Morgunblaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 25 MENNING               !"#$            %&'( ")#*+)%&,- .  ! /.,0.12/.,0/.& + JESSICA Morgan, sýningarstjóri hjá Tate Modern í London, er manneskjan að baki þess yfirgripsmikla sýningarhalds sem Listahátíð stendur fyrir í ár, og hverfist um stóra sýningu á verkum Dieters Roth, sem Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og fleiri sýningarstaðir taka þátt í. Jessica Morgan er sýningarstjóri myndlistarþáttar Listahátíðar og hefur unnið mánuðum sam- an að undirbúningnum. Fjölmörg söfn og sýningarstaðir bæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt eru þátttakendur í þessu stóra myndlistarverkefni, sem ber yf- irskriftina: Tími, rými, tilvera. Markmiðið var að sýningin á verkum Dieters Roth yrði kjarni sýningarhaldsins, en að aðrar sýningar tengdust henni á ein- hvern máta en misfast þó. Jessica Morgan var hér um helgina þegar sýningarnar voru opnaðar, en er nú komin aftur til Lundúna. Aldrei hefur verið ráðist í jafnviðamikið myndlistarverkefni hér á landi, og spurning hvernig sýningarstjóranum þyki hafa tekist til. „Þótt það séu bara örfáir dagar liðnir frá opnunum, og ég varla farin að ná áttum, get ég þó sagt að ég sé mjög ánægð með það hvernig hefur tekist til, og árangurinn hef- ur að mörgu leyti farið fram úr mínum björtustu vonum. Margir myndlistarmann- anna sem ég fékk til að vinna verk á sýn- ingarnar, hafa verið að skapa listaverk sem eru að mínu mati þau bestu sem ég hef séð frá þeim. Það er auðvitað mjög gefandi reynsla.“ Allir hafa lagst á eitt Jessica Morgan segir að það geti verið erfitt að sjá hvort markmiðum um heild- arsvip eða tengsl sýninganna hafi verið náð, bæði sé stutt frá opnun þeirra, og enn ekki liðinn sá tími sem fólk þarf til að melta þær og meta. Þá hafi líka alltaf verið gert ráð fyrir því að hver og ein þeirra stæði full- komlega fyrir sínu upp á eigin spýtur. „Hugmyndin um tengsl og heildarsvip hefur sýnt sig best að mínu mati í því hvernig gjörvallt myndlistarumhverfið á Íslandi hef- ur brugðist við og lagst á eitt og unnið sam- an að þessu verkefni Listahátíðar. Það hef- ur verið stórkostlegt. Það sem hefur glatt mig hvað mest er að sjá hvað listamennirnir hafa allir tekið áskoruninni heilshugar og skapað virkilega fín verk. Það er oft erfitt að ímynda sér fyrirfram hvernig útkoman verður á svona stórri sýningu, en ég er mjög ánægð. Þá hafa sýningarstaðirnir líka lagt óhemju vinnu í undirbúninginn með listamönnunum og hver þeirra um sig er að sýna sitt besta.“ Þegar Jessica Morgan tók verkefnið að sér, byrjaði hún á því að velja sér listamenn til að vinna með, og með það föruneyti hóf hún viðræður við sýningarstaðina, lagði fram sínar hugmyndir og fékk þeirra hug- myndir á móti. „Í sumum tilfellum gekk þetta fullkomlega upp, og þeir listamenn sem ég stakk uppá, voru einmitt þeir sem viðkomandi sýningarstaðir höfðu áhuga á að sýna. Þetta átti til dæmis við um Ný- listasafnið og Thomas Hirschhorn. Í öðrum tilfellum þurfti aðeins meira til, en aðal- áherslan var auðvitað alltaf lögð á það að sýningin heppnaðist sem best. Það voru mörg sjónarmið sem komu upp og ólík sjón- armið sem á endanum réðu á hverjum stað. John Bock vildi til að mynda skapa alveg nýtt stórt verk, og það krafðist mikils af sýningarstaðnum, sem í því tilfelli var Kling og Bang, og þar var lögð mikil vinna í fram- leiðslu verksins með listamanninum.“ Jessica Morgan segir að óvæntustu uppá- komurnar hvað sjálfa sig áhrærði hefðu ver- ið listamannspörin sem teflt var fram á nokkrum stöðum, – því ómögulegt hefði verið að segja til um hvernig þau myndu vinna saman og hvernig verk þeirra myndu spila saman. Þetta segir hún hafa átt við þau Hrein Friðfinnsson og Elínu Hans- dóttur sem sýna á Ísafirði; – hann marg- reyndan listamann, en hana unga og enn að skapa sér nafn; en líka þau Matthew Barn- ey og Gabríelu Friðriksdóttur sem sýna á Akureyri. „Mig hafði langað mjög til að tefla þessum ólíku listamönnum saman, þegar ég hafði séð tengslin í verkum þeirra, en hafði ekki hugmynd um hvernig til myndi takast. Ég varð alveg agndofa að sjá hve vel listamennirnir spiluðu saman. Sýn- ing Gabríelu og Matthews Barneys er alveg frábær, og merkilegt að sjá hve ólíkar leiðir þessir listamenn fara, þótt hugmyndir þeirra séu um margt líkar. Á Ísafirði hefur líka skapast mjög sterkt tilfinningasamband milli verka Elínar og Hreins, þótt þau séu af mjög ólíkum kynslóðum listamanna. Sýn- ingar þeirra eru í sterkum tengslum hvor við aðra. Það var áhætta að tefla þessu fólki saman, en ég er afar hamingjusöm með hve vel þetta hefur heppnast.“ Reynsla sem hægt er að læra af Jessica kveðst vona að með þessari stóru myndlistarhátíð Listahátíðar hafi skapast hér á landi reynsla sem hægt er að horfa til í framtíðinni og vinna úr á ýmsan máta. Hún telur myndlistina ekki hafa notið sín jafnvel og aðrar listgreinar hér á landi, og því sé reynslan sem skapast hefur nú mjög mikilvæg. „Það væri gaman að sjá áfram- haldandi þróun og nýsköpun í samstarfi og tengslum stofnana, áhorfenda og lista- manna. Það má líka líta á þetta verkefni sem eins konar hyllingu á framlagi Dieters Roth til íslenskrar myndlistar og sá fögn- uður verður kannski best túlkaður með því sem listamenn á Íslandi eru að gera í dag.“ Jessica segir mikilvægt að svo margir er- lendir gestir hafi komið hingað gagngert til að skoða sýningarnar, þótt þeir hafi auðvit- að líka komið til að kynnast landi og þjóð. Hún segir það hafa skipt miklu að geta ver- ið með svo veglega sýningu á verkum Diet- ers Roth, en það hafi verið afar gagnlegt fyrir útlendingana sem þekktu verk hans fyrir, að sjá list hans í samhengi við ís- lenska list, í því landi þar sem hann starfaði svo lengi og hafði svo mikil áhrif. „Ég held að erlendu gestirnir hafi notið þess mjög að sjá Dieter Roth í þessu ljósi, eins og Björn sonur hans kaus að sýna hann, og sjá þann þráð í hans list sem lifir ennþá í list nem- enda hans og samverkamanna og annarra sem hann hafði áhrif á. Það hafði líka mikil áhrif að geta sýnt verk þeirra íslensku lista- manna sem hafa látið að sér kveða á alþjóð- legum vettvangi, eins og Hreins Friðfinns- sonar og Kristjáns Guðmundssonar, og um leið að sýna að sporgöngumenn þeirra í yngstu kynslóðum íslenskra myndlist- armanna, hafa þegar náð þeim árangri að geta borið sig saman við bestu listamenn hvar sem er í heiminum.“ Án stuðnings Listahátíðar og krafta starfsmanna hennar hefði ekkert af þessu getað orðið að veruleika að mati Jessicu Morgan. „Það er ekkert smámál að vera með stórt sýningarverkefni dreift á svo marga staði, um allt land; – það er mjög flókið. Listahátíð vann að því hörðum hönd- um að leysa úr öllum þeim samræming- arþáttum sem greiða varð úr við sýning- arhald á meira en tuttugu sýningarstöðum um allt landið. Það hefði verið einfalt og þægilegt að setja upp eina sýningu á einum stað, – en svona verkefni hefur auðvitað miklu meiri áhrif að öllu leyti.“ Myndlist | Jessica Morgan sýningarstjóri á Listahátíð er ánægð með hvernig til hefur tekist Margir að skapa sín bestu verk Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Jessica Morgan: Margir myndlistarmannanna sem ég fékk til að vinna verk á sýningarnar, hafa verið að skapa listaverk sem eru að mínu mati þau bestu sem ég hef séð frá þeim. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is KRISTINN Sigmundsson söngvari og Jónas Ingimundarson píanóleik- ari eru á tónleikaferðalagi á Norð- urlöndunum þessa dagana. Í fyrra- kvöld komu þeir fram í Den Store Diamant í Kaupmannahöfn, í Nybrokajen 11 í Stokkhólmi í gær- kvöldi og annað kvöld verða þeir í Tempelplatsens kyrka í Helsinki. Dagskráin er fjölbreytt. Flutt eru m.a. íslensk þjóðlög og ljóðasöngur, úrval úr sígildri tónlist og brot úr óperum. Sendiráð Íslands í Kaupmanna- höfn, Stokkhólmi og Helsinki hafa unnið að undirbúningi og skipu- lagningu tónleikanna. Í Kaup- mannahöfn voru tónleikarnir haldnir á vegum sendiráðsins, Kon- unglega bókasafnsins í samvinnu við Dansk-Islandsk Samfund. Þeir sem styrkja fyrrgreinda tónleikana eru utanríkíkisráðuneytið, mennta- málaráðuneytið, Norræni menning- arsjóðurinn og Icelandair. Auk þeirra styrkja tónleikana í Kaup- mannahöfn Baugur Group, DFDS, Eimskip, FIH Erhvervsbank, Kerfi, Oticon Fonden, Pihl & Søn og Sam- skip. Í Stokkhólmi eru það Baugur Group, Debenhams í Stokkhólmi og Kauþing og í Helsinki, Norræni fjárfestingarbankinn og Kaupþing. Kristinn syngur á Norðurlöndunum Ljósmynd/Friðrik Jónsson Kristinn og Jónas á tónleikum í Kaupmannahöfn í fyrrakvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.