Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 42
Lifun
42
matur
42 lifun
heimalagað músl í
4 bollar haframjöl
1/2 bolli sólblómafræ
1/2 bolli sesamfræ
2 bollar heilar, hýðislausar möndlur eða
blandaðar hnetur
1 bolli eplasósa, úr krukku
2 tsk kanill
1 tsk engifer
1/3 bolli gott sýróp
1/2 bolli hunang
1/2 bolli ljós púðursykur
1 tsk salt
2 msk sólblómaolía
2 bollar rúsínur
Maukið möndlur/hnetur gróflega í matvinnslu-
vél. Hrærið öll þurrefnin saman í stórri skál en
geymið rúsínurnar. Blandið olíu, sýrópi og
eplamauki saman við. Dreifið jafnt í 2 ofn-
skúffur, klæddar bökunarpappír, og bakið við
180 gráður í 20 mín. Takið þá úr ofninum og
hrærið í, setjið aftur í ofninn í 20 mín. Múslíið á
að verða gullið. Takið úr ofninum, kælið og
hrærið rúsínurnar saman við. Geymið í loft-
þéttum umbúðum.
eitthvað í ætt við músl í ís
2 bollar múslí
1 bolli rjómi
1 bolli mjólk
Hrærið allt saman og frystið. Gott að hræra
reglulega upp í blöndunni í frystinum. Berið
fram frosið með ferskum ávöxtum. (fyrir 1).
ferskt berjamúsl í með skyri
2 bollar frosin ber að eigin vali
2 msk sykur
múslí
skyr að eigin vali
Setjið frosin berin í blandara ásamt sykri.
Maukið mjög vel. Setjið berjablönduna í glær
glös, þá hrært skyr og loks múslí. Endurtakið
ef þið viljið, það kemur flott út í háum glösum.
(magn í um 3 stór eða 6 lítil glös).
magnaðar múslíhugmyndir
Múslí er eitthvað sem allir vilja borða en fólki þykir misgott. Þess vegna er
best að búa bara til sitt eigið og geyma í loftþéttum umbúðum. Úr heima-
lagaða múslíinu er hægt að gera ýmislegt skemmtilegt.