Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að hefur margt breytzt
í afstöðu manna til bak-
vandamála síðustu tvo
áratugina eða svo. Í
fyrsta lagi varð mönn-
um ljóst, að ýmsar hug-
myndir um orsakir
bakverkja stóðust ekki vísindalegar
kröfur, í öðru lagi að margar ráð-
leggingar voru rangar og sumar
beinlínis skaðlegar og í þriðja lagi
voru skurðlækningar ekki sú alls-
herjarlækning, sem menn vonuðu.
Jósep Ó. Blöndal, sjúkra-
húslæknir við St. Franciskusspítala
í Stykkishólmi og yfirmaður háls-
og bakdeildarinnar, segir, að rann-
sóknir undanfarinna ára hafi komið
mörgum fyrri tíma meðferð-
arhugmyndum fyrir kattarnef. „Áð-
ur var fólki með bakverkjakast ráð-
lagt að hvíla sig frá vinnu, liggja
gjarnan í rúminu, hreyfa sig sem
minnst og fara ekki yfir sárs-
aukamörk. Núorðið ráðum við fólki
að halda áfram að vinna, en forðast
vissa álagsþætti. Við segjum fólki
að forðast það að liggja í rúminu og
hreyfa sig eins mikið og það getur,
þrátt fyrir aukinn sársauka, og
byggjum þær ráðleggingar á fjölda
vísindarannsókna. Hér á landi er
algengt að fólki með bakverki sé
ráðlagt að synda ekki bringusund.
Fyrir þessari ráðgjöf finnst enginn
vísindalegur fótur og við hér í
Stykkishólmi mælum með hvers
konar sundi ásamt gönguferðum,
hjólreiðum, skíðagöngu og dansi
svo eitthvað sé nefnt. Almennt séð
er ekki ástæða til að banna ba-
kveiku fólki nokkurn skapaðan
hlut.
Lengi var talið að miklar setur
væru mikilvægur orsakaþáttur
bakverkja, en vísindarannsóknir
hafa ekki staðfest það. Hins vegar
versna bakverkir við setur hjá
mörgum ef ekki flestum bak-
sjúklingum. Vísindarannsóknir
styðja ekki notkun stoðbelta.“
Úrræðaskógurinn grisjaður
Smám saman var farið að grisja
meðferðarúrræðaskóginn og aukn-
ar kröfur voru gerðar um meðferðir
á vísindalegum grunni. Fjölfagleg
nálgun var tekin upp á 9nda ára-
tugnum og reynt að safna og tengja
saman aðferðir hinna ýmsu greina
læknisfræðinnar og sjúkraþjálf-
unar, sem líklegastar þóttu til ár-
angurs. Háls- og bakdeild St.
Franciskusspítala er byggð á þess-
um hugmyndum og hefur verið tek-
ið mið af hliðstæðum miðstöðvum,
einkum í Ástralíu og Bandaríkj-
unum.
Jósep kom deildinni á fót í sam-
starfi við Luciu de Korte sjúkra-
þjálfara, sem enn starfar við deild-
ina en er í barnsburðarleyfi þessa
dagana. Hann segir, að þótt heil-
mikið sé til af grunnvísindum sé
enn ekki ljóst, hver orsök bak-
verkja er. „Við vitum reyndar heil-
mikið um það frá hvaða vefjum í
hryggnum verkirnir koma og get-
um því stundað mun markvissari
meðferð við verkjunum en áður.
Hreyfingar byrja í hry
Háls- og bakdeild St. Franc-
iskusspítala í Stykkishólmi
var ein sú allra fyrsta sinnar
tegundar hérna megin Atl-
antsála. Nú hefur Evr-
ópuráðið boðið henni að
taka þátt í fjölþjóðlegu
verkefni á sviði greiningar
og meðferðar kvilla í hreyfi-
kerfi. Freysteinn Jóhanns-
son og Ragnar Axelsson
brunuðu í Stykkishólm.
Jósep Ó. Blöndal: „Almennt séð er ekki ástæða til að banna bakveiku fólki nokkurn skapaðan hlut.“
Í prentsmiðjunni, þar sem nunnurnar prentuðu áður gott veganesti í guðsorði, sækja sjúklingar háls- og bakdeildarinnar líkamlegan og andlegan styrk í sjúkraæfingarnar.