Morgunblaðið - 19.05.2005, Side 18

Morgunblaðið - 19.05.2005, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT VIKUBLAÐIÐ Newsweek hefur verið sakað um óvandaða blaða- mennsku eftir að það dró til baka frétt um að fangaverðir í bandarísku herstöðinni í Guantanamo á Kúbu hefðu vanhelgað Kóraninn, helgirit múslíma. Málið hefur vakið á ný um- ræðu meðal fjölmiðlamanna í Bandaríkjunum og víðar um hvernig fjalla eigi um ásakanir heimildar- manna sem vilja ekki láta nafns síns getið. Scott McClellan, talsmaður George W. Bush Bandaríkjaforseta, sagði að frétt Newsweek hefði valdið ímynd Bandaríkjanna erlendis „óbætanlegum skaða“. McClellan notaði einnig tækifærið til að gagn- rýna fréttaflutning annarra fjöl- miðla. „Eitt af áhyggjuefnunum er að nokkrir fjölmiðlar hafa notað ónafngreinda heimildarmenn, sem fela sig á bak við nafnleyndina, til að kalla fram skaðlegar árásir“. Newsweek kennt um blóðsúthellingar Newsweek baðst fyrst afsökunar á fréttinni og dró hana síðan til baka eftir að hafa orðið fyrir miklum þrýstingi frá bandarískum stjórn- völdum. Í fréttinni var haft eftir ónafngreindum heimildarmanni að rannsókn hefði leitt í ljós að fanga- verðir hefðu sturtað eintaki af Kór- aninum niður um salerni til að nið- urlægja fanga og trú þeirra. Heimildarmaðurinn dró síðar í land með þetta og kvaðst ekki vera viss um að þetta kæmi fram í skýrslu um rannsóknina. Stjórnvöld í Washington kenna nú Newsweek um mótmæli gegn Bandaríkjunum í Afganistan í vik- unni sem leið þegar lögreglumenn skutu um það bil fimmtán mótmæl- endur til bana. Nokkrir fjölmiðlar í Bandaríkjun- um hafa tekið undir gagnrýni stjórn- ar Bush, þeirra á meðal bloggarar á Netinu sem hafa gert harða hríð að Newsweek og sakað blaðið um að bera ábyrgð á blóðsúthellingunum. Jeff Jarvis, sem heldur úti blogg- inu BuzzMachine á Netinu og fjallar þar um fjölmiðla, segir frétt News- week vera enn eitt dæmið um „skelfilega“ blaðamennsku. „Þessi mistök kostuðu mörg mannslíf… og eru álitshnekkir fyrir blaðaheiminn sem er þegar rúinn trausti.“ Undir smásjá bloggara Bloggarar, sem brjóta fréttaflutn- ing hefðbundinna fjölmiðla til mergjar, eiga sinn þátt í því að blaða- og fréttamenn eiga nú undir högg að sækja í Bandaríkjunum og víðar. Bandaríska sjónvarpsstöðin CBS vék til að mynda fjórum af yfir- mönnum sínum úr starfi í janúar eft- ir að bloggarar komust að því að um- deild fréttaskýring um herþjónustu Bush forseta byggðist á gögnum sem talin eru fölsuð. Í fréttaskýring- unni var fullyrt að Bush hefði verið vikið úr flugsveit þjóðvarðliðsins í Texas í Víetnam-stríðinu. Eason Jordan, yfirmaður frétta- deildar CNN, neyddist einnig til að segja af sér í febrúar eftir að blogg- ari greindi frá því að hann hefði sagt á ársfundi World Economic Forum í Davos í Sviss að bandarískir her- menn í Írak hefðu vísvitandi ráðist á blaðamenn. Hægrimenn í Bandaríkjunum skírskota oft til þessara mála þegar þeir gagnrýna fjölmiðla og saka þá um að hneigjast til þess að trúa því versta á stjórn Bush. Vinnureglum breytt Stórblaðið The New York Times þurfti einnig að ganga í gegnum mikinn hreinsunareld fyrir tveimur árum þegar einn blaðamanna þess, Jayson Blair, varð uppvís að stór- felldri fréttafölsun. Í ljós kom meðal annars að hann spann upp viðtöl við fólk sem hann hafði aldrei hitt. Blaðið skipaði nefnd til að skoða vinnubrögð ritstjórnarinnar ofan í kjölinn og leggja fram tillögur um úrbætur til að endurheimta traust lesenda. Meðal annars var ákveðið að setja reglur sem takmörkuðu notkun upplýsinga frá ónafngreind- um heimildarmönnum. Ritstjórn The Washington Post hefur einnig endurskoðað vinnu- brögð sín þótt blaðið hafi ekki lent í slíkum hremmingum. „Við erum miklu varkárari en áður gagnvart ónafngreindum heimildum,“ hafði fréttavefur BBC eftir Glenn Frank- el, fréttaritara The Washington Post í London. „Ritstjórar krefjast nú þess að fá nöfn heimildarmanna og biðja blaðamenn að rökstyðja nafn- leynd.“ Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur einnig breytt vinnubrögðum sínum eftir að Hutton lávarður gagnrýndi þau í skýrslu um rannsókn á máli vopnasérfræðingsins Davids Kellys, sem fyrirfór sér eftir að greint var frá því að hann var heimildarmaður fréttamanns sem sakaði bresku stjórnina um að hafa vísvitandi ýkt hættuna af vopnum Íraka. Að sögn BBC hefur vinnureglun- um verið breytt þannig að yfirmenn útvarpsins hafa rétt til að biðja fréttamenn um nöfn heimildar- manna sem óska nafnleyndar. Sam- kvæmt reglunum hafa áheyrendur einnig rétt til að vita eins mikið og mögulegt er um heimildarmennina. Þurfi heimildarmaður ásökunar að njóta nafnleyndar eigi fréttamenn að veita áheyrendum eins nákvæm- ar upplýsingar um hann og mögu- legt er án þess að rjúfa trúnað við heimildarmanninn. Blaðamennska máttlaus án nafnleyndar Lee Wilkins, bandarískur sér- fræðingur í fjölmiðlasiðfræði, viður- kennir að varasamt geti verið að birta fréttir án þess að nafngreina heimildarmennina en telur að stjórn Bush eigi að nokkru leyti sök á vanda fjölmiðlanna. „Þegar stjórn hefur lagt jafnmikla áherslu á leynd á svo mörgum sviðum og stjórn Bush er erfitt fyrir uppljóstrara að vinna með blaðamönnum og gera slík mál opinber,“ hafði fréttastofan AFP eftir Wilkins. „Það getur verið mjög afdrifaríkt fyrir embættis- menn að veita blaðamönnum upplýs- ingar án nafnleyndar eins og ástand- ið er um þessar mundir.“ Tom Goldstein, prófessor í fjöl- miðlafræði við Kaliforníu-háskóla, er á sama máli og segir að í sumum tilvikum sé óhjákvæmilegt að birta ásakanir ónafngreindra heimildar- manna. „Blaðamennska sem stydd- ist aldrei við ónafngreinda heimild- armenn væri dauðyflisleg og máttlaus blaðamennska.“ Hefðbundnir fjölmiðlar bíða enn álitshnekki Reuters Námsmaður stekkur yfir brennandi hjólbarða við skyndibitastað McDon- ald’s í indónesísku borginni Makassar þar sem hundruð námsmanna mót- mæltu í gær meintri vanhelgun Kóransins í fangelsum Bandaríkjahers. Stjórn Bandaríkjanna hefur gagnrýnt fjölmiðla fyrir að birta ásakanir, sem byggjast á upplýs- ingum frá ónafngreindum heimildarmönnum, eftir að Newsweek þurfti að draga til baka frétt um að bandarískir hermenn hefðu vanhelgað Kóraninn. Bogi Þór Arason kynnti sér málið. ’Blaðamennska semstyddist aldrei við ónafngreinda heimild- armenn væri dauðyfl- isleg og máttlaus.‘ New York. AFP. | CBS-sjónvarpsstöðin bandaríska hefur ákveðið að leggja niður miðvikudagsútgáfu frétta- skýringarþáttarins „60 mínútur“ á hausti komanda. Þátturinn lenti í nokkrum hremmingum á síðasta hausti þeg- ar hann flutti mjög neikvæða frétt um þátttöku George W. Bush for- seta í þjóðvarðliðinu á dögum Víet- nam-stríðsins en hún reyndist byggð á fölsuðum gögnum. Baðst Dan Rather afsökunar á þessu og hætti skömmu síðar sem frétta- stjóri eftir 24 ára starf. Hann hélt þó áfram í „60 mínútum“ og verður áfram í sunnudagsútgáfu þáttarins. Talsmaður CBS sagði, að þetta mál hefði ekkert með ákvörðunina að gera, heldur hitt, að áhorf á þáttinn hefði minnkað. Önnur útgáfa „60 mínútna“ lögð niður Washington. AP, AFP. | Luis Posada Carriles, sem stjórnvöld á Kúbu og í Venesúela segja hryðjuverka- mann, var handtekinn á Miami í Flórída í fyrradag. Er þess beðið með eftirvæntingu hvað um hann verður en í margra augum er það nokkurs konar prófsteinn á hryðju- verkabaráttu George W. Bush Bandaríkjaforseta og stjórnar hans. Carriles var handtekinn tveimur klukkustundum eftir að hann hafði haldið blaðamannafund á Miami en í skjölum CIA, bandarísku leyni- þjónustunnar, sem birt voru í síð- ustu viku, er hann tengdur við tor- tímingu kúbverskrar farþegaþotu yfir Venesúela 1976. Með henni fór- ust 76 menn. Stjórnin í Venesúela hefur kraf- ist þess, að Carriles verði fram- seldur og einnig stjórnvöld á Kúbu en þau saka hann um skipulagt sprengitilræði í hótelum í Havana 1997. Carriles var á launaskrá CIA á árum áður en árið 2000 var hann dæmdur í fangelsi í Panama fyrir að skipuleggja banatilræði við Fid- el Castro, forseta Kúbu, á leiðtogafundi þar í borg. Hann var síðan náðaður á síð- asta ári. Virðist ekki hafa áhyggjur „Þetta er hið versta mál fyrir Bush-stjórn- ina. Hún vill ekki framselja menn til óvinanna á Kúbu og í Venesúela en getur samt ekki leyft Carr- iles að fara frjálsum ferða sinna í Banda- ríkjunum. Carriles virðist hins vegar ekki hafa neinar áhyggjur af því, að hann verði framseldur,“ sagði Dan Erickson, sérfræðingur í málefnum Kúbu hjá hugveitunni Inter-American Dia- logue. Erickson sagði, að kostirnir, sem blöstu við, væru meðal ann- ars að hafa Carriles í haldi, í einhvers konar lagalegu tómarúmi þar sem hann hefði ekki verið ákærður í Bandaríkjunum, eða reyna að finna eitt- hvert þriðja land til að taka við honum. „Síð- an er auðvitað hugs- anlegt að rétta yfir honum í Bandaríkjun- um þar sem hann yrði kannski sýknaður.“ William Rogers, fyrrverandi aðstoðarráðherra með málefni Ameríkuríkja sem sér- grein, segir, að það muni verða Bandaríkjastjórn „dýrkeypt“, verði Carriles ekki framseldur. „Það mun einfaldlega verða túlk- að þannig, að hún láti sér vel líka hryðjuverk svo fremi þau beinist gegn ríkisstjórnum, sem hún er andvíg,“ segir Rogers og Philip Peters, Kúbusérfræðingur við Lex- ington-stofnunina, segir, að verði Carriles ekki framseldur, muni það hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. „Það jafngilti yfirlýsingu um það til umheimsins, að þegar kæmi að kosningahagsmunum flokks og stjórnar, yrði hryðjuver- kastríðið að víkja.“ Hetja í augum Kúbverja á Miami Með þessu á Peters við það, að í augum Kúbverja á Miami er Carri- les hetja og þeir eru aftur miklir stuðningsmenn Repúblikanaflokks- ins og Jeb Bush ríkisstjóra, bróður Bandaríkjaforseta. Dan Erickson segir, að spurn- ingin snúist um það hvort Banda- ríkjastjórn líti á hryðjuverk, sem beinist gegn Kúbu, allt öðrum aug- um en þau hryðjuverk, sem hún er að berjast gegn. „Fram að þessu virðist svarið vera já,“ segir Erickson. Luis Posada Carriles Hvað verður um Posada Carriles? Í margra augum er málið nokkurs konar prófsteinn á hryðjuverka- baráttu bandarísku stjórnarinnar Bogota. AP. | Yfirvöld í bænum Ico- nonzo í Kólumbíu hafa skorið upp herör gegn kjaftasögum og bæj- arbúar sem gerast sekir um að bera út slúður eiga yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi og sekt að andvirði tíu milljóna króna. „Fólk þarf að gera sér grein fyrir því að skæðar tungur eru eins og dýnamít í munninum,“ sagði bæj- arstjóri Icononzo, Jesus Ignacio Jimenez. Hann bætti við að slúður gæti haft mjög alvarlegar afleið- ingar í Kólumbíu. „Það er alvana- legt að slúður breiðist út um litla bæi og það er hluti af lífinu, en það sem veldur mér áhyggjum er að fólk er fangelsað eða jafnvel myrt vegna slúðurs.“ Hann nefndi mál manns sem var drepinn vegna slúðurs um að hann væri í vinstrisinnaðri uppreisn- arhreyfingu. Öðrum hefur verið varpað í fangelsi vegna svipaðra ásakana. Dæmi eru um að bæj- arbúar fari heim til sín áður en vinnudegi lýkur og læsi sig inni vegna gróusagna um að uppreisn- arhreyfing ætli að ráðast á bæinn. Hörð viður- lög við slúðri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.