Morgunblaðið - 18.02.2005, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
ÍSLANDSBANKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ
20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I Í L F
20 F L F I I
ÓskarsverðlaunaÁður en hún finnur frið verður
hún að heyja stríð
Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa
Frá
fram
leiða
nda
Tra
ining
day
Miðasala opnar kl. 15.30
Yfir 30.000 mannsfir .
Ó.Ö.H. DV
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 3.40 OG 5.50. B.i. 14 ára
CLOSER
JULIA ROBERTS
JUDE LAW CLIVE OWEN
NATALIE PORTMAN
2 ÓSKARSVERÐLAUNATILNEFNINGAR
A MIKE NICHOLS FILM
JULIA ROBERTS JUDE LAW CLIVE OWEN NATALIE PORTMAN
A MIKE NICHOLS FILM
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 14 ára.
CLOSER
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.16 ára. Sýnd kl. 3.50. KR 400.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára.
kl. 5.40, 8 og 10.20.
Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn,
hættir þú aldrei að horfa
Opinská og umdeild
verðlaunamynd um
sambönd,kynlíf, framhjáhald
og lygar.
Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn,
hættir þú aldrei að horfa
Opinská og umdeild verðlaunamynd um
sambönd,kynlíf, framhjáhald og lygar.
Kvikmyndir.is. S.V. Mbl.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
Sýnd kl. 8.
3000km. að heiman. 10 eftirlifendur. Aðeins eitt tækifæri!
Mögnuð spennumynd um baráttu upp á líf og dauða
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
2 Ó S K A R S V E R Ð L A U N A T I L N E F N I N G A R
Sýnd kl. 5.45 og 10.20. B.i. 14 ára.
3000 km að heiman.
10 eftirlifendur
Mögnuð spennumynd
um baráttu upp á líf
og dauða
ÞRÍR fremstu brettakappar Íslands
taka um þessar mundir þátt í
myndatöku á vegum tímaritsins
Transworld Snowboarding, eins
stærsta og útbreiddasta snjóbretta-
blaðs í heiminum. Eiríkur Helgason,
Viktor Helgi Hjartarson og Guð-
laugur Hólm Guðmundsson hafa
lagt stund á nám við sænskan snjó-
brettamenntaskóla síðan í haust en
komu hingað til lands fyrir mynda-
tökuna.
„Þetta er besta blaðið í snjó-
brettaheiminum. Það er toppurinn
að fá að taka þátt í þessu,“ segir
Guðlaugur aðspurður. Þeir dvelja í
tvær vikur hér á landi og eru staddir
sem stendur í Reykjavík. „Ætli við
förum ekki norður á föstudaginn og
tökum upp þar og líka eitthvað á
Ólafsfirði,“ segir Guðlaugur en
strákarnir eru allir frá Akureyri.
Líklegt er að bróðir Eiríks, Hall-
dór, bætist í hópinn fyrir norðan.
Fjórir saman mynda þeir hópinn
Team Divine og hafa gert snjó-
brettamyndirnar Noxious Dream-
ing: Made in Iceland og Óreiðu.
Ástæða er fyrir því að Halldór er
ekki með þeim í náminu í Svíþjóð en
hann er þrettán ára og yngri en hinir
strákarnir. Eiríkur og Viktor eru
sautján ára og Guðlaugur er átján.
Valdir í úrvalshóp í Svíþjóð
Strákunum hugnast sænska nám-
ið vel. „Þetta er alveg æðislegt. Við
erum í skólanum á mánudögum, svo
förum við með skólanum í fjallið á
þriðjudögum og miðvikudögum. Síð-
an er skóli á fimmtudag og föstudag.
Við erum með þjálfara sem leiðbein-
ir okkur. Við höfum líka farið í ferða-
lag til Noregs og eigum eftir að fara
eitthvað meira í ferðalög,“ segir
Guðlaugur en þeir eru á fé-
lagsfræðibraut og um er að ræða
þriggja ára nám, sem endar með
stúdentsprófi.
Bærinn sem skólinn er í heitir
Malung og er í Mið-Svíþjóð, í döl-
unum, útskýrir Guðlaugur. „Þetta er
besta brettasvæðið í Svíþjóð.“
Strákunum hefur gengið vel
þarna úti og hafa verið valdir í sér-
stakan úrvalshóp. Þeir byrjuðu í al-
mennum hópi en færast í úrvalshóp-
inn á næsta ári. Fylgja því meiri
ferðalög og keppnir víða um Evrópu.
Myndataka á vegum útbreidds snjóbrettablaðs hérlendis
Ljósmynd/Geiri
Guðlaugur stekkur hátt á Snæfellsjökli. Hann er í snjóbrettamenntaskóla í Svíþjóð.
Þetta er
toppurinn
www.transworldsnow-
boarding.com
www.bigjump.is
ingarun@mbl.is
JÚLÍA er sönn prímadonna, stjarna
í leiklistalífi Lundúnaborgar á fjórða
áratug seinustu aldar. Leikkona og
ekkert annað, bæði á sviðinu og í
einkalífinu. Lífið fyrir utan sviðið er
varla til – alla vega tilheyrir ekki
hennar heimi. Júlía er nú að nálgast
fimmtugsaldurinn og er þreytt á
leikritinu sínu og lífinu líka. Þá kem-
ur ungur Bandaríkjamaður inn í líf
hennar, fátækur aðdáandi og
ástríðufullur. Henni finnst hann fá-
ránlega óspennandi fyrst en sér síð-
an tækifæri í honum til að lífga upp á
tilfinningalífið á sviðinu og í hjart-
anu.
Annette Bening er sannkölluð
stjarna í myndinni – og í alvöru. Hún
leikur Júlíu á sérlega sannfærandi
máta, marglaga karakter sem veit
ekki hvað hún vill annað en að hljóta
aðdáun, hafa fólk í hendi sér, vera
stjarnan. Þetta er flókinn karakter,
heillandi tilfinningavera sem enginn
getur hatað þrátt fyrir stjörnustæl-
ana. Á vissan hátt er hún enn litli
leiklistarneminn sem hlustar á ráð-
leggingar meistara síns, sem Mich-
ael Gambon leikur frábærlega, þrátt
fyrir að hann sé löngu dáinn og hún
25 árum eldri. Annette kemur þess-
ari flóknu veru svo skemmtilega til
skila að hún varpar skugga á flesta
aðra í myndinni. Þótt leikurinn sé
léttur og farsakenndur kemur hún
samt hinum vel földu vonleys-
istilfinningum hennar til skila.
Jeremy Irons leikur eiginmann
hennar og umboðsmann, og hún á
skemmtilegan samleik með honum
líkt og öðrum fínum leikurum mynd-
arinnar. Shaun Evans leikur elsk-
hugann unga, en valið á honum er
merkilega gott, manni finnst hann
jafnóspennandi og Júlíu finnst í
byrjun.
Myndin fjallar um raunveru-
leikafirrta konu og hversu langt hún
gengur til að viðhalda þeim stjörnu-
sess og þeirri virðingu sem henni
finnst hún eiga skilið, og getur ekki
lifað án. Maður skyldi halda að hún
myndi læra eitthvað í lok mynd-
arinnar eða taka einhverjum breyt-
ingum en því er ekki fyrir að fara.
Það verður að segjast að hápunkt-
urinn er svolítið ótrúlegur sem er
miður. Einnig fannst mér myndin
frekar langdregin, alla vega fyrri
hlutinn, en það tekur myndina hátt í
klukkutíma að byrja.
Júlía sjálf er ekkert sérstaklega
frumleg kvikmynd né sterk, og hafa
flestir aðstandendur hennar gert
betur áður. En hún er skemmtileg
afþreying með góðum leikurum og
stjörnuleik af hálfu Bening.
Annette Bening fer á kostum í
Being Julia, að mati gagnrýnanda.
Sönn prímadonna
KVIKMYNDIR
Regnboginn
Leikstjórn: István Szabó. Handrit: Ronald
Harwood eftir skáldsögu W. Somerset
Maugham. Kvikmyndataka: Lajos Koltai.
Aðalhlutverk: Annette Bening, Jeremy
Irons, Bruce Greenwood, Miriam
Margolyes, Juliet Stevenson, Shaun
Evans, Lucy Punch, Tom Sturridge og
Michael Gambon. BNA/Bretl. 105 mín.
SPI 2004.
Júlía sjálf (Being Julia)
Hildur Loftsdóttir