Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 32

Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG ER undrandi á yfirlýsingum fyrrum félaga minna í Frjálslynda flokknum vegna brotthvarfs Gunn- ars Örlygssonar. Í fjölmiðlum hefur ítrekað komið fram að forystumenn flokksins kannist ekki við sam- skiptaörðugleika milli Gunnars og Magnúsar Þórs vara- formanns. Hér tala þeir gegn betri vitund. Það liggur í augum uppi að varla sé ger- legt fyrir þingmann að starfa í litlum þing- flokki þegar sá sem honum stýrir virðir þingmanninn að vett- ugi. Ég get sætt mig við yfirlýsingu frá mið- stjórn flokksins um að úrsögn Gunnars hafi komið henni í opna skjöldu, enda er mið- stjórnin að mestu skipuð nýju fólki eftir síðasta flokksþing. Nýir mið- stjórnarmenn þekkja ekki söguna til hlítar. Ég tel mig hafa nokkuð góða innsýn inn í andrúmsloft Frjáls- lyndra og tjáð mig um þau málefni af þekkingu. Ég hef setið í mið- stjórn flokksins frá upphafi og jafn- framt verið umboðsmaður flokksins í öllum þeim kosningum sem nú eru að baki . Einnig var ég formað- ur kjördæmaráðs Reykjavíkur, þá bæði fyrir norður -og suður- kjördæmi og er varamaður í yf- irkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis norður. Meðal flokksmanna hef ég fundið fyrir mikilli undiröldu ágreinings og óánægju í garð forystu Frjáls- lynda flokksins. Rúmu hálfu ári fyrir landsþingið sem haldið var fyrr á þessu ári, gerði ég mér grein fyrir að undiraldan gæti gengið á land með ófyrirséðum afleiðingum. Ég taldi hugsanlegt að Gunnar segði sig úr flokknum sem er orðin staðreynd í dag. Hvers vegna for- ystumenn flokksins vilja ekki kann- ast við þessa undiröldu hef ég enga skýringu á. Ég vil benda á eitt lítið dæmi um alla þá vitleysu sem sögð hef- ur verið í tengslum við úrsögn Gunnars. For- maður og varafor- maður Frjálslyndra létu hafa eftir sér op- inberlega að þeim væri létt að Gunnar hafi farið frá borði, einnig kom fram að varaformaðurinn hafi síðast talað við Gunn- ar árið 2004! Sami maðurinn, Magnús Þór Hafsteinsson, lét svo hafa eftir sér sama dag og aft- ur opinberlega að hann kannaðist ekki við nokkurn ágreining innan þingflokksins og sagði Gunnar fara með rangt mál að svo sögðu. Með þessum fullyrðingum sínum afhjúp- uðu bæði formaður og varafor- maður Frjálslynda flokksins sig illi- lega. Þeir höfðu af ásetningi rangt við í fjölmiðlum, sögðu þjóðinni ósatt. Gunnar Örlygsson skuldar eng- um útskýringar á afsögn sinni. Hins vegar skuldar Frjálslyndi flokkurinn kjósendum sínum skýr- ingu á því hvers vegna hún hrakti Gunnar Örlygsson frá flokknum. Gunnar ákvað að fylgja sinni hug- myndafræði í stað þess að elta villuráfandi flokk undir afar veikri forustu. Honum var ekki lengur vært í þingflokki Frjálslynda flokksins, það sjá allir sem vilja sjá. Ég hef þá trú að Gunnari Ör- lygssyni eigi eftir að farnast vel í Sjálfstæðisflokknum því hann tekur sitt embætti sem þingmaður alvar- lega. Hann kann að umgangast fólk og hefur þann félagslega þroska sem þarf að prýða hvern þingmann. Frjálslyndir hafa því misst meira en 25 prósent af þingstyrk sínum. Ólafur F. Magnússon oddviti Frjálslyndra í borginni sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum fyrir nokkrum misserum. Við þann skilnað steig sú ágæta kona, Inga Jóna Þórð- ardóttir, upp fyrir hönd Sjálfstæð- isflokksins og þakkaði Ólafi fyrir samstarfið og óskaði honum vel- farnaðar í framtíðinni. Forysta Frjálslynda flokksins virðist ekki geta komið fram af virðulegum hætti heldur kýs að vega persónu- lega að fyrrum félaga sínum með ómaklegum hætti. Vinnubrögð af þessu tagi afhjúpa illa þá sömu. Ég vil nota tækifærið og þakka þeim liðsmönnum Frjálslynda flokksins sem eftir standa fyrir samstarfið á undanförnum árum. Hver skuldar hverjum hvað? Björgvin E. Vídalín Arngrímsson fjallar um úrsögn Gunnars Örlygssonar úr Frjálslynda flokknum ’Gunnar Örlygssonskuldar engum útskýr- ingar á afsögn sinni. Hins vegar skuldar Frjálslyndi flokkurinn kjósendum sínum skýr- ingu á því hvers vegna hann hrakti Gunnar Ör- lygsson frá flokknum.‘ Björgvin E. Arngrímsson Höfundur er atvinnurekandi og fyrrverandi flokksmaður í Frjálslynda flokknum. ÞEGAR ég loks fæ greiningu árið 2000 um að fjarlægja þurfi æxli við heilastofn er ég orðin of veik til að huga að atvinnu-, end- urhæfingar- og fjár- málum. Völundarhús kerfisins eru of flókin fyrir sjúkling til að huga að réttindum sín- um. Ég sé nú fimm árum síðar hvað kerfið hefði sparað mikið með því að grípa strax inn í. Ef vinnustaðir eða heilsu- gæsla myndu sjá til þess að þeir sem veikj- ast fái strax aðstoð myndu sparast veru- legar upphæðir og lík- legra væri að starfs- menn skiluðu betri vinnu við endurkomu á atvinnumarkaðinn. Sjúklingur, vinnuveit- endur og þjóðfélagið myndu græða á því að koma í veg fyrir neyð- arástand. Ef öll orka sjúklings eða notanda heilbrigðisþjónustu fer í að huga að réttindum sínum er ekki óliklegt að geðheilbrigðið bíði hnekki. Þegar það bætist við líkamlega sjúkdóma þá er enn lengri leið í land og meiri hætta á að viðvarandi örorka hljótist af. Sá frasi sem nú er hávær, að fólk hafi það betra á örorku en í vinnu, er ekki fyllilega réttur. Það gerir það enginn að gamni sínu að fara á ör- orku og að komast af örorkubótum er enn erfiðara ef um leið og öryrki fær tækifæri til að vinna, þótt ekki sé nema takmarkað, þá skerðast bætur og öryggi er ógnað. Fólk sem hefur verið veikt veit ekki fyrr en á reynir hvort það er tilbúið í kapp- hlaupið sem þjóðfélagið hefur skap- að. Ef það hefur ekki það úthald sem þarf er lífsafkoma, sem vart er mönnum sæmandi, horfin og við tek- ur önnur herför frá Pontíusi Pílatusi til Heródesar til að nálg- ast hana á ný og skulda- staðan orðin slík að ómögulegt getur reynst að rétta hana af. Ef milliliðum væri fækkað og fleiri að vinna í úrræðum yrði það atvinnulífinu, fé- lags- og heilbrigðiskerf- inu og síðast en ekki síst einstaklingnum fjárhagslega hagkvæm- ara. Það má spyrja sig að því hvort ekki væri hægt að koma í veg fyr- ir allflesta sjúkdóma ef vinnustaðir (þar með taldir skólar) spöruðu ekki með því að halda nánar utan um sitt starfsfólk. Sífellt er al- gengara að stórir vinnustaðir ráði hjúkr- unarfræðinga til að sinna sínu fólki, en iðju- þjálfar eru betur í stakk búnir til að finna úrræði sem gagnast til að lifa af með reisn. Trygg- ingastofnun er nú (örugglega samkvæmt þeim ramma sem þeim er gefinn) að rukka fjölda öryrkja um ofgreiddar örorkubætur. Það kemur sér alls staðar illa og get- ur orðið til innlagnar og þar með aukins kostnaðar fyrir ríkið. Er það stefna stjórnvalda að íþyngja ör- yrkjum enn frekar en orðið er? Er kerfið of þungt í vöfum? Margrét Guttormsdóttir fjallar um málefni öryrkja Margrét Guttormsdóttir ’Ef öll orkasjúklings eða notanda heil- brigðisþjónustu fer í að huga að réttindum sín- um er ekki ólík- legt að geðheil- brigðið bíði hnekki. ‘ Höfundur er kennari og meðlimur í Hugarafli. AÐ UNDANFÖRNU hefur orðið nokkur umræða um Mannréttinda- skrifstofu Íslands, starfsemi hennar og gagnsemi. Í fyrstu snerist um- ræðan um hvort rétt- lætanlegt væri að setja skrifstofuna í þá að- stöðu að þurfa að sækja fé sitt til fram- kvæmdavaldsins þ.e.a.s ráðherra utan- ríkis- og dómsmála. Síðar kom á daginn að þeir sem þar ráða hús- um hafa ekki sterka sannfæringu fyrir því að skrifstofa þessi hafi skilað árangri með starfsemi sinni og því ekki verðug þess fjár- stuðnings sem hún naut. Undirritaður hefur síðustu 10 ár fylgst með starfsemi Mannréttinda- skrifstofunnar sem framkvæmda- stjóri eins aðildarfélags hennar, Landssamtakanna Þroskahjálpar. Samtökin urðu aðilar að skrifstof- unni árið 1995 og var það ekki síst fyrir framsýni þáverandi formanns samtakanna Ástu B. Þorsteins- dóttur. Með tilkomu Mannréttinda- skrifstofu Íslands skapaðist vett- vangur fyrir félög og stofnanir sem starfa að mannréttindamálum og réttindabaráttu ýmissa hópa til að samhæfa krafta sína. Flest ef ekki öll þau félög sem starfa á vettvangi mannréttinda á Íslandi standa nú að Mannréttindaskrifstofunni Barátta samtaka eins og Lands- samtakanna Þroskahjálpar hefur hin síðari ár breyst í kröfuna að fullt tillit verði tekið til þessa minni- hlutahóps sem samtökin berjast fyr- ir við uppbyggingu samfélagsins en verði ekki markaður þar sértækur bás. Á landsþingi Þroskahjálpar ár- ið 2003 var samþykkt ný stefnuskrá samtakanna sem bygg- ist á mannréttinda- sáttmálum (sjá nánar á heimasíðu samtakanna www.throskahjalp.is). Mannréttinda- skrifstofa Íslands og sú hugmyndafræði sem samtökin gátu sótt í smiðju hennar var gott veganesti við þá vinnu. Árið 1997 stóðu Landssamtökin Þroskahjálp í sam- vinnu við Mannrétt- indaskrifstofuna og fleiri aðila, að því að bjóða hingað til lands Bengt Lindqvist sérlegum sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna í málefnum fatlaðra. Að lokinni heimsókn sinni lagði Bengt Lindqvist það til að á Íslandi væri boðað til alþjóðlegrar ráðstefnu um mannréttindi og fatl- anir. Aðrar þjóðir gætu margt af Ís- lendingum lært, ekki síst ávinning- inn af náinni samvinnu sem samtök þeirra höfðu við önnur mannrétt- indasamtök í gegnum Mannrétt- indaskrifstofu Íslands. Mannréttindaskrifstofan hefur sjálfstæða stjórn sem í sitja fulltrú- ar allra aðildarfélaga. Aðildarfélög Mannréttindaskrifstofunnar eru af ólíkum toga og eiga það eitt sameig- inlegt að skilgreina sig sem baráttu- samtök fyrir auknum mannrétt- indum. Með samstarfi innan Mannréttindaskrifstofu hafa allir þessir hópar getað sameinast með hagsmuni heildarinnar að leið- arljósi. Eitt meginhlutverk Mannrétt- indaskrifstofu Íslands hefur verið að fylgjast með framkvæmd mann- réttinda hér á landi í ljósi al- þjóðlegra samninga þar um. Hefur hún gefið mannréttindanefndum Sameinuðu þjóðanna umsagnir þar um með reglubundnum hætti. Einn- ig er hún Alþingi til umsagnar varð- andi lagafrumvörp sem snert geta mannréttindi. Vandséð er hver er betur til þessara hluta fallinn en Mannréttindaskrifstofa Íslands. Það er von mín að Mannréttinda- skrifstofa Íslands geti áfram verið sú sjálfstæða og óháða stofnun sem sinnir þessum málaflokki á breiðum grundvelli. Og er ástæða til að hvetja alla til að kynna sér fjöl- breytt starf Mannréttinda- skrifstofunnar og aðildarfélaga hennar og tryggja skrifstofunni fastan rekstrargrundvöll til fram- búðar. Af hverju Mannréttinda- skrifstofa? Friðrik Sigurðsson skrifar um málefni Mannréttindaskrifstof- unnar ’Það er von mín aðMannréttindaskrifstofa Íslands geti áfram verið sú sjálfstæða og óháða stofnun sem sinnir þess- um málaflokki á breið- um grundvelli.‘ Friðrik Sigurðsson Höfundur er framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar. ÁGÚST Ólafur Ágústsson er að okkar mati góður kostur sem vara- formaður Samfylkingarinnar. Þetta teljum við vegna þess að við höfum öll unnið með honum og þekkjum til vinnubragða hans. Í formannstíð Ágústs fjölgaði t.d. aðildarfélögum Ungra jafnaðarmanna um allt land, enda beitti Ágúst Ólafur sér fyrir eflingu flokksins á landsbyggðinni. Hann stóð m.a. fyrir öflugu og skemmtilegu málefnastarfi sem skil- aði sér í auknum áhuga margs ungs fólks. Þeir sem fylgst hafa með Ágústi eftir að hann tók sæti á Alþingi hafa sömuleiðis tekið eftir því hvað hann berst kröftuglega fyrir sínum mál- um. Samhliða þingstarfinu hefur hann tekið virkan þátt í flokksstarf- inu og m.a. haldið góðum tengslum við Unga jafnaðarmenn, sem eru að mörgu leyti undirstaða flokksins. Þau mál sem hann hefur beitt sér fyrir hafa vakið mikla athygli, svo sem frumvarp um afnám fyrning- arfrests. Hann er frjálslyndur jafn- aðarmaður sem leggur mikla áherslu á menntamál og málefni ungs fjölskyldufólks auk efnahags- mála og hefur náð að sanna sig þannig að eftir því hefur verið tekið. Það yrði flokksstarfinu einfaldlega til góða að fá Ágúst sem varafor- mann. Ný kynslóð – Samfylking- arkynslóðin Fram er komin ný kynslóð í Sam- fylkingunni. Það er kynslóð þeirra sem aðeins hafa starfað innan Sam- fylkingarinnar, en ekki innan eldri flokkanna sem mynduðu flokkinn á sínum tíma. Okkur finnst æskilegt að í forystusveit Samfylkingarinnar sé að finna fulltrúa þessarar kyn- slóðar. Samfylkingin er bæði flokkur framtíðarinnar og Ágúst Ólafur er verðugur fulltrúi nýrrar kynslóðar í forystusveit Samfylkingarinnar. Við viljum því hvetja alla flokks- menn til að kjósa Ágúst Ólaf sem varaformann Samfylkingarinnar á landsfundinum 21. maí. Veljum Ágúst Ólaf Brynja Magnúsdóttir, Kristján Ægir Vilhjálmsson og Þorsteinn Másson styðja Ágúst Ólaf til varaformanns í Samfylkingunni. Þorsteinn Másson ’Ágúst Ólafur er verð-ugur fulltrúi nýrrar kynslóðar í forystusveit Samfylkingarinnar.‘ Brynja er 1. varaþingmaður Samfylk- ingarinnar í Suðurkjördæmi, Kristján Ægir er formaður Stólpa, félags ungra jafnaðarmanna á Akureyri, Þorsteinn er formaður Ungra jafn- aðarmanna á Ísafirði. Brynja Magnúsdóttir Kristján Ægir Vilhjálmsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.