Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 44
Lifun
44
44 lifun
Sæmundur Kristjánsson matreiðslumaður
og eigandi veitingastaðarins Á næstu grös-
um þekkir það að elda fjölbreytta rétti og
hátíðarmat úr grænmeti og öðru góðgæti.
Grillað eggaldin með gremolada (saxaðri
ítalskri steinselju og sítrónuberki)
og seljurótarmauki
1 eggaldin
1/2 búnt ítölsk steinselja
börkur af hálfri sítrónu
350 g sellerírót
70 g kartöflur
Ólífuolía (jómfrúarolía)
Salt og pipar
Sellerírótin er skorin í grófa kubba ásamt kartöflunni,
sett í pott með smá vatni og salti og soðið þar til meirt,
þá tekið upp úr og maukað í matvinnsluvél. Smakkað til
með salti, pipar og ólífuolíu. Eggaldin er skorið eftir
endilöngu, um 1,5 cm þykkt. Það er penslað með olíu
og kryddað með salti og pipar. Loks grillað eða steikt á
pönnu. Steinselja og sítrónubörkur (ath. aðeins ysta
lagið á sítrónunni er notað og það mjög þunnt) er saxað
saman mjög fínt og þessu er stráð yfir eggaldinið eða
diskinn ásamt ólífuolíu. Fyrir fjóra.
Léttsteikt Kaliforníu-grænmeti
2 ferskir maísstönglar, kornin skafin af
50 g strengjabaunir, skornar smátt þversum
50 g snjóbaunir, skornar í strimla
1/2 rauð paprika, skorin í teninga
1/2 græn paprika, skorin í teninga
1/2 gul paprika, skorin í teninga
3 sellerístönglar, skornir smátt
1 búnt vorlaukur, skorinn smátt þversum
1/2 rauður chilíbelgur, fræhreinsaður og skorinn
mjög smátt
1 1/2 cm engifer, skorið og saxað smátt
2 msk ristuð sesamolía
Allt hráefnið er sett á wok-pönnu og steikt í nokkrar
mínútur. Smakkað til með salti og pipar. Fyrir fjóra.
Sæt kartöflusúpa með sítrónugrasi
1 msk grænmetisolía
1 laukur, fínt saxaður
5 hvítlauksrif, í sneiðum
3-4 sætar kartöflur, skornar í sneiðar
1 msk turmerik
1 msk kóríanderfræ, ristuð og möluð
2 lengjur sítrónugras, skorið eftir endilöngu
350 ml appelsínusafi
650 ml grænmetissoð
250 ml kókosmjólk
Svartur pipar og salt
Hitið olíu í stórum potti og setjið sítrónugrasið, laukinn
og hvítlaukinn í og svitið í 5 mínútur eða þar til hann er
orðin gylltur. Bætið saman við möluðum kóríander-
fræjum, turmeriki, pipar og salti og svitið í smá stund.
Þá appelsínusafa og sjóðið þangað til sætkartöfurnar
eru orðnar mjúkar, sirka 10 mínútur. Setjið grænmetissoð
og kókosmjólk og sjóðið í 10 mínútur eða jafnvel aðeins
lengur. Takið pottinn af hellunni og maukið súpuna vel
saman með töfrasprota eða setjið í matvinsluvél. Setjið
súpuna aftur yfir til suðu og hrærið vel í 4-5 mínútur,
smakkið hana til og berið hana fram með fínt skornu
eða fínt söxuðu sítrónugrasi. Fyrir fjóra.
Lj
ó
sm
yn
d
ir
G
un
na
r
Sv
er
ris
so
n