Morgunblaðið - 18.02.2005, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
VETRARHÁTÍÐ hófst í Reykjavík í gær-
kvöldi. Eftir að Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri hafði sett hátíðina hófust ljósa-
tónleikar sem voru upphafsatriði hátíð-
arinnar. Atriðið var hannað af fjöllistahópn-
um Norðan báli ásamt Herði Áskelssyni
orgelleikara. Saman fluttu þeir gjörning ljósa
og tóna sem bárust yfir Hallgrímskirkju og
Skólavörðuholt./45
Morgunblaðið/Jim Smart
Vetrarhátíð hafin í Reykjavík
BURÐARÁS hf. hefur tryggt sér
6,19% hlutafjár í finnska ríkisflug-
félaginu Finnair samkvæmt flöggun-
artilkynningu til kauphallarinnar í
Helsinki á miðvikudag. Alls eru rúm-
lega 5,2 milljónir hluta í eigu Burðar-
áss og er andvirði eignarinnar ríflega
33 milljónir evra, sem samsvarar
tæpum 2,7 milljörðum króna. Í sam-
tali við Morgunblaðið segir Friðrik
Jóhannsson, forstjóri Burðaráss,
fyrirtækið góðan fjárfestingarkost.
Einnig hefur Burðarás eignast 7,6
milljónir b-hluta í sænska hugbún-
aðarfyrirtækinu Scribona og á Burð-
arás nú 14,9% hlutafjár í félaginu en
ræður 11,82% atkvæða. „Við teljum
að stór verðmæti séu í Scribona en
fyrirtækið hefur gleymst að undan-
förnu,“ sagði Ragnar Þórisson, fjár-
festir hjá Burðarási, í viðtali við
sænsku fréttaþjónustuna Direkt.
Scribona birti ársreikning nýlega
og skilaði 54 milljónum sænskra
króna, tæpri 481 milljón króna, í
hagnað á síðasta ári.
Burðarás
fjárfestir í
Finnair
GJALDÞROT og árangurslaus fjár-
nám í ferðaþjónustu námu um 10%
af öllum gjaldþrotum og árangurs-
lausum fjárnámum í fyrra en að
langstærstum hluta eru það mat-
sölustaðir sem eiga í hlut. Í fyrra
fóru 354 matsölustaðir á hausinn
eða nálega einn á hverjum degi.
Þetta kom fram í máli Eddu Rósar
Karlsdóttur, forstöðumanns grein-
ingardeildar Landsbankans, á mál-
þingi Samtaka ferðaþjónustunnar.
Hallgrímur Snorrason hag-
stofustjóri sagði samanteknar af-
komutölur fyrirtækja í ferðaþjón-
ustu sýna ákaflega sorglega
niðurstöðu, einkum fyrir hótel- og
veitingarekstur. Tölur sýndu að
reksturinn væri almennt ekki beys-
inn og ekki fýsilegt að fjárfesta í
greininni./14
Nær einn mat-
sölustaður á
hausinn á dag
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, óskað eftir upplýsingum
frá 30 stærstu hluthöfum í Íslands-
banka um það hvort og hvernig þeir
hyggist neyta atkvæðisréttar síns á
aðalfundi bankans í næstu viku.
FME sendi í gær bréf á þennan hóp
hluthafa og óskar svara fyrir kl. 17 í
dag.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins fer FME fram á að fá
upplýsingar um hvort 30 stærstu
eigendurnir hyggist nýta atkvæð-
isrétt sinn á aðalfundinum, fyrir
eigin hönd eða fjárhagslega tengdra
aðila. Jafnframt er farið fram á
upplýsingar um hvern þessir hlut-
hafar hyggist styðja í bankaráðið og
hvort þeir hyggist framselja at-
kvæðisrétt sinn eða fjárhagslega
tengdra aðila til annarra.
Fram kom í Viðskiptablaði Morg-
unblaðsins í gær að átta menn eru í
framboði til sjö sæta í bankaráðinu
á aðalfundinum.
Meta hæfi til að fara með
virkan eignarhlut
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er bréfið sent út sam-
kvæmt heimild í lögum um fjár-
málafyrirtæki, en þar segir m.a.:
„Fjármálaeftirlitið getur krafist
hvers konar gagna og upplýsinga
frá einstaklingum eða lögaðilum
sem eiga eða hyggjast eignast eða
fara með eignarhlut í fjármálafyr-
irtækjum í því skyni að meta hvort
þeir falli undir tilkynningaskyldu
skv. VI. kafla og hvort þeir teljist
hæfir til að fara með virkan eign-
arhlut.“
Ákvæði laganna um tilkynninga-
skyldu mæla m.a. fyrir um að að-
ilar, sem hyggist eignast virkan
eignarhlut í fjármálafyrirtæki
(meira en 10%) skuli leita samþykk-
is Fjármálaeftirlitsins fyrir fram.
„Samþykkis Fjármálaeftirlitsins
skal enn fremur aflað þegar ein-
staklingur eða lögaðili eykur svo við
eignarhlut sinn að bein eða óbein
hlutdeild hans í eigin fé, stofnfé eða
atkvæðisrétti fer yfir 20, 33 eða
50% eða nemur svo stórum hluta að
fjármálafyrirtæki verði talið dótt-
urfyrirtæki hans,“ segir í lögunum.
Eigendum virks eignarhluta ber
að tilkynna Fjármálaeftirlitinu fyr-
irfram, hyggist þeir draga svo úr
hlutafjáreign sinni að þeir eigi ekki
virkan eignarhlut eftir það. Enn-
fremur ber að tilkynna um aðila-
skipti að hlutabréfum í fjármálafyr-
irtæki sem valda því að
hlutafjáreign fer yfir eða undir áð-
urnefnd mörk.
Óska upplýsinga um nýtingu
atkvæðisréttar í Íslandsbanka
Fjármálaeftirlitið fer fram á svör frá 30 stærstu hluthöfum í bankanum
„VIÐ ÆTLUM að vera mjög áber-
andi í borginni og ætlunin er að
kynna Reykjavík og íslenska menn-
ingu frá mið-
vikudegi til
sunnudags. Það
má segja að þetta
séu tólf af fínustu
veitingahúsum
höfuðborgar
Bandaríkjanna,“
segir Baldvin
Jónsson framkvæmdastjóri. Íbúar í
Washington munu geta notið ís-
lenskra landbúnaðarafurða þegar
tólf íslenskir matreiðslumenn taka
völdin á helstu veitingahúsum borg-
arinnar í október næstkomandi.
Matreiðslumennirnir sem fara ut-
an eru frá þeim tólf veitingastöðum
sem taka þátt í hátíðinni Matur og
menning, eða Food and Fun, sem
nú stendur yfir í Reykjavík. Þar
spreyta erlendir matreiðslumenn
sig á íslensku hráefni við mat-
argerð.
„Hver íslenskur kokkur verður að
koma með sínar hugmyndir að mat,
en það verður allt að vera úr ís-
lensku hráefni. Lykilatriði er svo að
kynna Food and Fun á næsta ári,“
segir Baldvin.
Silungur
og skyr til
Washington
NÚ geta sjúklingar á nokkrum tannlæknastofum fengið
að skoða tennurnar í sér og tannholdið á sjónvarpsskjá
við tannlæknastólinn. Kjartan Örn Þorgeirsson er einn
þeirra tannlækna sem hafa tekið í notkun myndavél sem
gerir þetta kleift.
„Það er bara hægt að sýna þér gatið. Þetta er aukin
upplýsingagjöf til sjúklingsins og mín líka,“ segir Kjart-
an. Hann segir að þessi tækni sé að verða almennari með-
al tannlækna þó að hún sé ekki á öllum stofum.
Sjúklingurinn fylgist ekki með þegar gert er við tenn-
urnar heldur þegar Kjartan vill sýna honum ástand tann-
anna. Þetta er því ekki stöðug útsending úr munnholi
sjúklingsins heldur hjálpartæki fyrir og eftir meðferð.
Kjartan er mjög ánægður með tækið og segir að sjúk-
lingar fái fyllri upplýsingar, en í þessu felist ekki breyt-
ingar á greiningaraðferð tannlæknisins. Þarna sjái sjúk-
lingar sjálfir það sem tannlæknirinn sé að tala um, t.d.
hvar sé illa burstað eða hvar þurfi að gera við. Hann noti
þetta mikið til að sýna foreldrum barna hvernig tenn-
urnar verði ef ekki sé burstað og geti sýnt þeim hvaða
tennur séu illa burstaðar. Það sé ekki síður mikilvægt að
sýna heilu tennurnar og í því felist visst forvarnargildi.
Stækkunin er mikil og Kjartan viðurkennir að í raun
séu tennurnar stundum ekkert glæsilegar svona stórar.
En tækið geri sitt gagn.
Morgunblaðið/Þorkell
Kjartan Örn Þorgeirsson mundar myndavélina og sýn-
ir sjúklingi á skjánum hvernig tennur hans líta út.
Sjá tennurnar
í sér á skjá
Tannlæknar farnir að nota stafræna myndavél við skoðunÞróun fasteigna-
verðs í rannsókn
ÁRNI Magnússon félagsmálaráð-
herra hefur falið Rannsóknasetri í
húsnæðismálum við Viðskiptahá-
skólann á Bifröst að rannsaka þróun
húsnæðismarkaðarins og vonast
hann eftir niðurstöðum í apríl.
Árni segir félagsmálaráðuneytið
vera í samstarfi við Viðskiptaháskól-
ann á Bifröst og Íbúðalánasjóð um
rannsóknasetrið. Því hafi verið falið
að skoða þróun húsnæðisverðs, ann-
ars vegar á höfuðborgarsvæðinu og
hins vegar á landsbyggðinni. Einnig
verði skoðað hvort eitthvað hafi
gerst á fasteignamarkaðnum sem
hafi haft áhrif á verðmyndun á fast-
eignum. „Þá horfum við á breytingar
á lánamarkaðinum, hugsanlega
einnig á breytingar á bygging-
armarkaði. Hvort þar hafa orðið
breytingar sem ýta undir verðhækk-
anir. Það hefur t.d. verið rætt um
fasteignaheildsala í því sambandi,“
sagði Árni. Hann segir miklar
vangaveltur og getgátur uppi um
fasteignamarkaðinn. Fasteignaverð
hafi hækkað mjög ört undanfarna
mánuði, aðallega á höfuðborg-
arsvæðinu.