Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 37

Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 37 MINNINGAR ✝ Guðjón Guðnasonfæddist á Flanka- stöðum í Sandgerði 2. september 1930. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 10. maí síðast- liðinn. Hann var sonur hjónanna Guð- ríðar Guðjónsdóttur, f. 7. nóvember 1904, d. 26. júní 1980, og Guðna Jónssonar, f. 29. apríl 1905, d. 24. desember 1966. Guð- jón var þriðji í röð- inni af tíu systkinum. Þau eru í aldursröð: María Gréta, Jón, lést í bernsku, Guðrún, látin, Hulda, Sigurður, látinn, Haf- steinn, Karólína, Guðfinna Alda og Aðalsteinn Hólm. Hinn 31. desember 1953 kvænt- ist Guðjón Steinunni Gunnlaugs- dóttur, f. 27. júní 1933. Eignuðust þau tvö börn en fyrir átti Guðjón dóttur, Katrínu, f. 18. janúar 1950, gift Teiti Gústafssyni, f. 5. mars 1950, börn þeirra eru a) Gústaf Elí, f. 5. ágúst 1973, sam- býliskona Kobe Davis, f. 22. mars 1978, b) Katrín Dögg, f. 20. maí 1979, og c) Kristinn Páll, f. 30. nóvember 1988. Börn Guðjóns og Steinunnar eru: 1) María Gréta, f. 3. febrúar 1955, gift Sveini Mikael Árnasyni, f. 23. janúar 1952, börn þeirra eru a) Guðrún Halla, f. 10. desember 1976, sam- býlismaður Sturla Halldórsson, f. 25. júní 1978, dóttir þeirra er Ásgerður, f. 4. febrúar 2005, b) Guðjón Már, f. 19. mars 1982, og c) Arna Gréta, f. 31. mars 1990. 2) Gunn- laugur, f. 6. febrúar 1957, kvæntur Ernu Þrúði Guðmunds- dóttur, f. 20. ágúst 1955, börn þeirra eru a) Steinunn, f. 30. mars 1981, sam- býlismaður Ragnar Martensson Lövdahl, f. 12. mars 1980, sonur þeirra er Gunnlaugur Ernir, f. 5. desember 2003, b) Hjalti, f. 29. ágúst 1983, og c) Gunnar Karl, f. 2. júní 1988. Guðjón ólst upp í Sandgerði og eftir gagnfræðapróf frá Gagn- fræðaskóla Akraness fór hann til sjós. Árið 1950 hóf hann störf hjá skipafélaginu Jöklum og vann þar til ársins 1966, lengst af sem bryti, en þá fór hann að vinna hjá Loft- leiðum, síðar Flugleiðum, og starfaði þar sem flugþjónn í 30 ár. Guðjón og Steinunn bjuggu í Reykjavík til ársins 2000 en fluttu þá um haustið í Kópavog. Útför Guðjóns verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Kveðja frá börnum. Þegar þið eruð nálægt þá er hamingjan mest. Sé ég í fjarlægð farinn finn ég það allra bezt. Ykkur var ást mín gefin allt sem að höndum ber. Þið leggið augu mín aftur þegar efsta lífsstundin þver. Niðdimm er nóttin komin og nemur brott sérhvert hljóð. Þið sofið; á sæng ykkar breiði ég sumar og stjörnur og ljóð. (Hannes Pétursson.) Katrín, Gréta og Gunnlaugur. Á vormánuðum árið 1971 mætti ég Guðjóni Guðnasyni augliti til auglitis í fyrsta sinn. Um þær mundir vorum við, ég og dóttir hans, María Gréta, að draga okkur saman. Ég kveið því að hitta hann. Hann var að koma úr flugi, einkenn- isklæddur og virðulegur í fasi. En kvíði minn reyndist ástæðulaus. Guðjón var hógvær maður og hlé- drægur, ákaflega lítillátur og dulur, en einstaklega traustur og rasaði aldrei um ráð fram. Hann gat verið glettinn, gamansamur og orðhepp- inn. Honum var í nöp við sjálfshól og sýndarmennsku, var mikið snyrtimenni, ætíð vel klæddur og smekklega svo eftir var tekið. Hann gekkst ekki upp í því að þykjast vera annað en hann var, mundi vel eftir sínum rótum og minntist oft æsku sinnar í stórum systkinahópi í Breiðabliki í Sandgerði. Guðjón og Steinunn voru höfð- ingjar heim að sækja. Hann hafði yndi af matargerð, var að sönnu listakokkur og nutum við þess oft börn hans, tengdabörn og barna- börn. Heimili þeirra, hvort heldur í Skaftahlíð eða Lækjasmára, var hlýlegt og vel til alls vandað. Þau hjón voru samhent og milli þeirra ríkti ást og gagnkvæm virðing. Eftir að Guðjón greindist, nánast samtímis, með tvo illvíga sjúkdóma undraðist ég staðfestu hans og þol. Vissulega var honum brugðið en hann var meðvitaður til hvers dró og kvartaði aldrei. Steinunn reynd- ist honum stoð og stytta og annaðist hann af alúð og nærgætni. Hennar er missir mikill eftir yfir 50 ára far- sælt hjónaband og ég votta henni sérstaklega samúð mína. Fjórum dögum áður en Guðjón lagðist á spítala fórum við ásamt dóttur minni, Guðrúnu Höllu, í bíl- ferð út á Álftanes að hyggja að fugl- um. Vorið var komið og iðandi fugla- líf. Guðjón var glaður og leiddi okkur í sannleika um ýmis náttúr- unnar undur. Þegar svo hópur mar- gæsa flaug yfir okkur í oddaflugi varð honum að orði að þetta væri eitt glæsilegasta flug sem hann hefði séð. Við komum okkur saman um að endurtaka þetta fljótt. Úr því verður þó ekki því um viku síðar var Guðjón allur, farinn í sitt hinsta flug. Blessuð sé minning þín. Sveinn M. Árnason. I Flýgur tjaldur yfir mynd sinni út blælygnan vog fljúga tveir tjaldar breiddum faðmi móti hafi himni hvor öðrum inn í sólhvíta þögn og hillingar langt út á firði. II Gulstirnd og græn breiðist muran um grjótið og hunangsflugur sveima milli stjarna. III Undarleg tákn skráir tildran í sandinn eilíf tákn sem enginn hefur ráðið nema mjúk aldan sem máir þau út. (Snorri Hjartarson.) Afi Skafta, eins og við systkinin kölluðum Guðjón afa, er dáinn. Lífið verður fyrir vikið tómlegra og skrýtnara. Við eigum vitaskuld margar yndislegar minningar um afa. Honum tókst á sinn einstaka hátt að gera venjulega, hversdags- lega hluti að einhverju stórfenglegu. Þegar við systkinin vorum veik kom hann alltaf með malt handa okkur, enda hressir, bætir og kætir maltið. Við vorum veik þangað til afi var búinn að koma, þá fyrst fór okkur að batna. Honum tókst að láta okk- ur borða fisk með bestu lyst, því hann eldaði ekki venjulega ýsu, heldur ýsu í sparifötunum. Og það gat verið mikill spenningur að bíða eftir afa að koma úr flugi snemma morguns, þykjast vera sofandi og heyra hann segja: „Hver er nú í afa- bóli?“ Afa fannst gaman að fara í bíltúra og lá þá leiðin yfirleitt niður að höfn og bjó hann yfir miklum fróðleik um skipin og flest þeim tengt. Þegar bíltúrinn var búinn var oftar en ekki endað á því að fá sér ís. Þegar heim var komið tóku amma og afi oftast einn eða jafnvel tvo yatzy við okkur krakkana. Afi og amma voru búin að koma sér vel fyrir í Kópavoginum og var afi yfir sig ánægður með nýju staðsetninguna. Hann hafði útsýni út á sjó og gat fylgst með fuglum, stjörnum og flugvélum. Við lærðum mikið af afa og síðasta heilræði hans til okkar skrifaði hann á blað og hvatti okkur til að leggja það á minnið. Heilræðið er eftir Einar Benediktsson og finnst okkur það lýsa afa vel: Láttu smátt, en hyggðu hátt. Heilsa kátt, ef áttu bágt. Leik ei grátt við minni mátt. Mæltu fátt og hlæðu lágt. Guðrún Halla, Guðjón Már og Arna Gréta. Í dag kveðjum við Guðjón, sem var næstelstur bræðranna úr tíu systkina hópi. Hann hafði barist við erfiðan sjúkdóm í nokkur ár og komu endalokin nokkuð snöggt. Guðjón var níu ára þegar seinna stríðið hófst. Bretar settu upp búðir (kamp) á Fitjum, sem er rétt norðan við Sandgerði. Þarna kynntust þeir leikfélagarnir, hann og Ari heitinn í Klöpp, mörgum hermönnum og hafði hann oft sýnt mér myndir af þeim og þekkti þá flesta með nafni. Það voru einmitt þessar minningar sem við ræddum er við systkinin, aðeins tíu dögum áður en hann lést, komum saman til að minnast 100 ára afmælisdags föður okkar. Við sátum saman til borðs bræðurnir og eins og ávallt áður gat hann sagt frá og útskýrt ýmislegt sem gerðist í Sandgerði, þar sem við erum fædd- ir. Guðjón tók snemma til hendi við fiskvinnslu eins og þá var algengt í sjávarþorpum landsins. Eftir barna- skóla lá leiðin til Akraness. Þar var gagnfræðaskóli, sem ekki var í Sandgerði á þeim tíma, en þar bjuggu föðursysturnar Sigríður og Sigurlín. Hjá þeim systrum var allt- af pláss fyrir þá sem vildu leita sér menntunar. Á Akranesi eignaðist Guðjón marga góða vini og hugsaði hann alltaf vel til Skagamanna eftir veru sína þar. En sjórinn heillaði Guðjón, langskólanám var ekki inni í myndinni. Að skoða heiminn var nokkuð sem heillaði unga menn í þá daga. Ég man vel eftir fermingardegi okkar Sigurðar heitins bróður. Guð- jón, sem þá var byrjaður í sigling- um, var að sjálfsögðu fenginn til að kaupa armbandsúr á okkur bræð- urna. Já mikið litu allir upp til hans þegar hann birtist, þetta var nefni- lega sigldur maður. Hann átti síðan eftir að sigla mikið, bæði á sjó og síðar um loftin blá. Lengst starfaði Guðjón sem bryti hjá Jöklum, en ræðst síðar til Loft- leiða og síðar Flugleiða. Þótti hann afbragðs starfskraftur og sýndi það sig best þegar hann var valinn til að þjálfa ungt fólk til starfa við þjón- ustu í flugflotanum. Guðjón var gæfumaður í einkalíf- inu, eignaðist góða konu, Steinunni Gunnlaugsdóttur frá Raufarhöfn. Þau eignuðust tvö börn, Maríu Grétu og Gunnlaug. Fyrir átti hann dótturina Katrínu. Barnabörnin eru orðin níu og barnabarnabörnin tvö. Lengst bjuggu Guðjón og Stein- unn í Skaftahlíðinni. Það var mikið lán fyrir mig, því að veturinn sem ég stundaði nám í Stýrimannaskólan- um fékk ég að dvelja hjá þeim, þar sem skólinn var í næsta nágrenni, og kann ég þeim ávallt bestu þakkir fyrir að hýsa námsmanninn. Síðustu árin bjuggu Guðjón og Steinunn í Lækjarsmára 8. Þar voru þau búin að búa sér fallegt heimili. Það hefur alltaf verið gaman að koma við hjá þeim og það var stoltur húsbóndi sem leiddi mann inn í herbergi þar sem uppi á vegg var mynd af honum og Jóhannesi Páli páfa, þar sem þeir sátu saman í flugvél Flugleiða á leið páfa til Íslands. Myndina hafði hann fengið senda frá Vatíkaninu í Róm sem þakklætisvott fyrir frábæra þjónustu á leiðinni. Ég bið Guð að styrkja Steinunni og aðra í fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum. Guðjóns mun ég minnast sem einhvers mesta prúð- mennis sem ég hef kynnst um dag- ana. Hafsteinn bróðir. GUÐJÓN GUÐNASON Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ELÍAS GUNNAR ÞORBERGSSON, Kleppsvegi 134, áður bóndi í Meiri-Hattardal, lést miðvikudaginn 11. maí. Útför hans fer fram frá Súðavíkurkirkju laugar- daginn 21. maí kl.14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Guðrún Jónsdóttir, Óskar Karl Elíasson, Sigríður Hrönn Elíasdóttir, Anna María Elíasdóttir, Þorbjörn Sigurðsson, Helga Hrönn Elíasdóttir, Einar Ólafur Haraldsson, Jón Óttar Elíasson, Gunnar Þröstur Elíasson, Kirsten Henriksen, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, ástkær móðir okkar, uppeldismóðir, tengdamóðir, amma og lang- amma. ERLA KRISTJÁNSDÓTTIR, til heimilis á Bakkastöðum 5a, áður Hjallalandi 22, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi á hvítasunnudag 15. maí sl. Hafsteinn Erlendsson, Eyrún Björg Hafsteinsdóttir, Þórður Hafsteinsson, Jón Grétar Hafsteinsson, Sigrún Hafsteinsdóttir, Ásta Einarsdóttir, tengdabörn, ömmubörn og langömmubarn. Elskuleg mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, INGIBJÖRG FRIÐFINNSDÓTTIR, Kristnibraut 43, andaðist á Landspítala Hringbraut, deild 11E, föstudaginn 13. maí sl. Stefanía Davíðsdóttir, Sverrir Sigfússon, Guðmundur Davíðsson, Sjöfn Eggertsdóttir, Kristín Davíðsdóttir, Sigfús B. Sverrisson, Vilborg E. Jóhannsdóttir, Stefanía I. Sverrisdóttir, Cary Yaccabucci, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Haukur Guðjónsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Davíð Guðmundsson, Margrét Sigurðardóttir og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR JÓNSSONAR lyfjafræðings. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 4B Landspítala, Fossvogi, fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Guðlaug Ágústa Hannesdóttir, Jón Sigurðsson, Una Eyþórsdóttir, Hannes Sigurðsson, Sesselja Guðmundsdóttir, Ólöf Guðrún Sigurðardóttir, Albert Páll Sigurðsson, Rannveig Sigurðardóttir og barnabörn. Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 Fallegir steinar á góðu verði Englasteinar www.englasteinar.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.