Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Útför mannsins míns,
TORFA ÁSGEIRSSONAR,
Dalbraut 14,
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu-
daginn 23. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir,
en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Krabbameinsfélagið.
Guðmunda Guðmundsdóttir.
Móðir mín,
HELGA SVEINSDÓTTIR
fyrrv. símstöðvarstjóri,
Vík í Mýrdal,
verður jarðsungin frá Víkurkirkju laugardaginn
21. maí kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Minningargjafasjóð Víkurkirkju, reikningsnúmer 0317-13-1406.
Guðný Guðnadóttir.
Ástkær sonur minn, bróðir og mágur,
STEINI BJÖRN JÓHANNSSON
vélfræðingur,
Kóngsbakka 5,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstu-
daginn 13. maí sl.
Útför hans verður gerð frá Neskirkju þriðju-
daginn 24. maí nk. kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast
hans, eru beðnir að láta Krabbameinsfélagið njóta þess.
María S. Finsen,
Karl F. Jóhannsson, Bergljót Aradóttir,
Steinunn Jóhannsdóttir, Anna Guðrún Jóhannsdóttir,
Gunnar Jóhannson.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, sonar, bróður, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HAUKS ÓSKARS ÁRSÆLSSONAR,
Lækjasmára 6,
Kópavogi.
Alúðarþakkir til starfsfólks á lungnadeild A6 á
Landspítala Fossvogi fyrir yndislega umönnun.
Guð veri með ykkur.
Unnur Sigurjóna Jónsdóttir,
Klara Vemundsdóttir,
börn, tengdabörn, afabörn, langafabörn
og systkini hins látna.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, uppeldisföður, tengdaföður, afa og
langafa,
GILS GUÐMUNDSSONAR
fyrrv. alþingismanns
og rithöfundar.
Erna Gilsdóttir, Úlfur Árnason,
Lona Dögg, Lena,
Nanna, Erik,
Anna Björg, Hanna,
Viola Sif, Jóhann,
Gustav, Emma.
Innilegustu þakkir til ykkar allra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur okkar,
móður, tengdamóður, systur, mágkonu og
ömmu,
JÓHÖNNU JÓHANNSDÓTTUR,
Marargötu 2,
Vogum.
Vinátta ykkar er okkar styrkur.
Sigurður Rúnar Símonarson,
Jóhann Gíslason, Hrefna Elíasdóttir,
Jóhann Sigurðsson, Ingunn Karen Sigurðardóttir,
Lovísa Sigurðardóttir, Thorsten Henn,
Sigurður Hrafn Sigurðsson, Íris Bettý Alfreðsdóttir,
Ásta Jóhannsdóttir,
Óskar Jóhannsson, Valgerður Sigurðardóttir,
Sigurður Jóhannsson, Guðrún Björnsdóttir,
Kristín Jóhannsdóttur, Jón Gunnar Borgþórsson
og barnabörn hinnar látnu.
Elskulegur eiginmaður minn, vinur, faðir
okkar, bróðir og frændi,
JÓN LAXDAL HALLDÓRSSON
leikari
frá Ísafirði,
lést á heimili sínu í Kaiserstühl í Sviss sunnu-
daginn 15. maí síðastliðinn.
Minningarathöfn um Jón Laxdal verður í Ísa-
fjarðarkirkju laugardaginn 21. maí kl. 14.00.
Bálför hefur farið fram.
Minningarathöfn verður í Kaiserstühl laugardaginnn 28. maí kl. 15.00 að
staðartíma.
Katerina Laxdal og fjölskylda í Kaiserstühl,
Áslaug Thorlasíus og fjölskylda í Danmörku,
Sturla, Málfríður, Steindór, Jón Hjörtur,
fjölskyldur og aðrir aðstandendur.
Skemmuvegi 48, Kópavogi.
Simi 5576677
www.steinsmidjan.is
„Hvert örstutt spor
var auðnuspor með
þér.“
Þessi orð hljóma í
huga mér er ég hugsa
til fráfalls Aðalsteins Janusar eða
Steina eins og hann var kallaður
þegar sú gæfa auðnaðist mér að
kynnast honum.
Tilviljun réði því að ég var við nám
á Kýpur þegar Kolbrún Aðalsteins-
dóttir ákvað að flytja um tíma þang-
að með börnin sín þrjú, Anítu, Brynj-
ar og Steina.
Augun í Steina vöktu athygli mína
strax við fyrstu sýn, glettni, samúð,
fróðleiksfýsn, lífsgleði og tilfinninga-
hiti, þetta allt skynjaði ég, það var
sem kærleiksglóð brynni í augum
þessa fjögurra ára gutta.
Steini aðlagaðist fljótt lífinu á
Kýpur, eftir nokkra daga í sólinni
leit hann út eins og innfæddur og eft-
ir nokkrar vikur á leikskólanum
bæði skildi hann og talaði ótrúlega
mikið af kýpversku.
AÐALSTEINN JAN-
US SVEINJÓNSSON
✝ Aðalsteinn JanusSveinjónsson
fæddist í Reykjavík
16. júlí 1986. Hann
lést á gjörgæsludeild
Landspítalans við
Hringbraut 4. maí
síðastliðinn og var
jarðsunginn frá
Fossvogskirkju 10.
maí.
Komum í sund!
Steini dýrkaði sund,
þar vildi hann helst
vera, stökkva ofaní með
sem mestum gusu-
gangi, kafa niður á botn
og svamla um í lauginni
eða sjónum, hann
minnti helst á höfrung
þegar hann í alsælu
fékk að eyða heilu dög-
unum í sundi.
Steina fannst næst-
um eins gaman þegar
hann fékk að koma með
mér á vespunni í öku-
ferð, stundum sá ég
hann sitja á vespunni og halda í stýr-
ið með lokuð augun og dreymið bros
á vör, ég hefði viljað vita hvar hann í
huganum þaut um á vespunni.
Þar sem ég leigði með Kollu var
Steini mér sem lítill bróðir og eins og
allir litlir bræður gerði hann stund-
um prakkarastrik, eldur hafði ótrú-
legt aðdráttarafl á hann, en hvort
sem hann reyndi að kveikja varðeld í
sófanum eða á miðju gólfteppinu
slapp hann við að brennast sjálfur
eins og fyrir kraftaverk. Einn morg-
uninn fannst honum erfitt að vekja
mig og ég sofa of lengi svo að hann
laumaðist í eldhúsið, klifraði eftir
kveikjara og athugaði svo hvort log-
aði í stórutánni á mér en varð mjög
vonsvikinn að ég skyldi öskra og láta
honum bregða akkúrat þegar fór að
loga smá í nöglinni.
Það kom mér á óvart hversu næm-
ur Steini var á tilfinningar annarra
og hvað honum var umhugað um að
gera alla í kringum sig glaða og það
gerði hann með ástúð sinni, glettni
og misfyndnum leikrænum tilburð-
um.
En þó að líkami Steina sé dáinn lif-
ir minning hans áfram í hjörtum
allra sem voru það heppnir að kynn-
ast honum.
Ég hélt oft að Steina fylgdi eitt-
hvað yfirnáttúrulegt og ég sann-
færðist um það síðastliðinn föstudag.
Ég gekk inn í Gjafir jarðar, búð með
orkusteina og andlegan varning af
ýmsu tagi. Ég geng að búðarborðinu
og sé að konan þar teygir sig í spjald
sem var á hillu á bak við hana. Um
leið og ég segi hvað ég ætla að skoða
segir hún: „Ég vissi ekki af hverju ég
tók þetta með fram áðan, en um leið
og þú komst inn hugsaði ég, þessi
kona er að sækja spjaldið.“ Svo rétt-
ir hún mér það og segir: „Hringdu í
hann með fyrirbæn.“ Þetta var nafn-
spjald frá miðli, ég velti fyrir mér
hvað ég ætti að gera en á endanum
hringdi ég í hann, þegar ég hafði
sagt honum erindi mitt og nafnið á
Steina sagði miðillinn: „Já, ég átti að
láta vita að hann er í góðum höndum
og að fyrirbæn beið hans þegar hann
kom.“ Ég átti ekki til orð en bað
hann að senda samt fyrirbæn fyrir
Steina og styrk fyrir móður hans og
systkin.
Ég samhryggist ykkur af öllu
hjarta, megi Guð vernda ykkur og
veita styrk.
Þorgerður Eir Sigurðardóttir.
Hið bezta, er vér eigum,
er ekki hægt að gefa
og ekki tjá með orðum
og ekki í söng að vefa.
Hið bezta í brjósti þínu,
Það blettast ekki af neinum,
en skín úr þöglu þeli
við þér og guði einum.
(Karin Boye.)
Þegar ég hugsa til baka koma
margar góðar minningar upp í hug-
ann.
Aðalsteinn Janus var yndislegur,
kurteis og ljúfur drengur.
Ég vil þakka honum fyrir þær
hugljúfu og yndislegu samveru-
stundir sem við áttum saman.
Foreldrum þínum, systkinum og
öðrum nánum aðstandendum sendi
ég mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur
Eydís.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda
í gegnum vefsíðu Morgunblaðs-
ins: mbl.is (smellt á reitinn Morg-
unblaðið í fliparöndinni – þá birt-
ist valkosturinn „Senda inn
minningar/afmæli“ ásamt frekari
upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi
ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið
fram eða grein berst ekki innan
hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist,
enda þótt grein berist áður en
skilafrestur rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word
Count). Ekki er unnt að senda
lengri grein. Hægt er að senda
örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta
þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, fæddist,
hvar og hvenær hann lést, um
foreldra hans, systkini, maka og
börn og loks hvaðan útförin fer
fram og klukkan hvað athöfnin
hefst. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Minningar-
greinar