Morgunblaðið - 19.05.2005, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 19.05.2005, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 47 DAGBÓK Í tilefni af 10 ára afmæli Leonardó starfsmennta- áætlunar Evrópusambandsins stendur Landsskrifstofa Leonardó fyrir hátíðardagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 19. maí kl. 14:00 - 16:30. Litið verður yfir farinn veg í máli og myndum og kynnt þau áhrif sem Leonardó áætlunin hefur haft hér á landi síðastliðin 10 ár. Í lok dagskrár afhendir afmælisbarnið verðlaun í Leonardó samkeppninni um myndverk eða hlut sem byggir á hönnun eða verkum Leonardo da Vinci. Afmælisdagskráin verður send beint út á www.leonardo.is Afmælisdagskrá í Ráðhúsinu Verkin sem bárust í Leonardo samkeppnina verða til sýnis í Ráðhúsinu dagana 19. – 22. maí. Laugardagur kl. 12:00 Sr. Þórhallur Heimisson flytur erindið Leyndardómur da Vinci lykilsins afhjúpaður Sunnudagur kl. 14:00 Stefán Pálsson, sagnfræðingur flytur erindið Vísindamaðurinn Leonardo da Vinci kl. 15:00 Nemendur í Listdansskóla Íslands sýna verðlaunaatriði úr evrópskri keppni í danssmíði Nánari upplýsingar um afmælishátíðina er að finna á vef Landsskrifstofu Leonardó, www.leonardo.is Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Bingó, upplestur, fjöldasöngur og ball 20. maí kl. 14. Allir velkomnir. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl.13 Félagsvist kl.20. Fræðsluferð í Hveragerði, föstudag- inn 20. maí, brottför kl. 9.30. Skoðuð starfsemi Heilsustofnun NLFÍ og Garðyrkjuskóla, skráning í s. 588- 2111. Dagsferð 21. maí Kjós og Hval- fjörður, Þórufoss, Reynivellir, Saur- bær. Brottför kl.13, skráning í s. 588- 2111. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund í samstarfi við safn- aðarstarf Fella og Hólakirkju, kl. 12.30 spilasalur og vinnustofur opnar. Veit- ingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi Bergi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi, kl. 9, leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.20, gler- bræðsla kl. 13, opið hús í boði sjálf- stæðisfélaganna í Hafnarfirði kl. 14. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa búta- og brúðusaumur hjá Sigrúnu kl. 9–13, boccia kl.10–11, hannyrðir hjá Halldóru kl. 13–16.30, félagsvist kl.13.30 kaffi og nýbakað. Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Vorsýning hefst á morg- un, föstudag 20. maí, kl. 13–16 og er einnig opin laugardag og sunnudag á sama tíma. Kaffi, kökur og uppá- komur alla dagana. Upplýsingar í síma 568-3132. Norðurbrún 1 | Handverkssýning, sýning á munum sem unnir hafa verið í félagsstarfinu í vetur verður sunnu- daginn 22. og mánudaginn 23. maí kl. 14–17 komið með gesti skoðið fallegt handverk og kynnið ykkur þá þjón- ustu sem í boði er, allir velkomnir. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr- irbænastund kl. 12. Léttur hádeg- isverður á eftir. Bústaðakirkja | Sumarferð starfs aldraðra í Bústaðakirkju verður mið- vikudaginn 25. maí. Farið verður frá kirkjunni klukkan 11.00. Áætluð heim- koma er um klukkan 17.00.– Skráning hefst þriðjudaginn 17. maí. Nánari upplýsingar veita kirkjuverðir Bú- staðakirkju í síma 553 8500. Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl. 10.00. Bænastund kl. 12.10. ( sjá nán- ar www.digraneskirkja.is). Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | ELD- URINN „fyrir fólk á öllum aldri“, sam- veran byrjar kl. 21.00. Lofgjörð, vitn- isburðir og kröftug bæn. Allir velkomnir. www. gospel.is. Langholtskirkja | Vorferð Kven- félagsins verður farin 26. maí kl. 15. Farið verður um Suðurnes með leið- sögumanni og snæddur kvöldverður í Duus Húsi. Ferð og matur kostar 3.300 kr. fyrir félagskonur en 4.300 kr. fyrir gesti. Allir eru velkomnir. Skráning er hjá Brynju (899 7708) og Margréti L (698 5485) fyrir 23. maí. Laugarneskirkja | Kl. 12.00 Kyrrð- arstund í hádegi. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel kl. 12.00–12.10. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu á eft- ir. Einfalt, fljótlegt og innihaldsríkt. Kl. 17.30 KMS (14–20 ára) Æfingar fara fram í Áskirkju og Félagshúsi KFUM & K við Holtaveg. Neskirkja | Samtal um sorg. Í hádeg- inu á fimmtudögum kemur fólk sam- an í kapellu kirkjunnar til að ræða sorg sína eða bara til að hlusta á aðra tjá sig. Fundirnir hefjast stundvíslega kl. 12.05 og þeim lýkur rétt fyrir kl. 13. FIMMTÁN af nemendum Söngskól- ans í Reykjavík halda einsöngs- tónleika í tengslum við framhalds- próf í einsöng samkvæmt nýrri íslenskri námskrá, ásamt með því að ljúka alþjóðlegum 8. stigs prófum í söng frá The Associated Board of The Royal Schools of Music. Tónleikarnir, sem eru sjö talsins, fara allir fram í Tónleikasal Söng- skólans í Reykjavík, Snorrabúð, Snorrabraut 54. Píanóleikarar með söngvurum eru allir úr röðum kenn- ara skólans. Tónleikaröðin hófst á þriðjudag- inn þar sem Dagbjört Jónsdóttir sópran, Iwona Ösp Jagla, píanó og Margrét Einarsdóttir, sópran og Hólmfríður Sigurðardóttir, píanó, fluttu. íslensk og erlend sönglög. Annað kvöld kl. 20 eru það Hrafn- hildur Ólafsdóttir, sópran, Rannveig B. Þórarinsdóttir, sópran og Kol- brún Sæmundsdóttir spilar undir á píanó. Á efnisskránni eru dúettar úr verkum Mozarts, söngvar úr smiðju Leonards Bernstein, Andrews Lloyd Webber og Kurts Weill og aríur úr óperum eftir Verdi og Puccini. Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópran, Hulda Sif Ólafsdóttir, sópr- an og Kolbrún Sæmundsdóttir, pí- anó, flytja bréfdúettinn úr Brúð- kaupi Fígarós eftir Mozart og dúett úr Lakmé eftir Delibes, aríur dúkk- unnar úr Ævintýrum Hoffmans eftir Offenbach og prímadonnunnar úr Leikhússtjóranum eftir Mozart og einnig söngva úr Show Boat eftir Kern. Tónleikarnir verða laug- ardaginn 21. maí kl. 14. Sunnudaginn 22. maí kl. 15 syng- ur Guðbjörg Björnsdóttir, sópran og Lára S. Rafnsdóttir spilar undir á pí- anó. Einnig syngur Kristín Þóra Haraldsdóttir, sópran og Elín Guð- mundsdóttir leikur undir. Tónleikarnir hefjast á dúett; „trompetsöng“ eftir Purcell og þær syngja dúetta eftir Rossini og Moz- arts. Þær flytja einnig ítölsk, nor- ræn, frönsk og þýsk ljóð og aríur úr óperum og óperettum, m.a. aríu Adele úr Leðurblökunni. Gréta Hergils, sópran, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir, sópran og Iwona Ösp Jagla, píanó og Magnús Guðmundsson, tenór og Lára S. Rafnsdóttir, píanó, eru með tónleika mánudaginn 23. maí kl. 20. Þar verða í boði söngvar úr My Fair Lady, Porgy og Bess og Annie get your gun; “Anything you can do…“ Einnig aríur og dúettar m.a. úr La Traviata eftir Verdi og La Bohéme og Madame Butterfly eftir Puccini. Þriðjudaginn 24. maí kl. 20 munu Guðrún Árný Guðmundsdóttir, sópr- an, Þórunn Vala Valdimarsdóttir, sópran og Iwona Ösp Jagla, píanó, flytja aríur og dúetta úr verkum Bachs og Handels, söngleikjalög eft- ir Kern, aríur og dúetta úr óperum eftir Mozart, Puccini, Weber og Menotti. Með þeim koma einnig fram Gróa Margrét Valdimars- dóttir, fiðluleikari og Þorgerður Hall, sellóleikari. Miðvikudaginn 25. maí kl. 20 syngja Fjóla Dögg Halldórsdóttir, mezzósópran og Jana María Guð- mundsdóttir, sópran og Kolbrún Sæ- mundsdóttir leikur undir. Á efnis- skránni eru m.a. Sumarjazz eftir Guðmund Hreinsson, Söngvar Sól- veigar eftir Hjálmar H. Ragnarsson og Hjarðmærin eftir Ragnar H. Ragnar ásamt aríum og dúettum úr söngleikjum, óperettum og óperum. Útskriftarnemendur Söngskólans í Reykjavík, talið frá vinstri, fremsta röð; Margrét, Guðbjörg, Rannveig, Fjóla Dögg, Dagbjört. Miðröð: Kristín Þóra, Gréta, Hrafnhildur, Guðrún Árný, Hanna Þóra. Aftasta röð: Jana María, Hulda Sif, Þórunn Vala, Magnús og Thelma Hrönn. Útskrift hjá Söngskólanum í Reykjavík SÝNINGU Báru ljósmyndara, Heit- ir reitir, lýkur sunnudaginn 22. maí. Sýningin er í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Grófarhús, Tryggva- götu 15, 6. hæð. Opið er frá kl. 12–19 virka daga, en kl. 13–17 um helgar. Aðgangur er ókeypis. Sýningu lýkur LISTAMAÐURINN Helgi Sigurðs- son er með sýningu á Mokka-Kaffi. Sýningin hefur yfirskriftina „multi- mania“ en verkin eru máluð í tölvu, prentuð á hágæða ljósmyndapappír og felld inn í einfalda svarta ramma. Þetta er sjöunda einkasýning Helga en hún stendur til 12. júní. „Multimania“ á Mokka

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.