Morgunblaðið - 28.02.2005, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Softis stendur fyrir fræðslufundi um þráðlausa vinnslu í daglegum
rekstri fyrirtækja. OpenHand veitir þráðlausan aðgang að upplýsinga-
kerfum og er hægt að nálgast gögn hvenær og hvar sem er í heiminum,
hvort sem er í farsíma, ferða- og/eða lófatölvur. Ströngustu öryggis-
kröfum er framfylgt og gögn þarf ekki að geyma á notendatækjum.
Fundurinn verður haldinn föstudaginn 4. mars kl. 08.30-10.00
í þingsal 1 á Hótel Loftleiðum.
Dagskrá:
08:30 Fundur settur
08:35 Þráðlaus samskipti og stjórnun fyrirtækja
Bjarni S. Jónsson framkvæmdastjóri IMG.
08:45 Hvað er OpenHand?
Dr. Snorri Agnarsson prófessor við Háskóla
Íslands og Guðmundur Kr. Hallgrímsson
markaðsstjóri Softis.
09:10 OpenHand in Jersey
Mark Stuchfield, Jersey Telecom.
09:20 Framtíðarsýn (Roadmap)
Sigurður Björnsson framkvæmdastjóri Softis
og Graham Higginson, OpenHand Sofware
Ltd. UK.
09:35 Samantekt fundarstjóra og umræður
Bjarni S. Jónsson framkvæmdastjóri IMG.
Viðskipti
án landamæra
Þráðlaus vinnsla með OpenHand
Boðið verður upp á
léttan morgunverð
meðan á fundinum
stendur.
Kynningarfundurinn
er öllum opinn en
nauðsynlegt er að skrá
þátttöku með tölvupósti
á skraning@softis.is.
Business on the Go
www.openhand-mobile.com www.softis.is
Umræðan
daglegt
málþing
þjóðarinnar
líka á netinu: mbl.is
Í SÉRSTAKRI höfuðborgarstefnu
Framsóknarflokksins, sem sam-
þykkt var á flokksþingi í gær, segir
að miðstöð innanlandsflugs verði
áfram rekin í Reykjavík. „Leitað skal
leiða til að skipuleggja flugvallar-
svæðið og næsta nágrenni þess þann-
ig að landsvæði sem undir hann fer
minnki og stuðli að eðlilegri byggða-
þróun í Reykjavík. Með þessu móti er
tryggt að haldið verði uppi öflugum
og öruggum samgöngum milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðis,“ seg-
ir í stefnunni.
Þar segir ennfremur að samgöngu-
miðstöð verði komið á hið fyrsta í
Vatnsmýrinni með það að markmiði
að styrkja enn frekar þá mikilvægu
samgönguleið sem innanlandsflugið
er.
Í fyrstu drögum að höfuðborgar-
stefnunni, sem lágu fyrir þinginu, var
hins vegar lögð áhersla á að flugvöll-
urinn í Vatnsmýri viki fyrir byggð
eins og gert væri ráð fyrir í aðal-
skipulagi Reykjavíkur þannig að
norður-suðurbraut verði aflögð árið
2016. Á sama tíma yrði leitast við að
finna flugvellinum framtíðarstað þar
sem hann gæti þjónað þjóðinni allri
þannig að sátt næðist um miðstöð
innanlandsflugsins.
Í höfuðborgarstefnunni, sem sam-
þykkt var í gær, er einnig lögð
áhersla á að við endurskoðun vega-
áætlunar verði gert ráð fyrir endur-
bótum á þremur helstu umferðaræð-
um að og frá höfuðborgarsvæðinu;
Reykjanesbraut, Suðurlandsvegi um
Hellisheiði og Sundabraut – til að
mæta stigvaxandi umferðarþunga á
þessum leiðum.
Gjaldfrjáls leikskóli
Fjölmargar aðrar ályktanir voru
samþykktar á flokksþinginu. Í álykt-
un um menntamál segir m.a. að skoða
þurfi vandlega þá hugmynd að gera
síðasta ár leikskóla að skyldunámi.
„Stefnt verði að gjaldfrjálsum leik-
skóla enda verði tryggt mótframlag
ríkisins,“ segir í ályktuninni.
Lögð er áhersla á mikilvægi þess
að Ríkisútvarpið verði áfram í þjóð-
areigu og að sjálfstæði þess verði eflt.
„Skoðaðar verði mismunandi leiðir til
að standa undir rekstrarkostnaði,“
segir ennfremur í ályktun um menn-
ingarmál. Í ályktun um stjórnsýslu
og stjórnskipan segir að flokkurinn
vilji að ráðherrar gegni ekki jafn-
framt þingmannsstarfi. „Stefnt skal
að því að þessi breyting verði gerð á
yfirstandandi kjörtímabili.“
Í ályktuninni segir einnig, að flokk-
urinn vilji að við upphaf næsta kjör-
tímabils taki gildi ný verkaskipting
stjórnarráðsins þar sem ráðuneytum
fækki og verkaskipting þeirra verði
stokkuð upp með tilliti til breyttra
samfélags- og atvinnuhátta.
Tvö þúsund ný störf
Í ályktun um samgöngumál er m.a.
lögð áhersla á að veggjald í Hval-
fjarðargöng verði lækkað og í álykt-
un um ríkisfjármál segir að afnema
beri verðtryggingu lána. Þá segir
m.a. í ályktun um orkumál að flokk-
urinn styðji hugmyndir um að ríkið
kaupi hlut Reykjavíkurborgar og Ak-
ureyrarbæjar í Landsvirkjun.
Í ályktun um iðnaðarmál segir að
mikilvægt sé að efla alþjóðlegan há-
tækni- og upplýsingaiðnað á Íslandi
og búa honum hagstætt umhverfi og
góða innviði. „Þannig verði sköpuð
tækifæri til sóknar sem hafi það að
markmiði að greinin verði ein styrk-
asta stoðin í íslensku efnahagslífi.
Þannig vill Framsóknarflokkurinn
sjá greinina tífalda umsvif sín á
næstu tíu árum. Slík þróun myndi
skapa allt að 2.000 ný hálaunastörf
vel menntaðs fólks, auk fjölda ann-
arra starfa.“
Ályktanir samþykktar á flokksþingi Framsóknarflokksins
Miðstöð innanlandsflugs
verði áfram í Reykjavík
Morgunblaðið/Árni Torfason
Flokksþingið samþykkti m.a. ályktun um að við upphaf næsta kjörtímabils
tæki gildi ný verkaskipting stjórnarráðsins þar sem ráðuneytum fækkaði.
Stefnt að gjald-
frjálsum leikskóla
GUÐJÓN A. Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, segist ekki
hafa neina sérstaka skoðun á álykt-
un flokksþings
Framsókn-
arflokksins um
Evrópusam-
bandið í gær.
Frjálslyndir hafi
aldrei viljað
hafna neinum
málum án um-
ræðu, þeir séu að
ýmsu leyti Evr-
ópusinnar án þess að þeir vilji endi-
lega að Ísland gerist aðili að ESB við
núverandi aðstæður. Þeir séu ekkert
gefnir fyrir daður við ESB líkt og
framsóknarmenn. Frjálslyndir hafi
ekki tekið þá ákvörðun að Ísland
eigi að ganga í ESB. Á meðan við
séum með núverandi fiskveiðistjórn-
unarkerfi, með framseljanlegum
aflaheimildum, og ekki með stjórn-
arskrárákvæði um þjóðareign yfir
auðlindunum, þá vilji Frjálslyndi
flokkurinn ekki undir neinum kring-
umstæðum ganga í ESB.
Guðjón A. Kristjánsson
Ekki gefnir
fyrir daður
við ESB
Viðbrögð talsmanna stjórnarandstöðuflokka við Evrópuályktun Framsóknar
FJALLIÐ tók jóðsótt og það fæddist
lítil mús, sagði Össur Skarphéð-
insson, formaður Samfylking-
arinnar, um
ályktun Fram-
sóknarflokksins
um Evrópumálin.
„Það sem upp
úr stendur í þess-
um dæmalausa
málatilbúnaði hjá
Framsóknar-
flokknum er að
flokkur forsætis-
ráðherra ætlar sér hugsanlega að
móta stefnu í Evrópumálum. Það
sýnir að sá ágæti flokkur hefur
engu gleymt, hann er opinn í báða
enda og hefur heldur loðna stefnu í
jafnstórum málum. Það vekur mikla
undrun að eftir að málið var kynnt
með lúðrablæstri og söng þá gerðist
það að samstarfsflokkurinn, Sjálf-
stæðisflokkurinn, sýndi með ýmsum
hætti mjög eindregna mótstöðu við
þessa stefnumótun. Þess vegna var
merkilegt að sjá forystu flokksins
leggja samstundis á flótta.“
Össur Skarphéðinsson
Fjallið tók
jóðsótt og fædd-
ist lítil mús
ÖGMUNDUR Jónasson, þing-
flokksformaður Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs, segir
djúpstæðan
klofning vera
greinilegan hjá
Framsóknar-
flokknum varð-
andi aðild að
Evrópusamband-
inu. Ályktun
flokksins sé
málamiðlun
tveggja fylkinga.
Ögmundur segir að annars veg-
ar vilji formaðurinn, Halldór Ás-
grímsson, og hans samherjar ólm-
ir halda til Brussel og hins vegar
séu aðrir fullir efasemda eða jafn-
vel andvígir aðildarumsókn. Hann
hafi grun um að æði margir séu í
síðarnefnda hópnum. Því sé yfir-
lýsing flokksins frá í gær augljós
málamiðlun.
„Spurningin sem er ósvarað er
hve lengi sá plástur heldur sem nú
hefur verið settur á sárið,“ segir
Ögmundur.
Ögmundur Jónasson
Málamiðlun
tveggja
fylkinga