Morgunblaðið - 22.05.2005, Page 19

Morgunblaðið - 22.05.2005, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 19 og gerir það með tilhlýðilegum sóma. Stjörnustríðið leggur undir sig heiminn Star Wars olli straumhvörfum í flestum skilningi. Lucas skapaði nýjan og framandi framtíðarheim ólíkan öllu öðru sem mætt hafði áður augum bíógesta. Persónurnar voru óvenjulegar, bæði úr mann- heimum, dýraríkinu, blendingar úr hvoru tveggja og vélmenni. Geim- skip, stríðstól og allur tækjabún- aður var afar stórbrotinn og í fullu samræmi við umhverfið, bæði brakandi ferskur og hugmynda- ríkur. Til að fullkomna veröld geimævintýrisins hannaði Lucas nýja töku- og hljóðtækni, svo eitt- hvað sé nefnt, og hratt af stað á frumsýningardegi nýju tímamóta- fyrirbrigði í markaðssetningu; gerði nafn myndarinnar að sérleyfi (franchise) og nýtti við framleiðslu á leikfangalínu (hver man ekki leysigeislasverðin?) og ótalmörgu öðru tengdu myndinni. Þá var orð- ið ekki til í þessari merkingu í tungunni, en síðan hefur slík fram- leiðsla þótt ómissandi þáttur í gerð stórmynda, bæði sem mikilvæg fjárhagsleg aukabúgrein og ómet- anleg auglýsing. Efni Stjörnustríðsbálksins þarf ekki að tíunda, þar er gamal- kunnug barátta góðs og ills í fyrir- rúmi, en að þessu sinni í nýstár- legri og mikilfenglegri búningi en nokkru sinni áður. Hér heima nutu myndirnar ágætra vinsælda en sýningarstað- urinn í Reykjavík var Nýja bíó (umboðsaðili 20th Century Fox), lítið, vinalegt, einsala bíó, sem þá voru að renna sitt skeið á enda. Þegar Return of the Jedi, þriðja myndin í flokknum, var frumsýnd minnist maður deilna um að sýna myndina í Háskólabíói, sem hýsti upp undir þrefalt fleiri gesti, en af því varð ekki. Aðeins örfáum árum síðar tilheyrðu einsalabíóin fortíð- inni í höfuðborginni og upp frá því voru allar myndir sem vænlegar voru til vinsælda frumsýndar í mörgum sölum og jafnvel kvik- myndahúsum. Á þessum tíma lögðu bíóin og þýðendurnir mikla áherslu á að ís- lenska titla myndanna og staðfæra sérnöfn, það má t.d. vel ímynda sér að nafn höfuðpaursins Svarthöfða – Darth Vader sé dregið af dul- nefni áhrifaríkasta dálkahöfundar 8. og 9. áratugarins. Það átti ekki illa við því hinn íslenski Svarthöfði gat sannarlega verið eitraður og hafði ómæld áhrif á umræðuna eins og sögupersónan hans Lucas- ar. Stjörnustríðsbyltingin þrítug og aldrei öflugri Í dag, tæpum 30 árum síðar, eru áhrif Stjörnustríðsbálksins greini- leg, hvert sem litið er. Einn þáttur byltingarinnar er að nú er verið að sýna þá sjöttu, og að öllum lík- indum síðustu myndina. Athygl- isverðust er sú staðreynd að fyrir tilstuðlan bálksins er Lucas ókrýndur höfundur aðsóknartröll- anna, myndanna sem hafa ráðið markaðnum frá því að fyrsta Stjörnustríðsmyndin birtist á tjaldinu (sjá lista yfir stærstu sér- leyfi sögunnar). Önnur hlið byltingarinnar birtist í hátæknifyrirtækjum og snilling- unum sem Lucas hefur mótað og skapað og eru allsráðandi í stór- myndagerð samtímans. Fyrst skal fræg telja tvö yfirgnæfandi há- tæknifyrirtæki sem Lucas stofn- setti í þeim tilgangi að gera Stjörnustríðsmyndirnar mögu- legar. Þau eru THX, sem hannar m.a. hljómflutningstæki í kvik- myndahús og upptökutækni við kvikmyndagerð, og enn frekar Industrial Light & Magic (ILM), sem leysir öll hugsanleg vandamál sem upp koma í brellugerð, en bæði eru hluti stórveldisins Lucas Digital News. Spielberg frumsýnir í júní Inn- rásina frá Mars – War of the Worlds, nýja ofurbrellumynd, og vitaskuld er hún unnin hjá ILM. Þar starfa snillingar á borð við Dennis Muren, sem verið hefur hægri hönd Lucasar frá upphafi. Muren og galdrakarlarnir hjá ILM flétta saman tölvuhátækni og finna upp eftir þörfum nýjan hugbúnað sem gera hið ómögulega mögulegt. Þeir hafa frá fyrsta degi drottnað yfir öllum deildum brellugerðar og hirt Óskarsverðlaunin í ein fjórtán skipti á undanförnum áratugum. Í þeirra hópi er John Dykstra, sem fékk Óskar í ár fyrir brellurnar í Spiderman 2. Hann er einn frum- kvöðlanna sem töfruðu fram Star Wars árið 1977, og hefur lengst af unnið hjá ILM. Meðal annarra for- kólfa sem haldið hafa ILM í fremstu röð má nefna Ken Ralston (Forrest Gump, The Polar Ex- press) og Richard Edlund (Stjörnustríðsbálkurinn, Raiders of the Lost Ark), án snilligáfu þes- ara manna hefði Star Wars- byltingin aldrei orðið að veruleika. Allir helstu stórmyndasmiðir samtímans, líkt og Spielberg, Ro- bert Zemeckis, Wolfgang Peterson að ógleymdum James Cameron, leita til ILM til að gera hugmyndir sínar að veruleika. Útkoman er tæknileg stórvirki á borð við E.T., Cocoon, The Abyss, Terminator- myndirnar, Jurassic Park- myndirnar, Perfect Storm, Titanic og I, Robot, svo örfá dæmi séu nefnd. Órarnir sem rættust Árið 1973 lauk Lucas við fyrsta smellinn sinn, American Graffiti, hjá Universal. Í framhaldinu bauð hann fyrirtækinu að framleiða hug- mynd sem hann var með í kollinum um B-myndarlegt geimævintýri sem gerðist „endur fyrir löngu á fjarlægri vetrarbraut …“ Þeir hlógu að „óframkvæmanlegum framtíðarórum sem enginn hefði áhuga á að sjá.“ Lucas hraktist á milli kvikyndaveranna þangað til Fox opnaði sjóði sína til að hrinda í framkvæmd hugmyndinni sem markaðsfræðingar spá að eigi eftir að skila á sjöunda milljarð dala í kassann. Framhaldið er skráð í sögubækurnar. saebjorn@heimsnet.is  5  $  E C F &2&  :/  9 0   %; 0  4   )  4  3 0 )  # < =0  >  3 *  / 6  #- :? = @ 6 # 4 #3   . +  +  !  G9H9>H9IJA G9K9LI9G>IA G9I9JLI9KIA HI99GHLA KKK9>9HJA KJK9>9KLGA KJ9I9HIA KG9IIL9>A KL9>K>9KGIA         A    A   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.