á tónleikum í kvöld á Grand Rokk ásamt Fræbbblunum og Von- brigðum. „Það voru Fræbbblatónleikar fyrir jól sem hrundu þessu end- anlega af stað,“ segir Árni og tekur einnig fram að hann og Óskar Þór- isson söngvari hafi verið að dútla eitthvað saman undanfarin tvö, þrjú ár. Árni segir það gaman að einhverjir telji sveitina goðsagna- kennda, a.m.k. hafi gengið mjög vel á starfstímanum og sveitin hafi ver- ið býsna þétt. Sömuleiðis hafi hon- um þótt nokkuð súrt í broti er hún lagði upp laupana. „Þá vorum við að toppa tónlist- arlega,“ segir Árni. „Það má segja að við höfum hætt er leikur stóð hæst. Við vorum búnir að spila á öllum stöðum sem hægt var að spila á hérlendis. Þetta er ekki ósvipað sögu Purrksins – án þess að ég sé að líkja okkur við hana – hún spil- aði alls staðar þar sem það var hægt í eitt og hálft ár og hætti svo. Við í Taugadeildinni áttum í raun bara eftir að gefa út stóra plötu. Það hefði svosem verið hægt en okkur entist ekki aurinn til þess. Ég var ekki sáttur þegar sveitin hætti á sínum tíma en það er löngu gróið yfir þau sár.“    Árni segir það ótrúlega gamanað garfa í þessari tónlist á nýj- an leik. „Menn eru eldri og þroskaðri og þetta gengur vel. Einhvern veginn er samt sami andinn yfir þessu. Þetta var gaman – mjög gaman – og það var auðvitað aðalpunkt- urinn, menn voru að skemmta sér og á þeim tíma hélt maður áfram svo lengi sem þetta var skemmti- legt.“ Eina varðveitta heimildin um Taugadeildina er áðurnefnd sjö- tomma en einnig átti sveitin lag á safnplötunni Northern Lights Play- house, sem tekið er af téðri sjö- tommu. Árni segir að Taugadeildin hafi troðið upp á einum tónleikum fyrir jól í Reykjavíkurakademíunni, í hálfgerðri kyrrþey. Þeir tónleikar hafi tekist vonum framar og þeir félagar eflst að þrótti í kjölfarið. Allt er opið með framhaldið og eru þeir félagar m.a. að semja nýtt efni. Plötuútgáfa er einnig inni í mynd- inni. Taugadeildin lék/leikur svofellt síðpönk, tónlist sem varð til eftir að fyrsta pönkbylgjan reið yfir ’76/ ’77. Síðpönkarar leituðu fanga á nýstárlegum slóðum til að þróa pönkið áfram og skildu þar með við sig þriggja gripa pönk Ramones og Sex Pistols. Taugadeildin fetaði svipaða tónaslóð og Joy Division og hin glæpsamlega gleymda The Sound, tónlist sem er stundum kall- að hinu ágætlega lýsandi nafni kuldarokk. „Það var mikið að gerast á þess- um tíma, mikill fersleiki í gangi,“ rifjar Árni upp. „Við tókum áhrif frá mörgum, það má nefna að við vorum með „Damaged Goods“ eftir Gang of Four og „She’s Lost Control“ eftir Joy Division á efnis- skránni.“ Viku eftir áðurnefnda tónleika á Grand Rokk treður Taugadeildin upp á Gauki á Stöng og á Árni ekki von á öðru en að sveitin haldi eitt- hvað áfram eftir það. Annars mætti halda að árið 1981 væri runnið upp fremur en 2005 þegar uppröðun tónleikanna á Grand Rokk er skoðuð: Fræbbbl- arnir, Taugadeildin og Vonbrigði. Hvað næst: Qjtzí, Qjtzí, Qjtzí, Snill- ingarnir, Lojpippos og Spojsippus; kannski jafnvel Þvag og Fan Houtens Kókó!? Taugadeildin opnuð á ný ’Þá ruddust fram ásjónarsviðið pönksveitir af ýmsu tagi sem höfðu það að leiðarljósi að „gera“ og skeyttu minna um að „geta“.‘ AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK Vistmenn Taugadeildarinnar hafa undanfarið verið að undirbúa útskrift sína með hæfilega ströngum bílskúrs- æfingum. Árni Daníel heldur um bassann lengst til hægri. Óskar er lengst til vinstri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.