Morgunblaðið - 28.02.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005 33
Disneyhetjurnar Bangsímon, Grísli, Tígri og
félagar lenda í stórkostlegu nýju ævintýri!
J A M I E F O X X
T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A
HELVÍTI VILL HANN,
HIMNARÍKI VILL HANN EKKI,
JÖRÐIN ÞARFNAST HANS
Magnaður spennutryllir með
Keanu Reeves og Rachel
Weisz í aðalhlutverki.
HELVÍTI VILL HANN,
HIMNARÍKI VILL HANN EKKI,
JÖRÐIN ÞARFNAST HANS
Magnaður spennutryllir með
Keanu Reeves og Rachel
Weisz í aðalhlutverki.
ÁLFABAKKI
kl. 3.45 og 6.30. Ísl tal
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.20.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.30, 8, 9.15 og 10.30. B.i. 16.
KRINGLAN
kl. 5.30. Í.t./ kl. 7. E.t.
Yfirnáttúrulegur spennutryllir af bestu gerð sem
vakið hefur gríðarleg viðbrögð og slegið
rækilega í gegn í USA og víðar.
Varúð: Ykkur á eftir að bregða.
B.i 16 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45 og 6. m. ísl. tali.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45 og 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.15 og 10.30.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.15.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.15 og 10.30.
KRINGLAN
kl. 6, 8.15 og 10.30.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10.15.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A
Kvikmyndir.is
T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A
4 tilnefningar til Óskarsverðlauna
!"#$%
%&%'( %) &%*(
HIÐ sjálfstæða framhald á gleði-
og söngvamyndinni Með allt á
hreinu reyndist betur heppnað og
skemmtilegra en maður þorði að
vona.
Myndin er lexía í því hvernig
gera á létta og skemmtilega
mynd, þar sem hlutirnir ganga
upp þökk sé rétta andanum; léttu
og góðu andrúmslofti á tökustað
sem smitar frá sér. Þetta virðist
hafa verið gaman; gaman fyrir
þennan vinahóp hæfileikamanna
að koma saman aftur eftir öll
þessi ár, gaman að taka upp þráð-
inn að nýju og spinna áfram með
poppklisjurnar, gaman að búa aft-
ur til gleðitónlist sem þjóna á
söguþræði – og öfugt.
Það er ekki síst vegna þess hve
tónlistin er góð í myndinni, hversu
mörg smellin lög eru sungin í
henni við bráðfyndna texta, sem
dæmið gengur eins vel upp og
raun ber vitni.
Það er hreinlega eins og að
kviknað hefði í gömlum glæðum
við það hjá Stuðmönnum að búa
aftur til tónlist fyrir bíó. Í það
minnsta hefur sveitin ekki búið til
betri lög í háa herrans tíð. En
þetta er samt ekkert á við þá
snilld sem vall uppúr genginu er
það bjó til Með allt á hreinu, enda
er bókstaflega ósanngjarnt að
ætla að fara fram á slíkt.
Með allt á hreinu verður ekki
jöfnuð, verður ekki endurtekin;
hvorki myndin né tónlistin sem í
henni ómaði. Ekki frekar en að
Bítlum eða McCartney tókst að
gera aðra Hard Days Night
(reyndu samt með Help! og munið
McCartney reyndi það meira að
segja með Give My Regards To
Broadstreet og fataðist hörmulega
flugið), ekki frekar en tókst að
gera aðra Saturday Night Fever,
aðra Blues Brothers. Reglan er
þessi að góðar söngvamyndir
verða ekki leiknar eftir; þær eru
spurning um stund og stað, rétta
augnablikið þegar allt smellur
saman. Og blessunarlega virðast
Stuðmenn að mestu hafa verið
meðvitaðir um lögmál það og því
valið fremur þá leið að gera aðra
mynd, með sömu persónum en
öðrum áherslum; jafnt í gríni sem
tónum.
Tónlistin úr Í takt við tímann er
því engan veginn sambærileg við
tónlistina úr Með allt á hreinu.
Hún er ekki eins rakin konsept
tónlist – ekki eins auðheyrilega
hluti af stærri heild og hvert lag
stendur fremur eitt og sér. Þetta
eru líka hin fínustu popplög, mörg
hver með þeirra mest grípandi.
Ber þar fyrst að nefna hið bráðvel
heppnaða einkennis- og upp-
hafslag myndarinnar „Fönn, fönn,
fönn“, næsta fullkomin poppperla
sem maður hefði sannarlega viljað
sjá Stuðmenn flytja í Evróvisjón-
keppninni fyrir Íslands hönd.
Aðrir augljósir smellir eru „Lát-
um það vera“, „Græna torfan“ og
„Afi minn og amma mín“. Þau
sýna hversu feikilega sterkur Eg-
ill er orðinn á þessu sviðinu en þar
á ofan á Jakob einstaklega góðan
dag í popplagasmíðunum eins og
„Heimsfrægðin í húfi“ og hið
lúmskt ljúfsára „Hverjir eru best-
ir“ bera vitni. Ekki verður heldur
hjá því komist að geta hins bros-
lega klisjukennda „Saklaus“ eftir
Eggert Þorleifs og hins bráð-
fallega „Góða nótt“ eftir Egil sem
Ragnhildur syngur svo vel. Þá eru
textarnir sérkapítuli út af fyrir
sig, eru flestir hverjir bráðfyndnir
og vel viðeigandi: „Allar alvöru
grúppur nota einungis lúppur/ og
erlendan pródúsent./Sé heims-
frægðin í húfi skal hlúa að grúvi/
og hugleiða þetta tvennt.“
(„Heimsfrægðin í húfi“)
Misfellurnar eru til staðar. Sum
lögin er fullþunglamaleg og lítt
grípandi fyrir svona hressilegt
konsept, eins og „Komdu mér til “
og „Skál! Ottó vann í Lottó“, sem
hefur ekkert skánað frá því í sum-
ar, við það að vera komið í bíó-
mynd.
Þegar allt kemur til alls sannast
það við að heyra tónlistina úr Í
takt við tímann að það er að
stórum hluta vegna hennar sem
myndin gengur upp og er svo
skemmtileg. Svo maður falli sjálf-
ur í þá óhjákvæmilegu og ósann-
gjörnu samanburðargryfju er
þetta ekki alveg Með allt á hreinu,
en næstum því.
Með næstum
allt á hreinu
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Stuðmenn – Í takt við tímann
Plata Stuðmanna með tónlist úr kvik-
myndinni Í takt við tímann. Flutt af Stuð-
mönnum, sem eru Egill Ólafsson, Ragn-
hildur Gísladóttir, Jakob Magnússon,
Tómas Tómasson, Þórður Magnússon,
Ásgeir Óskarsson og Eyþór Gunnarsson.
Með þeim syngja og leika Eggert Þor-
leifsson, Ragnar Bjarnason, Sigurjón
Kjartansson, Roland Charles Hartwell jr.,
Kristinn Svavarsson, Samúel Jón Sam-
úelsson, Kjartan Hákonarson, Helgi
Svavar Helgason, Óskar Páll Sveinsson,
Björgvin Halldórsson, Bryndís Jak-
obsdóttir og Kór Fíladelfíu. Lög og textar
eftir Stuðmenn, Eggert Þorleifsson og
Ágúst Guðmundsson. Stjórn upptöku:
Óskar Páll Sveinsson og Mick Glossop.
Útgefandi Reykjavik Records.
Skarphéðinn Guðmundsson
DYGGIR aðdáendur „Star Trek: Enterprise“-þáttanna komu saman við hlið
Paramount-kvikmyndafyrirtækisins í Hollywood á föstudag. Þeir mótmæltu
harðlega hugmyndum um að hætta framleiðslu þáttanna.
Star Trek-seríurnar eiga sér afar traustan aðdáendahóp og voru mótmælin
vel skipulögð af þeirra hálfu en yfir hundrað manns söfnuðust við hliðin þar sem
þættirnir eru framleiddir. Að þessu sinni sáust ekki búningar úr Star Trek eins
og algengt mun vera á samkomum aðdáenda. Þess í stað héldu mótmælendur á
skiltum með slagorðum á borð við „Þetta er ekki bara þáttur, þetta er ábyrgð“
og „18 ára tryggð og eru þetta þakkirnar?“
Í kjölfar fréttanna um framleiðslustöðvun hafa hinir trölltryggu aðdáendur
safnað meira en 48 þúsund dölum til styrktar áframhaldandi framleiðslu.
Leikarar í þáttunum Star Trek:
Enterprise.
Sjónvarp | Fyrirhugað að hætta framleiðslu Star Trek-þáttanna
Aðdáendur Star Trek mótmæla