Morgunblaðið - 18.02.2005, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 49
BRESKI poppsöngvarinn George Michael segir að ný
mynd um ævi sína marki endalok tveggja áratuga fer-
ils síns sem popptónlistarmaður, en myndin ber tit-
ilinn George Michael: A Different Story. Spurður um
ástæðu þessa svarar Michael: „Ég tel að mín eigin
tónlistargrein hafi sungið sitt síðasta.“
Þetta sagði Michael fyrr í vikunni á kvikmyndahá-
tíðinni í Berlín í Þýskalandi þar sem hann var að
kynna mynd sína. Michael, sem er 41 árs, sagði við
blaðamenn að hann vildi „reyna að beina ferli mínum í
nýjar áttir – ég veit ekki enn hvað það verður“. Eitt
væri víst, hann hefði engan áhuga á því lengur að
keppa um hylli fólks við lið á borð við Robbie Will-
iams, Will Young og Rachael Stevens.
Michael sagði við blaðamenn í Berlín í dag að hann
teldi að þar sem hann hefði ekki tjáð sig mikið um
sjálfan sig undanfarin 15 ár eða svo, hefði hann talið
að áhangendur sínir ættu rétt á að vita um hvað lög
hans fjölluðu. Sagðist hann telja að það „að koma út
úr skápnum“ hefði leitt til þess að hann hefði minni
áhyggjur af því að greina frá einkalífi sínu.
Á öllu léttari nótum játaði
Michael einnig að það væri
ýmislegt sem honum þætti
neyðarlegt við fyrstu ár fer-
ils síns. „Ég framdi marga
tískuglæpi á níunda ára-
tugnum,“ viðurkenndi Mich-
ael.
Nýjasta plata söngvarans,
Patience, komst í efsta sæti
breska sölulistans í fyrra.
„Ég mun halda áfram að
búa til tónlist,“ sagði söngv-
arinn en bætti við að hann
væri ekki viss um að hann
hefði áhuga á því lengur að
flytja hana sjálfur. „Einna
helst langar mig að búa til
söngleik, ekki endilega fyrir
svið heldur alveg eins fyrir
kvikmynd.“
George Michael leiður á poppi
Þótt leiður sé á poppinu
leiddist George Michael
ekki athyglin sem hann
fékk í Berlín.
EINN allra virtasti og vinsælasti
uppistandari í heimi um þessar
mundir, Bretinn Eddie Izzard, er
væntanlegur hingað til lands og
verður með uppistand á veitinga-
húsinu Broadway 9. mars.
Izzard, sem ekki er síður kunn-
ur sem sjónvarpsmaður og kvik-
myndaleikari, hefur áður haldið
uppistand hér, er hann troðfyllti
Loftkastalann árið 1995 og hlaut
mikið lof fyrir frammistöðu sína.
Segir Ísleifur Þórhallsson hjá
Event ehf., sem stendur fyrir
komu Izzards, að fjölmargir hafi
verið búnir að hvetja sig til að
stuðla að endurkomu Izzards,
bæði þeir sem sáu hann í Loft-
kastalanum og hinir sem náðu ekki
í miða og sjá enn eftir því:
„Þá var hann sjálfur að hefja
feril sinn og fyrirbærið uppistand
tiltölulega óþekkt hér á landi. Þó
var uppselt í Loftkastalann og
skemmtu áhorfendur sér svo vel
að sýningin hefur í seinni tíð orðið
nokkuð goðsagnakennd í umtali.
Event hefur til dæmis fengið fleiri
áskoranir og beiðnir um að flytja
Izzard til Íslands en nokkurn ann-
an skemmtikraft og þess vegna er
það mikið gleðiefni fyrir uppistand
hérlendis og íslenska áhorfendur
að kappinn skuli vera á leiðinni.“
Izzard á 12 ára feril að baki sem
uppistandari, sjónvarpsstjarna og
kvikmyndaleikari og hefur hlotið
einróma lof fyrir. The Sunday
Times sagði hann eitt sinn vera
fyndnasta mann sinnar kynslóðar
og aðrir breskir fjölmiðlar hafa
viðhaft viðlíka sterk lýsingarorð
um hann. Hann hefur verið kall-
aður „fyndnasti maður jarð-
arinnar“ af The Irish Times, „stór-
kostlegasti grínisti áratugarins“,
af NME og „grínkeisarinn“,
hvorki meira né minna, af The
Observer.
Ísleifur segir Izzard þekktan
fyrir það að fara ótroðnar slóðir.
„Í byrjun ferilsins hafi hann
vakið athygli og umtal fyrir að
koma yfirleitt fram klæddur í
kvenmannsföt, stífmálaður og í há-
hæluðum skóm. Aðspurður segist
hann ekki vera samkynhneigður,
heldur líklega „lesbía föst í karl-
mannslíkama“,“ skýrir Ísleifur.
Í tilkynningu frá Event ehf. seg-
ir að stíll Izzard byggist á því að
hann fangi úr lausu lofti hug-
myndir og aðstæður og geri úr
þeim „furðulegar, súrrealískar og
oft á tíðum fáránlegar grínsögur“
en að sjálfur segist hann bara
„tala og tala viðstöðulaust“ og sé
fyrstur til að viðurkenna að hann
fái „vel borgað fyrir að bulla“. Izz-
ard þykir óútreiknanlegur með af-
brigðum og engin sýning ku vera
eins hjá honum enda er hann í sí-
fellu að fá hugmyndir að nýju efni
og segir sagan að honum líði sjálf-
um best þegar hann er kominn á
flug og spinnur af fingrum fram.
Izzard hefur haldið fjölda sýninga
á West End í Lundúnum og verið
duglegur við að ferðast um heim-
inn með uppistand sitt.
Sýning Izzards er liður í ferð
hans um Norðurlöndin en hann
hefur síðustu árin verið æ upp-
teknari við að leika í kvikmyndum
en hann er orðinn býsna eft-
irsóttur í Hollywood eftir frammi-
stöðu sína í myndum á borð við
Shadow of the Vampire, Velvet
Goldmine og nú síðast Ocean’s
Twelve. Næst leikur hann í mynd
leikarans Johns Turturro sem
verður framleidd af Coen-
bræðrum og mun heita Romance
& Cigarettes, og The Wild, þar
sem hann leikur á móti Kiefer
Sutherland.
Athygli skal vakin á að sérstök
forsala á takmörkuðu magni miða
verður fyrir þá sem eru skráðir á
póstlista Event ehf. á vefsíðunni
event.is og byrjar hún mánudag-
inn 21. febrúar kl. 10:00.
Uppistand | Eddie Izzard til Íslands
Izzard er eggjandi og örvandi uppistandari sem fær heilmikið út úr því að
koma áhorfendum sínum í opna skjöldu.
„Fyndnasti mað-
ur jarðarinnar“
Uppistand Eddie Izzards verður á
Broadway 9. mars og hefst miða-
sala 22. febrúar, kl. 10 í verslunum
Skífunnar, á event.is og í síma 575
1522. Miðaverð er 3.500 kr. og
verða 800 miðar í boði. Aldurs-
takmark er 18 ár. Nánari upplýs-
ingar um uppistandið og forsölu er
að finna á event.is