Morgunblaðið - 19.05.2005, Síða 22

Morgunblaðið - 19.05.2005, Síða 22
Reykjavík | Ekkert lát er á sólskininu sem landsmenn hafa notið að undanförnu og er útlit fyrir að bjart verði áfram næstu daga. Útivist- arsvæðin eru því mikið notuð, ekki síst Nauthólsvík þar sem hægt er að svamla í sjónum. Þessar stúlkur létu fara vel um sig í skjóli og sólskini á meðan þær gæddu sér á nest- inu. Morgunblaðið/Jim Smart Í skjóli og sól Útivist Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu Varp í seinna lagi | Varp í Ingólfshöfða byrjar seinna í vor en verið hefur og eru fá- ir lundar búnir að verpa. Sömu sögu er að segja af mávnum sem oft fer að verpa um 20. apríl. Sigurður í Hofsnesi lætur þá skoð- un í ljósi á Samfélagsvef Hornafjarðar að sjávarkuldinn við höfðann valdi þessu. Hvergi er sjórinn við Ísland eins heitur og við Ingólfshöfða og hefur varp þar venju- lega hafist fyrr en annars staðar. Um 50 þúsund lundapör verpa í Ingólfs- höfða en í heild er talið að um 400 þúsund lundar séu þar. Lundarnir fara ekki að verpa fyrr en þeir eru orðinn 5–8 ára og þeir verða 40–60 ára gamlir. Fuglalíf er af- skaplega fjölskrúðugt í höfðanum einkum sjófugla og er þar langmest af lunda. Sigurður fer með ferðafólk í skoð- unarferð út í Ingólfshöfða, á dráttarvél með heyvagni. Ferðirnar eru hafnar á þessu vori en farið er frá Hofsnesi klukkan 11 alla daga.    Kynningarfundur | Samtökin Lands- byggðin lifi heldur kynningarfund í Stjórn- sýsluhúsinu á Ísafirði í kvöld, fimmtudag, klukkan 20.30. Á fundinum flytur fram- söguerindi Ragnar Stefánsson, jarð- skjálftafræðingur á Laugasteini í Svarf- aðardal, formaður LBL. Hann mun aðallega fjalla um markmið og starfshætti samtakanna. Sveinn Jónsson, bóndi á Ytra- Kálfsskinni á Árskógsströnd og varafor- maður LBL, mun fjalla um reynsluna af starfi Framfarafélags Dalvíkurbyggðar, sem er aðili að LBL. Eftir stuttar fram- sögur verða almennar umræður og fyr- irspurnir Landsbyggðin lifi, LBL, er hreyfing fólks sem vill efla byggð um land allt. Áhersla er lögð á að tengja fólk saman, mynda samstarfsvettvang fyrir ein- staklinga og hvers konar áhugamannafélög, sem hafa það á stefnu sinni að styrkja heimabyggðina.    Stjórn fulltrúaráðsSjálfstæðisfélag-anna í Reykja- nesbæ hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún harmar þau ummæli Val- gerðar Sverrisdóttur iðn- aðarráðherra að ekki beri að fagna viljayfirlýsingu um athugun á hagkvæmni álvers í Helguvík. Vakin er athygli á þeim ummælum ráðherrans að stjórnvöld muni áfram vinna að því að álver rísi á Norðurlandi og að hún vonist til að samkomulagið þrýsti á Norðlendinga um að sýna samstöðu. Segir stjórn félagsins að þessi ummæli beri því merki að ráðherrann líti á sig sem ráðherra Norðurlands en ekki allrar þjóðarinnar. Mótmæla ráðherra Víða er unnið að hreinsun eftir veturinn. Í sveit-unum veitir ekki af því plast hefur víða fokið ágirðingar og tré og er ljótt að sjá. Bæði er um að ræða rúlluplast, akrýldúk vegna grænmetisrækt- unar og plastpoka. Í Hrunamannahreppi hefur verið boðað til rusladags næstkomandi föstudag, eins og lengt hefur verið gert á vorin. Þar lætur Ragnheiður Karlsdóttir rusla- málaráðherra sjálfboðaliðana taka til hendinni, meðal annars við rífa plastið af girðingum og trjánum sem farin eru að setja mjög svip sinn á Flúðir og nágrenni. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Plastið fýkur í trén Halldór Blöndal varmeð fjölskyldusinni í Árbót í Aðaldal yfir hvítasunn- una. Veðrið var bjart og gott og hann undi sér vel niðri við ána: Kjaftfor ropar karrinn úti í mónum. Mikið hreykir sólin sér. Sjáðu! bleikjan vakir hér. Annars er snjallasta vísan úr veiðiför í Laxá eftir Jón Þorsteinsson bónda á Arnarvatni: Flugu minni fleygði ég, en fár varð gróði: á mig leit úr ölduflóði urriði með köldu blóði! Egill Jónasson á Húsavík orti þegar hann fékk konu sinni silungstitt sem hann hafði sargað upp úr Laxá: Eigðu þetta, yndi mitt, ánni gekk ég nærri. Það er skömm að þessum titt, þú hefur séð þá stærri. Ort við Laxá pebl@mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 HÉÐAN OG ÞAÐAN Hola í höggi | Grímur Lúðvíksson, félagi í Golfklúbbi Bolungarvíkur, varð í fyrradag fyrstur til að fara holu í höggi á Syðridals- velli í Bolungarvík, að því er fram kemur á vef Bæjarins besta á Ísafirði. Þessu draumahöggi náði hann á 5. holu. Hann not- aði 4-járn á teig og lenti kúlan framan við grínið, og skoppaði síðan og rúllaði ofan í holuna. Fyrir þremur árum vissi Grímur varla hvað golf var. Þá mætti hann á byrjend- anámskeið í íþróttinni og hefur síðan ekki verið samur maður. Hann hefur að und- anförnu haslað sér völl í innflutningi golf- vara og selur þær í verslun sinni Golf- skúrnum í Bolungarvík. Árborg | Árleg menningar- og fjöl- skylduhátíð Sveitarfélagsins Árborgar hefst í kvöld með hátíðartónleikum. Stendur hátíðin fram á sunnudag. Til- gangur hátíðarinnar er „að efla menn- ingarlíf í sveitarfélaginu og koma fjöl- breyttri listsköpun í Árborg á framfæri,“ segir Ragnheiður Thorlacius, framkvæmdastjóri Fjölskyldumiðstöðvar Árborgar. Núverandi bæjarstjórn í Árborg efndi til fyrstu menningarhátíðarinnar með þessu nafni á sínu fyrsta ári og er hátíð- in nú sú þriðja. Að sögn Ragnheiðar er áhersla lögð á að virkja íbúa sveitarfé- lags til þátttöku. Frá upphafi hafi lista- menn í sveitarfélaginu sinnt hátíðinni mikinn áhuga og segir hún að í þessu þrjú skipti hafi fjöldi heimamanna á öll- um aldri og úr hinum ýmsu listgreinum lagt hönd á plóginn auk þess sem fengn- ir hafa verið góðir gestir til að koma fram á hátíðinni. Fjölbreytt dagskrá Dagskráin er afar fjölbreytt en hana er hægt að skoða í heild sinni á vef sveitarfélagsins, www.arborg.is. Hátíðin verður sett á hátíðartónleikum sem hefj- ast klukkan 20 í kvöld í menningarsal Hólmarastarhússins á Stokkseyri. Við það tækifæri verða afhentar menningar- viðurkenningar sveitarfélagsins. Þétt dagskrá er síðan á föstudag, laugardag og sunnudag á ýmsum stöðum í sveitar- félaginu. Sýnd eru leikrit og opnar list- sýningar af ýmsu tagi, vinnustofur og gallerí, fyrirtæki og félagasamtök eru með kynningar og uppákomur, tónleikar, gönguferðir og fleira. Veitingahúsin eru með tilboð og dansleikir eru á kvöldin. Meðal dagskráratriða á föstudag má nefna tónleika Stefáns Hilmarssonar og Eyjólfs Kristjánssonar í Selfosskirkju, klukkan 21, en tónleikarnir eru í sam- starfi við tónleikaröðina Kvöld í Hveró. Skrúðganga verður frá Sigtúnsgarð- inum á Selfossi að Árvegi á laugardag og hefst gangan klukkan 14. Við athöfn- ina verður meðal annars flöskuskeytum fleytt á Ölfusá og keppt í hinu margróm- aða Jórustökki. Klukkan hálfþrjú hefjast útitónleikar í Sigtúnsgarðinum þar sem fjöldi unglingahljómsveita kemur fram. Á laugardagskvöldið leikur Tangósveit lýðveldisins á tangókvöldi í Lista- og menningarhúsinu á Stokkseyri. Þá má nefna að í ár er efnt til kvik- myndahátíðar enda kvikmyndahús nú starfrækt í nýjum sal á Selfossi. Sýndar eru íslenskar kvikmyndir. Íbúar virkjaðir til þátttöku Menningarhátíðin Vor í Árborg sett í kvöld Og merkt fla› rétt? Vi› stærri byggingar flarf a› gera rá› fyrir a›gengi hreyfi- hamla›ra. 1% bílastæ›a skal vera sérstaklega merkt og gert fyrir hreyfihamla›a, fló aldrei minna en eitt stæ›i.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.