Morgunblaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ný ljóðabók Gyrðis
edda.is
Stefnubreyting í
lífskreppu
Umfram allt að slaka á
einsog trén. Fella laufin í
vetur, fá svo ný og betri
lauf næsta vor, mæta
sólinni í ferskleika
Það er eina leiðin
Gyrðir Elíasson
INGIBJÖRG VANN ÖSSUR
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var
kjörin formaður Samfylkingarinnar
á landsfundi flokksins í gær. Hún
hlaut 66,6% atkvæða en mótfram-
bjóðandi hennar, Össur Skarphéð-
insson hlaut 33% atkvæða. Á milli
1.400 og 1.500 manns sitja landsfund
Samfylkingarinnar í Egilshöll.
Karzai harðorður
Hamid Karzai, forseti Afganist-
ans, er allt annað en sáttur með
fréttir þess efnis að bandarískir her-
menn hafi misþyrmt föngum í Afg-
anistan. Hann krafðist þess í gær að
bandarísk stjórnvöld refsuðu hverj-
um þeim liðsmanni Bandaríkjahers
sem sekur hefði gerst um misþyrm-
ingar á föngum. Karzai hélt í gær í
opinbera heimsókn til Bandaríkj-
anna og sagði hann fyrir brottförina
frá Kabúl að hann myndi taka þetta
mál upp við ráðamenn í Washington.
70% aukning á áratug
2,5 milljónir ferðamanna heim-
sóttu Ísland á liðnum áratug og nem-
ur aukning í íslenskri ferðaþjónustu
70% á árunum 1995–2004. Aukningin
í ferðaþjónustu á heimsvísu var á
sama tímabil 24%. Talið er að 4 millj-
ónir ferðamanna hafi heimsótt Ís-
lands sl. hálfa öld, að sögn Magnúsar
Oddssonar ferðamálastjóra.
Minni munur á framfærslu
Munur á lífeyri og lágmarks-
framfærslukostnaði hefur minnkað á
síðustu fimm árum skv. samanburð-
arrannsóknum Hörpu Njáls fé-
lagsfræðings. Mest minnkar mun-
urinn hjá hjónum á örorkulífeyri úr
rúmum 31 þúsund krónum árið 2000
í 5 þúsund krónur nú.
Taldir af í Andesfjöllum
Næsta öruggt er talið að 41 her-
maður, sem saknað er eftir kaf-
aldsbyl í Andes-fjöllum um miðja
viku, sé látinn. Þegar hafa lík þrett-
án hermanna fundist.
Mennirnir voru hluti af 433 manna
hersveit er var við æfingar í Andes-
fjöllum þegar kafaldsbylurinn skall
yfir. Ættingjar hermannanna eru
margir ævareiðir og hafa gagnrýnt
yfirmenn hersins fyrir að hafa staðið
fyrir æfingum á þessum tíma og við
þessi veðurskilyrði. Þremur yfir-
mönnum hersins hefur verið vikið úr
starfi vegna málsins.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Reyðarfjörður | Á átta mánuðum
hefur verktakafyrirtækið Suð-
urverk náð merkum áfanga í
mannvirkjagerð við Fjarðaáls-
verkefnið á Reyðarfirði. Í
fréttatilkynningu frá Bechtel
segir að Suðurverk hafi nú flutt
til 3 milljónir rúmmetra af
grjóti og jarðvegi og á þeim
tíma náð merkum áfanga í ör-
yggismálum. Miðvikudaginn
18. maí náði fyrirtækið þeim
áfanga að vinna 250.000 vinnu-
stundir án þess að missa úr
eina einustu vegna slysa eða
óhappa. Það þýðir að enginn
starfsmaður hefur þurft að
vera frá vinnu í 250.000 vinnu-
stundir vegna óhappa eða slysa
hjá fyrirtækinu.
„Þetta er frábært afrek hjá
íslensku verktakafyrirtæki og í
raun einstakt í mannvirkjagerð
á Íslandi,“ sagði Eyjólfur Sæ-
mundsson, forstjóri Vinnueftir-
litsins, við athöfn á fram-
kvæmdasvæði Fjarðaálsverk-
efnisins. Eyjólfur og Árni
Jóhannsson frá Samtökum iðn-
aðarins fluttu starfsmönnum
Suðurverks kveðjur í tilefni
áfangans en þeir fengu afhent-
an minjagrip af þessu tilefni.
250 þús-
und vinnu-
stundir án
óhappa
UNNUR Birna Vilhjálmsdóttir var í fyrrakvöld valin
ungfrú Ísland árið 2005 en Unnur, sem er 21 árs gömul,
var einnig valin fegurðardrottning Reykjavíkur fyrr á
þessu ári. Ingunn Sigurpálsdóttir, tvítug úr Garðabæ,
varð í 2. sæti og Margrét Elísa Harðardóttir, 24 ára úr
Reykjavík, varð í þriðja sæti.
Unnur Birna fékk flest atkvæði í símakosningu
áhorfenda SkjásEins og hún fékk einnig flest atkvæði í
kosningu FM 957. Þá var hún valin ljósmyndafyrirsæta
ársins og Nina Ricci og LCN stúlkan. Margrét Elísa var
valin Oroblu og NEXT stúlkan og Kristín Lind Andrés-
dóttir var valin vinsælasta stúlkan. Foreldrar Unnar
Birnu eru Vilhjálmur Skúlason og Unnur Steinsson,
sem var valin ungfrú Ísland árið 1983.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, ungfrú Ísland árið 2005, ásamt Ingunni Sigurpálsdóttur, 20 ára úr Garðabæ, sem
varð í 2. sæti og Margréti Elísu Harðardóttur, 24 ára úr Reykjavík, sem hafnaði í þriðja sæti.
Unnur Birna ungfrú Ísland
BRÝNT er að efla náms- og starfs-
ráðgjöf í grunn- og framhaldsskólum
til að sporna við miklu brottfalli
nemenda í framhaldsskólum. Sam-
kvæmt íslenskum rannsóknum er
áætlað að hlutfall nemenda sem ekki
ljúka framhaldsskólanámi eða form-
legu námi sé nú rúm 40%.
Jónína Kárdal, formaður Félags
náms- og starfsráðgjafa, bendir á að
ef til styttingar á framhaldsskóla-
námi komi sé mjög mikilvægt og
brýnt að efla náms- og starfsráðgjöf
og náms- og starfsfræðslu.
„Í gegnum skólakerfið eru ung-
mennin alltaf að taka ákvarðanir og
til þess að ákvarðanir verði farsælar
þarf að koma til
kynning á at-
vinnulífinu og
vinnumarkaðn-
um, þannig að
þau viti hvaða val
þau hafa fyrir
hendi. […] Það
sem stendur okk-
ur fyrir þrifum
sem störfum í
stéttinni er að við höfum þekkingu á
skólakerfinu og þeim námsleiðum
sem í boði eru, en okkur vantar upp-
lýsingar sem tengjast vinnumark-
aðnum til þess að fólk eigi auðveld-
ara með að átta sig á hvernig hann
muni þróast.“ Jónína segir að þar
þurfi að koma til samstarf atvinnu-
rekenda, stjórnvalda og fleiri aðila.
Þess má geta að þingmenn úr röð-
um Framsóknarflokks, Samfylking-
ar og Vinstri grænna lögðu fram á
Alþingi í vor þingsályktunartillögu
þar sem lagt er til að kannað verði
gildi og gagnsemi þess að auka
náms- og starfsráðgjöf í grunn- og
framhaldsskólum.
Brottfall nemenda er vandamál
víðar. Í Bretlandi er talið að hver
einstaklingur, 16-19 ára, sem ekki er
í skóla, vinnu eða hefur lokið starfs-
þjálfun kosti skattgreiðendur 98.000
pund (sem samsvarar 12,5 milljónum
króna).
Félag náms- og starfsráðgjafa
stóð í liðinni viku fyrir námstefnu í
Háskóla Íslands þar sem flutt voru
margvísleg erindi sem lúta að sviði
náms- og starfsráðgjafa.
Brýnt að efla náms- og
starfsráðgjöf í skólum
Eftir Kristján Geir Pétursson
kristjan@mbl.is
Jónína Kárdal
PAR á þrítugsaldri sem grunað er
um margítrekuð bílainnbrot í
Reykjavík að undanförnu var
handtekið og úrskurðað í viku
gæsluvarðhald í fyrradag. Maður-
inn er þekktur að afbrotum, að
sögn lögreglunnar í Reykjavík.
Talið er að fólkið hafi brotist inn í
allt að 30 bíla um hábjartan dag á
bílastæðum við sundstaði og í Háa-
leitishverfi. Á fimmtudag sást til
fólksins brjótast inn í bíl við Ár-
bæjarlaug og var lögreglan látin
vita.
Fólkið var á eigin bíl en komst
ekki langt því lögreglan stöðvaði
förina við Rauðavatn þar sem tals-
vert af þýfi fannst í bíl fólksins.
Málið er komið í rannsókn lög-
reglunnar.
Handtekin vegna
fjölda bílainnbrota
LÖGREGLAN á Selfossi stöðvaði í
fyrrinótt för bifreiðar sem mældist á
162 km hraða á þjóðvegi eitt skammt
austan bæjarins. Ökumaðurinn
reyndist vera sautján ára og hafði
fengið prófið í apríl. Má hann búast
við að verða án prófsins um tíma og
verða gert að greiða nokkra tugi
þúsunda króna í sekt.
Þá stöðvaði Selfosslögreglan 10
aðra ökumenn fyrir hraðakstur í
fyrrinótt og í Reykjavík voru 60
sektaðir í síðustu viku í eftirlitsher-
ferð í Bústaðahverfi.
Tekinn á 162 km hraða
REKSTRARTEKJUR Rafmagns-
veitna ríkisins (RARIK) jukust um
8,7% á árinu 2004 samanborið við ár-
ið á undan. Þetta er mun betri af-
koma en á undanförnum árum, og
skýrist hún að langmestu leyti af
aukningu í orkusölu, auknum tekjum
af tengigjöldum, aukinni verksölu og
gengishagnaði.
Þetta kemur fram í skýrslu um
starfsemi RARIK sem kynnt var á
ársfundi fyrirtækisins í fyrradag. Í
skýrslunni kemur fram að rekstrar-
tekjur á árinu 2004 voru 6.431 millj-
ónir króna, en þær voru 5.918 á árinu
2003. Rekstrargjöld hækkuðu hins
vegar úr 4.753 milljónum króna í
4.927 milljónir. Í árslok 2004 voru
skammtímaskuldir RARIK 1.749
milljónir króna, og höfðu hækkað um
463 milljónir króna á árinu.
Afkoma
RARIK
batnar
Í dag
Sigmund 8 Minningar 42/44
Fréttaskýring 8 Myndasögur 56
Sjónspegill 32 Dagbók 56/58
Forystugrein 34 Víkverji 56
Reykjavíkurbréf 34 Leikhús 60
Hugsað upphátt 39 Bíó 62/65
Umræðan 40/47 Sjónvarp 66
Bréf 47 Staksteinar 67
Hugvekja 48 Veður 67
* * *