Morgunblaðið - 21.04.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 29
NEYTENDUR
krónur og svo næli ég mér þar
stundum í sætar múffur með
ávöxtum í til að hafa í desert á eft-
ir.
Með mér í kennsluna tek ég
banana eða epli og forðast svo mat
á kvöldin eftir að ég kem heim.
Fæ mér í mesta lagi te og hnetur
með kannski einni bíómynd eða
svo áður en lagst er á koddann.“
Átak við yfirdráttinn
Komið er að kassauppgjöri, en
einbúinn segist ekki hafa vanið sig
á að hafa bókhald í kringum mat-
arreikningana. „Ég hef því ekki
hugmynd um hvað ég eyði í mat á
mánuði, en er alltaf bara voða feg-
in ef ég á peninga fyrir því sem ég
er að kaupa svo ekki þurfi að grípa
til krítarinnar. Ég var einu sinni
orðin svolítið pirruð á yfirdrætt-
inum svo að ég tók lán til að
greiða hann upp og píndi mig í tvo
mánuði. Hann hvarf eins og dögg
fyrir sólu og hefur ekkert komið
aftur.“
Um helgar segist Ragnheiður
stundum gera sér dagamun í mat
og þá sé mexíkóskur matur á veit-
ingastaðnum Cuilican eða kjúk-
lingasalatið á American Style í
miklu uppáhaldi. „Svo er hún
Steinunn systir mín alveg svaka-
lega dugleg við að bjóða mér í mat
til sín, en hún býr ein eins og ég
og hefur fengið öll húsmóður-genin
í sig.“
Þótt Ragnheiður þvertaki fyrir
myndarskap í eldhúsinu, var hún
engu að síður beðin um að deila
uppáhalds uppskriftunum með
lesendum og varð hin fræga Baby
Ruth-kaka fyrir valinu og spínat-
pæ, sem hún segir að oft hafi verið
búið til á þeim árum sem hún hafi
nennt að stússast í eldhúsinu.
join@mbl.is
VORLAUKA er best að forrækta
inni í pottum allt frá miðjum mars. Í
byrjun maí er gott að herða laukana
og setja þá út yfir dag-
inn svo framalega sem
ekki frystir. „Það er
gott að forrækta lauk-
ana inni þannig að þeir
verði komnir af stað í
maí og júní og standi í
fullum blóma í júní og
fram í júlí,“ segir
Helga Steingríms-
dóttir, garðyrkjufræð-
ingur hjá Garðheimum. „Það er
hægt að setja laukana beint út en þá
blómstra þeir seinna, ekki fyrr en í
ágúst eða september.“
Meðal vorlauka má nefna hjarta-
blóm, dalíur, liljur og begóníur en
langvinsælastar eru anemónur, þær
eru skrautlegar og auðveldar í
ræktun. Best er að leggja anemónu-
laukana í bleyti í fimm til átta
klukkustundir áður en þeir
eru settir niður. „Þeim má
planta beint út í beð frá
miðjum apríl án þess að
forrækta þær inni áður þó
svo að kólni,“ segir Helga.
Fjölæra lauka eins og
dalíur og begóníur má taka
upp á haustin og setja aftur
niður að vori og koma þeim
til á ný.
Þrátt fyrir að mun meira úrval sé
af haustlaukum er mikið sett niður
af vorlaukum. „Margir eru spenntir
að sjá laukana koma upp enda eru
þeir auðveldari í ræktun en sum-
arblóm þegar þau eru ræktuð upp af
fræi,“ segir Helga.
GARÐYRKJA | Vorverkin í garðinum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Helga Steingrímsdóttir segir auðvelt að rækta vorlauka.
Best að forrækta
vorlaukana inni
BERLIN - DRESDEN - LEIPZIG
TOPPFERÐ ÁRSINS í EVRÓPU!
Einstakt tækifæri 9.-20. júní
í fylgd
Ingimundar Sigfússonar
og Ingólfs Guðbrandss.
Ótrúleg ferð á tilboðsverði!
Hvergi í Evrópu hefur átt sér stað önnur eins uppbygging og
í BERLIN og lista- og menningarborgunum DRESDEN og
LEIPZIG eftir fall Múrsins. Þessar borgir tengjast menningu
Íslands með mjög sérstökum hætti, og eru afar forvitnilegar
og gefandi áfangastaðir Íslendinga í dag.
FERÐ Í SÉRFLOKKI.- Örfá sæti-Tilboð gildir fös. 22.04.
Hnattreisan - 2 viðbótarsæti.
Pantanir: HEIMSKRINGLA
Nýr sími 893 3400 Ferðaklúbbur Ingólfs
NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN
Technology so advanced, it´s
TURN-FREE
TILBOÐ
Amerískar lúxus
heilsudýnur
TURN-FREE
Queen 153x203 cm
Verð frá 72.000.-
Skipholt 35
Sími 588 1955
www.rekkjan.is
sími: 566 6103
isfugl@isfugl.is • www.isfugl.is
Skemmuvegi 48 • Kópavogi • S: 557 6677
www.steinsmidjan.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn