Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 44
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÞAÐ ER
JÓLALYKT Í
LOFTINU
ÆTLI ÞAÐ SÉ EKKI BARA
ÞESSI TÍMI ÁRSINS
ÆTLI
ÞAÐ?
ÉG
KLÚÐRAÐI
ÞESSU
SNOOPY
ÉG SÉ SAMT EKKERT EFTIR
ÞVÍ AÐ HAFA KÝLT HEIMSKA
STRÁKINN... HANN MÓÐGAÐI
ÞIG OG ÁTTI ÞAÐ SKILIÐ
ÞAÐ VAR SVO NEYÐARLEGT
ÞEGAR KENNARINN SAGÐI
MÉR AÐ FARA... ÞÚ HLÝTUR
AÐ HALDA AÐ ÉG SÉ ALVEG
HRÆÐILEG... OG ÉG SEM
VILDI BARA AÐ VIÐ
SKEMMTUM OKKUR SAMAN
ÉG SKEMMTI MÉR VEL...
EKKI GLEYMA AÐ ÉG BEIT
KENNARANN
ÞAÐ HEFUR EINHVER SKILIÐ
TUSKU-TÍGRISDÝRIÐ SITT
EFTIR Á GRASINU...
ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ
HUNDUR HAFI VERIÐ AÐ
NAGA ÞAÐ...
EKKERT SEM TEBOÐ MEÐ
DÚKKUM OG ÖÐRUM
TUSKUDÝRUM GETUR
EKKI LÆKNAÐ
VILJIÐI EKKI FÁ YKKUR DRYKK FYRIR SVEFNINN, SVONA ÁÐUR EN ÞIÐ FARIÐ?
JÁ, EN
ÞAU VORU
AÐ KOMA
HVENÆR
ÆTLAR ÞÚ AÐ
VEIÐA ÞESSA
MÚS?!?
ÞAÐ ER FÁTT EINS
GOTT OG AÐ SITJA Í
POTTINUM OG HORFA
Á FJÖLLIN
JÁ, LÍFIÐ
VERÐUR EKKI
MIKIÐ BETRA
EN ÞETTA...
ÉG TEK
AFTUR ÞAÐ
SEM ÉG SAGÐI
EIGUM
VIÐ AÐ
KOMA Í
ELTINGA-
LEIK?
VONANDI LÍST
MAY VEL Á NÝJU
TÖLVUNA
ÉG
ER VISS
UM
ÞAÐ
EN ÞÚ SKALT EKKI
LÁTA HANA SJÁ ÞIG
HALDANDI Á KASSANUM
MEÐ ANNARI
Ó,
JÁ!
PETER!
MARY
JANE!
MEGUM VIÐ KOMA
INN? ÞESSI KASSI ER
EKKERT SMÁ ÞUNGUR
EKKI ÝKJA
ÞETTA UM OF
Dagbók
Í dag er fimmtudagur 19. maí, 139. dagur ársins 2005
Víkverja finnst alvegótrúlegt hvað
margir ökumenn tala í
farsímana sína án þess
að vera með hand-
frjálsan búnað. Eru
ekki fleiri ár síðan svo-
leiðis vitleysa var
bönnuð? Samt lætur
fólk ekki segjast held-
ur stýrir bílum sínum
með annarri hendi og
þrýstir símtækinu
með hinni. Það er al-
veg forkastanlegt að
sjá ökumenn í beygj-
um á þungum gatna-
mótum haldandi sím-
anum upp að eyranu í stað þess að
njóta hins frelsandi handfrjálsa bún-
aðar. Víkverji styður lögregluna
heilshugar í því að sekta fyrir svona
háttalag. Margir kvarta undan lög-
reglunni yfir því að vera fetta fingur
út í svona „smotterí“ en það er ekk-
ert smotterí ef ekið yrði á gangandi
vegfaranda vegna óaðgæslu bílstjóra
sem var svo upptekinn af því að til-
kynna það símleiðis hvenær hann
kæmi heim. Eða að hann kæmi alls
ekkert heim.
x x x
Meira um akstur. Hvernig stendurá því að 100 km hraði á Kefla-
víkurveginum er nán-
ast eins og lágmarks-
hraði í augum sumra?
Aki maður á hundrað
er furðu oft tekið fram
úr með tilheyrandi
slysahættu, þrátt fyrir
vegabætur á þessum
slóðum. Framúrakstur
er alltaf varasamur
hvernig sem á það er
litið. Ekki síst er hann
varasamur þegar pirr-
ingur rekur ökumann-
inn út í að taka fram
úr. Pirringur getur
vaknað þegar ekið er á
50–60 km hraða á þjóð-
vegi í mikilli umferð á móti þannig að
mjög erfiðlega getur gengið að kom-
ast fram fyrir þann hægfara, að ekki
sé talað um ef hann lítur aldrei í bak-
sýnisspegilinn til að athuga hvort
hann gæti mögulega verið kominn
með langa halarófu bíla á eftir sér.
Einu sinni var Víkverji á gömlum
Land Rover jeppa með hestakerru í
togi og gat engan veginn haldið uppi
þjóðvegahraða. Með vissu millibili ók
hann einfaldlega út í kant og stopp-
aði þar til að hleypa 10–20 bílum
framhjá í hvert skipti. Þetta mætti
fólk með aftanívagna s.s. fellihýsi
gera líka. Slíkir vagnar verða án efa
margir á vegunum í sumar.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Þjóðleikhúsið | Fyrsta æfing á Fundið Ísland eftir Ólaf Hauk Símonarson
var í Þjóðleikhúsinu í gær. Fundið Ísland verður fyrsta frumsýning haustsins
á Stóra sviðinu.
Leikritið byggist á Ameríkuárum Halldórs Kiljans Laxness. Hann freist-
aði gæfunnar sem handritshöfundur kvikmynda í Hollywood og komst þá í
kynni við margar af skærustu stjörnum kvikmyndanna. Má þar nefna Charl-
ie Chaplin, Gretu Garbo og fleiri.
Leikendur eru Atli Rafn Sigurðarson, Edda Björgvinsdóttir, Halldóra
Björnsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Kjartan Guðjónsson, María Pálsdóttir,
Ragnheiður Steindórsdóttir, Randver Þorláksson, Rúnar Freyr Gíslason,
Unnur Ösp Stefánsdóttir og fleiri. Tónlist er eftir ýmsa höfunda en söng-
textar eru eftir Halldór Kiljan Laxness, leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.
Morgunblaðið/Eyþór
Fundið Ísland í Þjóðleikhúsinu
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Allt sé hjá yður í kærleika gjört. (I. Kor. 16, 14.)