Morgunblaðið - 19.05.2005, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Lau 28/5 kl 20 - Síðasta sýning
HÉRI HÉRASON snýr aftur -
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Í kvöld kl 20, Fö 20/5 kl 20 - UPPSELT,
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - UPPSELT,
Fö 27/5 kl 20, Lau 28/5 kl 20,
Su 29/5 kl 20, Fi 2/6 kl 20,
Fö 3/6 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20
Síðustu sýningar
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Fö 20/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20 - Síðustu sýningar
TERRORISMI e. Presnyakov bræður
Fö 20/5 kl 20
Síðasta sýning
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 22/5 kl 14 - UPPSELT, Lau 4/6 kl 14 - UPPSELT,
Su 5/6 kl 14 - UPPSELT, Su 12/6 kl 14,
Su 12/6 kl 17, Lau 18/6 kl 14,
Su 19/6 kl 14, Su 26/6 kl 14 THE SUBFRAU ACTS – GESTALEIKSÝNING
The paper Mache og Stay with me
Fi 26/5 kl 20,
Fö 27/5 kl 20
RAMBÓ 7
FRUMSÝNING Í KVÖLD - UPPSELT!
Í kvöld fim. 19/5 örfá sæti laus, sun. 29/5 Allra síðasta sýning
- Sigurður Pálsson
Fös. 20/5 örfá sæti laus, sun. 22/5 uppselt. Síðustu sýningar í vor.
7. sýn. lau. 21/5, 8. sýn. fim. 26/5 nokkur sæti laus, 9. sýn. fös. 3/6, 10. sýn.
lau. 11/6, 11. sýn. sun. 12/6.
- H.C. Andersen
Sun. 22/5 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 28/5 kl. 14:00 nokkur sæti laus,
sun. 5/6 kl. 14:00. Síðustu sýningar í vor.
- Hallgrímur Helgason/leikgerð Baltasar Kormákur
Fös. 27/5, lau. 28/5, lau. 4/6 nokkur sæti laus, fim. 9/6, fös. 10/6.
Aðeins örfáar sýningar vegna fjölda áskorana.
- Jón Atli Jónasson
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson og Viðar Hákon Gíslason Lýsing: Hörður Ágústsson
Leikmynd: Ólafur Jónsson Búningar: Þórunn E Sveinsdóttir
Myndvinnsla: Árni Sveinsson Leikstjóri: Egill Heiðar Anton Pálsson
Leikarar: Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Egill Egilsson, Ólafur
Darri Ólafsson
Frumsýning í kvöld fim. 19/5 uppselt, sun. 22/5 örfá sæti laus, fös. 27/5, lau. 28/5
- Söngdagskrá úr samnefndum söngleik
Mið. 1/6 kl. 20:00, fim. 2/6 kl. 20:00.
Miðasalan á Bókasafni Héraðsbúa.
Opið alla virka daga frá kl. 14-19. Sími 471 1546
- Bigir Sigurðsson
- Marina Carr
Gul tónleikaröð #7
Hljómsveitarstjóri ::: Gintaras Rinkevicius
Einleikarar ::: Einar Jóhannesson og Dimitri Ashkenazy
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
Þrír Tékkar og
tvær klarínettur
HÁSKÓLABÍÓI Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30
Efnisskrá tónleikanna er altékknesk, þó lokaverkið beri með sér and-
blæ frá Vesturheimi. Moldá eftir Smetana og 9. sinfóníu Dvoráks
er óþarfi að kynna enda tvö af vinsælustu verkum sögunnar.
Í klarínettukonsert Krommers leiða saman hesta sína tveir blásarar á
heimsmælikvarða, Dimitri Ashkenazy og Einar Jóhannesson.
Bedrich Smetana ::: Moldá
Franz Krommer ::: Konsert fyrir tvær klarínettur
Antonín Dvorák ::: Sinfónía nr. 9, „Frá nýja heiminum“ˇ
ˇ
ˇ
ALLRA
KVIKINDA
LÍKI
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Fim 19/5 kl. 20
Fim 19/5 kl. 22
Fös 20/5 kl. 24
Sun 22/5 kl. 20
LEIKFÉLAG KÓPAVOGS
„... Frábærlega vel útfærð og
allveg myljandi fyndin.“ Þ.T. Mbl.
„... tveimur orðum sagt mígandi
fyndin [sýning]“ Á.G. leiklist.is
midasala@kopleik.is
s: 5541985
Unnið upp
úr VIZ
Leikstj. Guðjón Þorsteinn
Pálmarsson og Hrund Ólafsdóttir
Stranglega bannað börnum
sýnir
ENGINN MEÐ
STEINDÓRI
- fjölskyldusplatter
í Möguleikhúsinu
Föstud. 20. maí kl. 20.00.
Sunnud. 22. maí kl. 20.00.
Föstud. 27. maí kl. 20.00.
Laugard. 28. maí kl. 20.00.
Aðeins þessar sýningar!
Miðasala í s. 551 2525
og á www.hugleikur.is
Sýningin hentar ekki börnum.
ÞAÐ ER morgunn í íbúð í Reykja-
vík. Maður á þrítugsaldri vaknar
við símtal um að bróðir hans sé
týndur í Bosníu. Þar sem hann
stendur nývaknaður og meltir það
kemur stelpa á svipuðum aldri nið-
ur, vinkona föður hans – pip-
arsveinsins. Æskuvinur hans Pési
mætir í heimsókn og smám saman
dettur botninn úr deginum.
Svona lýsir Jón Atli Jónasson
leikskáld upphafi nýjasta leikrits
síns, Rambó 7, sem frumsýnt verð-
ur á Smíðaverkstæði Þjóðleikhúss-
ins í kvöld. „Þegar ég skrifaði
þetta leikrit var ég að reyna að
fanga ákveðið andrúmsloft sem
mér finnst vera einkennandi hjá
ungu kynslóðinni í Reykjavík,“ út-
skýrir hann. „Þessar persónur sem
þarna koma fyrir eru fulltrúar
hennar – og í raun bara fólk sem
ég hef hitt í Reykjavík. Mér fannst
gaman að setja það saman í pott
og sjá suðuna koma upp.“
Rökrétt framhald
Hér er sem sagt um íslenskt
samtímaleikrit að ræða, og segir
Jón Atli að fyrir sér sé verkið rök-
rétt framhald af því sem hann hef-
ur áður fengist við. „Ég hef skrifað
leikrit um Smáralindina, um fíkni-
efnaneytendur, um sjómenn – ég
skrifa yfirleitt um íslenskan sam-
tíma. Og núna er ég að skrifa um
ungt fólk.“
Hann segir mikilvægt að tekist
sé á við samtímann í leikhúsi –
mikilvægast raunar. „Það er það
sem leikhús ætti að gera miklu
meira af. Mér finnst almennt að
við séum farin að líta á leikhúsið
eins og íþróttakeppni,“ segir hann.
„Þegar maður les umfjallanir um
leiklist og leikdóma hljómar allt
eins og lýsing á knattspyrnuleik –
ljósin komu í mark fyrst og svo
skoraði hljóðið og leikurinn.“
Leikrit til útlanda
Jón Atli hefur vakið þó nokkra
athygli á undanförnum árum fyrir
kraftmikil skrif. Meðal verka hans
eru Draugalest sem sýnt var í
Borgarleikhúsinu og Brim sem
Vesturport setti upp, en sú sýning
var valin til sýningar á Leiklist-
artvíæringnum í Wiesbaden sem
helgaður er nýjum verkum evr-
ópskra leikskálda og hyggur á enn
frekari ferðalög, meðal annars á
leiklistarhátíðina í Tampere í Finn-
landi og á Goldenmask-leiklistarhá-
tíðina sem Listaleikhúsið í Moskvu
stendur fyrir í september. Þá hefur
Jón Atli ennfremur fengist við rit-
un kvikmyndahandrita og ritar
meðal annars handritið að Strák-
arnir okkar ásamt Robert Douglas,
sem frumsýnd verður á næstunni.
Það er einnig líklegt að Rambó 7
eigi eftir að feta í sömu gæfulegu
fótspor og fyrri verk Jóns Atla, því
sýningarréttur að verkinu á þýsku
hefur þegar verið seldur til einnar
stærstu umboðsskrifstofu leik-
skálda í Þýskalandi. Þó er ekkert
farið að skýrast um hvar og hve-
nær það fer á fjalirnar í þýskum
leikhúsum. „Þeir eru bara farnir að
ýta því að leikhúsunum,“ segir Jón
Atli.
Hópurinn sem kemur að sýning-
unni í Þjóðleikhúsinu, þar á meðal
leikararnir fjórir, leikstjórinn og
leikskáldið, hefur verið tengdur
leikhópnum Vesturporti – þeim er
sýndi Rómeó og Júlíu í London
eins og alkunna er – um nokkurt
skeið. Flestir aðstandendur sýn-
ingarinnar stíga hins vegar sín
fyrstu skref í Þjóðleikhúsinu í
Rambó 7. Jón Atli segist verða var
við ákveðin kynslóðaskipti í ís-
lensku leikhúslífi um þessar mund-
ir, ekki síst með tilkomu nýs Þjóð-
leikhússtjóra, Tinnu
Gunnlaugsdóttur. „Það er svolítið
sérstakt ástand í húsinu núna,“
segir hann. „Og við í hópnum erum
að læra á það og kynnast þeim sem
vinna hér. Það er visst ævintýri
fyrir okkur.“
Hann segir gott að koma inn í
Þjóðleikhúsið, þar sé aðbúnaður
allur vandaður og frábær tækni
fyrir hendi. „Þetta er svona dóta-
kassi sem er mjög gaman að kom-
ast í. En vinnubrögðin eru ekkert
öðruvísi, nema helst að Nína þarf
ekki að keyra um allan bæ að leita
sér að kjól – það er einhver sem
vinnur bara við það. En í grunninn
er metnaðurinn sá sami, og við
slökum síður en svo á,“ segir hann.
Jón Atli segist vonast til að ungt
fólk komi að sjá sýninguna. „Vegna
þess að ég held að leikhúsið hafi á
vissan hátt gleymt unga fólkinu,“
segir hann. „Og leikhús á að vera
fyrir alla aldurshópa.“
Leiklist | Rambó 7, nýtt leikrit eftir Jón Atla Jónasson,
frumsýnt á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins
Mikilvægast að fjalla
um samtímann
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
Rambó 7 heitir nýtt verk Jóns Atla Jónassonar sem frumsýnt verður á Smíðaverkstæðinu í kvöld.
„Ég var að reyna að fanga ákveðið
andrúmsloft sem mér finnst vera
einkennandi hjá ungu kynslóðinni í
Reykjavík,“ segir Jón Atli.
Eftir: Jón Atla Jónasson.
Leikendur: Gísli Örn Garð-
arsson, Nína Dögg Filipp-
usdóttir, Ólafur Egill Egilsson
og Ólafur Darri Ólafsson
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirs-
son og Viðar Hákon Gíslason
Myndvinnsla: Árni Sveinsson
Leikmynd: Ólafur Jónsson
Búningar: Þórunn E.
Sveinsdóttir
Lýsing: Hörður Ágústsson
Leikstjórn: Egill Heiðar Anton
Pálsson
Rambó 7
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
❖ Opið virka daga 10-18
❖ Laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12
Kópavogi
s. 554 4433
Þar sem
konurnar
versla
smáauglýsingar
mbl.is