Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 9

Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 9 FRÉTTIR Fjármögnun í takt við þínar þarfir Suðurlandsbraut 22 108 Reykjavík Sími 540 1500 Fax 540 1505 www.lysing.is Það eina sem er erfitt við að kaupa nýjan bíl . . . H in ri k P é tu rs s o n l w w w .m m e d ia .i s /h ip . . . er að þurfa að leyfa krökkunum að keyra hann                             ! " #$ % % &'& ()*+ ,      Hollvinafélag Útskála í Garði Boðað er til stofnfundar Hollvinasamtaka Menningarseturs Útskála í Garði. Samtökunum er m.a. ætlað að standa vörð um uppbyggingu og starfsemi Menningarsetursins að Útskálum, stuðla að kynningu út á við og veita siðferðilegan og fjárhagslegan stuðning. Dagskrá: Stutt kynning á málefninu. Almennar umræður. Samþykktir samtakanna kynntar. Kosið í stjórn samtakanna. Fundurinn verður 24. maí kl. 20:30 í safnaðarheimilinu Sæborgu í Garði. Allir sem áhuga hafa og styðja vilja þetta merka og mikla verkefni eru velkomnir á fundinn. Þeir, sem ekki komast á fundinn en vilja gerast félagar í Hollvinasamtökunum, geta skráð sig í síma 895 7376 María eða 894 6535 Jón. Einnig verður hægt að skrá sig á heimasíðu Menningarsetursins www.utskalar.is þegar hún verður opnuð en hún er í vinnslu. Stjórn Menningarseturs að Útskálum ehf. APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Góð heilsa gulli betri HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karl- mann á þrítugsaldri í átján mánaða fangelsi, þar af 15 mánuði skilorðs- bundið, fyrir tvær fólskulegar og til- efnislausar líkamsárásir árið 2001. Þá var ákærða gert að greiða 200 þúsund kr. í miskabætur vegna ann- arrar árásarinnar auk bóta vegna kostnaðar af kröfu. Með dómi sínum þyngdi Hæsti- réttur dóm Héraðsdóms Reykjavík- ur sem dæmdi ákærða í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 mánuði skilorðs- bundið. Í dómi Hæstaréttar kom fram að brotin hefðu verið framin áð- ur en tveir síðustu dómar á hendur ákærða voru kveðnir upp og var skil- orð síðari dómsins tekið upp. Fram kemur í dóminum að í fyrra tilvikinu veittist ákærði að öðrum manni og skallaði hann í andlitið með þeim afleiðingum að hann meiddist nokkuð. Í síðara tilvikinu sló hann mann með bjórkönnu í andlitið með þeim afleiðingum að hann skarst talsvert. Hæstiréttur tók fram, að brotin hefðu verið framin fyrir fjórum árum og að rannsókn hefði dregist hjá lög- reglu, án þess að fullnægjandi skýr- ingar hefðu verið gefnar á þeim drætti. Þá hefðu hagir ákærða breyst til hins betra frá því sem áður var. Þótti því mega fresta fullnustu 15 mánaða af refsingunni. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Verjandi var Jóhannes Rúnar Jóhannsson hrl. og sækjandi Ragnheiður Harðardóttir frá ríkis- saksóknara. Refsing þyngd vegna líkamsárása „ÞETTA verkefni hefur haft mjög góð samfélagsleg áhrif og m.a. orð- ið til þess að draga úr kynslóðabil- inu,“ segir Guðrún Þórsdóttir, verkefnisstjóri og kennsluráðgjafi hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, um sjálfboðavinnu grunnskólanem- enda á aldrinum 12–15 ára við að kenna eldri borgunum á tölvur. Í fyrradag var nokkurs konar upp- skeruhátið þar sem KB-banki tók á móti þeim sextíu grunnskólanem- um sem í vetur hafa tekið að sér tölvukennsluna. Aðspurð segir Guðrún verkefnið hafa staðið yfir síðan 1999, en árlega hafa í kring- um 60 nemendur úr grunnskólum Reykjavíkur tekið að sér að kenna allt að 140 eldri borgurum á tölvur. Guðrún segir mikla ánægju með verkefnið sem hafi í raun gagn- kvæmt gagn. „Eldri borgarar eiga ekki orð yfir það hversu grunn- skólanemendurnir eru dásamlegir og góðir kennarar og hrósa þeim í hástert. Að sama skapi hafa krakk- anir mjög gaman af kennslunni. Þau fá þarna hlutverk og finnst þau vera að gera gagn,“ segir Guðrún og tekur fram að margir krakkar sinni kennslunni árum saman. Framtíð verkefnisins óljós Að sögn Guðrúnar er á þessu stigi málsins allt óljóst um framtíð verkefnisins. „Þetta hefur verið samstarfsverkefni Fræðslumið- stöðvar Reykjavíkur og Námsflokk- anna, en verið er að leggja báðar stofnanir niður, þannig að við vit- um því miður ekki hver framtíð þess verður,“ segir Guðrún og tek- ur fram að hún vonist til þess að fundinn verði grundvöllur til að halda verkefninu áfram. „Með þessu verkefni er verið að búa til varanleg verðmæti sem felast í því að unga fólkið fái að þroskast í því að gera gagn, en það er ekkert sem þroskar unga manneskju eins mik- ið. Við verðum með öllum ráðum að fjölga slíkum tækifærum því með þessu móti erum við að búa til ábyrgari og betri þjóðfélags- þegna,“ segir Guðrún. Morgunblaðið/Golli Guðrún Halldórsdóttir, fyrrverandi skólastjóri Námsflokkanna, afhenti nemunum viðurkenningar fyrir sjálfboðaliðastörf þeirra í þágu samfélags- ins. KB-banki hélt nemunum boð í þakklætisskyni fyrir vel unnin störf. Skilar sér í ábyrgari og betri þjóðfélagsþegnum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.