Morgunblaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 11
HVATNINGARVERÐLAUN Vís-
inda- og tækniráðs voru afhent við
hátíðlega athöfn á Grand hótel í gær.
Formaður ráðsins, Halldór Ásgríms-
son forsætisráðherra, afhenti verð-
launin sem nema tveim milljónum
króna. Hlutskarpastur ungra vís-
indamanna í ár varð dr. Freysteinn
Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur á
Norrænu eldfjallastöðinni við Jarð-
vísindastofnun Háskóla Íslands.
Verðlaunaathöfnin var lokaþáttur
í Rannsóknaþingi sem stóð yfir fram
að athöfninni. Sjálf athöfnin var
snaggaraleg og á léttu nótunum en
hún byrjaði með söngatriði og voru
þekktir, sígildir söngtextar sérsniðn-
ir að viðburðinum. Eftir stutta syrpu
af Evróvisjónlögum í glæsilegri
klassískri útsetningu sem endaði á
hinu danska „Fly on the wings of
love“ vakti Hans Kristján Guð-
mundsson, forstöðumaður Rannís
(Rannsóknamiðstöð Íslands), athygli
á því að hvatningarverðlaunin væru
einmitt ætluð til að hefja unga vís-
indamenn til flugs.
Verðlaunin til að hvetja
unga vísindamenn til dáða
Áslaug Helgadóttir, formaður
dómnefndar, sagði verðlaunin til
þess veitt að hvetja unga vísinda-
menn til dáða, en ekki síður almenn-
ing til að fylgjast með þróun á vís-
indasviðinu. Í ræðu sinni vakti hún
jafnframt máls á því að í samfélaginu
styddust ákveðin öfl við órökræna
bókstafstrú. Í andrúmslofti hræðslu
og efa eigi vísindi undir högg að
sækja og það verði að fyrirbyggja.
Vísindaleg hugsun í nútímasam-
félagi eigi að vera einn af hornstein-
um lýðræðisins. Hvatningarverð-
launin eigi að vera vegleg og ungum
vísindamönnum keppikefli enda hafi
þau ótvírætt gildi fyrir verðlauna-
hafa.
Blaðakona Morgunblaðsins átti
spjall við Freystein og vildi vita hvað
hefði hvatt hann áfram fram að
þessu. „Hvatning er spurning um
umhverfi. Ég heillaðist fyrst af land-
inu okkar og fékk þannig áhuga á
jarðvísindum. Sú umgjörð sem vís-
indasamfélaginu er sett skiptir svo
öllu máli. Innviði vísindasamfélags-
ins þarf markvisst að styrkja. Stuðn-
ingur aðila á borð við stjórnmálafólk
og Rannís skiptir þar miklu máli.
Einnig er mikilvægt að eiga fjöl-
skyldu sem styður við bakið á manni.
Ég er svo heppinn að eiga góðan hóp
samstarfsaðila. Mikil samvinna á sér
stað meðal bæði íslenskra og er-
lendra sérfræðinga í mínu fagi og
öðrum skyldum sem hefur gert okk-
ur kleift að nýta sameinaða krafta og
fjármuni í stærri verkefni.“
Freysteinn segist ekki hafa vitað
um verðlaunin fyrr en fyrir stuttu.
Hann hafi því ekki gefið sér tíma enn
til að ákveða hvernig hinu tveggja
milljóna króna verðlaunafé verði
ráðstafað. Auk þess gefst honum
ekki langur tími hérlendis í bili, því
hann er nýkominn frá starfi við ráð-
gjöf fyrir Mannúðarmálaskrifstof-
una á Súmötru vegna flóðbylgjunnar
í Indlandshafi í desember sl. og hélt
strax síðdegis í gær til vísindastarfa í
Frakklandi. Freysteinn segist hafa
átt í góðu samstarfi við vísindamenn
í Toulouse og frönsku geimvísinda-
stofnunina og mun í Frakklandi
skoða með gervitunglatækni hvernig
jarðskorpuhreyfingar verða á Ís-
landi og tognar á landinu vegna
færslu Evrasíu og Norður-Ameríku
flekanna.
Heillaðist af landinu og
fékk áhuga á jarðvísindum
Morgunblaðið/Eyþór
Verðlaunahafinn dr. Freysteinn Sigmundsson ásamt Halldóri Ásgrímssyni.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 11
FRÉTTIR
DR. FREYSTEINN Sigmundsson
er jarðeðlisfræðingur á Norræna
eldfjallasetrinu við Jarðvís-
indastofnun Háskóla Íslands. Hann
er fæddur 1966. Lauk B.Sc. prófi í
jarðeðlisfræði í HÍ. Síðan dvaldist
hann í ár við Colorado-háskóla í
BNA. Hlaut meistaragráðu frá HÍ
árið 1990 og lauk doktorsprófi frá
Colorado árið 1992, einungis 26 ára
að aldri. Í doktorsritgerð sinni birti
hann niðurstöður mælinga á jarð-
skorpuhreyfingum og þróun úr-
vinnsluaðferða á GPS mæligögnum
frá Íslandi og Afarsvæðinu í Afríku.
Freysteinn varð sérfræðingur á
Norrænu eldfjallastöðinni og for-
stöðumaður hennar frá 1999-2004
eða allt þar til stofnunin samein-
aðist HÍ. Hann er vel þekktur á al-
þjóðlegum vettvangi fyrir rann-
sóknir sínar á
jarðskorpuhreyfingum og eld-
fjallavöktun.
Lauk doktors-
prófi 26 ára
Freysteini Sigmundssyni veitt hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
FULLTRÚAR flokkanna þriggja sem standa
að Reykjavíkurlistanum hittust fjórða sinni í
fyrradag, á rúmum mánuði, til að ræða fram-
hald samstarfsins í Reykjavík. Stefnt er að því
að niðurstöður „könnunarviðræðnanna“ eins
og fulltrúar flokkanna kjósa að nefna þær, liggi
fyrir um eða eftir næstu mánaðamót. Þá geti
bakland flokkanna m.ö.o. tekið afstöðu til frek-
ari viðræðna.
Viðræðurnar eru skammt á veg komnar,
skv. upplýsingum Morgunblaðsins. Hingað til
hafa „þetta aðallega verið þreifingar“, eins og
einn heimildarmaður blaðsins orðaði það. Enn
hefur ekki reynt á það hvort uppi sé alvarlegur
málefnalegur ágreiningur innan viðræðuhóps-
ins. Á hinn bóginn gætu verið í uppsiglingu
deilur um hlut flokkanna á framboðslista R-
listans.
Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa, skv.
heimildum Morgunblaðsins, komið fram með
þær hugmyndir að þeir fái fleiri örugg sæti en
áður. Þar vísi þeir m.a. til fylgis síns í Reykja-
víkurkjördæmunum skv. skoðanakönnunum
og síðustu alþingiskosningum. Fulltrúar
Vinstri grænna hafa hins vegar lagt ríka
áherslu á frá upphafi að allir flokkar fái jafn-
mörg sæti.
Reykjavíkurfélög flokkanna þriggja, þ.e.
Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og
Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, til-
nefndu hver þrjá fulltrúa í viðræðuhópinn um
framtíð R-listans. Þar af eiga ungliðahreyfing-
ar flokkanna í Reykjavík sína fulltrúa.
Þess má geta að ungliðahreyfingar Vinstri
grænna og Samfylkingarinnar í Reykjavík
ályktuðu nýlega að flokkar sínir ættu að bjóða
fram í eigin nafni í næstu borgarstjórnarkosn-
ingum.
Hrafn Stefánsson, formaður Ungra jafnað-
armanna í Reykjavík, segir að ungliðarnir vilji,
þrátt fyrir ályktunina, koma sínum sjónarmið-
um á framfæri í nefndinni. Meginsjónarmiðið
sé að Samfylkingin bjóði fram í eigin nafni í
Reykjavík. Gangi það ekki eftir vilji þeir hafa
áhrif á viðræðurnar um framtíð R-listans.
Freyr Rögnvaldsson, formaður Ungra
vinstri grænna í Reykjavík, segir sömuleiðis að
ungliðar Vinstri grænna vilji koma sínum sjón-
armiðum á framfæri í nefndinni. „Ef ekki fæst
stuðningur við þau og R-listinn heldur áfram
viljum við hafa áhrif á það hvernig staðið verð-
ur að þeim málum,“ segir hann.
Viðræður um framtíð Reykjavíkurlistans eru í fullum gangi
Deilur um hlut flokkanna
gætu verið í uppsiglingu
Morgunblaðið/Árni Torfason
Fulltrúar flokkanna sem mynda R-listann ræddu um framhald samstarfsins á þriðjudag.
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
DAGUR B. Eggertsson, borgarfulltrúi R-
listans, segir það ekki rétt að hann sé genginn
í Samfylkinguna, eins og Grímur Atlason,
fulltrúi í stjórn VG í Reykjavík, heldur fram í
nýlegum pistli í Morgunpósti VG.
Grímur segir í pistlinum að það sé umhugs-
unarefni fyrir þá sem styðja R-listann að nú sé
sá, sem talinn var óháður í síðustu kosningum,
orðinn liðsmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur og genginn í Samfylkinguna. „Er þetta
eðlilegt?“ spyr Grímur. „Er hægt að sætta sig
við svona lagað? Ekki mikið lengur.“
Fleiri stuðningsmenn Vinstri grænna í
Reykjavík velta því einnig fyrir sér hvort Dag-
ur sé genginn í Samfylkinguna og hvort það
þýði að Samfylkingin hafi þar með fjóra borg-
arfulltrúa af átta en ekki tvo, eins og miðað
var við þegar R-listinn bauð fram í síðustu
borgarstjórnarkosningum. Fyrst hafi Ingi-
björg Sólrún gengið í Samfylkinguna og nú
Dagur. Vísa þeir m.a. í grein sem Dagur ritaði
í Morgunblaðið nýverið um formannskjör
Samfylkingarinnar.
Dagur segir hins vegar að greinin sé ekki til
marks um að hann sé genginn í Samfylk-
inguna. Hann hafi áður ritað greinar til stuðn-
ings Ingibjörgu Sólrúnu. Hann hafi í greininni
m.a. verið að benda á fyrir hvað Ingibjörg Sól-
rún hafi staðið sem borgarstjóri. Hann segir
að margir sinna félaga í R-listanum hefðu lík-
lega getað skrifað undir greinina. Hann hefði
þó sennilega meira frelsi til þess þar sem hann
væri óflokksbundinn. Dagur segist vera
Reykjavíkurlistamaður í einu og öllu. Spurður
hvort hann hyggist gefa kost á sér sem
óflokksbundinn í næstu kosningum eða bjóða
sig fram undir merkjum Samfylkingar, segir
hann of snemmt að ræða næstu kosningar
Ekki genginn í
Samfylkinguna
Í TILEFNI af 10 ára afmæli Leon-
ardó starfsmenntaáætlunar Evr-
ópusambandsins efnir Lands-
skrifstofa Leonardó á Íslandi til
hátíðardagskrár í Ráðhúsi Reykja-
víkur í dag kl. 14–16.30.
Litið verður yfir farinn veg í
máli og myndum og kynnt þau
áhrif sem Leonardó-áætlunin hef-
ur haft hér á landi síðastliðinn
áratug. Meðal þeirra sem koma
fram eru Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra,
Sölvi Sveinsson skólameistari,
Gunnar Páll Pálsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur, Sergio Corti, fulltrúi fram-
kvæmdastjórnar ESB, og alþing-
ismennirnir Anna Kristín
Gunnarsdóttir og Hjálmar Árna-
son.
Í lok dagskrár mun afmæl-
isbarnið afhenda verðlaun í Leon-
ardó-samkeppninni um myndverk
eða hlut sem byggir á hönnun eða
verkum Leonardo da Vinci.
Í tilefni af afmælinu stendur
Landsskrifstofan einnig fyrir af-
mælisdagskrá í Ráðhúsinu um
helgina. Nánari upplýsingar um
dagskrána er að finna á vef
Landsskrifstofu Leonardó,
www.leonardo.is.
Afmælishátíð
Leonardó
í Ráðhúsinu
UNNIÐ er að endurbótum á leit-
armöguleika símaskrárinnar á Net-
inu og býður Síminn almenningi nú
aðgang að þróunarsíðu fyrir síma-
skrána. Þar er hægt að prófa nýju
leitarvélina og hafa áhrif á þróun
símaskrár á Netinu með því að
senda ábendingar til Símans.
Ábendingarnar verða síðan not-
aðar til frekari þróunar á skránni.
Síminn segir að með breyting-
unum hafi einfalda leitin verið end-
urbætt og sé nú mun auðveldara að
finna símanúmer fólks eftir póst-
númerum, götuheitum eða jafnvel
stöðum á landinu. Slóðin á þróun-
arsvæðin er http://beta.simaskra.is
Notkun símaskrár á Netinu hefur
aukist jafnt og þétt. Meðalfjöldi
notenda á mánuði á simaskra.is
fyrstu 4 mánuði ársins 2005 var
161.055.
Símaskráin á
Netinu bætt