Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
12 síðna sérblað um söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva er að finna í miðopnu
Morgunblaðsins í dag.
Með Morgunblaðinu í dag
FRAMKVÆMDANEFND um einkavæðingu bár-
ust 14 tilboð í hlut ríkisins í Símanum frá 37 fjár-
festum, innlendum sem erlendum. Tilboðin eru ekki
bindandi en síðar í sumar geta þeir sem munu upp-
fylla almennar kröfur og skilyrði einkavæðingar-
nefndar gert bindandi tilboð sem opnuð verða í júl-
ímánuði í viðurvist bjóðenda og fjölmiðla.
Einkavæðingarnefnd upplýsir ekki um nöfn bjóð-
enda á þessu stigi en að sögn Stefáns J. Friðriks-
sonar, starfsmanns nefndarinnar, koma þessi 14 til-
boð jafnt frá hópi fjárfesta sem einstökum
fjárfestum. Um helmingur tilboðanna tengist er-
lendum fjárfestum. Einkavæðingarnefnd mun á
næstu dögum fara yfir tilboðin í samvinnu við fjár-
mála- og ráðgjafarfyrirtækið Morgan Stanley.
Í tilkynningu frá einkavæðingarnefnd segir, að
við mat á óbindandi tilboðum verði meðal annars
horft til verðs, fjárhagslegs styrks og lýsingar á
fjármögnun, reynslu af rekstri fyrirtækja, hug-
mynda og framtíðarsýnar varðandi rekstur Símans,
starfsmannastefnu og þjónustu í þéttbýli og dreif-
býli næstu fimm árin, svo og sjónarmiða bjóðenda
hvað varðar markmið ríkisins með sölunni. Heild-
stætt mat verði lagt á alla þessa þætti og verða nöfn
bjóðenda gefin upp að því loknu, eða innan viku.
Að lokinni yfirferð óbindandi tilboða verður þeim
sem uppfylla almennar kröfur og skilyrði boðið að
fá frekari upplýsingar um Símann í gegnum kynn-
ingar, heimsóknir og áreiðanleikakannanir. Á
grundvelli þeirra athugana geta aðilar gert bind-
andi tilboð.
Mynda þarf hópa kjölfestufjárfesta
Í söluferlinu er gert ráð fyrir þeim möguleika að
áhugasamir minnihlutaaðilar, sem ekki skiluðu inn
óbindandi tilboðum, geti, að undirrituðum trúnað-
arsamningi, tengst hópi kjölfestufjárfesta.
Minnst tveimur vikum áður en bindandi tilboð
verða lögð fram þurfa bjóðendur þó að hafa myndað
hópa kjölfestufjárfesta, og þurfa þeir aðilar sem
ekki voru valdir til síðara ferlis á grundvelli óbind-
andi tilboða að fallast á framtíðarsýn og leiðir til að
uppfylla markmið ríkisins er tilgreind voru í óbind-
andi tilboðum þess/þeirra kjölfestufjárfesta, sem
mynda meirihluta hóps og valdir voru á grundvelli
mats á óbindandi tilboðum. Reglur þessar voru
kynntar bjóðendum á fyrra stigi söluferlis, að því er
segir í tilkynningu einkavæðingarnefndar.
Við mat á bindandi kauptilboðum verður aðeins
litið til verðs og verður gengið til viðræðna við hæst-
bjóðendur. Til að tryggja „algert gagnsæi“ hyggst
einkavæðingarnefnd sem fyrr segir opna þau bind-
andi tilboð sem berast í viðurvist allra bjóðenda og
fjölmiðla. Er stefnt að þessu í júlí næstkomandi.
Verði aðeins 5%, eða minni, verðmunur á tilboðum
hæstu bjóðenda verður viðkomandi aðilum gefinn
kostur á að skila inn nýju og hærra verðtilboði síðar
sama dag. Verða tilboðin opnuð á ný í viðurvist
bjóðenda og fjölmiðla síðar þann dag. Berist ekki ný
tilboð frá bjóðendum standa upphafleg tilboð.
Fjórtán tilboð bárust í Símann frá 37 innlendum og erlendum fjárfestum
Bindandi tilboð opnuð
í sumar í votta viðurvist FLOSI Eiríksson, formaður kjör-
stjórnar Samfylkingarinnar, telur að
vel yfir tíu þúsund atkvæðaseðlar í
formannskjöri flokksins séu komnir í
hús. Hann segir að mjög mikið hafi
verið að gera á skrifstofu flokksins í
gær. „Fólk kom með seðla víða af
landinu. Við vitum líka af mörgum
kjörseðlum á leiðinni,“ sagði hann í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöld.
Frestur til að skila atkvæðum til
skrifstofu flokksins rennur út kl. 18 í
dag. Flosi segir að aðsend atkvæði
verði borin saman við kjörskrá
seinna í kvöld. Eftir það verða at-
kvæðin sett í kassa sem verða inn-
siglaðir. Þar verða þau geymd þar til
talning hefst á laugardagsmorgun.
Stefnt er að því að úrslitin í for-
mannskjörinu verði kynnt kl. 12
þann sama dag.
Vel yfir tíu
þúsund
atkvæði
komin í hús
MARGÆSIR hafa hér viðdvöl á leið
sinni frá Írlandi til varpstöðvanna í
norðausturhéruðum Kanada. Hér á
landi er nú staddur 13 manna hópur
vísindamanna frá Bretlandseyjum,
auk fjögurra manna sjónvarps-
teymis frá BBC í Norður-Írlandi, til
að fylgjast með margæsunum.
Starfa þeir í samvinnu við íslenska
vísindamenn, m.a. Guðmund A.
Guðmundsson, fuglafræðing hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands.
Í vor hafa 38 margæsir verið
fangaðar á Álftanesi til merkinga
og mælinga. Af þeim voru fimm
fuglar sem höfðu verið merktir á
fyrri árum á Álftanesi. Þann 12.
maí náðust 13 margæsir og reynd-
ust þær vera að meðaltali 200 – til
300 grömmum þyngri en þyngstu
margæsir sem vigtaðar voru á Ír-
landi 1. apríl síðastliðinn.
Að sögn Guðmundar er ætlunin
að fanga fleiri gæsir hér til að meta
þyngdaraukningu, mæla þær og
merkja. Sett verða senditæki á sex
gæsir til viðbótar fjórum sem þann-
ig voru merktar á Írlandi 1. apríl
s.l. Þrjár þeirra radíómerktu eru nú
staddar hér á landi, en einn sendir-
inn hætti að senda og óvíst hvar
gæsin sem hann ber er stödd. Vitað
er að steggurinn Finnur er á Álfta-
nesi ásamt unnustu sinni, Mac er í
Grunnafirði og Monty í Álftafirði á
Snæfellsnesi.
Þegar gæsirnar hafa safnað næg-
um forða halda þær í langflug yfir
Grænlandsjökul og alla leið til Kan-
ada. Þær eru svo væntanlegar aftur
hingað í haust á leið sinni til vetr-
arstöðvanna.
Morgunblaðið/RAX
Ólafur Torfason með myndarlega margæs sem fönguð var á Álftanesi í gær, vegin og merkt. Í baksýn sést Guðmundur A. Guðmundsson fuglafræðingur.
Margæsir safna mör
ÍSLENSK erfðagreining (ÍE) hefur
hafið lyfjaprófanir af öðrum fasa á
nýju tilraunalyfi fyrirtækisins við
astma. Fyrsti sjúklingurinn hefur
þegar hafið lyfjatöku. Á innan við
einu ári hefur ÍE hafið klínískar
lyfjaprófanir við þremur mik-
ilvægum sjúkdómum: Hjartaáfalli,
æðakölkun og astma, að því er segir
í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Tilraunalyfið við astma, sem nú
eru hafnar prófanir á, hefur áhrif á
starfsemi ensíms sem erfðarann-
sóknir ÍE hafa sýnt að tengist líf-
fræðilegum orsökum astma. Lyfið
var í upphafi þróað af öðru lyfjafyr-
irtæki og við öðrum sjúkdómi.
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, seg-
ir að astmi sé algengasti langvinni
sjúkdómur vestrænna samfélaga.
Tíðni hans hefur aukist mjög hratt.
Segir Kári að það verði spennandi að
sjá hvort niðurstöður prófana á lyf-
inu verði í samræmi við væntingar
ÍE og lyfið minnki bólgur í önd-
unarvegi astmasjúklinga með sér-
tækari hætti en þau steralyf sem nú
eru helsta meðferðin við sjúkdómn-
um.
Þátttakendum í lyfjaprófunum
verður skipt í fjóra jafnstóra hópa.
Þrír þeirra fá misstóra skammta af
tilraunalyfinu, en fjórði hópurinn
fær lyfleysu til viðmiðunar. Hver
þátttakandi mun taka inn lyf eða lyf-
leysu í átta vikur.
Astmi er langvinnur bólgu-
sjúkdómur í lungum og önd-
unarfærum og langalgengasti lang-
vinni sjúkdómurinn í börnum og
ungu fólki. Tíðni astma er á bilinu 10
– 30% í iðnvæddum löndum. Astma-
köst orsakast af óeðlilegu og ýktu
svari ónæmiskerfisins við ut-
anaðkomandi áreiti á borð við frjó-
korn, ryk, tóbaksreyk eða veirur.
Astmaköstin geta hjá sumum sjúk-
lingum falist í vægum hósta en í al-
varlegustu sjúkdómstilfellum geta
astmaköst verið lífshættuleg, því
öndunarvegur lokast nær alveg.
Virkasta meðferðin gegn astma
felst nú í notkun steralyfja. Þau geta
valdið alvarlegum aukaverkunum,
einkum við langvarandi notkun. Eitt
helsta markmið nýrra meðferð-
arúrræða við astma hefur því verið
að finna leiðir til að minnka bólgur í
öndunarvegi, án þess að nota stera-
lyf.
ÍE prófar tilraunalyf við astma
GUNNAR Örlygsson, fyrrum
þingmaður Frjálslynda
flokksins, er hvattur til þess í
ályktun frá fundi frambjóð-
enda og stuðningsmanna
flokksins í Suðvesturkjör-
dæmi að segja sig frá þing-
mennsku.
Fundurinn var haldinn í
gær og í ályktuninni er það
harmað að Gunnar hafi „snúið
baki við félögum sínum“ í
Frjálslynda flokknum og
gengið til liðs við Sjálfstæð-
isflokkinn.
Með því hafi hann fyrirgert
því trausti sem til hans var
borið, að því er fram kemur í
ályktun fundarins.
Gunnar
segi sig
frá þing-
mennsku