Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 6

Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BEINT áætlunarflug Icelandair til San Francisco hófst í gær þeg- ar Boeing 767 breiðþota félagsins fór á loft frá Keflavíkurflugvelli kl. 18.40. Í hópi 250 farþega voru Halldór Ásgrímsson, forsætisráð- herra og Steinunn Valdís Óskars- dóttir, borgarstjóri, sem taka munu þátt í hátíðardagskrá í San Francisco. Brottför var frestað um tvær klukkustundir, til kl. 18.40, vegna seinkunar á komu flugvélarinnar hingað til lands. Mikið var um dýrðir í Leifsstöð áður en lagt var upp í flugið. Þar sungu Flugfreyjukórinn, undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar, og kvartettinn Undan vindi, sem er skipaður flugstjórum. Jón Karl Ólafsson, verðandi forstjóri Ice- landair, söng með kvartettinum í lokin. Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra klippti á borða og hélt ræðu. Rifjaði hann m.a. upp að sig hefði ekki órað fyrir því þegar hann var í sveit í Suðursveit á æskuárum, ásamt Sigurði Helga- syni forstjóra Icelandair, að þeir ættu eftir að fljúga saman til San Francisco síðar á ævinni. Sagði hann að Sigurður hefði oft fengið að gista á bernskuheimili hans meðan beðið var eftir að fært yrði yfir fljótið í sveitina. Sigurður Helgason, forstjóri Icelandair, segir að flugið til San Francisco í gær marki ákveðin tímamót í sögu félagsins og sam- göngusögu landsins. „Við erum með þessu flugi að opna nýja leið til og frá einhverri þekktustu og vinsælustu borg heims. Með því að taka langdræga breiðþotu inn í áætlunarflugið og þróa tengistöð okkar á Keflavíkurflugvelli erum við að leggja grunn að enn frekari útrás. Bókanir til og frá San Francisco eru í samræmi við áætl- anir og við erum vongóð um fram- haldið.“ Ljósmynd/Víkurfréttir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra klippti á borða í Leifsstöð í tilefni af opnun nýju áætlunarflugleiðar- innar. Í ávarpi rifjaði hann upp þegar þeir Sigurður Helgason, forstjóri Icelandair, voru saman í sveit. Sveitadrengirnir úr Suður- sveit voru í broddi fylkingar Ljósmynd/Baldur Sveinsson Boeing 767-breiðþota Icelandair mun sinna hinni nýju áætlunarflugleið félagsins til San Francisco á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna. FULLTRÚAR ríkisstjórnar og námsmanna í stjórn Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna (LÍN) hafa náð samkomulagi um nýjar úthlutunar- reglur fyrir skólaárið 2005–2006. Taka reglurnar gildi 1. júní nk. Í framhaldi af nýjum reglum er áætl- að að tæplega 10.000 manns fái 8.000 milljónir króna í námslán á næsta ári. Áætluð aukning útlána milli ára er 855 milljónir króna, eða 12%. „Þessar breytingar voru sam- þykktar einróma í stjórn og náðist full samstaða milli fulltrúa ríkis- stjórnar og námsmanna sem er auð- vitað gleðilegt,“ segir Steingrímur Ari Arason, framkvæmdastjóri LÍN. Hann segir að ráð sé gert fyrir fjölgun meðal lánþega. Meðallánið á hvern lánþega verður því um 800 þúsund krónur. Samstarfsnefnd námsmanna- hreyfinganna bendir á að með af- námi frítekjumarks sé ljóst að lág- tekjunámsmenn hagnist ekki á þessum breytingum, en gera megi ráð fyrir að kjör um 85% náms- manna batni við breytinguna. Nú hafi vegir námsmanna opnast fyrir vinnu og ljóst sé að námsmenn á Ís- landi muni nýta sér það. Náms- mannahreyfingarnar skora á náms- menn til þess að nýta sér þessa breytingu og afla sér þeirra tekna sem þeir geta því tekjuvítahringur námsmanna sé nú rofinn. Námsmannahreyfingarnar benda jafnframt á að breytingarnar á út- hlutunarreglum LÍN séu stórt skref til batnaðar en taka þó fram að þetta sé aðeins fyrsta skrefið í átt að tekjufrjálsu umhverfi fyrir náms- menn. Þá leggja þær þunga áherslu á að einnig sé nauðsynlegt að hækka grunnframfærsluna meira en sem nemi verðlagsþróun. Segir lánþega aldrei hafa haft jafn mikið svigrúm Steingrímur Ari Arason bendir á að með hækkun lána og minna tekjutilliti en áður sé gert ráð fyrir að nýjar úthlutunarreglur tryggi námsmönnum að meðaltali 7% hækkun ráðstöfunarfjár milli ára. Með breytingunum séu reglur sjóðsins einfaldaðar og svigrúm námsmanna til að ná endum saman stórlega aukið. Því sé óhætt að full- yrða að lánþegar hafi aldrei frá stofnun sjóðsins árið 1961 haft jafn- mikið svigrúm og nú til að auka ráð- stöfunartekjur sínar með sumar- vinnu eða annarri vinnu samhliða lánshæfu námi. Jafnframt tryggja breytingarnar námsmönnum aukinn rétt til lána út á sumarnám búi þeir við skerta tekjumöguleika eða vilji flýta námslokum. Helstu breytingar á reglunum eru eftirfarandi:  Grunnframfærsla er hækkuð um 3,8% eða úr 79.500 kr. í 82.500 kr. Fjölmargir þættir námsaðstoðar- innar taka mið af grunnframfærsl- unni og hækka samhliða henni, s.s. lán vegna maka og barna.  Reglum um tekjur sem koma til lækkunar námsláni er gjörbreytt. Í stað þess að 33% tekna eftir skatt umfram svokallað frítekjumark (300.000 kr.) komi til lækkunar koma nú einungis 14% heildartekna til lækkunar á útreiknuðu láni. Frí- tekjumarkið er afnumið og engu máli skiptir lengur hvort námsmað- ur er að koma úr námshléi eða ekki. Tillit til tekna er hið sama hvort heldur námsmaður býr í foreldra- húsnæði, leiguhúsnæði eða eigin húsnæði.  Reglur um sumarlán eru rýmk- aðar. Slakað er á námsframvindu- kröfum og lánþegum auðveldað að flýta námslokum með sumarnámi.  Námsmenn erlendis þurfa ekki lengur að framvísa farseðlum til að fá ferðalán og fá þau nú afgreidd í kjölfar lánsumsóknar með öðrum lánum.  Hámark skólagjaldalána hækkar vegna náms í Bandaríkjunum úr 33.000 dölum í 38.000 dali og á Bret- landi úr 23.335 pundum í 25.600 pund.  Sjálfsfjármögnun námsmanna vegna innritunar- og skólagjalda er hækkuð úr 35.000 kr. í 45.000 kr. Nýjar úthlutunarreglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna Frítekjumark afnumið Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir um- hverfisráðherra undirritaði á þriðju- dag tvo samstarfssamninga við kín- versk stjórnvöld, annan á sviði jarðskjálfta, hinn á sviði umhverfis- verndar. Í fréttatilkynningu frá umhverfis- ráðuneytinu segir að markmið samningsins um samstarf á sviði jarðskjálfta sé að þróa samvinnu og miðla þekkingu á sviði jarðskjálfta, eldfjalla, jarðeðlisfræði, jarð- skjálftaverkfræði og varna gegn jarðskjálftavá. „Það er nú þannig að Kínverjar sendu sendinefnd til Íslands fyrir þremur árum til að kynna sér þessi mál heima og það er alveg greinilegt að þetta hefur vakið áhuga þeirra,“ sagði Sigríður Anna í gær. „Þeir eru mjög áfram um að gera slíka samn- inga.“ Hún kvaðst telja að Íslendingar hefðu mikið fram að færa á þessu sviði. „Við höfum langa og mikla reynslu. Við höfum mjög færa vís- indamenn. Og við ætlum bæði að eiga samstarf um mælingar og vökt- un.“ Vísindamenn milli landa Hún sagði að Kínverjar vildu að við efldum fyrst og fremst samstarf okkar vísindamanna og þeirra, efld- um upplýsingastreymi á milli og hvor þjóð læri af annarri. Samstarfið mun fela í sér að vísindamenn fari á milli landanna til rannsókna á vett- vangi, skiptist á upplýsingum og gögnum á sviði jarðskjálfta og eld- virkni og skipuleggi sameiginlega vinnufundi og fyrirlestra. Sigríður Anna sagði að samning- urinn um umhverfisvernd snerist um nokkur atriði. „Það er til dæmis umhverfisvernd og landgræðsla, endurnýting og förgun úrgangs og ýmislegt, sem tengist endurnýjan- legri orku og þá bæði orkunýtingu og orkuvinnslu, og svo tækni á sviði umhverfis- mála, eins og mælingum og öðru því tengdu.“ Hún sagði að mengunarvanda- mál Kína yrðu rædd á fundum hennar hér. „Það er engin spurning að hér í Kína, þar sem er þessi gríðarlega mannmergð, er þessi málaflokkur vaxandi og þeir þurfa að beina kröftunum að því að hafa þessi mál í lagi hjá sér,“ sagði Sigríð- ur Anna. Hún sagði að umhverfismál hefðu verið ofarlega á baugi heima og fólk væri sér meðvitað um mikil- vægi þeirra. „Þar að auki höfum við mjög mikla sérstöðu, til dæmis í notkun endurnýjanlegrar orku þar sem engin þjóð í veröldinni kemst með tærnar þar sem við höfum hæl- ana. Við höfum því margt fram að færa á þessu sviði og þá nefni ég sér- staklega jarðhitanýtingu. Ég tel að það séu mjög mörg tækifæri fólgin í þessum samningum, sem við erum að gera á umhverfissviðinu, ekki ein- göngu fyrir stofnanir umhverfis- ráðuneytisins og stofnanir í Kína, heldur einnig fyrir íslensk fyrirtæki, sem vilja sækja fram í Kína, og þá vil ég til dæmis nefna orkumálin, það er orkufyrirtækin okkar, og svo er svo ótalmargt fleira, eins og í endur- vinnslumálum sem tengjast um- hverfismálum.“ Hún segir að ekki sé orðið ljóst hversu víðtækt samstarfið verði. Það velti á því hvernig takist að nýta þau tækifæri sem samning- arnir bjóði upp á. Samningarnir eru til fimm ára og endurnýjast náttúru- verndarsamningurinn sjálfkrafa verði honum ekki sagt upp. Samningar við kínversk stjórnvöld á sviði jarðskjálfta og umhverfisverndar Samstarf eflt og streymi upp- lýsinga aukið Sigríður Anna Þórðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.